Helgarpósturinn - 16.11.1995, Page 31
FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 1995
31
1. Ástsæll íslandsvinur bar
beinin á eyjunni Tasmaníu
sem er kippkorn suður af Ástr-
alíu. Hver var þessi ágæti mað-
ur?
2. Hvaða reikistjörnur eru milli
jarðarinnar og sólarinnar?
7. í kvikmyndinni From Here to
Eternity frá 1953 er einhver
frægasti koss kvikmyndasög-
unnar. Hvaða kvikmynda-
stjörnur kyssast þar í fjöru-
borðinu?
3. Þessi heimspekingur og frið-
arsinni andaðist í hárri elli
1970, 97 ára. Hann hét?
4. 1988 hélt kanadískur tónlist-
armaður hijómleika í Laugar-
dalshöll og var gerður góður
rómur að. Hver er hann?
8. Hvað heitir þessi franski
knattspyrnumaður sem leikur
með Manchester United?
5. Þingmaður Framsóknar-
flokksins varð fjármálaráð-
herra 1934, aðeins 27 ára og
yngstur manna sem hafa gegnt
ráðherraembætti á íslandi.
Hann hét?
6. Hvað heitir nesið milli Skjálf-
anda og Öxarfjarðar?
9. Þrír gítarleikarar hafa verið
meðlimir Rolling Stones, auk
Keiths Richards. Nöfn þeirra
eru?
10. Hvað heitir arkítektinn sem
teiknaði Norræna húsið í
Reykjavík?
11. Hvað heitir þessi kona,
sem er fræg fyrirsæta, mikill
blaðamatur og gift frægum
leikara?
12. Andategund ein hefur lat-
neska heitið Bucephala Island-
ica og verpir hvergi nema við
Mývatn og Laxá. Á íslensku
heitir hún?
puosnH zi
XajjnH ipaqeziia xi
•0}|BV JBA|V 01
■poo^ uoy
So jo|Xbx J|a|iM ‘sauof ueug '6
euojuep aug '8
jja>l
qejoqaQ So jajseaueq yng i
saujofx '9
uossuof uuiafsXg g
uaqoQ pjeuoaq p
Iiassng puejyag £
snuay\ So jnijjaiv z
jnSunuojjeSepepunH jnpunjof
jujeu njpo ‘uasuaSjof uaSjof q
H^?3||Oy| QIA JOAS
Heiðrún Anna og hinir naglarnir í Cigarette halda útgáfutónleika í Loft-
kastalanum í kvöld með tilheyrandi sjói
Einar Tönsberg, Heiörún flaggskip, Rafn Marteinsson, Sigtryggur Ari
Jóhannsson og Haraldur Jóhannsson skipa vinsælustu ungsveit Islands
um þessar mundir.
Fáránlegt
að reyna
bara
ísland
Hin bráðefnilega unghljóm-
sveit Cigarette, sem hefur með-
al annars að geyma hæfileika-
drottniriguna Heiðrúnu Önnu
Bjömsdóttur, hefur, þrátt fyrir
ungan aldur, afrekað að gefa út
tíu lög. Þar af hafa tvö þeirra
þegar náð nokkrum vinsældum,
sérstaklega lagið I don’t belive
you, sem var eitt af aðaldan-
slögum sumarsins á diskótekun-
um.
Þó svo hljómsveitin sé aðeins
nokkurra mánaða gömul má
rekja aðdragandann að tilurð
hennar allt aftur til ársins 1986,
en þá kynntust nokkrir meðlima
hennar í skóla. „Ég held að við
séum í hálft ár búin að segja alls
staðar að hljómsveitin sé hálfs
árs,“ segir Sigtryggur Ari Jó-
hannsson, hljómborðsleikari
Cigarette. „Við byrjuðum samt
ekki að vinna saman að ráði fyrr
en í vor, þó að aðdragandann
megi rekja til síðustu áramóta."
Samvinna sveitarinnar hófst
þó ekki fyrir alvöru fyrr en I
don’t belive you sló í gegn. Þar
grípur Rafn Marteinsson
trommari inn í: „Eftir að ég
heyrði lagið fullbúið úr stúdíói
var ég aldrei í vafa um að hljóm-
sveitin slægi í gegn. Það hefur
heldur ekkert nýtt komið fram í
íslensku tónlistarlífi í tvö ár,
nema kannski hljómsveitin Spo-
on, sem lifði alltof stutt.“
Cigarette virðist uppfull af
áhugasömum tónlistarmönn-
um, að minnsta kosti á hver
meðlimur hljómsveitarinnar um
tvö lög á diskinum. Ekki er um
samvinnu að ræða heldur hefur
hver verið í sínu horni að semja.
„Lögin hafa bara orðið sterkari
fyrir vikið," heldur Rafn áfram.
