Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.10.1995, Qupperneq 5

Helgarpósturinn - 05.10.1995, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER1995 5 Nei er ekkert svar eftir Jón Tryggvason er fýrsta leikna íslenska kvikmyndin sem bönnuð er börnum innan sextán ára „Þaö er búið að útiloka heila kynslóð bíógesta“ - segir Úlfur Hróbjcirtsson, einn framleiðenda myndarinnar Sá vafasami heiður, að vera fyrsta leikna íslenska kvikmyndin sem Kvikmyndaeftirlit ríkisins bannar börnum innan sextán ára, hefur nú fallið í skaut Nei er ekkert svar, nýj- ustu kvikmynd Jóns Tryggvasonar, sem frumsýnd verður í kvöld, fimmtudagskvöld, í Bíóborginni. „Við erum vitaskuld mjög óhress með þennan úrskurð Kvikmyndaeft- irlitsins, svo vægt sé til orða tekið. En þar sem við sjáum hinsvegar ekki færa leið framhjá þessu banni höldum við náttúrulega okkar striki og bítum á gamla góða jctxlinn," sagði Úlfur Hróbjartsson, kvik- myndatökumaður og einn framleið- enda myndarinnar, í stuttu spjalli við Helgarpóstinn í gærkvöldi. „Menn geta rétt ímyndað sér til hversu mikils trafaia þetta harka- lega bann er við kynningu myndar- innar. Við erum hreint út sagt stein- hissa á svo óvægri umfjöllun Kvik- myndaeftirlitsins. Ég vil kannski ekki ganga svo langt að segja okkur helsár, en þetta er í öllu falli eitt- hvað sem enginn sá fyrir. Þarna er með einu pennastriki búið að úti- loka heila kynslóð bíógesta frá því að sjá myndina og hvað sem hver segir um réttmæti úrskurðar Kvik- myndaeftirlitsins í þessu tilfelli er það alltént öruggt mál að íslenskir kvikmyndagerðarmenn þurfa enga óvini þegar þeir eiga aðra eins vini og þessa kóna hjá Kvikmyndaeftir- litinu. Það eru umtalsverðar fjár- hæðir sem við töpum á þessum úr- skurði og þarf ekki mikinn reikni- haus til að sjá hversu slæmt það er fyrir kvikmyndagerðarmenn sem hanga á horriminni," sagði Úlfur að lokum. „Svarthvít hryllingssýn á sjúkt samfélag," hafði HPá orði um mynd- ina í fyrirsögn fyrir tveimur vikum. Það mun liggja nokkuð nærri lagi því sú meðferð sem ofbeldi og kynlíf fá í myndinni er óhefðbundin á ís- lenskan mælikvarða, að sögn kunn- ugra, og þannig umfangsmikil í myndinni. Sjálfir hafa aðstandendur myndarinnar sagt að þarna megi sjá tilþrif sem svipi til efnistaka spennu- myndaleikstjórans Johns Woo, en sá er þekktur í kvikmyndaheiminum fyrir hráa og miskunnarlausa sýn á undirheimalíf glæpamanna þar sem fáum ef einhverjum persónum er þyrmt. í stíl við þetta hafa í myndar- lok Nei er ekkert svar átt sér stað eiturlyfjaviðskipti og -neysla, svik og prettir, barsmíðar, skotbardagar, sprengjutilræði og banvænar atlög- ur að þjónum réttvísinnar, morð á glæpamönnum og sakleysingjum, nauðganir og veisluhald í óhófi. „Það er kannski von að Kvikmynda- eftirlitinu hafi verið brugðið," sagði einn heimildarmanna HP í gær- kvöldi, „ræfilsgreyjunum." Bankastræti - Sími: 5519900 Jón Ormur Halldórsson, dó- sent í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, hefur ekki mikið álit á þjóð sinni ef marka má viðtal sem birtist við hann í splunkunýju Stúdentablaði. Það eru svo sem engin ný tíð- indi þegar hann á í hlut. Hann mun til dæmis hafa lýst