Helgarpósturinn - 15.06.1995, Qupperneq 10
IU
ARFRA
HVARFI
VALGEIRS
Valgeir hvarf frá heimili
sínu skömmu eftir miðnætti
þann 19. júní 1984 og hefur
ekki sést síðan svo sannað sé.
Kvöldið áður hafði Valgeir set-
ið heima hjá sér og verið að
teikna. Um miðnættið sofnaði
sambýlingur hans og þegar
hann vaknaði var Valgeir horf-
inn. Sjónvarpið var þá í gangi
og öll Ijós kveikt en reiðhjól
Valgeirs var horfið. Leit hófst
þó ekki fyrr en um mánaða-
mótin en það var einkum fíkni-
efnadeild lögreglunnar sem
rannsakaði hvarfið. Málið fór
síðan til RLR í ágúst og er þar
enn. Rannsókn hefur legið
niðri frá síðasta hausti og
heimildir innan lögreglunnar
hafa sagt að í raun sé bara
formsatriði að málinu hafi ver-
ið haldið opnu. Þar hafi lítið
sem ekkert verið unnið í mál-
MISHEPPIUAÐ
SMYGL
Rannsókn lögreglunnar
beindist fljótlega að fyrirætlun-
um um stórfelldan innflutning
á amfetamíni mánuðina fyrir
hvarfið. Vitað er að Valgeir fór
til Hollands i lok nóvember
1993 til þess að kaupa 1 til
1,5 kíló af amfetamíni en kom
tómhentur til baka við litla
hrifningu fjármögnunaraðila.
Valgeir var kominn í skuld við
fíkniefnasala ytra og ertalið
að þeir hafi tekið peningana
upp í skuld en sjálfur hélt hann
því fram að hann hefði verið
rændur. Einnig er mögulegt að
hann hafi sjálfur notað pen-
ingana eða efnin í eigin
neyslu. Valgeir fór aftur út í
desember og við heimkomuna
var stúlka, burðardýr hans,
tekin með 267 grömm af am-
fetamíni, eða hluta af því sem
koma átti í fyrstu ferðinni.
MORÐHÓTANIR
Sá sem fjölskylda Valgeirs
og lögreglan grunaði helst var
fjármögnunaraðili innflutn-
ingsins og stóð í hótunum við
Valgeir. I tvígang hið minnsta
fór Valgeirtil Hollands árið
sem hann hvarf en tókst ekki
að koma amfetamíni til baka.
Valgeir og sá ætluðu meðal
annars að hittast daginn fyrir
hvarfið til þess að „settla mál-
ið". Þessi aðili fór eftir hvarfið
á heimili Valgeirs og tók minn-
isbók Valgeirs og reif allt úr
henni fram að 19. júní áður en
hann skilaði henni. Einnig stóð
hann í hótunum við kunningja
Valgeirs eftir hvarfið hvort sem
það bendir til sektar eða sak-
ieysis. Hinn grunaði var vold-
ugur og í góðum samböndum
í Hollandi að mati lögreglunn-
ar en hafði farið halloka síð-
riiviivi i uuMuun 13. jum
1 1
Valgeir Víðisson á mjög langan afbrotaferil að baki og fíkniefnamálin hófust við
15 ára aldur. Hann var um tíma umsvifamikill sölumaður en síðustu tvö árin lá leiðin hratt
niður. Undir lokin var hann mjög djúpt sokkinn og hafði skapað sér óvild fjölmargra.
Það er samdóma álit allra sem
rætt hefur verið við vegna
þessa máls að Valgeir hafi verið
myrtur vegna viðskipta hans í
fíkniefnaheiminum. Hann hafði
lengi verið umfangsmikill í sölu
fíkniefna, stór milliliður með því
að kaupa fíkniefni í stórum
skömmtum af innflytjendum og
selja áfram til smásala, en einn-
ig flutti hann sjálfur inn efni og
seldi beint til neytenda.
Annars staðar á opnunni eru
síðustu mánuðir Valgeirs raktir
og þau fíkniefnamál sem hann
tengdist þá. Valgeir skuldaði
voldugum mönnum í fíkniefna-
heiminum stórfé, bæði hér
heima og erlendis og er talið
fullvíst að það tengist hvarfi
hans.
