Helgarpósturinn - 16.11.1995, Qupperneq 6
6
FIMMTÚDAGUR16. NÓVEM6É?? 1995
Þverpólitískur hópur kvenna sem vill konu áfram í forsetastól fundar á næstu dögum:
Hvorki samstaða um
Guðrúnu Agnarsdóttur né
Sigríöi Snævarr
Hríngt var í Kristínu Ástgeirsdóttur og hún boðuð á
fund með þverpólitískum áhugakonum um nýjan
kvenforseta. Ekki fékkst uppgefið hverjar konur aðrar
værí að finna í hópnum.
Bryndís Hlööversdóttir er þingmaður Alþýðu-
bandalags og formaður Kvenréttindafélags íslands:
„Ég veit ekki til þess að þetta sé orðið einhver
formlegur félagsskapur."
„Ég get bara staðfest að
þarna er hópur kvenna úr öll-
um flokkum sem utan þeirra,
en eins og er ganga samræð-
urnar eingöngu á með hring-
ingum,“ staðfesti Kristín Ást-
geirsdóttir Kvennalista, að-
spurð um hvort breiðfylking
kvenna að baki kvenforseta-
frambjóðanda væri í burðar-
liðnum, en á landsfundi
Kvennalistans um síðustu
Sýning föstudag 17, nóv. kl. 23:30 - Örfá sæti laus.
Sýning laugardag 18. nóv. kl. 23:30 - UPPSELT
\ Höfundurinn, sá sem
lék kroppinbakinn í
kvikmyndinni frægu,
Richard O1 Brien veröur
viöstaddur sýningar
' 17. og- 18. nóv.
1 Ýmislegt óvænt gerist.
Richard O' Brien & Rocky Horror
hópurinn árita Rocky Horror diskinn
í Skífunni Kringlunni milli kl: 14-15
Laugardaginn 18. nóv.
helgi lét Kristín einmitt þá
skoðun sína í ljós að nú væri
tækifæri fyrir konur að sýna
breiða samstöðu um kvenfor-
seta. Kristín segist hins vegar
ekki hafa átt hugmyndina held-
ur hafi verið hringt í
hana og hugmyndin
um fylkingu kvenna að
baki kvenframbjóð-
anda borin upp við
hana. „Það hafa hins
vegar engin nöfn verið
rædd og þess vegna og
eins hins, hve skammt
þetta er á veg komið,
finnst mér ekki tíma-
bært að upplýsa hvaða
einstaklingar eru
þarna að baki. Ég get
hins vegar staðfest að
vinna er komin á fullt
og fundað verður með
hópnum á allra næstu
dögum.“
Nokkur kvennöfn
hafa þegar verið nefnd
í tengslum við forseta-
framboð og hefur þar
nafn Guðrúnar Agn-
arsdóttur, fyrrverandi
Kvennalistaþingkonu,
oftast borið á góma.
Samkvæmt heimildum
HP úr herbúðum
Kvennalista og víðar er
þó ekki talið líklegt
öðru fremur að breið-
fylkingin safnist í kring-
um Guðrúnu. Þar komi
tvennt til. Annars veg-
ar hefur Guðrún ekki
mikið gefið út á for-
setaframboð við sínar
nánustu og hins vegar
sú staðreynd að Guð-
rún er pólitíkus. „Það
kom mér mest á óvart
hvað sumt er miklu
skemmra á veg komið
en mig grunaði, ég
varð eiginlega hissa á
hvað þetta eru miklar
þreifingar ennþá,“
sagði Kvennalistakona
í samtali við HP og átti
þar við frambjóðend-
ur.
„Ef þetta er einhver
þverpólitísk samstaða
kvenna um eitthvert
nafn verður hún ekki
Samkvæmt heimildum HP mun Guörún Agnarsdótt-
ir, fyrrverandi þingkona Kvennalista, ekki hafa gefið
mikið út á forsetaframboð við sínar nánustu.
Inga Jóna Þóröardóttir segir þverpólitíska
kvennasamstöðu aldrei verða um Guðrúnu Agnars-
dóttur, ekki frekar en Bryndísi Schram.
um Guðrúnu Agnarsdóttur,
ekki frekar en Bryndísi
Schram og ekki fremur en að
fólk úr öllum flokkum tæki upp
á því að styðja við bakið á
Steingrími Hermannssyni eða
Davíð Oddssyni," sagði Inga
Jóna Þórðardóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks, í samtali
við HP, en Inga Jóna er ein
þeirra sem héldu á kvennaráð-
stefnuna í Kína. Grunur lék á
að Kínafararnir stæðu að baki
þessari breiðfylkingu kvenna
sem nú er í burðarliðnum, en
svo virðist ekki vera. Inga Jóna
segist ekkert hafa heyrt um
þessa þverpólitísku samstöðu,
að minnsta kosti hafi hún
ekki heyrt þess getið að þar
sé að finna neinar konur úr
Sjálfstæðisflokknum. „Ég
get svosem ekki svarið það
af öllum sjálfstæðiskonum,
en ég tel afar ólíklegt að
þær séu þarna á meðal.
Það eru þá að minnsta
kosti ekki neinar þunga-
viktarkonur í flokknum."
Rannveig Guðmunds-
dóttir, fyrrverandi ráð-
herra Alþýðuflokks, hafði
hins vegar heyrt þessu
fleygt: „Mér hefur bara ver-
ið sagt frá þessu, en ég veit
ekki betur en málið sé á því
stigi að einhver hafi sagt
einhverjum að konur ættu
að standa saman og sam-
einast um konu, ef hún
finnst.“
Rannveig sagði að hvorki
hefði verið rætt við sig né
hefði hún heyrt nokkur
nöfn nefnd. Formaður
Kvenréttindafélags íslands
og þingmaður Alþýðu-
bandalags, Bryndís Hlöð-
versdóttir, var á svipuðum
nótum og Rannveig. „Ég hef
ekki heyrt nein nöfn, en ég
veit að það er verið að tala
um kvenframbjóðanda í öll-
um hornum. Málið hefur
hins vegar ekkert komið
inn á borð kvenréttindafé-
lagsins. Á þessu stigi máls
lít ég bara svo á að verið sé
að spjalla saman, enda veit
ég ekki til þess að þetta sé
orðið einhver formlegur fé-
lagsskapur."
Annar kvenframbjóðandi
sem oft hefur verið orðaður
við forsetastólinn er Sigríður
Snævarr sendiherra. Um hana
gegnir hins vegar sama máli og
Guðrúnu Agnarsdóttur; ólík-
legt er talið að konur fylki sér
að baki henni. HP hefur heim-
ildir fyrir því að konum innan
Kvennalistans þyki hún ekki
fýsilegur kostur, sérstaklega
með tilliti til þess að eiginmað-
ur hennar er Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokks. Það finnst hins
vegar Ingu Jónu Þórðardóttur
ekki nægjanleg skýring. „Mun-
urinn á Sigríði Snævarr og
Guðrúnu Agnarsdóttur er sá
að Sigríður hefur aldrei verið
starfandi stjórnmálamaður og
aldrei starfað innan vébanda
flokksins. Hún hefur verið
embættismaður í fimmtán ár
og var orðin það áður en hún
giftist Kjartani. Ég er þó ekki
að tala um í þessu samhengi —
þ.e.a.s. ef það á að mynda
þverpólitíska samstöðu um
forsetaefni — að fólk megi ekki
hafa stjórnmálaskoðanir, held-
ur bara að fólk sé ekki og hafi
ekki tengst stjórnmálasamtök-
um.“