Vísir - 19.08.1972, Síða 13
Vísir Laugardagur 19. ágúst 1972
13
„Hálfu" skrefi ncer krúnunni
Fischer
þráskákaði
í biðskákinni
Þeir sem höfðu keypt
sig inn é biðskákina í gær
urðu fyrir sárum von-
brigðum. 200 krónur var
gjaldið fyrir örfáar
mínútur. Fischer tók
nenfilega það ráð að þrá-
skáka eins og margir
höfðu búist við m.a. Vísis-
menn. Eftir að hafa leikið
þrjá leiki og skákað í
sífellu stóð Fischer upp og
rétti Spasskí hendina til
merkis um að hann sætti
sig við jafnteflið.
í fljótu bragði datt manni i
hug að Fischer gæti reynt að
koma drottningu sinni til dl og
siðan i framhaldi af þvi,
hróknum til d7 og þannig hrakið
drottninguna hvitu úr leppstöð-
unni.
En þá tekur reyndar ekki
betra við þvi að Spasski á
ágætan reit fyrir drottninguna á
e5 og biskup Fischers getur sig
hvergi hrært.
Jafntefli var þvi ekki ósann-
gjarnt þó landar Fischer yrðu
margir hissa og segðu að hann
hefði neitað að vinna skákina.
En hálfur vinningur færir
Fischer nú skrefi nær krúnunni.
Staðan er 9:6 áskorandanum i
vil. Það dregur að leikslokum og
tæplega verða skákirnar fleiri
en 6-8 i viðbót. Fischer þarf nú
aðeins 3 1/2 vinning úr 11
skákum en Spasski verður að fá
6 vinninga i viðbót. Á sunnudag-
inn verður svo 16. skákin tefld i
Höllinni og þá stýrir Fischer
hvitu mönnunum. Nær húsfylli
hefur verið að undanförnu
(1500) i Höllinni þrátt fyrir að
mesti spenningurinn sé horfinn.
Enn er þó ekki að efa að áhorf-
endur muni streyma til leiks á
sunnudag og fylgjast með
skemmtilegri skák.
GF
' ™ .............<
Heimsmeisfara-
einvígið í skák
15. skákin
Hvítt: B. Spassky
Svart: R. Fischer
-
-
Dómararnir stilla klukkuna fyrir biðskákina. Lothar: Er þetta ekki nokkuð nærri lagi hjá mér, eða er ég að draga citthvað af Fischer!
Guðmundur: Nei, nei þetta er alveg nákvæmt.
41. Hb2 Dal +
42. Ha2 Dcl +
43. Hb2 Dal +
Biðstaðan Jafntefli
/
Fœreyingar fá
undanþágu fyrir
línu og handfœri
A tveim dögum var gengið frá
samningum um réttindi Færey-
inga til linu- og handfæraveiða
innan 56 milna landhelginnar.
Hins vegar var samkomulag um
að ræða undanþágur vegna tog-
veiða síðar og lögðu Færeyingar
áherzlu á nauðsyn þess að slíkar
undanþágur fengjust.
Samningunnn gerir ráð fyrir að
færeysku skipin sæki um veiði-
leyfi sem ráðuneytið getur veitt
og gildi það i ákveðinn tima, þó
ekki skemur en i fjóra mánuði.
Skuiu færeysku skipin hlita sömu
reglum og þau islenzku. Þá er
enn i gildi samningurinn frá 1961
um handfæraveiðar milli 4 og 12
milna markanna. Hvor aðili um
sig getur ákveðiö niðurfellingu
þessarar skipan með sex mánaða
fyrirvara. —SG
Daily Telegraph:
„FISKVERNDUN UTAN VERKA-
HRINGS ALÞJÓÐADÓMSTÓLSINS"
„Verndun fiskistofna er ekki
mál einnar rikisstjórnar, en hún
er i rauninni lika utan við verka-
hring alþjóðadómstólsins,” segir
i forystugrein brezka blaðsins
Daily Telegraph i morgun.
„1 þess konar deilum semja
þjóðir, sem hafa heföbundinna
fiskveiöihagsmuna að gæta, yfir-
leitt um málið”.
„Það gerðist til dæmis fyrir
skömmu I deilumálinu um rek-
netjaveiði á laxi I Atlantshafi,
þegar samþykkt var á alþjóðlegri
ráðstefnu i Washington aö draga
smám saman úr veiðunum”
„Islendingar munu verða, áður
en lýkur, að leggja mál sitt fyrir
einhverja slika ráðstefnu, i stað
þess að standa fast á 50 milunum.
Ef þeir koma ekki til móts við
aðrar fiskveiðiþjóðir i málinu,
eru þeir að hrifsa. Akvörðun
Haag-dómstólsins er viðeigandi
aövörun til þeirra,” segir Daily
Telegraph. — HH