Helgarpósturinn - 15.06.1995, Síða 13
sem kallaður er. Þetta eru báðir
feikilega góðir menn og ábyrgir.
Ég þekki Alla miklu betur per-
sónulega og ef einhver kemst til
himnaríkis þá er það hann. Hann
er sérlega góður og vel innréttað-
ur maður. Eg vildi sjá hann á þingi
því hann veit hvað lífið er, er
kunnugur atvinnuvegum þjóðar-
innar og hefur aldrei farið á haus-
PETUR PETURSSOIU
Fyrst vil ég koma með fyrir-
spurn. Getur HELGARPÓSTURINN
komist að því fyrir mig hvort það
var einn eða fleiri menn sem skrif-
uðu undir kenninafninu Hákarl í
gamla Helgarpóstinum. Það þætti
mér athyglisvert að vita.
En þegar ég er spurður um at-
hyglisverða manneskju þá kemur
upp í hugann sagan af Einari Ben. á
elliárum. Þá var farið að slá útí
fyrir honum, eins og hendir á
bestu bæjum, og hann ruglaði
saman tveimur mönnum, Ágústi
H. Bjarnasyni prófessor og Sigfúsi
Blöndal bókaverði og orðabókar-
höfundi. Hann sameinaði þá í ein-
um manni og kallaði Ágúst Blön-
dal. Þá sagði Árni Pálsson: „Ja, það
væri ákaflega athyglisverð mann-
eskja.“
Ég vil ekki draga menn í dilka.
Ég skal þó nefna einn af samferða-
mönnum úr blaðamannastétt,
sem mér þótti ákaflega athyglis-
verður, en vil þó ekki nefna at-
hyglisverðastan. Það var Vilhjálm-
ur S. Vilhjálmsson, V.S.V. eða Hann-
es á horninu. Hann var bæklaður.
Hann var krypplingur. Hann var
allur hnýttur saman með ólum. Á
kvöldin spennti hann af sér ólarn-
ar sem héldu þessum veikbyggða
líkama, sem var eins og fífukveik-
ur.
Hann var nemandi föður míns á
Eyrarbakka og faðir minn bar
hann stundum á háhesti í skól-
ann. Hann var ákaflega vel gefinn
og braust til mennta. Hann var
kommúnisti, loks Alþýðuflokks-
maður og endaði sem ritstjóri Al-
þýðublaðsins. Hann skrifaði
fjölda bóka, m.a. Við byggðum
þessa borg sem geymir einhverj-
ar bestu lýsingar á Reykjavík fyrri
tíma. Þrátt fyrir fötlun sína lét
hann aldrei bugast. Slík var hetju-
lundin. Ég dái hann og hef hann til
vegs og virðingar fyrir þau afreks-
verk sem hann vann. Hann var
þrekmenni. Hann var ofurhugi.
Hann hét Vilhjálmur Sigursteinn
og kannski þau tvö nöfn hafi borið
hann þangað sem hann ætlaði sér
að fara.
JÓIU BALDVIIU
HAIUnilBALSSOIVI
Gefum okkur að þessi athyglis-
verða persóna sé stjórnmálamað-
ur. Gefum okkur að hún sé ekki
lengur í tölu lifenda en nýlega
horfin úr þessum heimi. Þá er sá
maður sem fyrst kemur upp í hug-
ann Willy Brandt. Hann var athygl-
isverður fyrir margt. Ég sá hann
fyrst í gríðarmiklu tjaldi sem hýsti
svo að segja alla heimsforystu
sósíaldemókratísins í Líma í Perú
árið 1986. Þar var hann í essinu
sínu sem forseti Alþjóðasam-
bands Jafnaðarmanna. Það sóp-
aði að karlinum, það geislaði af
honum. Hann var kátur og hlýr.
Willy Brandt kom til íslands
nokkrum mánuðum áður en hann
dó, þá orðinn nokkuð við aldur.
