Helgarpósturinn - 05.10.1995, Page 28
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER1995
28
bío
BÍÓBORGIN
Brýrnar í Madlsonsýslu The
Bridges of Madison County
★ ★★ Clint skýtur ekki Mer-
yl Steep en ferst þetta samt
vel úr hendi. Ástarsaga um
miðaldra fólk, fyrir fólk á
miðjum aldri.
Englendingurinn sem fór
upp hæðina en kom niður
fjallið ★★ Hugh Grant er
eins og skopmynd af sínu
hummandi sjálfi, að öðru
leyti notaleg kómedía.
BÍÓHÖLUN
Vatnaveröld Waterworld
★★ Kevin Costner er með
tálkn og sundfit; kannski há-
ir það honum.
Casper ★★★ Fínar brellur
og ærsl, líka þekkileg angur-
værð sem svífur yfir vötn-
unum.
Hundalíf 101 Dalmatians
★ ★★ Hvolparnir eru ógeðs-
lega sætir en kvenvargurinn
er með þeim skrautlegri
sem hafa sést hjá Disney.
Á meðan þú svafst While
You Were Sleeping ★★
Sandra Bullock er skotin í
manni en fellur svo fyrir
misheppnuðum bróður
hans.
Að eilífu Batman Batman
Forever ★ Leiktjöldin eru
betri en plottið.
Die Hard With a Vengeance
★★ Bruce Willis fær hjá-
stoð sem er aumari og
kjánalegri en hann. Svona til
að þetta verði ekki of leiðin-
legt.
HÁSKÓLABÍÓ
Vatnaveröld Waterworld
★★ Þeir eyddu miklum pen-
ingum og fengu semsé lítið
fyrir mikið.
Braveheart ★★★ Mitt í
blóðinu og forinni nær Mel
Gibson að kveikja í þessu
líf. Það leynir sér ekki hvað
hann er vel heppnaður
tappi.
Casper ★★★ Þeir sem tíma
ekki að kaupa Kasper-dót
geta fengið sér hvftt lak og
klippt á það tvö göt.
Congo ★ Mennskasta per-
sónan er api sem talar
ensku.
Franskur koss French Kiss
★ Kevin Kline er flottari en
Meg Ryan.
LAUGARASBÍÓ
Dredd dómari Judge Dredd
★ Það er sjón að sjá Stall-
one í fínasta dressi frá Vers-
ace, stretsbuxum og planka-
skóm.
Don Juan de Marco ★★★
Brando, feitur eins og loft-
belgur, dregur þetta upp í
skýin. Neðan úr honum
hangir Johnny Depp.
REGNBOGINN
Braveheart ★★★ Menn eru
höggnir í tvennt og í herðar
niður; ekki fyrir þá sem hafa
lítið ofbeldisþol.
Dolores Claiborne ★ Fjallar
ekki um sturlað morðkvendi
heldur fórnarlömb heimilis-
ofbeldis. Að sama skapi
leiðinlegt.
Gleymdu París Forget Paris
★ ★ Hjónabandi verður ekki
forðað nema gleymist að
ástin var eitt sinn skemmti-
leg.
SAGABÍÓ
Ógnir í undirdjúpunum Crim-
son Tide ★★★ Smart mynd
en hljóðið er smartast. Gefið
því eyra.
Bad Boys ★★ Þeldökk útgáfa
af Lethal Weapon. Bara furðu
sniðug.
STJÓRNUBÍÓ
Tár úr steini ★★★★ Glæsi-
leg mynd og á allt annan
hátt en þær islensku bfó-
myndir sem rísa undir
nafni, alvörumeiri, vand-
aðri, stærri í sniðum.
Einkalif ★★ Þráinn er sum-
part eins og fullorðinn mað-
ur sem lendir í partii með
unglingum. óboðinn. En
reynir að þrauka.
„Kvennatríó Reykjavíkur" komið til að vera
Syngja með stæl
„Ég held að það leyni sér ekki að
við erum allar skólaðar í söng,“ segir
Margrét Pálmadóttir, best þekkt
sem stjórnandi Kvennakórs Reykja-
víkur, sem ásamt Jóhönnu
V. Þórhallsdóttur og
Björk Jónsdóttur hefur
undanfarin ár verið að
byggja upp kvennatr-
íó sem náð hefur
nokkrum vinsæld-
um. Nýverið gerði
tríóið meðal annars
mikla lukku í frum-
sýningarteiti bíó-
myndarinnar Tár úr
steini.
„Hinar voru
búnar að finna
ótrúlegt nafn
á flokkinn,
ekki Valkyrj-
urnar, en
eitthvað í
þá áttina.
En jú, við
erum komn-
ar til að
vera og ætl-
um að velgja leikkonunum, sem
hingað til hafa átt þennan markað,
undir uggum,“ segir hún kímin.
