Helgarpósturinn - 01.06.1995, Page 6

Helgarpósturinn - 01.06.1995, Page 6
felldasta frétt UNGA- BÖRN FLÁÐÍ SMOKKA Þótt Birgi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Loð- skinns, finnist ekkert ógeðfellt við að flá ung- lömb eða andvana fædd lömb í hanskagerð verður það varla talið í geðslegri kantinum. Hann vill að bændur flái sem mest þeir megi og vill 3000 ung- lambaskinn í hanskana sína. Bændurnir eiga hins vegar að sjá um að flá smálömbin og salta fyrir Birgi. Næsta skref hjá Loð- skinni ervonandi ekki að taka andvana fædd börn í hanska eða nýja tegund ~ af íslenskum smokkum, óslítandi og ertandi un- aðsdrauma. Það væri ekki ónýtt fyrir þá að geta aug- lýst lífrænt ræktaða smokka í heimsins hrein- asta landi. Míkróbatísk al- sæla. Vonandi verður framleiðslan aldrei svo mikil að Loðskinnsmenn þurfi að taka næsta skref frá andvana fæddum börnum og biðji bændur landsins að flá ungabörn fyrir framleiðsluna. Ef eft- irspurnin verður meiri en framboðið ku vera offram- boð af fólki í heiminum og því gæti Loðskinn orðið stórfyrirtæki á alþjóða- vísu. Birgir hinn geðfelldi segir að til séu ógeðfelld- ari hlutir. „Sannarlega eru til ógeðslegri hlutir, t.d. þegar lambaskrokkum hefur verið hent í hakka- vélar með ull og öllu sam- an og kássan svo notuð í minkafóður." Það þarf ekki að taka fram að frétt- invaríTímanum. Borgarleikhúsið fær 120 milljónir í styrk á ári hverju og til stendur að hækka framlagið um 30 milljónir. Þrátt fyrir það hefur Sigurður Hróarsson leikhússtjóri sagt starfi sínu lausu þar sem honum hefur ekki tekist að afla leikhúsinu enn meiri styrkja frá hinu opinbera Halli af sýningum Borgarleik- hússins á yfirstandandi leikári kemur til með að nema um það bil 30 milljónum króna, að sögn Kjartans Ragnarssonar, formanns Leikfélags Reykjavíkur. Við þetta bætast 20 milljóna króna upp- safnaðar skuldir frá fyrri árum. Samanlagður rekstrarhalli leik- hússins nemur því nær 50 millj- ónum króna þrátt fyrir 120 millj- óna fjárframlags frá Reykjavíkur- borg. Sigurður Hróarsson leikhús- stjóri hefur sagt starfi sínu lausu vegna þess að honum mistókst að afla Borgarleikhúsinu enn meiri styrkja. Á sama tíma og kvartað er undan ónógum styrkj- um setja forráðamenn leikhúss- ins hins vegar hvert fallstykkið af öðru á fjalirnar og starfsem- inni virðist haldið áfram eins og ekkert sé sjálfsagðara. „Það er ekki rétt,“ segir Kjart- an. „Við höfum ítrekað skorið niður sýningar, fækkað verkefn- um, gert minni verkefni og svo framvegis. Síðasta frumsýning hjá okkur var í febrúar, og þá var hálfur veturinn eftir. Ég tel okkur bregðast við af fullri ábyrgð og þess vegna er tapið ekki meira en það er. Þetta eru í raun alltaf sömu milljónirnar sem við erum að velta á undan okkur, þetta er samanlagður uppsafnaður halli Borgarleikhússins frá því það hóf starfsemi sína. Við erum ekki að tapa 50 milljónum á hverju ári, þá væri hallinn kominn í 250 milljónir en ekki þessar 50 sem hann er og það er í rauninni kraftaverk að hann skuli ekki vera meiri. Borgarleikhúsið hef- ur verið rekið á hálfgerðum kraftaverkabasís aiveg frá því það opnaði og það gengur bara ekki upp til lengdar." Leikhús sem rekið er á krafta- verkabasís, eins og Kjartan orð- ar það, hlýtur hins vegar að þurfa að vanda verkefnavalið betur til að kraftaverkið geti gerst og reksturinn staðið undir Kjartan Ragnarsson, formaður Leikfélags Reykjavíkur. „Krakftaverk að hallinn skuli ekki vera meiri." sér. Eða hvað? „Hvert einasta stykki sem er tekið til sýningar er vissulega valið með það í huga að hjáipa kraftaverkinu,“ segir Kjartan. „Það er hins vegar staðreynd að það er vart til það verk sem stendur undir sér, ég gæti þann- ig ímyndað mér að það hafi verið tap á öllum uppfærslum Þjóð- leikhússins á árinu. Þessi rekstr- arhalli núna samsvarar í raun því sem upp á vantar tii þess að við njótum sambærilegra styrkja og önnur atvinnuleikhús alls staðar í kringum okkur. Og til að geta gert jafn mikið og Þjóðleik- húsið þyrftum við að fá annað eins í viðbót.