PJÚPT SOKKIIVIIVI
I EITURLYF
Undir það síðasta var Valgeir
kominn í mjög harða fíkniefna-
neyslu. Hann hafði reyndar ver-
ið lengi í neyslu og sölu og lög-
reglan telur að hann hafi verið
mjög umsvifamikill 1991-1992.
Þá lifði hann mjög hátt en eftir
það lá leiðin hratt niður á við.
Lögreglan hafði öruggar heim-
ildir fyrir heróínneyslu hans í
Amsterdam og hér heima var
hann þekktur sprautunotandi
með tilheyrandi lyfjanotkun. Að
auki þjáðist hann af banvænum
lifrarsjúkdómi sem stafaði af
sprautunotkuninni. Undir það
síðasta bjó Valgeir á Laugavegi
143 í kjalíaraholu ásamt öðrum
sprautunotanda og konu í mik-
illi neyslu.
Valgeir var á þessum tíma
orðinn vel þekktur í fíkniefna-
heiminum og í slagtogi við vafa-
sama aðila. Sem sölumaður
hafði hann slæmt orð á sér und-
ir það síðasta. Meðal annars
fékk hann spítt sem hann
blandaði til heíminga og skilaði
aftur. Með Jjví skapaði hann sér
óvild þess manns og kaupenda
þeirra beggja. Þá hefur verið
nefnt að vigt og gæði hafi ekki
verið upp á það besta, bindindi
ekki virt og hann hafi komið
ungu fólki á nálina. Fjölmargir
töldu sig því svikna í viðskipt-
um við Valgeir.
. Storskuldu
FPR ILLA UT UR
FIKIUIEFIUUM
Valgeir Víðisson er fæddur 11.
júlí 1964 og hefði því orðið þrí-
tugur hálfum mánuði eftir hvarf-
ið. Lengi vel bjó hann með föður
sínum og vann tilfallandi störf en
þó ekki reglulega. Þeir sem til
þekkja segja að hann hafi að
mestu haft lifibrauð sitt af sölu
fíkniefna. Um tíma braskaði
hann með bíla, seldi veiðimönn-
um ánamaðka á sumrin og greip
svo annað veifið í störf sem buð-
ust. Sem unglingur var hann um
skeið í Eyjum og stundaði þá sjó
um tíma. Um það leyti sem sonur
hans fæddist vann hann heilan
vetur við beitingar í Kópavogi.
Hann vann þá vel og hafði losað
sig mikið til úr fíkniefnaviðskipt-
um. Einnig hafði hann unnið eitt-
hvað við húsaviðgerðir.
Á unglingsárunum og fram yfir
tvítugt tilheyrði Valgeir klíku
sem var á kafi í neyslu fíkniefna.
Flestir þeirra eru hættir neyslu
en einn þeirra fullyrðir að Val-
geir hafi farið í meðferð á Vogi
fyrir nokkrum árum. Honum hafi
þó ekki verið mikil alvara með
því heldur hafi hann verið að ná
sér niður eftir mikla neyslu.
Valgeir var lágvaxinn og hæg-
látur framan af. Flestum ber
saman um að hann hafi átt erfitt
uppdráttar og fíkniefnin hafi ver-
ið hans leið frá vandanum. Með
tímanum sökk hann dýpra í
neysluna og fór að umgangast
vafasamara fólk. Hann fór illa út
úr neyslunni og með tímanum
varð hann sífellt erfiðari í skap-
inu. Hann fór lítið út á meðal
fólks og var lítt áberandi í undir-
heiminum en allir vissu hver
hann var.
Valgeir Víðisson. Afbrot hans tengd fíkniefnum hófust við
15 ára aldur en um tíma varð hann mjög stór á markaðin-
um og lifði hátt. Síðustu misserin sökk hann í mikla neyslu
með tilheyrandi fjárþröng og skapaði sér óvild fjölda aðiia
undirheimanna.
LAIUGUR
ABROTAFERILL
Valgeir á langan afbrotaferil að
baki þrátt fyrir ungan aldur.
Flest tengjast þau neyslu fíkni-
efna, innflutningi þeirra og sölu.