Rúnum ristur en eins og venju-
lega glaðsinna. Gamli Lebensmað-
urinn var enn í fullu fjöri. Hann
reykti og drakk, en var með unga
konu sína sem var til mikilla vand-
ræða því hún var að reyna að
gera hann að góðtemplar. Hún
spillti mjög fyrir þessari heim-
sókn en við reyndum að snið-
ganga hana sem mest við mátt-
um. í þessari heimsókn fékk ég
aftur sömu myndina af Villa og í
Líma. Willy Brandt lét sér fæst
mannlegt óviðkomandi. Hann
hafði heimssýn. Hann breytti evr-
ópskri hreyfingu í alþjóða hreyf-
ingu. Hann var maður friðar og
Það ku vera erfitt
fyrir ríka menn að
komast til himnarík-
is en Regína Thorar-
ensen er ekki í vafa
um að hliðið opnist
fyrir Alla ríka.
sátta, en lét þessa leiðinda fjöl-
miðlapólitík aldrei þröngva sér
inn í ramma hins vammlausa
heiðursmanns, sem er einhver
leiðinlegasta manngerð sem fyrir-
finnst. Hann er minn maður í dag.
KRISTÓFER
SVAVARSSOM
Ég nefni Sigfús Daöason vegna
afburða gáfna og þekkingar á
húmanískum fræðum og þess
hvernig hann miðlar þeirri þekk-
ingu. Hann er gamaldags húman-
isti og þeir eru að hverfa útí busk-
ann vegna þess að húmanisminn
er horfinn og höfundurinn er
dauður og nú er það bara textinn
sem skrifar sig sjálfur.
í viðkynningu er hann afar
þægilegur maður, glettinn og með
góðan húmor. Ég get ekki aðskilið
manninn Sigfús Daðason frá
skáldinu Sigfúsi Daðasyni eða
heimspekingnum Sigfúsi Daða-
syni. Þetta er allt sami maðurinn
sem býr yfir afar skarpri sýn á
veruleikann. Hann er auðvitað
Sigfús Daðason og Elías
Mar, tvö skáld sem eru
Kristófer Svavarssyni meira
en lítið minnistæð.
barn síns tíma og sinnar kynslóð-
ar, en það hefur ekki komið neinn
sem fyllir upp í jakkafötin hans.
Ég hef aldrei tekið hann beint til
fyrirmyndar því við erum mjög
ólíkir menn, en hann hefur alltaf
verið þarna í mínu hugskoti sem
ein af stjörnunum á festingunni.
Ég get einnig nefnt Elías Mar. Að
sitja til borðs með Elíasi Mar er
eins og að kynnast bókmennta-
sögunni sem aldrei var skrifuð.
Þar fær maður allar þær víddir á
Stein Steinarr og Halldór Laxness
sem hvergi er getið um í lærðum
ritgerðum. Maðurinn er afskap-
lega góður drengur, stórskemmti-
legur og frábær, bæði sem frá-
sagnarmaður og húmoristi.
HERMAIUIU
GUniRIARSSOIVI
* *> ^
Ég vil nefna korn-
unga, þroskahefta vin-
konu mína sem ég
kynntist á Akureyri
fyrir nokkrum árum.
Hún hét íris Dögg Óla-
dóttir og dó í vetur.
Hún hreif mig á sama
augnablikinu og við
hittumst. Hún var svo
hrein og tær, full af lífsgleði og já-
kvæðni og hallmælti engum. Ef ég
hefði brot af þessum eiginleikum
hennar þá teldi ég mig hólpinn.
Hún vissi að hverju stefndi með
dauða sinn en lífsgleði hennar og
styrkleiki hreif aðra með sér. Það
var með ólíkindum. Þetta var eng-
in sýndarmennska. Hún var ekki
að reyna að vera önnur en hún
sjálf, en samt var hún svo mikil.
