Helgarpósturinn - 23.05.1996, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 23.05.1996, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1996 31 m: fnutímakvenprófið Prá áramótum hefur HP staðið fyrir dauðaleit að hinum sanna karlmanni og hinum sanna íslendingi. Fyrir tveimur vikum hófst svo leitin að hinni einu sönnu nútímakonu á íslandi; hver er hún og hvaða hugmyndir hefur hún um sjálfa sig? HP hefur tekið upp vörn gegn kynjamisrétti og segir þvert nei við skúringum, þvotti og kúgun karla. HP átelur þær konur sem fela sig bak við frakka eiginmannsins. Ufi kvenfrelsið! í þessari viku leiða saman hesta sína nöfnurnar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, kvenfrelsishetja og borgarfulltrúi, og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og kyntákn. Steinunn lagði Steinunni 1. Hvort finnst þér meira um vert að fá karl eða konu í embætti forseta íslands? 2. Hvaða kynslóð karlmanna heillar þig mest; yngri en þú, jafnaldrar eða karlmenn eldri en þú? 3. Hvort finnst þér skemmtiiegra að skúra eða þvo þvott? 4. Kaupirðu þér að minnsta kosti eina flík í mánuði? 5. Hvað ferðu oft — karimannslaus — út að skemmta þér í mánuði? 6. Hvemig finnst þér ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hafa staðið sig? 7. Leyfirðu þér oft að sofa út? 8. Hefur karlmaður „farið illa með þig“ — hefur þú „farið illa með karlmann"? 9. Ferðu í kvennaferðir til útlanda eða hér innanlands? 10. Saknarðu mannsins í lífi þínu þegar þú ert í burtu frá honum meira en tvo daga? SVÓ; „Ég vil auövitaö fá Konu til aö komandi kynslóöir venjist þeirri hugsun aö konur séu forsetar, borgarstjórar og í öörum slíkum stöð- um.“ 0 SVÓ:„Aldurinn skiptir ekki máli.“ 1/2 SVÓ:„Ég geri hvorugt þessara verka.“ 1 SVÓ: „Já, svona frá einni upp í þrjár, eftir efnahag hverju sinni.“ 1 SVÓ: „Ég fer oftar karlmannslaus en meö karlmanni." 1 SVÓ: „Davíö Oddsson og hans félagar hafa sýnt þaö — sem kom svosem engum á óvart — aö þeir hafa engan áhuga á aö laga launa- mál kvenna eöa taka á málum sem snúa aö jafnrétti kynjanna, þrátt fyrir fagurgala þeirra og Sjálfstæðra kvenna fyrir kosningar." 1 SVÓ. lájájá I SVÓ: „Ég held aö allir sem komnir eru yfir fermingaraldur hafi einhvern tímann lent í aö hryggbrjóta einhvern eöa veriö hryggbrotnir." 1/2 SVÓ: „Ég fer oft í kvenrembuferðir." 1 SÓÞ: „Fyrst viö þurfum aö vera aö kjósa forseta á annað borö vil ég bara fá almennilega manneskju í það. Alveg sama hvort þaö er kall eða kelling." 1 SÓÞ: „Ég held að karlmenn sem ungböm séu hvaö eftirsóknarverö- astir." 11/2 SÓÞ: „Mér finnst skemmtilegra aö þvo þvott." 0 SÓÞ: „Já, þaö geri ég og jafnvel fleiri ef ég er kærulaus." 1 SÓÞ: „Ég fer iöulega karlmannslaus út aö skemmta mér." 1 SÓÞ: „Þessum ósköpum hlýtur aö fara aö linna." 1 SÓÞ: „Ef ég má þaö. En ég hef nú ekki oft tækifæri til þess.“ 1/2 SÓÞ: „Ég held aö samskipti karla og kvenna byggist á því aö fólk fari vel og illa hvaö meö annaö.-' 1/2 SÓÞ: „Nei. Þaö geri ég ekki." 0 SÓÞ: „Ég hef saknaö hans stanslaust frá því ég kynntist honum." 