Vísir - 19.08.1972, Side 3
Visir Laugardagur 19. ágúst 1972
3
Hús Askenazy:
SEX HUNDRUÐ FER-
METRA
Það er augsjáanlega stórhýsi,
sem er i byggingu, enda tók það
tvær einbýlishúsalóðir fyrir sig.
Þarna er ekki um opinbera
stofnun að ræða þó svo að is-
lendingar liti á Ashkenazy, sem
STÓRHÝSI
umhverfið, búið er að steypa
upp bilskúr og slá upp mótum
við Brekkugerðið.
Þótt miðað sé við islenzkan
mælikvarða mun ein býlishús af
þessari stærð um 600 fermetrar,
þar af 355 fermetra grunnflötur,
þykja nokkuð stórt.
Eflaust sniður Ashkenazy sér
stakk við þarfir. Góðan hluta
tekur „studio” sem verður i
kjallara ásamt sjónvarpsher-
bergi, leiksvæði og fleiru.
Á neðri hæð er stofan, sem er
ekki heldur skorin við nögl,þar
sem hún mun vera milli 70-80
fermetrar. Þarereinnig sér að-
staða fyrir gesti með sér
inngangi, herbergi, baði og for-
stofu. Þar er einnig borðstofa og
eldhús, en á efri hæð svefnálma.
Aðstaða fyrir húsvörð er einnig
i húsinu.
Þeir i Arnarnesinu munu ef
til vill ekki blikna þótt þeir geri
samanburð á hýbýlum. Og
Brekkugerðingar geta varla
annað en ánægðir verið með að
hafa heimsfrægt nafn sem einn
af ibúum götunnar og það meira
að segja með tvö hús á
takteinum i bili.
Byrjað var á húsi Ashkenazy i
mai, en búast má við að pianó-
snillingurinn geti flutt inn i nýja
húsið með fjölskyldu sinni i
febrúar. -SB-
einhvers konar forseta í ,,lýð-
veldi listanna.”
— Það fer ekki hjá þvi, að hús
Ashkenazys, sem nú er drifið
upp mun vekja eftirtekt. Húsið
er þegar farið að setja svip á
TAKA NÆRTVOTONN
í NEFIÐ HVERN MÁNUÐ
— Visindamenn segja að neftó-
bak sé að mestu skaðlaust.
Nikótlnmagn i blóði þeirra, sem
nota neftóbak, sé ekki meira en i
þeirra sem nota aldrei tóbak, og
að neftóbakið hafi ekki nokkur
slæm áhrif á blóðþrýstinginn.
— „En tóbakið hefur slæm áhrif á
kynhvöt mannsins”, sagði okkur
verzlunarstjóri einnar tóbaks-
verzlunar borgarinnar. „En það
gildir nú reyndar ekki aðeins um
neftóbak heldur allt tóbak.”
Þrátt fyrir slikar kenningar
höfðum við landsmenn tekið i
nefið 12.737 kg i lok júnimánaðar
siðastliðins. Þetta er hið bæri-
legasta magn að minnsta kosti
þegar miðað er við munntóbaks-
magnið sem notað hefur verið
ifyrir jafn langan tima, 99 kg.
„Það er hin sæmilegasta sala
i neftóbakinu.” sagði afgreiðslu-
stúlka sem við spjölluðum við.
„Það eru alltaf þeir sömu sem
kaupa þetta.og vinsælast er
tóbakið i dósunum. Það er lika
framleitt i krukkum, en það selst
varla, þvi það er of mikið magn i
þeim, 250 gr. en 50 gr. i dósunum.
Og svo segja þeir að bezt sé, að
geyma neftóbakið i isskápnum.”
Neftóbakið er flutt inn frá
Springfileds, 'l'ennesse i Banda-
rikjunum og það er flutt i laufum.
Hjá Afengis- og Tóbaksverzlun
rikisins er sérstök neftóbaksgerð
og þar eru laufin möluð i fint og
gróft tóbak. Lang vinsælast er
grófa tóbakið, það fina selst
varla.
Þess skal svo getið að i júnilok á
siðasta ári, höfðum við notað
12,739 kg af neftóbaki, en i árslok
það ár, höfðum við tekið 25.488 1/2
kg. i nefið. -EA.
C " n
— hafa nú haldið stofnþing flokks síns
og segja arðróni og kúgun
borgarastéttarinnar stríð ú hendur
V______________________________________'
„ Kommúnistasamtökin
m-1 byggja á vísindalega
sósíalismanum, marxis-
manum — lenínisanum —
hugsun Maó Tsetungs, og
hlutverk þeirra er að
byggja up.p marxistan-len-
iniskan flokká islandi, sem
getur leitt öreigastéttina
fram til sigurs í sfettabár-
áttunni með sósíalisku
byltingunni og byggt alræði
öreiganna sem er millistig í
stéttlaust þjóðfélag komm-
únismans.."
Ofanskráð er tekið úr
yfirlýsingu gefinni út af
stofnþingi Kommúnistasamtak-
anna marxistanna-leninistanna,
sem haldið var i byrjun ágúst.
Segir ennfremur i yfirlýsingu
m-1: „Endalaus launavinna,
þrælkun, arðrán, og kúgun er
framtiðin, sem biður okkar, ef við
ekki setjum réttlæti hinnar vinn-
andi stéttar, — þeirrar sem
skapar öll verðmæti þjóð-
félagsins, gegn órétti auðvalds-
stéttarinnar, sem byggir tilveru
sina á eignarréttindum á fram-
leiðslutækjum...Höfuðstoð henti
stefnunnar á Islandi er Al-
þýðubandalagið og jafnframt
rætur og AB og ástundar
nákvæmlega sömu falsanir á
hlutverki öreigastéttarinnar,
sósialísku byltingunni...
