Helgarpósturinn - 16.11.1995, Qupperneq 23
7
1
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
23
öðrum grunni.
Þess vegna held ég að bænd-
ur hefðu átt að taka skrefið til
fulls strax og fá frjálsa fram-
leiðslu og verðmyndun, frekar
en að búa við þessa óvissu um
næstu þrjú ár.“
Ég vil verða ráðherra
Sjálfstœðisflokkurinn í
Reykjanesi hefur ekki uerið ráð-
herralaus síðan 1974, ef flokk-
urinn uar á annað borð í ríkis-
stjórn. Nú er ekki svo.
„Það voru óneitanlega mikil
vonbrigði."
Segir það ekki sitthvað um
stöðu ykkar í valdastrúktúr
flokksins?
„Það fer eftir því hvaða vigt
er gefin embætti forseta Al-
þingis, sem Ólafur G. Einars-
son gegnir. Það embætti er í
mótun og á þessu kjörtímabili
mun reyna á hver áhrif þess
eru önnur en formlega innan
þingsins.“
„ Vera Framsóknar-
flokksins í stjórninni
hafðiþau áhrifað bú-
vörusamningurinn
varð ekki eins og bezt
varð á kosið. “
Þú ert þó ekki að segja að for-
setaembættið jafnist á við að
hafa ráðherra íríkisstjórn?
„Nei, það er ekki þannig hjá
okkur, en víða annars staðar
er það metið tij jafns við ráð-
herraembætti. Ég held að það
séu góðir möguleikar að svo
verði hér líka og góður þingfor-
seti geti verið fullt eins áhrifa-
mikill og ráðherra."
Þú segir það ekki við sjálf-
stœðismenn á Reykjanesi: „Það
skiptir ekki máli hvort við eig-
um ráðherra, af því við eigum
þingforseta"?
„Nei, það hef ég ekki sagt. En
frekar en að kasta okkur í gólf-
ið og grenja, þá eigum við að
beita áhrifum okkar þar sem
við erum. Við þurfum kannske
að gera það öðruvísi en áður,
en notfæra okkur þó þann
styrkleika sem við höfum.
Styrkur okkar í kjördæminu er
vanmetinn, miðað við þessa
niðurstöðu. Við eigum þar
fimm þingmenn, yfir fjörutíu
prósent fylgi og stundum hefur
Sjálfstæðisflokkurinn verið
hlutfalislega fylgismestur þar
af öllum kjördæmum."
Ef við gerum ráð fyrir að Ólaf-
ur hætti eftir þetta kjörtímabil,
sem má telja líklegt, þá tekur
þú vœntanlega við sem leiðtogi
flokksins í kjördœminu.
„Ég ræð því ekki. Það eru
flokksmenn sem ráða því. Auk
þess hefur Ólafur ekki gefið
neitt út um að hann sé að
hætta.“
Er nokkur sem ógnar því að
þú takir við af honum þegar
hann ákveður að hætta?
„Það veit maður aldrei. Það
er ótímabært fyrir mig að lýsa
yfir framboði í eitt eða annað,
en á meðan ég er í pólitík þá
reyni ég að hafa eins mikil
áhrif og aðstæður leyfa. Og
auka þau, stig af stigi.“
Setjum sem svo að þú leiðir
listann nœst. Þú myndir ekki
sœtta þig við að verða forseti
Alþingis ef flokkurinn fœri í rík-
isstjórn?
„Ef svo fer að ég leiði listann,
nái góðum árangri í kosningum
og flokkurinn ætti kost á því að
vera í ríkisstjórn, þá myndi ég
sækjast eftir því að verða ráð-
herra, já. Það segir sig nánast
sjálft. Én þetta eru orðin ansi
mörg „ef“ í einni spurningu.
Forsendan fyrir svarinu er sú
að maður sækist eftir að hafa
hámarksáhrif og efsti maður á
listanum í kjördæminu hlýtur
að sækjast eftir því að verða
ráðherra. Svarið er þess vegna
ekki bundið við mína per-
sónu.“
Og þá aftur að því sem ég
spurði um áðan: niðurstaðan í
vor bendir til þess að Reykjanes
hafi ekki það vægi innan vald-
astrúktúrs flokksins sem maður
skyldi ætla.
„Þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis hafa og hafa haft ágæta
stöðu. Niðurstaðan í vor er
eina snurðan sem hefur hlaup-
ið á þráðinn."
Hundrað síður af
athugasemdum
Þú baðst Ríkisendurskoðun
um stjórnsýsluendurskoðun á
Ríkisútvarpinu, sem nú hefur
séð dagsins Ijós. Hefurðu kom-
izt að einhverri niðurstöðu út
frá henni um hvað þú myndir
gera, efþú mœttir ráða?
„Það sem mér fannst athygl-
isverðast við skýrsluna, sem
er rúmlega hundrað síður, er
að þar er mjög mikið af athuga-
semdum og tillögum um það
sem betur mætti fara. Það seg-
ir mér að skýrslan hafi verið
mjög tímabær og allir sem mál-
ið snertir, stjórnendur stofn-
unarinnar, ráðherra og Al-
þingi, hljóti að verða að skoða
hana mjög gaumgæfilega.
Skýrslan hlýtur að leiða til
breytinga, hvað varðar rekst-
ur, hagræðingu og áherzlur
innan Ríkisútvarpsins. Ætla
menn að leggja áherzlu á að
reka Rás 1, sem nær mest með-
alhlustun innan við fimm pró-
sent, og leggja í það á fjórða
hundrað milljóna, eða á að
bregðast við erlendu áreiti í
sjónvarpsefni með því að setja
meira fé í innlenda dagskrár-
gerð fyrir sjónvarp? Þar er
áreitið og þar er samkeppnin.
Ríkisútvarpið verður líka að
laga sig að umhverfinu sem til-
koma „frjálsu“ fjölmiðlanna
skapar. Ríkisútvarpið sem
heild má ekki taka svo mikið til
sín að þeir geti ekki þrifizt í
samkeppni. Það má heldur
ekki taka svo mikið til sín af
lögboðnum afnotagjöldum að
það ryðji örðum af markaðn-
um. Því eru takmörk sett
hverju fólk getur eytt í fjöl-
miðla.“
Af hverju heldurðu að svona
sé komið. Hafa stjórnendur
stofnunarinnar ekki staðið sig?
„Það er kannske hættulegt
fyrir mig að draga þá ályktun,
en hundrað blaðsíður af gagn-
rýni og tillögum til úrbóta
hljóta að segja sína sögu.
Menn verða að draga sínar
ályktanir og það skiptir mestu
máli að stjórnendur stofnunar-
innar dragi réttar ályktanir. Ef
reksturinn stenzt ekki þær
kröfur, sem gerðar eru til svip-
aðs rekstrar, og stofnunin lifir
ekki í sátt við umhverfi sitt,
hvort sem eru neytendur eða
samkeppnisaðilar, þá er hætt
við að hún tapi stöðunni sem
„Jóhanna varmjög
flink í að koma sínum
málum fram áþeim
tímapunkti þegar
þurfti að hrökkva
eða stökkva.
Hún varklók. “
hún hefur hjá þjóðinni.
Ég held að Ríkisútvarpið hafi
hlutverki að gegna. Ég myndi
alls ekki vilja leggja Ríkisút-
varpið niður. Það væri menn-
ingarlegt slys. En við verðum
að gera okkur grein fyrir hvað-
an þrýstingurinn er, hvaðan
erlent áreiti kemur, og hvar
þessi litli menningarheimur
okkar þarf að bregðast við.
Þótt ég hlusti sjálfur á Rás 1 og
hafi gaman af að hlusta á fróð-
leik um Guðrúnarkviðu hinnar
eldri og hvað Guðrún Gjúka-
dóttir var að bródera í Dan-
mörku eftir að Sigurður Fáfn-
isbani var dauður, þá held ég
það sé lítið brot þjóðarinnar
sem hefur áhuga á því. Við
þurfum heldur ekki að hafa
áhyggjur af menningaráhuga
þess litla brots, en þurfum að
bregðast við þessu erlenda
sjónvarpsefni.“
En ef Ríkisútvarpið þjónar
einhverju menningarhlutverki,
þá dugar ekki að útvarpa að-
eins því sem „fólk hefur áhuga
á“, heldur hlýtur það að hafa
einhuers konar uppeldishlut-
„Það er ástœðulaust að
selja Rás 2. “
verk, að bjóða fram efni burt-
séð frá því hvort það nœr topp-
hlustun eða -áhorfi.