0 SVÓ: „Þegar ég hef tíma til þess." 1/2 ÚRSLIT: Steinunn Óskarsdóttir lagði nöfnu sína Þorsteinsdóttur með 7 stigum gegn 6 1/2. En báðar bera þær nafnbótina nútímakona með rentu. Nútímakonur HP: Jólianna Vilhjálmsdóttir, Sigrún Guöný Markúsdóttir og Steinunn Valdis Óskarsdóttir. Sannleikurinn um „friðarsinnann“ Gandhi að sofa nakinn með nöktum ungmeyjum. Þegar betur er að gáð er það kannski ekki svo ýkja undarlegt. Gandhi út- skýrði þetta háttalag sitt þann- ig, að hann væri að láta reyna á skírlífisheit sitt. Hann gaf aldr- ei nokkurn tímann upp hvort hann fengi einhverja ánægju út úr þessu. Gandhi átti reyndar eiginkonu og gat sofið hjá henni nakinn hvenær sem er, en þótti ekki nægilega mikil þolraun. Hann var nefnilega ekki tiltakanlega hrifinn af út- liti hennar. „Eg get hreinlega ekki afborið að líta á andlit hennar,“ sagði hann eitt sinn. „Svipbrigðin minna helst á andlit auðmjúkrar belju.“ Taugaáfall við sáðfall Gandhi var ekki mótfallinn kynlífi, engan veginn. Það var hans einlæga trú að gift pör ættu að hafa kynmök þrisvar til fjórum sinnum — á ævinni. Hann sagði að það ættu að gilda lög sem bönnuðu pörum að hafa oftar kynmök en það. Gandhi sjálfur naut hins vegar kynlífs í ómældu magni. En það var þegar hann var ungur. Og Gandhi vildi ekki að nokkur annar fremdi sömu hræðilegu mistök. Skoðanir Gandhis á sáðláti stefndu einkum að því að slíkt skyldi forðast af fremsta megni: „Hæfileikann til að hemja og safna þessum dýr- mæta vökva er aðeins hægt að öðlast með linnulítilli þjálfun. Þegar markinu hefur verið náð mun uppsafnaður vökvinn verða botnlaus uppspretta orku og styrkleika." Þegar Gandhi vaknaði eitt sinn á miðjum aldri og uppgötvaði sér til mikillar skelfingar að hann hafði fengið sáðfall um nóttina fékk hann alvarlegt taugaáfall. Hafði áhuga á hægðum Gandhi hafði einnig mikinn áhuga á hægðum. Samkvæmt einum ævisöguritara hans voru hægðir aðalumfjöllunar- efni meirihluta sendibréfa hans. Það sem vakti forvitni hans einna mest var nýtileiki stólpípna. Hann fékk sér sjálf- ur að minnsta kosti eina slíka á dag. Hann lét hinar ungu lags- konur sínar gera slíkt hið sama og dagleg kveðja til stúlknanna var eitthvað á þessa leið: „Systir góð, voru hægðir þínar ekki góðar í morgun?" Hélt aga á fjölskyldunni Eins og svo mörg stórmenni kom Gandhi ákaflega illa fram við fjölskyldu sína. Honum var sem fyrr greindi ekkert sér- staklega vel við eiginkonuna og því skal engan undra að hann leyfði henni ekki að mennta sig. Og hann leyfði sonum þeirra heldur ekki að ganga menntaveginn. Þar að auki var hann ósáttur við kvonfang elsta sonarins og gerði piltunginn arflausan. „Andvígur“ læknavisindum Gandhi hataðist út í nútíma læknavísindi. Hann hataði læknavísindi reyndar svo af- skaplega heitt að hann neitaði breskum læknum um að gefa eiginkonunni ófríðu pensilín- sprautu þegar hún veiktist heiftarlega af lungnabólgu. Þetta var erfitt val sem Gandhi stóð frammi fyrir: annaðhvort að starida fastur á sannfæringu sinni eða bjarga eiginkonunni. Gandhi gat verið fastur fyrir þegar nauðsyn krafði og eigin- konan lét lífið með harmkvæl- um eftir að hafa verið neitað um pensilínið. Hann hélt sann- færingunni í staðinn. Ég vil samt ekki ganga svo langt að segja að Gandhi hafi verið of- stækisfullur andstæðingur nú- tíma læknisvísinda. Stundum gat hann séð notagildi þeirra. Til dæmis þegar hann leyfði læknum náðarsamlega að gefa sér inn kínín eftir að hann hafði veikst illilega af malaríu. Svipað tilvik kom upp þegar hann fékk lífshættulegt botn- langakast og samþykkti að láta skurðiækna fjarlægja meinið úr kviðarholinu. Herskár friðarsinni Hið magnaða orðspor sem fór af