Hún var lifandi kraftaverk allan
tímann. Hún hafði líklega meiri
áhrif á mig en nokkur annar, hitti
mig í hjartastað og gaf mér mjög
mikið.
hrafiu
GUIUIULAUGSSOIU
Yfirleitt þykja mér konur at-
hyglisverðari en karlmenn. Og
þær konur sem mér hafa þótt at-
hyglisverðastar hef ég yfirleitt ort
eða skrifað um. í Hinum helgu vé-
um er að finna þær tvær sem mér
hafa þótt hvað athyglisverðastar,
það er að segja Helgu og Kollu
sem báðar höfðu geysileg áhrif á
mig í æsku. Þær hétu víst í raun-
veruleikanum einhverjum öðrum
nöfnum, sem ég man ekki í bili. En
þær eru þversumman af þeim
óforgengileika sem ég hef fundið í
ýmsum konum. Síðan valdi ég
Óldu Siguröardóttur til að leika
Helgu og Tinnu Finnbogadóttur til
að leika Kollu svo það segir
ábyggilega eitthvað um þær. Eg
get líka nefnt þriðju konuna sem
er Embla í Hvíta víkingnum og ég
get eiginlega ekki gert upp á milli
Emblu og Maríu Bonnevie sem lék
hana. Ég á oft erfitt með að gera
upp á milli sögupersónunnar og
Velkomin um borö í Boeing 737 vél Emerald Air til Noröur írlands og til Englands. 30 júni hefst reglubundið
flug frá Keflavik alla þriðjudaga og föstudaga. Nýr valkostur í farþegaflugi og ódýr fargjöld. Góða ferð!
Öll gjöld innifalin í verði
Sölustaðir: Ferðaþjónusta bænda, sími 562-3640
Ferðaskrifstofan Alis, sími 565-2266 Ferðaskrifstofa Stúdenta, slmi 561 -5656
Ferðaskrifstofan Ferðabær, sími 562-3020 Norræna ferðaskrifstofan, slmi 562-6362
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, sími 562-1490 Ferðaskrifstofa íslands, slmi 562-3300
ölmiðlar
ffl
ÚTVARPí
KREPPU
Ég held að það sé ekki
misskilningur hjá mér að
það sé ekkert sérstakt að
gerast I útvarpi á (slandi í
dag. Bæði Bylgjan og Rás
2 keyra á nánast óbreyttri
dagskrá eins og hún var
fyrir fimm árum eða svo.
Eini munurinn er sá að
bestu kraftarnir eru farnir
eitthvað annað. Sam-
kvæmt könnunum er
ákaflega lítið hlustað á
aðrar stöðvar, eftir því
sem mér heyrist, frekar
vegna íhaldssemi hlust-
enda en að dagskrár
þeirra séu verri en stóru
stöðvanna tveggja. Alla
vega má þar á stundum
heyra tilraun til að gera
einhvern veginn öðruvísi
útvarp.
Ihaldssemi Bylgjunnar
og Rásar 2 hlýtur frekar
að stafa af ótta en að
þessar stöðvar hafi
rambað á einhverjar
töfraformúlur í dagskrár-
gerð. Mér sýnist æ sjaldn-
arvitnað til fréttatengdr-
ar dagskrár þeirra í frétta-
tímum stöðvanna og ég
get lifað svo mánuðum
skiptir án þess að einhver
vilji tala við mig um eitt-
hvað sem hann heyrði I
útvarpi. Það er því eins
og dagskráin sé aðallega
send út fyrir auglýsendur
og starfsfólkið. Og svo
náttúrulega þennan
fimmtíu manna hóp eða
svo sem hringir í þjóðar-
sálirnar — sem mér
reyndar skilst að hafi
meira og minna verið
settur í bann.
Ég er með eina kenn-
ingu um þessa lognmollu
á útvarpsstöðvunum. Hún
er sú að þær hafi ekki
brugðist við 19:19, Dags-
Ijósi, Eiríki, Stefáni Jóni,
Hannesi og Merði og
öðru sjónvarpsefni sem
hefur ákaflega líkan tón
og útvarpsstöðvarnar eru
að reyna að halda úti.
Sjónvarp og útvarp eru
svo missterkir miðlar að
ef sjónvarpið setur putt-
ann á eitthvert efni eða
framsetningu verður út-
varpið að gjöra svo vel að
láta sér detta eitthvað
annað í hug.
Það hefur farist fyrir.
Gunnar Smári Egilsson
EMERALD AIR
- lengra fyrir lægra verð