Vísir - 19.08.1972, Blaðsíða 5
5
Visir Laugardagur 19. ágúst 1972
I MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
Rœndi flugvél fyrir
„örkumlo börn"
Flugræninginn hlaut
fimmtán gullstangir,
og um 180 milljón krón-
ur i reiðufé var fært til
flugvallarins i Seattle.
Miðaldra maður með byssu
hafði rænt flugvélinni, hjólað á
reiðhjóli sinu um gat á girðingu
flugvallarins i Reno og tekið
vélina. Hann lét fljúga til Van-
couver og sagði, að peningana
ætti að nota til að hjálpa börn-
um, sem hefðu hlotið örkuml i
striðinu i Vletnam.
1 Vancouver lagði hann fram
kröfur sinar, sem smám saman
urðu meiri og meiri. Hann lét þá
fljúga til Seattle.
Hann sagði auk þessa, að
þetta væri þáttur i tilraunum til
að eyðileggja flugfélagið United
Airlines, unz Vietnamstriðinu
væri lokið, en flugvélin er eign
United.
Einnig sagði hann, að United
legði mikið að mörkum til
striðsreksturs Bandarikja-
manna I Vietnam.
Hann kraföist meðal annars
að fá,þótt ekki kæmi fram I
hvaða skyni: Fállbyssukúlur,
vélbyssur, skammbyssur, föt,
vasaljós, mat, lyf og handjárn.
Þegar maðurinn hjólaði til
flugvélarinnar i Reno, hafði
hann skiöagrimu fyrir andlit-
inu. Einn farþega sem ekki var
kominn um borð, hljóp til flug-
stöðvarinnar og sagði tlðindin.
Maðurinn hratt farþegum til
hliðar og ruddist inn I flugvél-
ina.
Hann skipaði áhöfninni að
taka reiðhjól sitt um borð og
leggja af stað.
500 gœta
fimm í
fjölskyldu
Nixons
Smáher um 500 leyni-
þjónustumanna mun
gæta öryggis fimm
manna á flokksþingi
repúblikana, sem hefst á
mánudag.
Þessi mikla sveit mun standa
vörð um lif og limi Nixons for-
seta, konu hans og tveggja dætra
og Spiro Agnew varaforseta.
Leyniþjónustan mun fylgjast
með öllu milli himins og jarðar,
sem gæti reynzt hættulegt, allt frá
hugsanlegum tilræðismönnum til
drykkjarvatns, segir AP-frétta-
stofan.
Hún mun standa vörð um gisti-
hús, ferðaleiðir og ráðstefnusal-
inn sjálfan.
Nixonfjölskyldan. Til vinstri:
Júlia Nixondóttir og Davíð Eisen-
hower, maður hennar. i miðið:
Richard og Patricia Nixon. Til
hægri: Tricia Nixondóttir og
maður hennar Edward Finch.
USA í metrakerfið
Öldungadeild Bandarikjaþings
samþykkti i gær að Bandarikin
skuli taka i notkun metrakerfi i
mælieiningum,
Verzlunarmálaráðherrann fær
18 mánuði til að gera áætlun um
framkvæmd á þessum miklu
breytingum.
„Óþefur af löng-
um blaðagreinum"
Greinar skulu nú verða stytti i
kinverskum dagblöðum. Blað
kommúnistaflokksins hefur haf-
baráttu gegn þvi, sem eru
kallaðar „fúlar greinar”.
Vitnað var Rauðakverið, þar
sem Mao gagnrýnir blaðamenn
harðlega fyrir að skrifa lang-
dregnar greinar, liklega til að
„hræða fólk frá lestri þeirra”.
Mao segir, að langdregnar
greinar minni á fótabindi, sem
sé mikið um sig og óþefjan stafi
af.
Vitur er Mao formaður
KAFAÐI 78 METRA
NIÐUR í HAFIÐ
Fertugur Sikileyjarbúi gerir
tilkall til heimsmetsins i köfun,
eftir að hann kafaði 78 metra i
sjóinn án nokkurs öndunarbún-
aðar við austurströnd Sileyjar i
gær.