Auk þess hefur hann orðið upp-
vís að þjófnuðum og fleiri afbrot-
um. Fjöldi afbrotanna hleypur á
nokkrum tugum en dómar og
dómsáttir eru færri enda dæmt
samhliða í mörgum málum. Sam-
tals hefur Valgeir verið dæmdur
óvinsæll sölumaður undir lokin
226 skammta af LSD. Við yfir-
heyrslur vísaði hann einnig á 670
skammta til viðbótar af LSD sem
hann hafi póstlagt í Amsterdam
og sent heim. Jafnframt upplýsti
hann að Valgeir og kunningi
hans hefðu átt megnið af sýrunni
eða 600 skammta sem þeir hefðu
fjármagnað. Við húsrannsókn
hjá Valgeiri fundust auk þess 8,6
grömm af hassolíu og ýmis
áhöld. Dómur féll í október 1986
og hlaut Valgeir eins árs fangelsi
að frádregnum 5 gæsluvarð-
haldsdögum. Fyrr á árinu hafði
hann enn gengist undir dómsátt
fyrir að hafa haft fíkniefni í fórum
sínum.
FÍKIUIEFIVALEIÐAniGUR
UM EVROPU
í mars 1987 var höfðað mál á
hendur Valgeiri við fimmta
mann. Valgeir hafði ásamt
tveimur félögum sínum keypt
70-75 grömm af amfetamíni í
Rotterdam í júlí 1985. Efnið
fluttu þeir til Spánar og seldu
15-20 grömm á Torremolinos.
Þaðan var farið til Marokkó þar
sem keypt voru 800 grömm af
hassolíu og keypti Valgeir auk
þess 60 grömm af hassi. Undir
lok mánaðarins smygluðu þeir
efnunum til Amsterdam og
földu þau. Síðan réðu þeir tvö
burðardýr um haustið til að
sækja efnin en þau voru hand-
tekin á Schiphol með 675
grömm af hassolíu, 106 grömm
af hassi og 24 grömm af amfet-
amíni. Ekki var hægt að dæma
Valgeir og félaga fyrir þann þátt
sem átti sér stað á Spáni og í
Marokkó. Dómurinn var því að-
eins 6 mánaða fangelsi.
Frá þessum tíma hefur ekki
verið kveðinn upp dómur yfir
Valgeiri svo kunnugt sé og ekki
fengust upplýsingar um hvort
hann hefði gengist undir dóm-
sáttir á undanförnum árum. En í
júlí á síðasta ári var þingfest hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur ákæra
á hendur Valgeiri þar sem hann
er sakaður um að hafa reynt að
smygla 267 grömmum af amfet-
amíni til landsins í desember
1993 auk þess að hafa í sjö
skipti verið með fíkniefni í fór-
um sínum.
til fangelsisvistar í eitt ár og níu
mánuði.
Valgeir var aðeins 15 ára þegar
hann komst fyrst í kast við lögin
eða í ársbyrjun 1980. Þá gekkst
hann undir dómsátt með sektar-
greiðslu vegna þjófnaðar en
ákæru var frestað skilorðsbund-
ið til tveggja ára vegna ungs ald-
urs. Síðar á árinu greiddi hann
sekt vegna ölvunar á almanna-
færi í Vestmannaeyjum.
Fyrstu afskipti lögreglunnar af
Valgeiri vegna fíkniefnamála
voru árið 1981 þegar hann var 15
ára. Hann féllst á greiðslu sektar
fyrir fíkniefnaneyslu. Þessi tvö
brot reyndu ekki á áðurnefnt
skilorð.
Afbrotaferillinn hefst þó fyrst
fyrir alvöru þegar Valgeir er ný-
orðinn tvítugur eða á miðju ári
1984. Þá gekkst hann undir sátt
vegna fíkniefnamála og tengdist
fleiri afbrotum. Fyrsta fangelsis-
dóminn hlaut Valgeir í ársbyrjun
1985 fyrir þjófnað. Dómurinn
hljóðaði upp á eins mánaðar
fangelsi en var skilorðisbundinn
í þrjú ár. Nokkrum mánuðum
seinna gekkst hann undir enn
eina dómsáttina í formi sektar
fyrir fíknefnaneyslu.
