Helgarpósturinn - 23.05.1996, Qupperneq 18
RMMTUDAGUR 23. MAÍ1996
1. ÍÞRÓTTIRNAR. Nú byrja öll
sumarhlaupin fyrir almenning, ^
kvennaknattspyman og akst-
ursiþróttirnar — leiöindi.
2. SUNDIÐ. Nábleikur og skamm-
degisfölur mætir maður í sund
til aö uppgötva að allir hinir eru
flottari — og sólbrúnni.
3. GARÐVINNAN. Hvenær lætur
maöur veröa af því aö hellu-
leggja eöa malbika yfir garö-
nefnuna —- ó... hvenær?
4. VORFLENSAN. Stíflað nef,
þungur hósti, beinverkir, hiti og
ógleöi — þetta er náttúrlega
ógeöslegt fyrir hvern mann.
5. FORSETAEFNIN. Væmin heilsa
þau bláókunnugum, mæta í
kirkju og á alla íþróttaleiki —
óþolandi borgarastéttarpakk.
6. LIFIBRAUÐIÐ. Hver nennir
þessum fjanda? Aö mæta í
vinnuna á lágmarkslaunum alla
daga — og hafa varla í sig og
á.
7. FERÐALÖGIN. Einhverra hluta
vegna eru allir aðrir en maöur
sjálfur aö skipuleggja skemmti-
legt suniarfrí — afhverju?
8. UMFERÐIN. Ökuníðingar skipt-
ast í tvo hópa í sumarveörinu:
hraöabrjálæöinga og dólara —
hvorirtveggia eru vonlausir.
9. SKÓGRÆKTIN. Þaö er illþol-
andi aö vera píndur í aö gróöur-
setja skammlífar hríslur í þágu
góös málstaðar — ömurlegt.
10. KYNLÍFIÐ. Líffræöin segir aö
viö eigum aö vera í mestu fjöri
á vorin — en viö búum á landi
þar sem aldrei sumrar.
Þú veist
að líf þitt er
aumkunar-
vert þegar...
1.. .. þú hefur ekki misst af ein-
um Guiding Light-þætti frá síö-
ustu áramótum — en saknar
þó Santa Barbara af heilum
hug.
2.. .. vinir þínir hafa ekki sam-
band viö þig nema til að spyrja
hvort þeir geti fengið verkfæri
eða peninga að láni.
3. ... allirí vinnunni nema þú eru
búnir aö sjá skemmtilegustu
kvikmynd sem komið hefur í
bíóhúsin á árinu.
4.. .. brauöiö er myglaö, Seríósiö
búiö, mjólkin útrunnin, bíllinn
bilaður og þú finnur ekki pening
fyrir strætó.
5. ... eina fólkiö sem hringir í þig
er símasölufólk, foreldrar þínir
og hálfvitar að hringja í vitlaust
númer.
6.. .. þú ertfarin(n) aö nota allar
lausar stundir til aö semja Ijóö
og smásögur og ert sann-
færð(ur) um hæfileikana.
7.. .. ýmiss konar námskeið og
fýrirlestrar eru farin aö troöfylla
svo dagbókina aö bókstaflega
ekkert annaö kemst aö.
8.. .. þú ert farin aö spá í hvort
viöskiptafræðin (eöa lögfræöin)
hafi virkilega verið þaö eina
sem til greina kom.
9.. .. meira aö segja fyrrverandi
ástkonur/elskhugar eru farn-
ar/farnir aö tala vel um þig —
og gera þaö alltaf í þátíö.
10.. .. þaö eina sem þér dettur f
hug á helgarkvöldi er aö spila,
horfa á sjónvarp, tala viö mak-
ann eöa fara f göngutúr.
Aldrei, aldrei aftur
Aandlausum og sólarsnauð-
um miðvikudegi, þeim
þriðja í röð andlausra „mið-
viku-daga“, er fátt hægt að
draga sísona rithæft upp úr
dyngju sinni. Ég hef nefnilega
átt við sama vanda að etja og
þorri landsmanna það sem af
er vikunnar; að þjást af ekki
bara venjulegu heldur óvenju-
lega miklu andleysi. Ég held að
hundurinn liggi í því grafinn
hve helgin á mínum bæ var
hressileg. Hún var ekki síðri en
hjá sólarþyrstum höfuðborgar-
búum sem þyrptust á bari bæj-
arins og létu öllum illum sem
góðum látum. Að visu má vera
að ekki hafi allir skemmt sér
eins vel og ég. Hafi svo verið
verð ég að segja að ég er fegin
að hafa ekki blandast því geði.