„Menn halda ekkert aga ef þeir
setjast niður í hóp og semja.“
Þegar við snúum okkur að
hinni umdeildu nafngift Cigar-
ette fer Sigtryggur aftur á flug:
„Við höfum misst gigg út á þetta
nafn, t.d. í félagsmiðstöðvum,
en það er orðið of seint að
breyta því. Við vonumst bara til
að fólk fari að líta á það sem við
erum að gera en einblíni ekki
endalaust á nafnið, enda er það
gjörsamlega meiningarlaust."
„Eiginlega jafnmeiningarlaust
og nafnið á plötunni, Double
Talk,“ bætir Rafn við, en þver-
tekur um leið fyrir að textarnir á
plötunni séu merkingarlausir.
Þið viljið, eins og flestar aðrar
hjómsveitir, láta líta á ykkur sem
einingu. Verðið þið ekki samt að
viðurkenna að Heiðrún Anna er
tlaggskipið?
„Góðir frontar í bandi skipta
auðvitað miklu máli. Það er
hægt að komast mjög langt á
vondum hljóðfæraleikurum og
góðum frontara... en ég held að
það sé nú ekki þannig með okk-
ur.“
Og eru það svo bara heimsyfír-
ráð eða dauði?
Sigtryggur verður fyrir svörum:
„Það er klisja, en þær reynast
oft sannar. Það skal viðurkennt
að það er eins með okkur og alla
hina sem horft hafa upp á
heimsfrægð Bjarkar; auðvitað
stefnum við út líka. En við ætl-
um að byrja á að spila fyrir salti
í sárið.“
Rafn: „Salti í sárið hvað?“
Sigtryggur: „Salti í grautinn þá.
Það væri fáránlegt að jeyna ekk-
ert annað en bara ísland. En
mann óar samt óneitanlega við
því þegar maður heyrir að gefn-
ir séu út 2.000 smáskífutitlar á
viku í Bretlandi. Maður fer ekk-
ert bara þarna út og segir hæ.“
Rabbi: „Maður er samt bjart-
sýnn.“
Það sakar að minnsta kosti
ekki að hafa bartsýnina með á
útgáfutónleikana í Loftkastalan-
um í kvöld, en eins og aðrir tón-
listarmenn samtímans — til
dæmis Zebra, sem á næstunni
ætlar að spila í samvinnu við
Cigarette — viðurkenna dreng-
irnir að það sé á mörkunum að
hljómsveitin geti spilað ná-
kvæmlega það sem hljómar á
plötunni. Engu að síður á að
reyna það með tilheyrandi
ljósasjói og myndböndum."
Og hvað tekur svo við?
„Geðveik jólakynning og ef til
vill enn meira fjör síðar, ef við
náum einhverri athygli, í Lond-
on til dæmis. Ef ekki þá eru það
bara sveitaböllin næsta sumar,“
segja þeir Sigtryggur og Rafn,
næstum samtaka.
popp
SUNNUDAGUR
Súkkat, Tríó Jóns
Leifs
og fleiri í tilefni tólf ára
afmælis Gauks á Stöng.
Hugsið ykkur, 12 ár síð-
an bjórlíkið var upp á
sitt besta!
Bjarni Ara og Grétar Örvars
enn og aftur á Gauknum.
Raggi Bjarna og Stefán Jök-
ulsson
með frábært gigg, eins
og venjulega, á Mímis-
bar.
Haraldur Reynisson;
svei mér þá ef platan
hans er ekki bara góð. Á
sama stað og venjulega;
Fógetanum.
SVEITABÖLL
Deiglan, Akureyri
Hörður Kristinsson
harmonikkuleikari spilar
á fimmtudagskvöld í til-
efni hagyrðingakvölds
skáldfákanna þarna fyrir
norðan.
Pizza 67, Egilsstöðum
Diskósveitin Hunang
heldur uppi Travolta-
stemmningu á föstu-
dagskvöld.
Skálafell, Mosfellsbæ
Hljómsveitin Trípólí
leikur fyrir dansi föstu-
dags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Hreiðrið, Borgarnesi
Bubbi og Þorleifur með
gigg á föstudagskvöld.
Miðgarður, Skagafirði
Síðbúið sumarsveitaball
með hljómsveitinni
Sixties. Jólaæði heitir ný
glensplata sem er í bí-
gerð hjá sveitinni.
Vín vikunnar
Ódýmsti
vodkinn
íríkinu
Það lítur út fyrir að landabrugg-
arar séu búnir að fá dágóða sam-
keppni og ekki vonum framar. Nú
er kominn til reynslusölu í Ríkinu
eðalvodkinn Jazz Jamboree,
pólskur að uppruna og þjóðþekkt-
ur þar í landi. Jazz er 40 prósent
að styrkleika, þríeimaður (alSenS‘
ustu tegundir munu vera tvíeim-
aðar) til að tryggja að hann sé laus
við öll óhreinindi og spírabragð
og verðið er kr. 2.150 — það sama
og á íslensku brennivíni, sem hing-
að til hefur verið ódýrasta áfengið
í ríkinu.