Margrét segir að tríóið ætli að
halda áfram æfingum sem
léttklassískt tríó.
óperustæl og höfum líka hugsað
okkur að fara út í klassíska músík
eins og Schumann. Og svo erum við
að þreifa fyrir okkur í negratónlist
og djassi."
í raun má segja að tríóið sé
kvartett, því Aðalheiður Þor-
steinsdóttir píanóleikari hefur
að sögn Margrétar svo sannarlega
verið þeim betri en enginn. „Hún er
alveg frábær útsetjari. Hún sveiflar
öllu mögulegu sem mann langar til
að syngja yfir í kvenmannsraddir og
ef eitthvað er skrifað fyrir eina rödd
bætir hún tveimur við.“
Leiðir þessara fjögurra kvenna
hafa meira og minna legið saman í
Kvennakór Reykjavíkur, sem innan
skamms fer til Ítalíu í söngferðalag,
að undanskildum þeim Jó-
hönnu og Björk, sem leika
um þessar mundir í Tróju-
dætrum Evripídesar.
Tríóið, Margrét Pálmadóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Björk Jónsdóttir, ætlar að velgja leikkonunum undir uggum.
Þneykið í Atarí Teenage Riot, sem sló í
gegn á Uxahátíðinni um verslunarmanna-
helgina.
Villtasta
hljómsveit
Uxa á
íslandi um
helgina
Þýska hljómsveitin Atari Teenage
Riot, sem sló svo um munaði í gegn á
Uxahátíðinni, verður á íslandi um
helgina. Að sögn Kára Sturlusonar,
eins aðstandenda Uxa, var það villt
framkoma hljómsveitarinnar sem
vakti helsta athygli íslendinganna á
Kirkjubæjarklaustri.
Tónlist Atari, sem skipuð er þeim
Alec Empire, Carl Crack og Hanin
Elias, má lýsa sem geðveikri blöndu
af hröðu „hardcore" í bland við
pönk, jungle, teknó, metal, rapp og
þungarokk, enda hefur hún hlotið
mesta athygli fyrir frumlega tónlist-
arblöndu.
Atari Teenage Riot kemur fram á
tvennum tónleikum á íslandi og ein-
um örtónleikum. Verða þeir fyrstu í
Hinu húsinu síðdegis á föstudag. Um
kvöldið verður sveitin í Vörðu Jðn-
skólans og á laugardagskvöld í
Tunglinu. Forsala aðgöngumiða er í
Hljómalind, Levis-búðinni, Japis
Kringlunni og í Hinu húsinu.
Eins og fram kemur á öðrum
stað hér í blaðinu er ljóðlist nú
í mikilli uppsveiflu. Á Kaffi List
verður í kvöld stór hópur
skálda sem les upp úr verkum
sínum undir yfirskriftinni
Skáld eru brjáluð og hœttuleg.
Að sögn Braga Ólafssonar,
sem stendur fyrir uppákom-
unni ásamt Michael D.
Pollock, er yfirskriftin fengin
að láni hjá Jóhanni Hjálmars-
syni, þeim skelegga bók-
menntagagnrýnanda Moggans.
Samsetning hópsins miðast að
nokkru við þá sem eru að gefa
út ljóð um þessar mundir.
Bragi segir einnig að Kaffi List
henti upplestri af þessu tagi.
„Það sá ég fyrir mér einhvern
tíma þegar ég sat þar við bar-
inn.“ Hann segir jafnframt að
yfirleitt hafi skáld gaman af að
lesa úr verkum sínum: „Eink-
um á slíkum stöðum — frekar
en í einhverju akademísku um-
hverfi — svo framarlega að
ekki sé of mikill hávaði."
Auk skáldanna verður tón-
list meðal efnis. Þeir sem Iesa
og flytja eru þessir:
Haraldur Jónsson myndlist-
armaður, sem nýverið gaf út
ljóðabókina Stundum alltaf hjá
Bjarti.
Didda, sem vakið hefur
mikla athygli fyrir fyrstu ljóða-
bók sína sem heitir Lastafans
og lausar skrúfur og kom ný-
lega út hjá Forlaginu.
Magnúx Gezzon, sem nýver-
ið gaf út ljóðabókina Syngjandi
sólkerfi.
Ólafur Stefánsson, sem er
að gefa út sína fyrstu ljóðabók.
Michael D. Pollock, sem ætl-
ar að lesa upp á ensku úr bók
sinni The Martial Arts of Pagan
Diaries.
Ingunn V. Snædal, en hún
gaf fyrir stuttu út ljóðabókina
Á heitu malbiki.
Bragi Ólafsson, en innan
skamms kemur út fjórða ljóða-
bók hans, Klink, hjá Bjarti.
