Helgarpósturinn - 05.10.1995, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER1995
PÖsturmn
Útgefandi: Miðill hf.
Framkvæmdastjóri: Þorbjörn Tjörvi Stefánsson
Ritstjóri: Karl Th. Birgisson
Ritstjómarfulitrúar: Guðrún Kristjánsdóttir
Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson
Setning og umbrot: Helgarpósturinn
Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Óþefur úr
fortíðinni
*
IHelgarpóstinum í dag er frásögn af nýlegum fundi þar
sem formaður samtakanna Norrænt mannkyn, Einar
S. Jónsson, lýsir skoðunum sínum á útlendingum og
aðfluttum íslendingum. Þær eru, í sem stytztu máli, að
vísa eigi þeim úr landi, sem eiga uppruna á fjarlægum
slóðum og aðhyllast aðra trú en meirihluti íslendinga,
og loka eigi landinu fyrir öðrum en takmörkuðum fjölda
kristinna Evrópubúa. Ennfremur að norrænir menn séu
öðrum fremri að öllu atgervi. Og svo framvegis.
Þetta eru, með öðrum orðum, hugmyndir sama stofns
og þær sem leiddu til þrautskipulagðasta þjóðarmorðs
sögunnar um miðja þessa öfd — hugmyndir sem eiga
engan sinn líka í eyðileggingarmætti og grimmd og
byggjast á hreinni heimsku.
Það ætti enginn að láta sig dreyma um að Einar S.
Jónsson sé einn um þessar skoðanir á íslandi. Hann er
einungis einn fárra sem, sökum annaðhvort dómgreind-
arleysis eða fífldirfsku, hafa látið þær uppi opinberlega.
Það er engin ástæða til að ætla að þær eigi ekki svipað-
an hljómgrunn hér og í nágrannalöndunum. Annað væri
undrunarefni.
Þessar hugmyndir eru svosem ekki nýjar af nálinni
hér á landi. Snemma á öldinni stungu þær sér niður hér
sem annars staðar og virðast enn lifa góðu lífi, þótt lágt
hafi farið síðustu áratugi. Það þarf heldur ekki að koma
á óvart.
Þessi sami Einar fullyrti í vikunni að nafngreindur al-
þingismaður hefði um fimmtán ára skeið verið félagi í
Norrænu mannkyni og sótt þar fundi. Þessu neitar þing-
maðurinn staðfastlega og ekki er ástæða til að draga þá
neitun í efa. Hins vegar verður ekki undan því litið, að
ummæli einstakra stjórnmálamanna að undanförnu um
málefni flóttamanna, aðfluttra íslendinga og útlendinga
sem hér stunda vinnu eru meira en sterkur endurómur
af því sem rasistarnir í Norrænu mannkyni hafa látið
hafa eftir sér. Það er líka meira en óheppileg tiiviljun að
þeir, sem þannig tala, eru sömu mennirnir og hafa bar-
izt af hve mestri hörku gegn opnari samskiptum íslend-
inga við aðrar þjóðir, til dæmis við gerð viðskiptasamn-
inga.
Þær raddir heyrast, að ekki eigi að veita Einari S.
Jónssyni og skoðanabræðrum hans aðgang að fjölmiðl-
um til þess að útbreiða fordóma sína og hatur. Þetta er
rangt viðhorf, af tveimur ástæðum.
Tjáningarfrelsið, hornsteinn alvörulýðræðis, er ekki
til þess ætlað að vernda skoðanir sem allir eru sammála
og öllum þykja þægilegar. Þessi helgu mannréttindi eru
beinlínis til þess hugsuð að vernda rétt þeirra, sem hafa
skoðanir sem ögra ríkjandi viðhorfi og raska ró manna,
jafnvel meiða. Þegar því hlutverki er burtu svipt er tján-
ingarfrelsið einskis virði og lýðræðið innantómt.
Auk þess er það skoðun þessa blaðs, að tilraunir til
að kæfa hatursfullar skoðanir í fæðingu virki þveröfugt
við tilgang sinn. Þær afla þeim samúðar, sem sízt skyldi,
og efla þannig málstað sem ekki á stuðning skilinn.
Vondar skoðanir eiga að fá að heyrast; fordómar, hatur
og mannvonska munu á endanum tapa fyrir öðrum
sjónarmiðum og göfugri á markaðstorgi hugmyndanna.
En til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að allir
haldi vöku sinni, gæti tungu sinnar og leyfi hatrinu ekki
að festa rætur og breiðast út.