Helgin var ekki bara
skemmtileg heldur var hún,
eins og svo margar á undan-
förnum vikum, óvenjulöng.
Hófst með öðrum orðum á mið-
vikudegi, um miðjan dag, að
minnsta kosti hvað mig varðar.
Eins og ég greini frá á öðrum
stað í blaðinu brá ég mér út fyr-
ir landsteinana til Vestmanna-
eyja upp úr hádegi á miðviku-
dag — sem ég hef ekki gert síð-
an ég keppti þar í íþróttum á
unglingsárunum. í Eyjum and-
aði ég ekki bara að mér gras-
ilminum og fékk saltan sjóinn í
andlitið (og sá að auki Heima-
klett og háhyrninga) heldur
upplifði ég það að vera fegurð-
ardrottning í einn dag. Að vísu
eiginlega bara sem áhorfandi.
Alltént gerði ég á miðvikudag-
inn nánast allt það sama og dís-
Örún
Stjánsdóttir
imar sem keppa um nafnbótina
fegurðardrottning !slands á
föstudaginn. Fór með þeim í
bátsferð, borðaði snittur,
bragðaði á gellum, sá furðufisk-
ana á náttúrugripasafninu og
endaði á Mánabar, svo fátt eitt
sé talið. Eftir lendingu á Reykja-
víkurflugvelli þusti ég heim á
leið, beinustu leið í sturtu og
svo í sparifötin. Afmælismatar-
boð iá í loftinu. Ég varð að hafa
hraðan á, enda orðin ansi
hreint sein. Hitti ég þar fyrir
einhverjar skemmtilegustu
konur í bænum í bland við ansi
gerðarlega karlmenn. í boðinu
var skrafað fram eftir nóttu; um
pólitík meðal annars (út af
strákunum) og drukkið enda-
laust af Grand og Calvados og
heil býsn af kaffi. En eins og
ætíð þegar líða tekur á nóttina
kemur fiðringur í fólkið og allir
vilja á næsta bar. Flest enduð-
um við á einum þeim besta, en
jafnframt minnsta, í bænum,
„þar sem ævintýrin enn ger-
ast“.
Timburmennin voru ekkert
svo ógurleg á uppstigningar-
dag, reyndar svo þolanleg að
hláturinn var aldrei langt und-
an. Það er nefnilega oft svo að
sé maður ekki illa fyrirkallaður
eftir létt fyllerí getur „the day
after“ orðið ekki síðri en kvöld-
ið áður.
Á föstudaginn rann svo upp
hefðbundinn vinnudagur. Vit-
andi það að helgin var fullbók-
uð vann maður eins og skepna
f5afflh.úsið
• Mirabelle í Kringlunni
Brilljant, en undir rúllustiga...
Fyrir nokkrum mánuöum var
opnaö nýtt kaffihús í verslun-
armiðstööinni Kringlunni. Þessi
yngsta viöbót í núorðið skrautlega
veitingahúsflóruna á þessum
slóðum nefnist Mirabelle-og er
staðsett útí horni undir rúllustig-
anum við hliö matvöruverslunar
Hagkaups. Mirabelle er áberandi
merkt sem „brasserie" og „café"
og vegna fyrrnefnda orösins býö-
ur staðurinn uppá létta rétti sem
spanna allt frá skemmtilega mat-
reiddri rauösprettu, kjúklinga- og
sjávarréttasúpum til brauömetis
með ýmiskonar meðlæti. Sérstök
áhersla viröist lögð á sjávarrétti
því þeir eru oftast nokkrir á mat-
seðlinum. Ljómandi flottheit og
taktar eru á matreiðslunni allri
saman. Staðurinn er innréttaður
á dökkan og nokkuö hlýlegan hátt
þar sem þægindi gesta eru höfð í
fyrirrúmi — lítillega á kostnað út-
litsins. Vert er að geta skemmti-
legra málverka sem þekja veggi
og minna helst á stílinn í París og
Ítalíu kringum annan og þriðja
áratug aldarinnar— eðajafnvel
hina skondnu stefnu sósíalreal-
ismans sem var uppá sitt besta f
Sovétríkjunum sálugu um svipaö
leyti. Ætli þetta kallist ekki póst-
módernismi af einhverju tagi;
svipar bæöi til líkamlegrar hetju-
dýrkunar Fom-Grikkja og munúð-
arfullrar líkamsdýrkunar í mynd-
skreytingum nútímans. Því miður
láöist höfundinum að merkja sér
verkin og undirritaöur kaffihúsa-
rýnir nennti ekki aö spyrja um
hann. Mirabelle er tiltölulega rúm-
góður staöur og sjálfsagt pláss í
sæti fyrir sextíu til sjötíu manns.
frekar þröngt er milli borða og
mætti fækka þeim aö ósekju.