Gímaldin, ljóðskáld og tón-
listarmaður, en hann mun
syngja lög við eigin undirleik.
Sigfús Bjartmarsson. Frá
honum er væntanleg ljóðabók
sem Bjartur gefur út.
Amar Gunnar er ungur ten-
ór á leiðinni í nám erlendis.
Hann syngur nokkur lög við
undirleik.
Elísabet Jökulsdóttir. Síð-
asta bók hennar heitir Galdra-
bók Ellu Stínu.
Kári Waage, útvarpsmaður,
söngvari, augtýsingasöiumaður og
dægurlagatextahöfundur (svo fátt
eittsénefnt):
Ævar Örn á
réttri hillu
H v a ð a
orð og
setningar
notarðu í
óhófi?
„Eins og
aðrir frasa-
ffklar nota
ég „ekkert
smá“ mikið
um þessar mundir. Óþolandi
frasi.“
Hvert er mesta góðmenni
núiifandi fsiendinga?
„íslenska húsmóðirin.“
Hvað óttastu mest?
„Að Framsóknarflokkurinn
verði gerður að trúarflokki og
hugarfar og skoðanir þeirra
framsóknarmanna verði gerð
að þjóðtrú.“
Hver er uppáhaldsbókin
þín?
„Meistarinn og Margaríta
eftir Búlgakov."
Hvað kanntu best að meta í
fari kvenna?
„Bros, og þegar þær eru
stuttorðar í síma. Símtöl eru
ópersónuiegustu samskipti
sem ég þekki.“
Hver er eftirlætismeðlimur
þinn í Snigiabandinu?
„Emil Nói Söebech, sem
hannar á þá fötin.“
Hvaða dýr er í mestu dá-
læti hjá þér og af hvetju?
„Hundar sem eru lengri en
20 sentimetrar. Alvöru hundar
eru gáfaðir, skemmtilegir og,
umfram allt; þeir halda skað-
ræðisdýrunum köttum frá
manni.“
Hvar og hvenær varstu
hamingjusamastur?
„Þegar Rafveita Hafnarfjarð-
ar tók strauminn af Álftanesi
þegar rétt var hálfnaður dans-
leikur með fslandsvinum,
sennilega 1991. Það var ball
sem mátti að ósekju taka
enda.“
Hvem viltu fá sem forseta
fslands?
„Björk.“
Hvað telurðu þig hafa ver-
ið í síðasta líB?
„Ég var djassleikari sem
hélt mikið til í Cotton Club og
hef að öllum líkindum verið
skotinn í andlitið i seinni
heimsstyrjöldinni. Ég var þó
hailur undir nasista. Ég hef f
draumförum upplifað þetta og
hef verið heillaður af þessu
tímabili jrá því ég var mjög
ungur. Ég hélt bæði ljóst og
leynt með Þjóðverjum í bíó-
myndunum sem ég sá sem
barn, þó að það hafi engan
veginn fylgt tíðarandanum og
hvað þá að styðja ekki sjálfan
Verndarann. Þetta og margt
annað í gegnum tíðina ýtir
undir þessa skoðun (eða full-
yrðingu).“
f hvaða íþróttagrein hef-
urðu komist til mcstra met-
orða?
„Tölvugolfi.“
Finnst þér Hemmi Gunn
myndarlegur maður? Ef svo
er — hvað er það einkum
sem gerir hann að þessu
glæsimenni?
„Já. Það sem gerir hann að
glæsimenni er baráttuandinn.
Hann reynir alltaf að halda
haus og standa beinn þótt
móti blási. Það sést oft á hon-
um í útsendingu að honum líð-
ur ekki alltof vel. En honum
tókst það sem engum öðrum
sjónvarpsmanni í heiminum
hefur tekist; að vera úthýst
með 40-50 prósent áhorf. Eða
var það jafnvel enn meira?“
Hver var fyrsta ástin í lífi
þínu?
„Fyrirbærið „ást“ er illskýr-
anlegt, en þó held ég að fyrstu
alvöru ástina hafi ég fundið á
Snæfellsnesi."
Hvemig vildirðu deyja ef
þú fengir einhveiju um það
ráðið?
„Þótt Ijótt sé að segja það,
þá hafa stærri flugslys alla tíð
heillaö mig.“
Finnst þér Ævar Öra Jós-
epsson vera á réttri hillu í líf-
inu sem útvarpsmaður á Rás
2?
„Já, ef hann vill ekki láta
heyra í sér. Hafið þið séð nýj-
ustu skoðanakannanir?“
Einhver skilaboð til ís-
lensku þjóðarinnar?
„Já, svo sannarlega. Þeir,
sem halda að íslendingar séu
tvær milljónir, telji aftur.*