því yfir fyrir um það bil tveimur árum að hann væri fyrir löngu hætt; ur að lesa íslensk dagblöð. í viðtalinu var hann meðal ann- ars spurður hvort íslendingar hefðu einhver áhrif á alþjóða- mál en Jón Ormur gaf skít fyrir það. Hann segir til dæmis: „Það lítur enginn í veröldinni hingað um forystu, hvað sem mönnum dettur í hug að hjala um þau efni. Af hverju ættu þeir iíka að gera það? Hvaða þekkingu höfum við á alþjóða- stjórnmálum, sem hugsum ekki um annað en okkur sjálf?“ Hvað sem segja má um Jón Orm verður hann seint sakað- ur um sérgæsku því hvað segir ekki: Aldrei að slá á höndina sem gefur þér að éta... Það er alltaf ánægjulegt ef veitingahús taka upp á að lækka verð á víni — sem er ein- hver mesti útgjaldaliður þeirra sem hafa gaman af að vera tii. Þannig hafa Andrés Magnús- son og aðrir aðstandendur Kaffibarsins ákveðið að skipta um gír á miðvikudagskvöldum, en frá og með gærkvöldinu og að minnsta kosti fram að jólum verður verð á rauðvínglasi á Kaffibarnum 300 krónur. Hér er ekki um að ræða einhverja eina tegund hússins heldur margar rauðvínstegundir frá ýmsum löndum. Má þar nefna rauðvín frá Suður-Ameríku, frönsk rauðvín, spænsk o.fl. Rauðvín á miðvikudagskvöld- um hefur jafnframt í för með sér að stemmningin verður allt önnur en þeir sem sækja bar- inn stíft eiga að venjast; enginn hávaði, ekkert rokk og ekkert teknó heldur rauðvín, ljúfir tónar og rómantík... Fátt er nú meira rætt en hugsanlegir kandídatar í forsetaembættið. Ritstjórn Helgarpóstsins barst það til eyrna að rithöfundurinn og vikupiltur Alþýðublaðsins, Hallgrímur nokkur Helgason, hefði verið þess albúinn að bjóða sig fram til embættis ef Vigdís Finnbogadóttir tæki þá ákvörðun að fara aftur fram. Eins og þjóð veit þá kom ekki til þess og mun það draga nokkuð úr möguleikum þess að Hallgrímur verði í framboði. Þó er aldrei að vita því Hall- grímur er ekki þekktur fyrir að segja nei ef til hans er leitað. Hann virðist ekki láta sér neitt mannlegt óviðkomandi: Standtrúður, rithöfundur, pistlahöfundur, rappari, Al- þýðuflokksmaður og skíða- maður svo fátt eitt sé nefnt. Varðandi þau áform Hallgríms að bjóða sig fram ef Vigdís gæfi kost á sér til áframhaldandi setu á forsetastóli er einkum vert að vekja athygli á áður- nefndum tengslum Hallgríms við Alþýðublaðið. Það hefur verið í fararbroddi þeirra sem gagnrýnt hafa störf Vigdísar og greinilegt að blaðið treystir sínum manni vel til æðstu met- orða auk þess sem það virðist hafa óbilandi trú á vinsældum Hallgríms... ---- 1. hæð---- Fimmtudags-y föstudags- og laugardagskvöld Jóhann Sigurðsson teikari ásamt Þorsteini Gauta píanóleikara ---- 2. hæð---- Föstudags- og laugardagskvöld saLSA ---- 3. hæð --- Dúndrandi diskó Frítt inn fimmtudags- og sunnudagskvöld. Aðgangseyrir 500 kr. eftir kl. 23:00 föstudags- og laugardagskvöld. I4fef*t®®í|g#ís»Sí: . Víim VIÐ AUSTURVÖLL Setning féll niður Síðasta setningin í leik- dómi Eyvindar Erlends- sonar um Hvað dreymdi þig, Valentína? féll niður. Hún hijóðaði svo: „Guðrún stendur melr en fyrir sínu og sýningin siær án efa í gegn.“ Viðkomandi eru beði>- ir velvirðingar.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.