„Já, það þarf að blanda
þessu saman. Sjónvarpið þarf
að setja sér markmið um hvað
það ætlar að fá mikla hlustun
eða áhorf á tiltekið efni og
hvað er viðunandi miðað við
kostnaðinn. Það eiga að vera
viðbrögðin við áreitinu frá öðr-
um menningarsvæðum.“
Myndirðu vilja selja Rás 2?
„Nei. Ég held það sé ástæðu-
laust að selja hana, það eru
það margar stöðvar fyrir. Það
þarf hins vegar meira samstarf
á milli Rásar 1 og 2, samtengja
þær meira og nýta dagskrár-
gerðina og fjármunina betur.
Það er ástæðulaust að reka
hreina tónlistarstöð, þegar
fullt er af þeim fyrir. Það þarf
að reka stöð sem býður upp á
fjölbreytt efni sem fellur inn í
það val sem fólk hefur fyrir.
Ríkisútvarpið þarf að fylla
upp í það sem vantar, en ekki
apa eftir öðrum. Það þarf sér-
staklega að gera innlendu sjón-
varpsefni hærra undir höfði."
Það kostar heilmikla pen-
inga að búa til innlent efni fyrir
sjónvarp.
„Það þarf að spara þá annars
staðar. Það eru tillögur í þess-
ari skýrslu um sparnað og hag-
ræðingu upp á 200-500 milljón-
ir og einar fjórar tillögur um
hvernig ætti að fjármagna Rík-
isútvarpið. Þær þarf að skoða.“
Þegar þú fœrð svona skýrslu
á borðið og hefur sjálfur skoð-
anir um önnur markmið, nýjar
áherzlur, við hverju á að bregð-
ast og hvað á að gera, þá hlýt-
urðu að komast að þeirri niður-
stöðu að þetta sé hálfónýtt batt-
erí eins og það er rekið?
„Við skulum segja að ef ég
fengi að ráða því, þá myndi ég
gera það dálítið mikið öðru-
vísi.“
Finnst þér að ráðherra œtti
að geta rekið yfirmann stofnun-
ar þegar hann fær svona
skýrslu í hendurnar?
„Já, alveg hiklaust. Hann á
að geta það, ef nægar ástæður
eru til þess. Það má ekki ráðast
af duttlungum hans, en svona
skýrsla gæti verið tilefni til
þess. Ég held að samkvæmt
þeim lögum sem gilda í dag sé
það hægt. Að minnsta kosti
„Stjórnanái
Ríkisútvarpsins virðist
geta rekið menn.
Hvers vegna skylái
hann ekki sitja sjálfur
unáirsama aga?“
virðist stjórnandi Ríkisút-
varpsins geta rekið menn.
Hvers vegna skyldi hann ekki
sitja sjálfur undir sama aga?“
Myndirðu leggja það til við
Bjöm Bjamason að hann skipti
um yfirmenn íþessari stofnun?
„Það sem ég legg til við
Björn Bjamason geri ég við
hann undir fjögur augu.“
Davíð á að vera
forsætisráðherra áfram
Því hefur verið fleygt að
landsfundi Sjálfstœðisflokksins
hafi verið frestað jafnlengi og
raun ber uitni vegna þess að
forsetakjör er nœsta sumar og
Davíð Oddsson vilji ráðrúm til
að meta stöðuna. Viltu að Dav-
fð verði forseti?
„Nei, ég vil hafa Davíð áfram
sem forsætisráðherra. Það er
mikilvægasta embætti þjóðar-
innar í dag. Ég veit reyndar
ekki um neinn sem yrði betri
forseti, en ég held að hans sé
þörf í forsætisráðuneytinu.
Það er mikilvægara fyrir þjóð-
ina.“
Þannig að þú ýtir ekki undir
forsetaframboð hans?
„Nei, ég myndi ekki ýta undir
það. En hann verður náttúr-
lega að ákveða það sjálfur og
gerir eflaust."
I