Helgarpósturinn
Vesturgötu 2
101 Reykjavík
Sími: 552-2211
Bréfasími: 552-2311
Bein númer:
Ritstjórn 552-4666, símbréf 552-2243, auglýsingadeiid
552-4888, símbréf 552-2241, tæknideild 552-4777,
dreifing 552-4999, smáauglýsingar 552-5577.
Fréttaskotið: 552-1900
Áskrift kostar kr. 800 á mánuði ef greitt er með
greiðslukorti, en kr. 900 annars.
Sellurnar hans Steingríms
„Nú hugsar Steingrímur til Allaballanna sem sitja
heima og fylla út kjörseðlana og vonar að hann sigri
enn eina konuna. Þá getur hann haldið áfram frœki-
legri baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna. “
Steingrímur J. Sigfússon er að
eigin sögn einn af boðberum
jafnréttis kynjanna hér á landi.
Það vill bara svo til að hann er
karl og það væru raknir fordóm-
ar að útiloka hann frá embætti
formanns Alþýðubandalagsins
þess vegna. Hann er kaldur karl
sem vill hlut kvenna sem mest-
Stjórnmál
Sigríður I. Ingadóttir
an, svo framarlega sem þær
skyggja ekki á hann og koma í
veg fyrir aukin völd hans. Stein-
grímur veit að karlar eiga ekki
að hugsa svona, en það kemur
ekki í veg fyrir kosningabaráttu
hans gegn Margréti Frímanns-
dóttur sem gæti aftrað því að
Allaballar taki sig saman í andlit-
inu og gefi konu raunveruleg
völd.
Hann er í flokki sem telur sig
mjög jafnréttissinnaðan. Kona
hefur að vísu aldrei gegnt emb-
ætti ráðherra fyrir hönd flokks-
ins og kona hefur aldrei verið
formaður. Þær hafa fengið að
vera varaformenn, stundum.
Það er að segja þegar Steingrím-
ur J., kvennabaninn mikli í
flokknum, hefur ekki gefið kost á
sér. Hann hefur sigrað konur í
prófkjörum og framboði til vara-
formanns. Nú hugsar hann til
Allaballanna sem sitja heima og
fylla út kjörseðlana og vonar að
hann sigri enn eina konuna. Þá
getur hann haldið áfram fræki-
legri baráttu sinni fyrir jafnrétti
kynjanna.
Þrátt fyrir jafnréttisbaráttu
Steingríms ákváðu kynsystur
Margrétar í Alþýðubandalaginu
á síðasta kjörtímabili að stofna
kvennahóp sem kallar sig Sell-
urnar. Markmið hópsins er að
auka hlut kvenna í valdastöðum
í jafnréttisflokknum. Þetta er
vopn þeirra gegn körlunum í
flokknum, en það þarf ekki að
taka það fram að þeir eru allir
jafnréttissinnar, en líkjast Stein-
grími og vilja ekki standa í
skugganum.
Sellurnar studdu Guðrúnu Ág-
ústsdóttur til sigurs í prófkjöri
fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar. Nú í sumar hafa þær
haft tækifæri til að vinna að því
að koma Margréti Frímannsdótt-
ur í æðsta embætti flokksins. En
eitthvað hefur dofnað yfir Sell-
unum. Flokkseigendafélagið vill
nefnilega að Steingrímur verði
formaður og sumum Sellum
finnst flokkshagsmunir æðri
kvenfrelsissjónarmiðum og eru
nú klofnar í afstöðu sinni til for-
mannskjörsins.
Þær Sellur sem styðja
Margréti boðuðu til fundar und-
ir yfirskriftinni „Konur og völd“
og á þeim fundi var áréttað mik-
ilvægi þess að koma konum til
valda. Hinar Sellurnar, sem vilja
stundum koma konum til valda
en ekki alltaf, settust aftur á
móti við símann og báðu flokks-
systkini sín að hundsa fundinn.
Steingrími J. var ekki boðið að
halda framsöguræðu og hann
fór í fýlu. Hann bað væntanlega
kjósendur, í útvarpsviðtali, að
fara frekar á bíó en á fundinn.
Hann mætti auðvitað ekki, en
hann gat ekki hugsað sér að
sitja hnípinn í skugganum. Dag-
inn eftir, á almennum kosninga-
fundi hjá jafnréttisflokknum,
ræddi hann fjálglega um framlag
sitt til jafnréttisbarátturinar.