friðarvilja Gandhis er vissulega verðskuldað, en það kom til ögn seinna í lífi hans en almenningur áttar sig á. Það var ekki minnst á það í stór- mynd Sir Richards Attenboro- ugh, en allt fram á síðari ár var Gandhi fremur hrifinn af stríðsrekstri af ýmsu tagi. Sam- anlagt gerðist hann sjálfboða- liði í þremur styrjöldum: Búa- stríðinu, Zúlú-stríðinu og fyrri heimsstyrjöldinni. Hann missti að vísu af tækifærinu til að þjóna Bretum í fyrri heims- styrjöldinni, því hann fékk slæma brjósthimnubólgu áður en til þess kom og var sjálf- krafa dæmdur úr leik. Það var kannski eins gott, því það sparaði honum fullt af heimskulegum útskýringum tveimur árum síðar þegar hann lýsti fyrir umheiminum þeirri bjargföstu vissu sinni að breska heimsveldið væri eitt af frumöflum djöflatrúar á jörð- inni. 1 hindúi = 10 múslimar Gandhi var sem sagt ekki þessi hreinræktaði friðarsinni sem flestir standa í meining- unni um. Hann var ætíð sam- þykkur beitingu ofbeldis sem neyðarúrræðis. Það kom glögglega í ljós þegar hindúar og múslimar bárust einu sinni sem oftar á banaspjót og Gandhi veitti því úrræði bless- un sína að skjóta tíu múslima fyrir hvern einn hindúa sem félli. Eftir þessum línum var ennfremur ein af frægustu yfir- lýsingum Gandhis um sjálf- stæði Indlands: „Ég myndi ekki hika við að fórna milljón mannslífum fyrir sjálfstæði Indlands." „Hitler er ekki slæmur“ Yfirleitt mælti Gandhi þó gegn ofbeldisbeitingu. Er Hltl- er tók sig til og réðst inn í Tékkóslóvakíu ráðlagði Gand- hi Tékkum að fremja frekar hópsjálfsmorð en að berjast og veita mótspyrnu. Svipuð heilræði gaf hann gyðingum síðar. Ráðgjafar Gandhis reyndu hvað þeir gátu að sann- færa hann um að nasistar væru ólíkir Bretum að því leyt- inu til að ofbeldislaus and- staða virkaði ekki gegn þeim. Gandhi bandaði þessu frá sér eins og hverri annarri vitleysu. Einn daginn — skömmu eftir að Hitler hafði gjörsigrað Pól- land, Frakkland og meirihlut- ann af meginlandi Evrópu — ákvað Gandhi að heillavænleg- ast væri að höfða til samvisku Hitlers. Eftir að hafa lagst und- ir feld og hugsað stíft um hvernig skyldi höfða til sam- visku sem allir aðrir voru sann- færðir um að fyrirfyndist ekki, þá datt Gandhi niður á svarið: opið bréf. „Hitler er ekki slæm- ur maður,“ sagði Gandhi við vini sína. „Hann mun leggja eyrun við og hlusta.“ En hann gerði það ekki. Steinarr Davíðs- son rakst nýverið á stór- skemmti- legt sagn- fræðirit sem ber titilinn „Legends, Lies & Cherished Myths of World History“ („Þjóð- sagnir, lygar og vinsæl- ar goðsagnir í mann- kynssögunni“) og er eftir Richard nokkurn Shenkman. Þarna eru teknar fyrir á einu bretti nokkrar helstu sögufalsanir og goð- sagnir mannkynssög- unnar og afhjúpaðar sem helber þvættingur á óvæntan hátt. Öllu gamni fylgir fúlasta al- vara og bókin er þann- ig byggð á ítarlegri rannsóknavinnu. Stein- arr veltir fyrir sér: Hvenær verður ís- landssagan skoðun á viðlíka hátt? Lítum á kaflann um hálfguðinn Mahatma Gandhi... Gandhi var vanur að reigsa um og segja við hvern sem heyra vildi: „Ég er sannarlega mahatma." (Mahatma þýðir stórbrotin sál.) Og ég er viss um að hann var það. En jafnvel sannarlega stórbrotnar sálir geta hagað sér undarlega. Einn af furðulegustu hlutunum í fari Gandhis var til dæmis að sem gamall maður kaus hann helst

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.