“ 30 MILMÓMIR I VIÐBOT Að sögn Hjörleifs B. Kvaran, sem sat fyrir hönd Reykjavíkur- borgar í samstarfsnefnd um áframhaldandi rekstur leikhúss- ins, mælti nefndin með auknum framlögum til leikhússins þegar á þessu leikári. „Við mæltum með því að 15 milljónum króna yrði veitt til starfsemi Leikfé- lagsins þegar á þessu ári og að samsavarandi hækkun verði á framlögum borgarinnar á næstu árum.“ Þar fyrir utan mælir nefndin með því að Reykjavíkur- borg styrki aðra leikhópa með fimmtán milljóna króna framlagi til að greiða fyrir afnot þessara hópa af Borgarieikhúsinu. „Fyrir utan þessi auknu fjárframlög gerðum við fyrst og fremst til- löguleiðir til betri nýtingar húss- ins, á tímum sem það er ekki notað undir leiksýningar. Þá var mælt með því að leikhússtjóra yrðu fengin meiri völd en hann hefur í dag.“ ímftms Kjartan segir þetta síðasta at- riði mjög mikilvægt fyrir framtíð leikhússins. „Hingað til hefur ráðning leikhússtjóra farið fram í anda gömlu hippakynslóðar- innar. Það hefur verið gerð skoðanakönnun meðal starfs- manna, og sá umsækjandi sem þeim hefur litist best á verið ráðinn. Þetta hefur valdið því að starfsfólkið hefur haft tangar- hald á leikhússtjóranum og veikt stöðu hans gagnvart því. Samkvæmt nýju lögunum verð- ur leikhússtjóri hins vegar ráð- inn af leikhúsráði sem saman- stendur af stjórn Leikfélagsins og einum fulítrúa Reykjavíkur- borgar, og ráðið þarf ekki sam- þykki aðalfundar fyrir ákvörðun sinni. GMESILEGT HJA SIGURÐI „Afsögn Sigurðar gerir okkur kleift að ráða leikhússtjóra sam- kvæmt þessum nýju lögum og mér finnst það í raun glæsilegt hjá Sigurði að segja af sér nú. Þetta er eitt af fáum tilfellum sem ég þekki um að menn taki virkilega ábyrgð á gjörðum sín- um. Stjórnmálamenn og forstjór- ar fyrirtækja afsaka gjarnan há laun sín með því að þeir beri svo mikla ábyrgð, en það virðist vera sama hvað gengur á í kringum þá, þeir standa aldrei undir þessari ábyrgð sinni þótt þeir lendi í hverjum skandalnum af öðrum.“ Er hallinn þá Sigurði að kenna? „í rauninni ekki, þetta er eins og með karlinn í brúnni, hann getur verið ágætis karl þótt illa fiskist á dallinum.“ Hann getur verið ágætis maður, en varla góður skipstjóri ef hann fiskar ekkert... „Ég hef ekkert út á okkar sam- vinnu að setja, hins vegar setti hann sér ákveðin markmið og þau hafa ekki náðst. Það segir hann sjáifur og ég er alveg sam- mála því.“ Er þetta þá kannski allt saman leikurunum að kenna þegar upp er staðið? Hafa þeir haft of mikið tangarhald á Sigurði og í rauninni sett allt í mínus sjálfir? „Ég vil nú ekki ganga svo langt. En leikararnir hafa sjálfir séð ákveðna annmarka á þessu fyrir- komulagi og þessi nýju lög um ráðningarfyrirkomulagið eru sett með fullum stuðningi þeirra." FUEIRI EIU Á FOTBOLTAIUN Nýtt ráðningarfyrirkomulag leikhússtjóra og nýr leikhús- stjóri duga þó skammt til að draga úr hallarekstrinum ef hald- ið verður áfram á sömu braut og rándýr stykki sett upp trekk í trekk sem enginn vill sjá. Af því sem fram hefur komið hjá þeim Kjartani og Sigurði verður hins vegar ekki annað ráðið en aukin framlög frá hinu opinbera séu það eina sem mönnum detti í hug til að mæta rekstrarvandan- um. „Auðvitað á að gera ýmsar