Það er ágætt fyrir Alþýðu-
bandalagsfólk, sem nú veltir
vöngum yfir kjörseðlinum sín-
um, að minnast þess að stærsti
flokkur landsins, helsti and-
stæðingur Alþýðubandalagsins,
valdi Davíð Oddsson til for-
mannsembættis fyrir u.þ.b.
fimm árum. Það vill svo
skemmtilega til að kvennahópur
í hans flokki, „Sjálfstæðar kon-
ur“, telur hann einmitt tilvalinn
til að vinna að jafnrétti kynjanna
á íslandi. Ef svo fer, að Stein-
grímur nái kjöri, þá eiga flokk-
arnir tveir, Alþýðubandalag og
Sjálfstæðisflokkur, möguleika á
skemmtilegri samvinnu í jafn-
réttisbaráttunni í framtíðinni.
Ég vil áð lokum nota tækifærið
og óska Margréti Frímannsdótt-
ur sigurs, því sem femínisti vil
ég að konur fái völd. Steingrím-
ur hefur samt sem áður tækifæri
til að sinna jafnréttismálum.
Hvernig er það, vantar ekki Sell-
urnar formann?
Höfundur er sagnfræðingur.
Palladómur
Kórdrengurinn
Af mér er þungu fargi létt. í
liðlangan vetur hefur mér
ekki orðið svefns auðið af
áhyggjum vegna þess ágætis-
pilts, hans Guðna Ágústssonar,
þingskörungs, meistarabanka-
manns og gæðablóðs.
Þannig er, að suðrí Reykjavík
gefur Alþýðuflokkurinn út blað
sem engir kaupa og fáir lesa, en
lánast þó einhvernveginn að
koma sínum málum þannig fyrir
að heiðarlegu fólki hrýs hugur
við tilhugsuninni um að þurfa að
lesa það uppá hvern dag.
I þessari blaðnefnu hef ég haft
fregnir af hinum meinfýsnustu
árásum, sem lánlausar lista-
mannatuskur og landeyður
hlaða utaná vammlaust fólk og
heiðvirt. Þannig var það einmitt
með fyrrverandi sveitunga
minn, hann Guðna litla Ágústs-
son. Á haustmánuðum barst
hingað í kyrrðina bergmálið af
svívirðingum sem hann mátti
undirgangast fyrir tilstilli þessa
lýðs. Fyrir eyrum okkar glumdu
samantvinnuð svigurmæli um
krúnurakaða fótboltabullu, pól-
itískan heimalning, moldarkofa-
pólitíkus og allt þaðanafverra
sem Drottinn hefur upp fundið
hér á jörð. Við svo bætast síðast
aðdróttanir um kynþáttahatur
og nationalsozialismus, sem er
víst tískuorð þar syðra um það
sem í minni sveit var réttnefnt
vökult bóndans auga fyrir bú-
fénaði af öðrum bæjum í túnfæt-
inum.
En nú er það hjá liðið og ekki
vonum seinna. Guðni hefur loks-
ins brotið odd af sínu oflæti og
látið þau boð út ganga að hann
sé ekki fótboltabulla, ekki pólit-
ískur heimalningur, ekki mold-
arkofapólitíkus og ekki nation-
alsozialist. En framsóknarmaður
er hann, ungmennafélagi þótt
kominn sé af léttasta skeiði og
kirkjurækinn rétt einsog aðrir
sunnlenskir bændur.
Það fengi enginn, sem til
mannsins þekkir, því trúað uppá
hann Guðna að hann léti fólk
gjalda litarháttar síns, enda er
hann öllum litbrigðum lffsins
vanur úr fjósinu. Þar eru allar
beljur jafnar, rauðar, skjöldóttar
og svartar. Hinsvegar lætur
Guðni sér ekki til hugar koma að
í öllum kúm sé nytin jöfn. Sum-
um er betur komið fyrir í slátur-
húsinu, aðrar er affarasælast að
losna við úr stofninum hið
fyrsta. Það var og verður eðli-
legur partur af lífi og uppeldi í
Simbakoti og á Brúnastöðum,
en varla er til þess að ætlast að
borgarbörnin beri skynbragð á
þau sannindi.
Vísast má við því búast, að
ekki hríni staðreyndir lífsins á
orðsins öskuröpum í Alþýðu-
húsinu syðra. Ef það kynni að
verða Guðna Ágústssyni til
nokkurs gagns legg ég hérmeð
mína liðveislu æru hans til
björgunar. Vottast það, að kraft-
meiri rödd hefur ekki ómað í
guðsþjónustum sunnanlands.
Fegri hafa þær heyrst, en fráleitt
einlægari, ómstríðari og ákafari.
Megi hún óma áfram, Guðna til
sóma, landsins lýð til framfara
og bústofninum til áframhald-
andi heilbrigðis og hreinleika.
Sveinn
„Guðni hefur loksins brotið oddafsínu oflœti og
látið þau boð útganga að hann sé ekki fótbolta-
bulla, ekki pólitískur heimalningur og ekki mold-
arkofapólitíkus. “