Húsgögnin eru hönnuö og smíðuö
að Miðjarðarhafshætti þar sem
fólk er ansi smágert og þannig
hálfbjánalega lág; þetta er þó
ekki til tiltakanlegs ama nema fyr-
ir fólk af yfirstærð. Þjónustan er
ágætlega lipur, fyrirferöarlítil,
heimilislega fumlaus og hraövirk,
en þó er kannski ekki alveg aö
marka undirritaöan í þeim efnum
því alltaf þegar hann héfur brugð-
iö sér þarna inn má telja kúnnana
á báöum höndum. Kaffiö er alveg
sérstaklega gott á Mirabelle og
einsog veitingarnar framreitt í
gerðarlegu leirtaui sem framleitt
er fyrir fullorðiö fólk — kærkomin
tilbreyting frá húsgögnunum.
Hugsunin bakviö Mirabelle geng-
ur ágætlega upp; staöurinn er til
dæmis galopinn í annan endann
að hætti götukaffihúsa og ef
menn horfa framhjá rúllustigan-
um má sjá alla leiö útí bíla-
geymslu... Mirabelle líður sem-
sagt mjög fyrir staösetninguna,
sem er með ólíkindum útnáraleg.
Flutningur á kaffihúsavænni slóð-
ir hlýtur að vera framarlega á dag-
skrá eigendanna. Sérstakt hrós
fær Mirabelle fyrir framúrskarandi
úrval af bjór frá flestum heims-
hornum. Aö öllu samanlögðu er
Mirabelle alveg hreint Ijómandi
brasserie og gefur erlendum sam-
svörunum sínum ekkert eftir.
Þarna á maöur yfirleitt þægilegar
stundir og sökum þess aö gestir
eru frekar fáir og tónlistin lágt
stillt eru þessar stundir gjarnan
hljóölátar og viðbrigði frá ysnum
og niöursoðnum Kringluþysnum.
Sem er vitaskuld brilljant. Staö-
setningin dregur Mirabelle góöan
slatta niöur; aö minnsta kosti um
eina stjörnu.
til þess að losna við enn frekari
timburmenni á mánudeginum.
Um kvöldið var framundan
annað matarboð „helgarinnar"
(og úff, ef til vill það þriðja á
laugardeginum). Nú var komið
að því að hitta gömlu klíkuna
úr Hafnarfirði, sem ákveðið
hafði verið með dágóðum fyrir-
vara. Sumbl og át í bland við
samræður í gleði og sorg. Eftir
fáein rauðvínsglös leystist ein-
kennileg orka úr læðingi og fyrr
en varði vorum við komnar í
DFB-tímabilið (djamm fyrir
barneignir). Af stemmningunni
að dæma þarna um kvöldið má
ætla að DEB-tímabil (djamm
eftir börn) sé í uppsiglingu, en
það verður tíminn að leiða í
ljós. Það sem við þurftum að
tala! Þrátt fyrir að nokkuð væri
um liðið síðan við þær „gömlu“
höfðum hist urðu löngu grafnar
minningar svo ljóslifandi, að
það var eins og „gerst hefði í
gær“. Og jafnvel þótt við vær-
um að skemmta okkur rétt hjá
nóbelskáldinu var ferðinni heit-
ið á litla dimma barinn þar sem
ævintýrin héldu áfram að ger-
ast.
Laugardagurinn var framan
af erfiður, en þó raunverulega
ekki. Eiginlega þvert á móti.
Matarboðinu var hins vegar af-
lýst en þess í stað haldið frá-
bært Evróvisjónpartí á Brá-
vallagötunni; partí sem mörg-
um líður seint úr minni. Svo var
einu sinni sem oftar endað á
litla ævintýrabarnum.
Helginni þar með lokið.
Skyldi nokkurn undra þetta
með andlega grafhýsið. Aldrei,
aldrei aftur... fyrr en á föstu-
dag.______________________________
Höfundur er ritstjómarfulltrúi HP.
Alþjóðafréttir á Veraldarvefnum
Fréttatengdum heimasíöum fjölg-
ar gríöarlega ört á Veraldarvefn-
um þessar vikurnar: aö blessuðu
kláminu undanskildu er vöxturinn
sennilega einna mestur á þessu
sviöi. Síðurnar eru hinsvegar einsog
gefur aö skilja ákaflega misjafnar aö
gæöum og til aö greina
kjarnann frá hisminu
mælir .netið með nokkr-
um framúrskarandi góö-
um. Meira um fréttir á
Vefnum í næstu viku...