Enzo Maiorca var I tvær
minútur að sökkva þetta langt
og komast aftur upp. Hann not-
aði 25 kilógramma lóð.
Hann var örmagna, þegar upp
kom, og var honum gefið súefni.
SJÓRÁN
W ••
Kafarar fylgdust með honum
niðri i djúpinu, og bátur var til
taks.
Maiorca hefur veriö aö kafa
dýpra og dýpra i meira en ára-
tug. Hann kafaði i 77 metra dýpi
i fyrra, sem hann sagði vera
heimsmet.
Hann gerir einnig tilkall til
heimsmets án lóðs. Þannig hef-
ur hann komizt 57 metra án önd-
unartækja.
ENN
A DOFINNI
Sjóránum hefur fækk-
að á Malakkasundi úr
um sjötiu,árin 1960-1970 i
um 20,1971-1972.
Aðstoðar landvarnaráðherra
Malasiu skýrði þingheimi frá
þessum ánægjulegu tiðindum I
gær.
„Konunglegi sjóherinn getur
kannski enn ekki tryggt fiski-
mönnum okkar algert öryggi við
strandlengjuna,” sagði hann, „en
við teljum okkur geta haft hemil á
ógnuninni.”
úti ó götum
London
Bretum hefur yfirleítt
fundizt, aö þeir gætu farið
óhræddir um götur að
kvöld- og næturlagi.
Ástandið hefur verið þar
betra en viðast hvar í þeim
efnum. Nú óttast menn, að
breyting til hins verra sé að
verða og morðmál eitt sé
dæmi um það.
Sveit leynilögreglumanna vinn-
ur að þvi að leysa morðmál, sem
veldur Scotland Yard sérstökum
áhyggjum.
Ekill, 68 ára á eftirlaunum, var
stunginn i hjartastað siðla kvölds
á illa lýstri brú.
Ofbeldi á götunum var mjög
sjaldgæft I Bretlandi þar til fyrir
um þremur árum.
Nú eru slikir atburðir nærri
daglega I flestum stærri borgun-
um.
„Þessir glæpir eru framdir
eftir fyrirmyndum frá New York,
„segir lögreglan.
Margir glæpir hafa verið
framdir á svæðinum um Water-
loo.
Afbrotamennirnir eru yfirleitt
ungir menn, nokkrir saman, oft á
táningaaldri: Þeir beita vasa-
hnifum og sllkum vopnum fremur
en byssum.
I morðmáli ekkilsins Graham
Arthur Hills styðst lögreglan við
lýsingu, sem sjónarvottar hafa
gefið á tveimur af fjórum eða
fimm ungum mönnum, sem sáust
flækjast um þarna I grenndinni.
Lögreglan telur, að Hills hafi
varið hendur sinar gegn bófa-
flokknum. Skjalataska, sem hann
hélt á, fannst skammt frá, og var
haldið brotið.
Rán og árásir til að ræna voru
2.727 alls I London i fyrra, en það
var 15 prósent aukning frá árinu
1970.
Hryðju-
verk
Portú-
gala
„Nefndarmenn sáu
þau hryðjuverk, sem
Portúgalir hafa unnið i
landinu. Kveikt hafði
verið i þorpum, akrar
eyðilagðir og búpen-
ingur drepinn i loftárás-
um. Portúgalir halda
uppi stöðugu njósnaflugi
og ósprungnar sprengj-
ur sem nýtizku flugvélar
hafa varpað, liggja viða
á ökrum.”
Nefnd Sameinuðu
þjóðanna, sem fylgist
með ástandinu i þeim
fáu nýlendum, sem enn
eru eftir, komst að þess-
ari niðurstöðu um bar-
áttuaðferðir Portúgala
gegn uppreisnarmönn-
um i nýlendunni Gineu
(Bissá).