Helgarpósturinn - 15.06.1995, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 15.06.1995, Blaðsíða 19
Um síðustu helgi stóð Vífilfell fyrir innreið nýrrar bjórtegundur, Foster's Lager, innreið á íslandsmarkað með pompi og prakt. Slíkt þykir vart í frásögur færandi nú til dags, en troðfullt hús af áhugasömum smökkurum á Kaffi Reykjavík á föstudags- kvöldið bendir þó óneitanlega til þess að hér sé enginn venjulegur bjór á ferðinni. Það er enda raunin, því Foster's kemur alla leið frá Ástralíu og er frægastur allra þarlendra bjóra, og ekki að ástæðulausu. j. j Ástralski bjórinn Foster’s Lag- er er seldur við miklar vinsældir í 120 löndum víða um heim og um síðustu helgi hófu áströlsku bjórframleiðendurnir sitt nýj- asta landnám þegar heljarmikil kynning á þessum fræga bjór fór fram í húsakynnum Kaffi Reykja- víkur. Af viðbrögðum gesta á Foster’s kynningunni verður ekki annað ráðið en að íslending- ar komi til með að taka þessari framleiðslu andfætlinga okkar jafnvel og aðrar þjóðir. FOSTER'S FRÁ 1888 Foster bræðurnir komu til Mel- bourne frá New York árið 1888. Með þeim í för voru þýskættað- ur bjórsérfræðingur og sérfræð- ingur í kælikerfum. Með hjálp þessara sérfræðinga reistu bræðurnir Foster’s Lager brugg- verksnjiðjuna í Collingwood, sem er í næsta nágrenni Mel- bourne. Byrjað var að brugga í nóvember 1888 og bjórdrykkju- menn í Melbourne fengu fyrsta Foster’s bjórinn í febrúar 1889. Foster’s var töluvert öðruvísi en sá bjór sem Ástralir áttu að venj- ast og olli byltingu í bjórmenn- ingu þeirra. Hann var bruggaður með þýskri aðferð, en fram að þeim tíma hafði allur bjór í Ástr- alíu verið bruggaður með ensku aðferðinni og hráefnið, malt og humall, flutt inn frá Englandi. Foster’s var alltaf borinn fram ís- kaldur, sem einnig var nýjung, og allir veitingastaðir sem buðu upp á Foster’s fengu ókeypis birgðir af ís með hverri pöntun. Af ein- hverjum hagskreppu og áhrif háværra bindindispostula hélt Foster’s áfram sigurgöngu sinni um ástr- alskar bjórgrundir og var orðinn útflutningsvara, þótt í litlum mæli væri, árið Í901. Vegvísir er róar þyrsta í eyðimörkum Ástraiíu. Hjálp er skammt undan. Ein af astæðunum fyrir vel- gengni Foster's er ímynd Astralíu. Þar er heitt og því nauðsyn á góðum drykk til að svala þorstanum - en einnig ímynd Ástrala sjálfra, sem er afslöppuð lífsgleði. ástæðum ákváðu Fosterbræð- urnir að selja bruggverksmiðj- una og sigla aftur til New York, aðeins ári eftir að framleiðsla hófst. Eitt fyrsta verk nýrra eigenda var að setja auk- inn kraft í markaðs- setninguna. Þeir keyptu heila 360 eldspýtustokka með áletruninni „Drink Fost- er’s Lager“ og settu upp bjórkrana í fjölda hótela í Melbourne. Þrátt fyrir efna- Fyrst um sinn verður Forster's aðeins seldur á veitingahús- um á íslandi en fyrirtækið framleiðir að sjálfsögðu einn- ig bjór til sölu í verslunum. 700 MILUOMIR LITRA Það var ekki fyrr en 1981 að Foster’s fór fyrst að renna úr bjórkrönum breskra kráa. í dag, aðeins fjórtán árum síðar, er Foster’s næstvinsælasti lager- bjórinn á krám og klúbbum Bret- lands. En það eru ekki bara Bretar sem kunna að meta „kengúru- bjórinn" eins og sumir kalla hann. Stærstu sendingu af er- lendum bjór, sem nokkurn tím- ann hafði komið til Bandaríkj- anna, var skipað upp í New York árið 1976. Sú sending samanstóð af milljón dósum af Foster’s. Að- eins ári síðar var salan í Banda- ríkjunum komin upp í 10 milljón- ir lítra á ári. Og þótt Foster’s sé vinsælasti bjórinn í Ástralíu, þá ná andfætlingar okkar ekki að innbyrða nema sæmilegt brot af heildarframleiðslunni. Af sjö hundruð milljón lítrum, sem ár- lega eru bruggaðir af Foster’s, drekka heimamenn ekki „nema“ tvö hundruð milljónir lítra. Rest- in, hálfur milljarður lítra, er drukkin af Foster’s aðdáendum út um allan heim. Og núna er semsagt hægt að fá þennan ástr- alska úrvals svaladrykk hérna hjá okkur lfka. Cheers, mate! ■ Foster's var töluvert öðru- vísi en sá bjór sem Ástralir áttu að venj- ast og olli byltingu I bjórmenningu þeirra. Hann var bruggaður með þýskri aðferð, en fram að þeim tíma hafði all- ur bjór í Ástr- alíu verið bruggaður með ensku aðferðinni og hráefnið, malt og humall, flutt inn frá Englandi. Foster's var alltafborinn fram ískaldur, sem einnig varnýjung, og allir veitinga- staðirsem buðu upp á Foster's fengu ókeypis birgð- irafísmeð hverri pöntun.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.