■ USA Today á slóöinni
http://www. usa
today.com/ er frábært
uppá bæöi bandariskar
og alþjóðlegar fréttir aö
gera. Hérer þó ekkert
leitartæki aö finna, en
íþróttir, fjármál, menn-
ing, veður og tíska fá yf-
irdrifiö pláss og lesenda-
könnun og vel unnir list-
ar yfir heita staöi á Vefn-
um eru til fyrirmyndar...
■ CNN er sömuleiðis
meö fjandi magnaða
heimasíöu meö flottri
myndrænu og áhuga-
veröum vídeóbútum auk
allra efnisþáttanna sem
fjallaö er um á sjón-
varpsstöðinni. Smelli menn sér inná
http://www.cnn. com/ koma
sterkustu punktar CNN á Vefnum í
Ijós: kröftugt leitartæki og stööug
uppfærsla...
■ US News £ind World Report
blandar saman fréttum og nýjasta
slúðrinu á Capitol Hill. Afbragösgóö
[rannsóknarjblaöamennska,
skemmtileg viötöl, fjölmiölaumfjöllun
og fleira nammigott aögreina síöuna
á http://www.agtnet.com/us
news/textmenu.htm/ frá
restinni...
■ Crayon’s News Sources er yndis-
leg heimasiöa meö slóöina
http://crayon.net/using/links.
html og troöfull af tenglurri yfirá
uppsprettur alþjóöafrétta víösvegar
um heiminn. Þar á meöal má nefna
útvarpsfréttastöð ABC á Vefnum,
The Jerusalem Post, St. Pétursborg-
ar-Póstinn, China News Digest,
Daily News frá Islandi (!)
og Post í Zambíu. Enn
fleiri tengla er þarna aö
finna á frábærar heima-
síöur um stjórnmál, veö-
ur, viöskipti, upplýsinga-
tækni, heilsu, hreysti,
listir, dægradvöl, teikni-
myndir, iþróttir og auövit-
aö slúöur. Jafnframt er
þarna aö finna ítarlegar
leiöbeiningar svo net-
hausar fái smíöaö eigin
netrit...
■ NandoNet heimasíö-
an á http://www2.
nando.net/nt/nando.
cgi er staðsett í Raleigh
í Noröur-Karólínu og inni-
heldur efnisflokkana al-
þjóðafréttir, innanlands-
fréttir, iþróttir, stjórnmál,
viöskipti, upplýsinga-
tækni, heilsu, vísindi og
dægradvöl...
■ Media Information á
slóðinni http://www. mediainfo.
com/ed pub/e-papers.home.
page.html er heimasíöa meö griöar-
lega nákvæmum og yfirgripsmiklum
upplýsingum um allar þær fjölmörgu
heimasiöur dagblaöa sem fýrirfinn-
ast á Vefnum....
■ Links to other media sources er
einsog nafniö gefur til aö kynna
heimsíða sem inniheldur upplýsingar
um allt mögulegt og ómögulegt
fréttatengt á Veraldarvefnum. Smell-
iö ykkur inná http://www.ping.at/
gugerell/media/ezindx.htm —
en þó því aöeins aö þiö hafið nægan
tíma fyrir höndum...
Elma Lísa & Marlon Brando
Það er ekki alltaf jafn þakklátt aö starfa á svo umdeildu blaöi sem HP
er, en stundum uppskera menn sannarlega laun erfiöis síns. Þaö var til
dæmis í þessari viku sem blaðiö komst aö þeim stórtíöindum aö súper-
sjarmörinn Marlon Brando á laundóttur á Islandi. Og hefur ekki þóst vita
af henni í aldarfjóröung; ekki eitt bréf eöa smávegis jólapakki. Þetta er pott-
þétt næsti forsíöuuppsláttur National Enquirer. Þaö gat svo sem veriö aö
dóttirin væri í fremstu röö fyrirsæta okkar þótt hún liafi kannski aldrei náö
almennilega að slá í gegn: sjálf Elma Lísa Gunnarsdóttir — Brando. í
hættulega glettnislegu augnaráöinu vottar fýrir þunglyndistaumum, munúö-
arfullar varirnar æpa á ögrun, sígild fegurðin lamar leikmenn og ávalar
andlitslínurnar eru til aö teyga meö augunum af áfergju... þetta er allt
nákvæmlega eins. Brando neyöist til aö gangast viö hinni íslensku dóttur!