Vísir - 19.08.1972, Side 10
r
’
Ipiíi-
yjiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijjj
Umsjón:
| |
Hallur
Símonarson
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiniii
A norska meistaramótinu i
frjálsum iþróttum, sem háö var
á ieikvellinum i Stafangri, setti
Audun Garshol nýtt norskt met I
100 m hlaupi, hljóp á 10.2 sek.
Hann sést hér koma i mark i
methlaupinu. Annar varö Terje
Heilesylt á 10.5 sek.
Skuldlaus eign
ÍBR 10 millj. kr.l
- Úlfar Þórðarson endurkjörinn formaður
Þessi mynd var tekin um siöustu helgi upp á Akranesi. Þaö er Teitur Þóröarson, miöherji tA, sem
sendir knöttinn framhjá Þorbergi Atlasyni, markveröi Fram, og fyrsta mark leiksins er staöreynd.
Fram sigraöi þó meö 3-2.
Knötturinn rúllar!
Tveir leikir í 1.' deild
veröa háðir i dag — annar
i Reykjavik/ hinn í Vest-
mannaeyjum. Þetta eru
kannski ekki þýðingar-
miklir leikir hvað úrslit
keppninnar snertir, en
alla vega ættu þeir að
geta orðið spennandi.
A Laugardalsvellinum mæt-
ast Vikingur og Breiðablik og
þar fá Vikingar tækifæri til að
hefna fyrir tapið á Melavellin-
um fyrr i sumar, auk þess, sem
sigur fyrir liðið gefur aðeins von
um áframhaldandi setu i deild-
inni. En Breiðablik stefnir hátt
— i eitt af tveimur efstu sætun-
um og keppni i Evrópu næsta ár.
Þetta verður þvi baráttuleikur.
Vestmannaeyingar fá KR i
heimsókn og eftir markadrifuna
gegn Keflavik um siöustu helgi
verða áreiðanlega margir, sem
leggja leið sina á völlinn i Eyj-
um i dag og búast við miklu. En
KR-ingareru segirþóungir séu,
og selja sig áreiðanlega dýrt.
Einn leikur verður i 2. deild i
dag — milli Hauka og Akureyr-
ar suður i Hafnarfirði. Allir
þessir þrir leikir hefjast kl.
fjögur.
A sunnudag kl. fjögur leika
Valurog Akranes á Laugardals-
velli i 1. deild og á Melavelli Ár-
mann og Völsungur i 2. deild. Sá
leikur hefst kl. tvö.
Valsdagurinn
Undanfarin ár hefur knatt-
spyrnufélagið Valur tekið upp
þann hátt, að efna til kynningar-
dags á félagstarfi sinu, að
Hliöarenda. Þarna hefur farið
fram kynning á starfsemi
félagsins, með hinu fjölbreyti-
legustu dagskrá — iþrótta-
keppni og upplýsingar um hina
félagslegu hlið starfseminnar.
Þarna fer fram iþróttakeppni,
knattspyrna, handbolti o.fl. i
keppni liða Vals i öllum flokkum
við lið i öllum flokkum við lið
annarra félaga i borginni og
nágrenni.
Valsdagurinn, sem er hinn
fimmti i röðinni: hefst með
kappleikjum kl. 10 f.h. á sunnu-
dagsmorgun 20, ágúst — en
deginum lýkur kl. 4 e.h..
Skrifstofa félagsins verður
opin á sama tima og verða þar
gefnar upplýsingar um hina al-
mennu starfsemi félagsins og
sögu þess.
Valsdagurinn undanfarin ár
hefur vakið mikla athygli og
fjöldi fólks komið að Hliðarenda
og fylgzt með keppninni og
kynnt sér starfsemi félagsins.
Formaður Vals mun setja
daginn með stuttu ávarpi.
Ársþing I.B.R. varhaldið
dagana 3. og 20. júni i húsi
Slysavarna félagsins.
Við setningu þingsins
minntist formaður banda-
lagsins, Olfar Þórðarson,
samstarfsmanna og for-
ystumanna, sem fallið hafa
frá á árinu, Haraldar
Jóhannessens, Kristjáns L.
Gestssonar, Steindórs
Björnssonar, Þorgeirs
Sigurðssonar og Jóns
Guðjónssonar.
Þingið sátu 76 fulltrúar. Þing-
forseti var kosinn Einar
Sæmundsson og þingritari Sveinn
Björnsson.
Olfar Þórðarson, formaður
bandalagsins, flutti ársskýrslu
framkvæmdastjórnar fyrir árin
1970 og 1971, og kom þar fram, að
innan bandalagsins eru 25
iþróttafélög með 13.471 félags-
mann.
Sæmundur Gislason, gjaldkeri
bandalagsins, gaf yfirlit yfir
reikninga þess og sérsjóða.
Skuldlaus eign nam um s.l. ára-
mót kr. 10.140.000.00þ
Sundkeppni
milli sund-
staða Rvíkur
A undanförnum árum hefur að-
sókn að sundstöðunum i Reykja-
vik vaxið jafnt og þétt. Á öllum
stöðunum hafa myndazt hópar
fastagesta á öllum aldri.
Sunnudaginn 27. ágúst kl. tiu er
hugmyndin að efna til boðsunds- ,
keppni i Laugardalslauginni milli
sundstaðanna i borginni. Verður
keppt i þremur aldursflokkum,
10-14 ára, 25-35 ára og 40 ára og
eldri. 1 hverri sveit geta verið
jafnt karlar sem konur, en
keppnisfólk fær ekki að taka þátt.
Munu forráðamenn sundstaðanna
velja þátttakendur, en Sundráð
Reykjavikur mun annast stjórn
og framkvæmd keppninnar.
Nánar verður skýrt frá þessari
keppni siðar.
Clfar Þóröarson
A þinginu voru þrir forystu-
menn úr Reykjavikurfélögunum
heiðraðir fyrir langt og mikið
starf:
Arni Árnason, form. H.K.R.R.,
Gunnar Már Pétursson, form.
Vikings
Haraldur Gislason, ritari K.R.R.
Úlfar Þórðarson, læknir, var
kosinn formaður I.B.R., og aðrir i
stjórn voru kosnir: Andreas
Bergmann, Ólafur Jónsson,
Sæmundur Gislason og Gunnar
Sigurðsson.
íslenzk
ungmenni í
œskulýðsbúðum
Snemma á þessu sumri bauð
norska iþróttasambandið l.S.l. að
senda 18 ungmenni og 2 farar-
stjóra til þátttöku i norrænum
æskulýðsbúðum i landbúnaöar-
skólanum i Ás, sem er i nágrenni
Oslo. Stjórn I.S.Í. bauð Iþrótta-
bandalagi Reykjavikur að njóta
boðs þessa og var 9 iþrótta-
félögum i Reykjavik gefinn
kostur á að senda tvo þátt-
takendur hvert. Flest þeirra tóku
boðinu og voru ferðirnar yfirleitt
notaðar sem verðlaun.
Farið var frá Reykjavik 7. júli
og komið aftur 15. júli. Í.S.Í. og
l.B.R. styrktu þátttakendur um
ca. 2/3 af fargjaldinu.
Fararstjórar voru hjónin
Kristjana Jónsdóttir og Stefán
Kristjánsson, iþróttafulltrúi
Reykjavikurborgar.
Þátttakendur voru 17 frá þessum
félögum: Armanni, Fram, Fylki,
I.R., K.R. og Ægi.
i