Kommúnistasamtökin m-l
lögðu á stofnþinginu fram drög að
pólitiskum og skipulagslegum
grundvelli sinum. Þessi drög að
skipulagslega og pólitiska grund-
vellinum verða bráðlega gefin út i
fræðilegu málgagni samtakanna,
Rauða fánanum.” -GG.
höfufiaðstoð þjóðlegu
borgaranna. Stéttsvikararnir i
Alþýðubandalaginu hafa tekið að
sér að efla grundvöll þjóðlegu
borgaranna með öllu starfi sinu,
nú siðast með þátttöku i „Alþýðu-
stjórninni”...Alþýðubanda-
lagið...hefur reynt að falsa
sósialismann, afneitað byltingar-
sinnaðri heimssýn öreiganna og
klæðzt þess i stað heimssýn
borgaranna..Taglhnýtingur Ab,
Fylkingin, á sér sömu sögulegu
„ÓMENGAÐIR" KOMMÚNISTAR
Tveir bótar
reyna síld-
veiðar með
reknetum
„Sild, siid, það stoppar varla
hjá okkur siminn, siðan
Saxhamar kom með þessi 1300 kg
af sild hingað til okkar”, sagði
Sigurður Þórðarson fram-
kv.stjóri Eyjabergs i Vestmanna-
eyjum.
Saxhamar SH-50 fékk 1265 kg
nákvæmlega af sild i reknet um 9
milurNVaf Surtsey i gær. Og fór
aftur með netin til þess ð reyna a
nýjan leik. Annar bátur frá Rifi,
Hafrún SH-204, fór lika með
reknet i gærkvöldi, þegar fréttist
af árangri Saxhamars.
„Það eru strax farnar að berast
pantanir i sildina frá niður-
lagningaverksmiðjum. En
mennirnir eru að þessu rétt til
þess að útvega sér beitu fyrir
linuna i vetur”, sagði Sigurður
Þórðarson.
Saxhamar tók fyrir nokkrum
dögum reknet um borð og reyndi
fyrst fyrir sér i Jökuldjúpinu,
sem fyrrum voru vinsæl rekneta-
mið. En það bar engan árangur.
Menn hafa orðið varir við
lóðningar, sem minna á sildar-
torfur, og þykir benda til þess að
eitthvert slangur sé af sild við
Eyjar, enda var til skamms tima
mestur hluti allrar Suðurlands-
sildarinnar veiddur i grennd við
Vestmannaeyjar. Bátar frá
Eyjum sáu sild vaða út af
Hjörleifshöfða i fyrradag.
„Þetta er feit og falleg sild,
hversu mikið sem er af henni”,
sagði Sigurður Þórðarson hjá
Eyjaberg, sem tók á móti sildinni
til frystingar. „En þessir tveir
bátar eru með alltof fá net. Sax-
hamar er með aðeins 45 net, og
Hafrún fékk skrapað saman 25
net. Reknet eru vandfundin orðin
eins og forngripir”.
Saxhamar og Hafrún voru
byrjuð að draga netin i morgun,
en ókomnir að landi, þegar blaðið
fór i prentun. — GP
Fjör við
Langanes
Þorskurinn hefur, eins og svo
oft áður, gcfið sig við Langanesið.
i Þistilfirðinum og raunar Ifka
austan megin nessins, hafa færa-
bátar fengið hann grimmt i allt
sumar, að kalla má.
Visir frétti af þremur bátum i
morgun inni á Seyðisfirði, Skirni
úr Reykjavik, Skjóla og
Hafborgu, sem voru með 14 — 16
tonn eftir um tiu daga úthald við
nesið. Voru þeir langmest með
þorsk, en einnig eitthvað af ýsu.
Margir bátar hafa haldið sig við
Langanesið i allt sumar, eða
a.m.k. frá þvi i júlibyrjun, og
virðist handfæraaflinn hafa verið
langbeztur þar af öllum færa-
miðum við landið.
Heldur árar hins vegar illa hjá
minni bátum, opnum trillum og
slikum, sem aðeins geta fiskað
skammt undan heimahöfn, þvi
illa hefur viðrað og fiskur litið
gefiö færi á sér. Raunar var
sæmilegt að hafa við Hrollaugs-
eyjar snemma i sumar, en
nokkuð virðist hafa dofnað yfir
skakinu þar.
Humarinn hefur einnig verið
daufur undan Austfjörðunum,
Visir frétti af Fylki frá Neskaups-
tað, sem undanfarið hefur verið
að reyna við humarinn. Sögðu
skipverjar að sennile'ga myndu
þeirhætta þeim barningi fljótlega
og koma sér á fiskitroll.
Mest hefur þvi verið um að vera
við Langanesið i sumar, þar eru
nú bátar úr öllum landshornum.
Á Akranesi sögðu menn i
morgun, að þessa dagana væri
algjör deyða i fiskirii.
„Þeir eru enn margir i frii, og
hafa verið siðan um verzlunar-
mannahelgi. Og þeir eru allir
hættir á skaki hér. Það er ekkert
aö hafa — ju; einn bátur fór út i
morgun á færi, en hann hefur
heldur ekkert hreyft sig i mánuð
og ætlar nú aðeins að athuga
þorskinn, svona áður en haustar’
- GG