UMTALSVERÐ
FIKIUIEFIUASMYGL
Valgeir var tvítugur þegar
hann var dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi í mars 1985. Ári áð-
ur hafði lögreglan handtekið Val-
geir með sex umslög af amfeta-
míni og við húsleit hjá honum
fundust 23 umslög til viðbótar
með sama efni, 2 umslög af kóka-
íni, tveir skammtar af LSD, 3
grömm af hassi og ýmis áhöld til
fíkniefnaneyslu. Valgeir sat í
gæsluvarðhaldi í 21 dag á meðan
rannsókn fór fram. Við yfir-
heyrslur viðurkenndi hann að
hafa keypt 20 grömm af amfet-
amíni og 3 grömm af kókaíni á
Kanaríeyjum í desember 1983 og
smyglað því til landsins í janúar.
Þá blandaði hann 15 grömmum
af mjólkursykri út í amfetamínið
og sagðist hafa selt fimm grömm
en sjálfur neytt kókaínsins. Hass-
ið sagðist hann hafa keypt hér á
landi en fundið sýruna á
skemmtistað.
Um svipað leyti varð Valgeir
uppvís af öðru fíkniefnasmygli. í
nóvember 1984 var kunningi
hans handtekinn á Keflavíkur-
flugvelli með 104 grömm af am-
fetamíni, gramm af kókaíni og
Víðir Valgeirsson hefur leitað sonar síns linnulaust í eitt ár. Allt bendir til sektar eins manns en
ekkert er aðhafst. Nú vill hann finna líkið svo hægt sé að jarða það þannig að martröðin taki enda.
„Allir í fjölskyldunni eru
mjög daprir yfir þessu og
finnst það algjör martröð að
ekkert gangi. Við höfum ver-
ið að leita og leita en þessari
martröð linnir ekki fyrr en
eitthvert svar fæst,“ segir
Víðir Valgeirsson en ekkert
hefur spurst til sonar hans,
Valgeirs Víðissonar frá því að
hann hvarf fyrir ári síðan.
OMURLEG BIÐ
„Þetta er búin að vera mjög
erfið bið fyrir okkur öll og í
raun alveg ömurleg. Erfiðast
var kannski að skýra þetta fyrir
sjö ára gömlum syni Valgeirs.
Ég fór með honum niður á lög-
reglustöð þar sem þeir ræddu
við hann og reyndu að útskýra
leitina og að hann væri kannski
dáinn. Það kom líka prestur
heim sem ræddi við hann og ég
gat leitað til lögregiunnar þegar
það var erfitt hjá honum. Það er
svo erfitt að skýra út fyrir
svona litlum krökkum. Þetta
hefur verið mjög erfitt fyrir
hann. Það er agalegt að missa
pabba sinn.“
Víðir segir að lögreglan í
Reykjavík hafi verið hjálpleg.
Þeir hafi boðið upp á áfallahjálp
og hann hafi rætt bæði við
prest og sálfræðinga. „En ég
held að ég hafi ekki grætt mikið
á því. Ég hef verið á kafi í þessu
máli og því ekki haft tíma til að
taka þetta út. Það getur verið
að áfallið eigi eftir að koma þótt
það hafi verið mjög erfitt hjá
mér á köflum. Það er svo ömur-
legt að lenda í svona. Fólk held-
ur alltaf í vonina og maður vill
finna sinn aðstandanda svo
maður geti jarðað hann. Þá veit
maður alla vega hvar hann er
niðurkominn. Verst er að þetta
er af mannavöldum og það er
verið að fela líkama mannsins.“
ALLT BEIUDIR
A EIIUIU MAIVIIU
Víðir segir að ekkert hafi í
raun komið fram sem skýri hvar
Valgeir sé niðurkominn. Það sé
hins vegar alveg öruggt að hon-
um hafi verið fyrirkomið eins og
hann taldi reyndar frá upphafi.
Víðir segist frá upphafi hafa
grunað sama manninn um að
vera valdur af hvarfinu. Sá viti
allt um málið hvort sem hann
hafi fyrirkomið honum sjálfur