Helgarpósturinn - 23.05.1996, Side 15

Helgarpósturinn - 23.05.1996, Side 15
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1996 15 Igri Framundan er enn ein keppnin um fegurstu konu landsins. Til aö kynnast stúlkunum í réttu (dags)ljósi — utan Hótels IM íslands — settust þau Jim Smart og Guðrún Kristjánsdóttir upp í flugvél og flugu til Vestmannaeyja, þar sem þau fylgdust með stúlkunum innan um Heimaklett og háhyrninga.--------;• _ eeenum tann Vélin drífur ekki upp, við er- um allar svo feitar,“ gall í ónefndri fegurðardís — sem vissi þó betur — í þá mund er Flugleiðavél á leið til Vest- mannaeyja tókst á loft um miðja síðustu viku með 21 feg- urðardís innanborðs — og fá- einar ekki fegurðardísir. Mað- ur á náttúrulega ekki að leyfa sér að láta þá hugsun reika, en án þess hreinlega að ráða við það skaut þeirri vangaveltu niður í kollinn á mér við flug- tak hvort það myndi vekja meiri athygli ef flugvél með öll- um þessum fegurðardísum innanborðs lenti í hrakningum en ef í henni væru bara „venju- legir“ farþegar?! Auðvitað, ekki spurning. Alveg eins og það yrði saga til næsta bæjar ef í vélinni væru nokkrir ráðherrar landsins, — þó ekki væru nema fáeinir færir knatt- spyrnumenn. Kannski örlaði á þessari hugsun vegna flughræðslu, en ég vissi sem var að slíkt gat auðvitað aldrei gerst í öðru eins blíðviðri og var þennan dag; þegar maður ímyndar sér að maður geti snert Hekluna. í Vestmannaeyjum lenti vélin skömmu eftir hádegisbil; tutt- ugu mínútna flug er náttúru- lega enginn tími. Rétt búinn að losa sig úr beltunum þegar í hátalaranum hljómar að mað- ur eigi aftur að fara í spenni- treyjuna og brjóstsy.kurinn sem boðið var upp á er ekki svo mikið sem soginn til hálfs. Þótt blíðviðrinu slotaði ekki var eins gott að hvíti lamba- krullujakkinn (ljósmyndarinn var öllu bjartsýnni) var með í för, ella hefði maður þrátt fyrir allt króknað úr kulda. Óþarft er að lýsa nánar skoðunarferð- inni um Eyjar. Bæði hefur það komið fram í flestum fjölmiðl- um og svo má lesa það það út úr myndatextunum hér að neðan. Þó má svona til gamans geta þess að um borð í Herjólfi, sem fór hringferð um Eyjarnar, fengu tvær stúlkn- anna léttan kitiing í magann og í skammá stund leit út fyrir að sjóveiki væri að ná á þeim tök- um. Og viti menn; báðar tvær voru þær úr Reykjavík. Þær voru þó fljótar að gleyma flökurleikanum þegar út á þil- far kom, þar sem þær önduðu að sér fersku sjávarloftinu. í lok ferðarinnar var svo henst um borð í PH Víking og siglt sem leið lá að næstu síld- hann rúmlega níu og lent eins og lög gera ráð fyrir tuttugu mínútum síðar. Á meðan sum- ar fengu sér fegurðarblund í flugvélinni heyrðist snökt úr fremsta hluta hennar, þar sem tvær stúlknanna sátu í faðm- lögum. „Það getur ekki verið svona erfitt að skilja eftir dag- inn,“ hugsaði ég með mér, „jafnvel þótt hann hafi verið skemmtilegur." Ég komst að því skömmu síðar að ástæða snöktsins var að þennan sama dag hafði kærasti annarrar þeirra sagt henni upp og hin var að hugga hana. Én sú sam- heldni sem myndast hafði í hópnum. Við skulum bara vona að sú hin sama og lenti í þessari raun geti brosað í gegnum tárin á úrslitakvöldinu um „Ungfrú ísland", sem fram fer á Hótel íslandi annað kvöld. Þar verður, eins og við er að búast, mikið um dýrðir, enda á ekki bara að sýna beint á Stöð 3 (sem nýlega fékk keppnina á silfurfati frá Stöð 2) heldur hef- ur MTV hug á að sýna frá keppninni. Kynnar kvöldsins verða Unnur Steinsson og Hinrik Ólafsson. artorfu. Ekki til þess að draga í net eitthvað af silfri hafsins heldur til að kanna hvort þar væru háhyrningar á ferð. Mik- ið vorum við; ég, ljósmyndar- inn, fegurðardrottningarnar, dómnefndarmeðlimirnir og aðrir um borð, nú kát með líf- ið; flest vorum við í fyrsta sinn að sjá „Willy“, eins og einhver hrópaði, með berum augum, eða Killer-Whale eins og þeir heita á ensku. •? Flestir stóðu í þeirri ' trú að þarna færu af- ar ljúfar skepnur, t sem má ímynda sér ; T":. j að byggist á því að háhyrningum og höfrungum er oft ruglað saman, en sú Jsf®; er greinilega ekki raunin. Öll fengum við að minnsta kosti 4 hroll þegar því var | * lýst fyrir okkur af bráðskemmtilegum ,y ^ " leiðsögumanni að háhyrningar ættu til að fara upp á land, ná sér í selkópa og " fleygja þeim upp í loftið í þeim tilgangi að brjóta í þeim hvert bein, svo þeir væru auðveldari til átu! Eftir stutt stopp á Mánabar var nú ferðinni heitið heim eft- ir ánægjulegan dag. Lagt var í Þær námu nýtt land í Vestmannaeyjum þar sem þær yljuðu sér á heitri jörðinni. Hver annarri fegurri — ekki bara að utan heldur að inn- brostu þær á móti Eyjasól- Förðunarfreyjur eru ómissandi í ferð sem þessari, en það eru þessar tvær fremstu á myndinni, sem voru stúlk- unum til halds og trausts. Þrátt fyrir að vera í miðjum stúdentspróf- um í MR gaf Ásta Andrés- dóttir (Indriða- sonar) sér tíma til að koma. lííhaaa... Suðurnesja-Sólveig Lilja fór eins og þær flestar létt með að spranga. Þarna er lík- amsræktarpúlið að skila sér. Skvísurnar: Hjördís Sigurðardóttir frá Akranesi og Vigdís Jóhannsdóttir úr Keflavík. Vestmannaeyjasjarmörinn er þarna fremst á myndinni. Thelma Róbertsdóttir heitir hún og tók hinar í nefið í spranginu, þótt allar sýndu þær fína takta. Ef þarna fer ekki rétt kona í réttu umhverfi: Ungfrú Akureyri, Auður Geirsdótt- ir, stillir sér upp fyrir MTV, sem heimtar að fá að skoða allar dísirnar. Þetta var nú ekki alveg hola í höggi en ansi hreint nálægt því. Tvær úr hópn- um sýndu það og sönnuðu að þær höfðu báðar áður snert golfkylfu. Aðalheiður Millý Steindórsdóttir og Auður Geirsdóttir um borð í Herjólfi, þar sem boðið var meðal annars upp á sjávarrétti af hlaðborði; gellur og fleira gott. • 1 L*Jj i |

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.