Nafnið er þannig til komið að
þegar Djasshátíðin í Varsjá, elsta
djasshátíð Evrópu, var sett á lagg-
irnar árið 1956 var valið milli 101
vodkategundar sem opinbers
drykkjar hátíðarinnar. Þá keppni
vann eimingarhúsið Polmos
Starograd með þessum öndvegis-
vodka, sem er furðumildur af 40
prósenta sterkum drykk að vera
og hentar því einkar vel í ískaldan
snafs.
Enn sem komið er fæst Jazz
Jamboree aðeins í Heiðrúnu, í
Kringlunni, á Eiðistorgi og á Akur-
eyri, en ef neytendur taka við sér
fer hann í almenna dreifingu.
Verðið ætti ekki að tefja fyrir því.
sjónvarp
HP mælir með
Sinbað sæfarí ★ ★★★
(Sjónvarpið, föstudag
kl. 21:50)
— Príma skyimingamynd
með Douglas Fairbanks jr,
Maureen O’Hara & co. Litríkt
ævintýri.
II tuffo ★★★
(Sjónvarpið, sunnudag
kl. 22:40)
— Ljómandi ítalskur Evr-
ópuklassi um þroskandi
samveru kennara og nem-
enda.
Jennifer 8 ★★★★
(Stöð 2, föstudag
kl. 02:10)
— Súperskutlan Uma Thur-
man og stælgæinn Andy
Garcia fara á kostum í mögn-
uðum trylli.
Under Siege ★★★
(Stöð 2, laugardag
kl. 23:40)
— Steven Segal sýnir okkur
Die Hard-takta úti á rúmsjó
og er alls ekki síðri en rindill-
inn Bruce Willis.
HP varar
við
Bingólottó
(Stöð 2, laugar-
dag kl. 20:00)
Happ í hendi
(Sjónvarpið, föstu-
dag kl. 21:10)
Á meðan við hljót-
um að lofa Kínó-
leikinn í hástert
fyrir þær sakir einar að hann
tekur aðeins mínútu í sýn-
ingu (þó að upp á hvern dag
sé) þá verður að telja
Bingólottóinu sérstaklega til
lasts að það tekur heilan
klukkutíma. Meira að segja
Happ í hendi er ekki nema
fjörutíu mínútur og samt er
Hemmi Gunn margfalt færari
skemmtiþáttastjórnandi en
Ingvi Hrafn. Hæfileg lengd á
hvorum tveggja þessum
þáttum verður þó að teljast
fimm mínútur.
Empire City ★ 1/2
(Sjónvarpið, föstudag kl.
22:55)
— Bandarísk lágspennulág-
kúra. Ódýrt.
Royce ★ 1/2
(Stöð 2, föstudag kl.23:00)
— James Belushi kominn út
á afskaplega hálan ís.
Dangerous Heart ★
(Stöð 2, föstudag k I. 00:40)
— Æi, hvers eigum við sak-
lausir áhorfendur að gjalda?
To My Daughter ★
(Sjónvarpið, laugardag kt.
21:35)
— Bandarísk ofurvella um
mæður og dætramissi. Pass-
ið ykkur.
Sjónvarpsmaður vikunnar
Sjónvarpsmaður vikunnar
er Páll Magnússon, Eyjapey-
inn geðþekki, sem góðu heilli
er aftur tekinn til við að lesa
fréttirnar annað veifið á Stöð
2. Páll er einn af okkar fær-
ustu sjónvarpsfréttamönnum
og það var sannarlega sjónar-
sviptir að honum úr imbanum
á sínum tíma. En nú er Palli
semsagt mættur til leiks á ný
og les fréttir af alkunnri snilld.
Og við fréttafíklar getum loks
varpað öndinni léttar yfir að
þurfa ekki að hafa síður færa
sjónvarpsfréttamenn fyrir
augunum á hverju einasta
kvöldi. Nú er bara að vona að
Palli karlinn gerist ekki of
upptekinn við stjórnunar-
störfin á Sýn svo við fáum
meira af svo góðu. — Skila-
boð áhorfenda til stjórnenda
Stöðvar 2 eru þessi: í guðanna
bænum nýtið hæfileika Palla á
því sviði þar sem þeir njóta
sín best; við fréttalestur.
Egilsbúð, Neskaupstað
Auk diskós með Hun-
angi ætla Norðfirðingar
að halda uppi sérstakri
kvölddagskrá þar sem
austfirskar stúlkur
keppa um titilinn „Ljós-
myndafyrirsæta Austur-
lands“.
Gjáin, Selfossi
Októberfest er nú fyrst
að fara út á land með
Nuno Miguel og Millj-
ónamæringunum á
föstudagskvöld.
Duggan, Þorlákshöfn
Bubbi Morthens og Þor-
leifur Guðjónsson með
allt milli himins og jarð-
ar á laugardagskvöld.
Apple - umboðið hf.
Skipholti 21, simi: 511 5111