breytingar. Hugmyndin er að gjörbreyta og bæta nýtingu hússins en til þess þarf meiri peninga sem vonandi skila sér þá aftur í auknum tekjum. Það er alltaf dýrt að vera fátækur. Hins vegar stendur það alltaf eftir að leikhúsrekstur er ekki gróðafyr- irtæki í þeirri merkingu sem yfir- leitt er lögð í það orð. En leikhús og önnur menningarstarfsemi á íslandi á mikinn þátt í að skapa þjóðarímynd íslendinga og vit- undina um það að við séum ein- hvers virði sem sjálfstæð þjóð. Leikfélagið hefur um 60.000 manns sem áhorfendur á ári, sem er helmingi fleira en kemur á fyrstudeildarleiki í knatt- spyrnu. Þannig að áhorfenda- fjöldinn hlýtur að réttlæta rekst- ur þessa fyrirtækis þrátt fyrir allt.“ ■ „Vantar meiri pening1' pósturinn bar það undir Sigurð hafa hátt um; ég gaf mér ár í við- styrk, 15 milljóna aukastyrk í Hróarsson hvaða markmið það voru sem hann hafði sett sér en ekki náð, og hvers vegna þau náðust ekki. „Strax og ég kom til starfa sem leikhússtjóri gerði ég mér grein fyrir því að það var ekki fjárhags- leg forsenda fyrir þeim rekstri sem við vildum raunverulega hafa í þessu húsi,“ segir Sigurð- ur. „Á meðan Leikfélagið var enn í Iðnó var Ijóst að til þess að reka nýja húsið með fullum sóma þyrfti helmingi hærri framlög en Leikfélagið fékk síðasta árið sitt í Iðnó. Framreiknað til verðlags dagsins í dag þýðir það fjárþörf upp á um það bil 170 milljónir. Ég hef margoft farið bónarveg til menntamálaráðherra og borgar- stjóra, sent bréf, skýrslur, áætl- anir og rökstutt mál mitt á allan hátt en það hefur bara ekki dug- að til.vFyrir réttu ári síðan þegar ég var endurráðinn sem leikhús- stjóri setti ég sjálfum mér ákveð- ið markmið, sem ég var ekkert að bót til að fá fjárframlögin hækk- uð. Enda trúði ég að það væri hægt. Nú, það gekk ekki eftir og því hef ég sagt af mér.“ Nú stefnir hins vegar allt í að framlögin verði hœkkuð og það strax á þessu leikári. Það hefur engu breytt um þessa ákvörðun? „I fyrsta lagi eru þetta bara til- lögur sem á eftir að samþykkja, hver afgreiðslan verður hjá pólit- íska batteríinu veit ég ekki. Það eina sem ég veit er að það verður einhver hækkun á framlögum. En jafnvel þótt allt komi sem mælt er með í tillögum nefndarinnar þá er það talsvert undir því marki sem ég setti mér. Kannski setti ég mér óraunhæf markmið, en þá það. Ég fagna því hvernig tekið er á þessu núna, borgar- stjórinn hefur sýnt leikhúsinu ákveðinn skilning og það er mjög gott, en það bara dugar mér ekki.“ Er semsagt útilokað að reka húsið fyrir 135 milljóna beinan formi leigutekna af starfsemi ann- arra hópa sem borgin styrkir, auk þess sem inn kemur í aðgangseyri og öðrum tekjum? „Ég get ekki svarað því öðru- vísi en svo að ég persónulega tel alveg fráleitt að það sé hægt að reka fulla starfsemi í þessu húsi með lægri framlögum en 170-180 milljónum á ári. Og þá er alveg sama hvaða verkefni eru valin; stundum gengur vel, stundum illa, og það er ómögulegt að segja fyrir um slíkt. Auðvitað geta komið ár eins og fyrsta árið mitt hér, þegar 35.000 manns komu á Þrúgur reiðinnar, sem var ódýrt stykki í uppsetningu og bjargaði öllu. En slík stykki eru bara ekki á hverju strái og ekki hægt að stóla á þau. Áhorfendur ráða aðsókninni og þeir eru eng- an veginn fyrirsegjanlegir. Til að tryggja nægilegan sveigjanleika og metnað í starfseminni allt leik- árið þarf einfaldlega meiri pen- inga. Svo einfalt er það.“ ■ Sigurður Hróarsson fráfarandi leikhússtjóri. „Tel alveg frá- leitt að það sé hægt að reka fulla starfsemi í þessu húsi með lægri framlögum en 170-180 milljónum á ári." ■ f

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.