Vísir - 19.08.1972, Qupperneq 20
Laugardagur 19. ágúst 1972
„Ályktun
en ekki
dómur"
— segir Gunnar
Thoroddsen
„Hér er ekki um venju-
legan dóm að ræða, heldur
ályktun, sem dómstóllinn
gerir,” sagði dr. Gunnar
Thoroddsen i samtali við Visi
i gærkvöldi.
Það hefur verið nokkuð a
reiki hvað menn vilja kalla
niðurstöður dómstólsins i
liaag. Rikisstjórnin notar
orðið úrskurð, en á þvi og
ályktun er talsverður
munur, sem skiptir miklu
máli. „Þetta er allt annars
eðlis en dómur’’ sagði dr.
Gunnar „á ensku er notað
orðið order og niðurstaða
dómsins er fólgin í þvi að
benda aðilum 5 eða beina til
þeirra ákveðnum óskum.
Dómstöllinn starfar á vegum
Sameinuðu þjóðanna og allir
dómar sem hann kveður upp
eru bindandi fyrir málsaöila.
Hér er þessu ekki til að
dreifa, heldur cr um ályktun .
að ræða” sagði dr. Gunnar
Thoroddsen. -SG.
Herðið
áróðurinn
„Framkvæmdanefnd
Fiskimálaráðs leggur þvi til
að aukin áherzla verði lögð á
að kynna málstað íslendinga
erlendis og þá einkum i
Evrópurikjum er helzt hafa
hagsmuna að gæta i sam-
bandi við fyrirhugaða út-
færslu fiskveiðilög-
sögunnar.”
Svo segir m.a. i ályktun
Fiskimálaráðs sem gefin var
út i gær. t ályktuninni segir:
,,Ljóster,aðmikil hætta er á
þvi, að úrskurðurinn hafi
óheillavænleg áhrif á al-
menningsálitiö i Evrópu og
jafnvel vlðar.” Þvi leggur
ráöið til aö áróður fyrir
okkar málstað verði aukinn
til muna. Bent er á að
samningurinn við Breta og
V-Þjóðverja, frá árinu 1961
var frá upphafi gerður til
bráöabirgöa og ætlaður tak-
markaður gildistimi svo sem
samþykktir Alþingis beri
með sér. -SB.
•
Fœrum út
1. september
A fundi miðstjórnar og
þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins var samþykkt ályktun
þess efnis að ekki væri hægt
að verða við ábendingum
alþjðöadóm stóls ins um
frestun útfærslunnar. Enn-
fremur var tekið fram að
fundurinn telur það miður að
tsland skuli ekki hafa sent
fulltrúa til Haag.
Fundurinn Itrekar fylgi
sitt við ályktun Alþingis frá
þvl I vetur um að fiskvciði
landhelgin skuií færö út 1.
september næstkomandi. En
það er jafnframt tekið fram,
aö það sé miður að við höfum
ekki átt neinn málsvara hjá
alþjóðadómstólnum til að
skýra málstað okkar. Þaö
kom fram i viðtali sem Vlsir
átti við Jóhann Ilafstein i
fyrradag, að sú ákvörðun
var tekin án þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn bæri þar
nokkra ábyrgð. -SB.
ÞAU BÚA í FEGURSTA
EINBÝUSHÚSINU
Fegurstu mannvirk-
in í borginni voru i
fyrsta sinn valin i ár,
en um nokkur umliðin
ár hefur Fegrunar-
nefnd Reykjavikur val-
ið fegurstu götuna.
Arkitektar vöidu feg-
ursta einbýlishúsið,
sem er að Sunnuvegi 7.
Oliufélag íslands h.f.,
Háleitisbraut 12, og
Rafmagnsveita
Reykjavikur, Ármúla
31 fengu einnig viður-
kenningu.
Þá var það nýmæli tekið upp,
að teiknarar lögðu mat á vegg-
merkingar og fengu viðurkenn-
inguna Landsbanki Islands,
Laugavegi 77, Dtvegsbakinn,
Austurstræti 19, Benzinaf-
greiðsla Oliufélagsins h.f., Ar-
túnshöfða, Benzinafgreiðsla
Skeljungs h.f., Reykjanesbraut
og Hraunbæ 102, Vinnuveit-
endasamband Islands, Garða-
stræti 41, Aðventkirkjan,
Ingólfsstræti 19 og Sturlaugur
Jónsson & Co, Vesturgötu 16.
Fulltrúar verzlunar og iðnað-
ar ásamt fulltrúa frá fegrunar-
nefnd völdu snyrtilegustu fyrir-
tæki og stofnanir, þau eru nú:
ATVR, Draghálsi, Oliufélagið
h.f., Artúnshöfða, Oliufélagið
Skeljungur h.f., Laugavegi 180
og Landakotspítalinn.
Sömu aðilar lögðu til að eftir-
taldir aðilar hlytu viðurkenn-
ingu fyrir góðar glugga-
skreytingar. Verzlanir að
Laugavegi 66: Tizkuverzlunin
Karnabær, Gluggatjöld h.f.
Kápan, Tizkuskemman, Mel-
issa og Herradeild P&Ö. Is-
lenzkur heimilisiðnaður, Haf-
narstræti 3 og Ritfangaverzlun-
in Penninn, Hafnarstræti 18.
Fyrir utan Brekkugerðið, feg-
urstu götuna, i ár, hlutu viður
kenningu Hvassaleiti, Stóra-
gerði og Einimelur. Þær götur,
sem áður hafa þótt fegurstar
halda skiltinu sinu allar.
—SB-
Þau búa i fegursta einbýlishúsinu I borginni: Kristbjörg Guðmundsdóttir, Kjartan Orri og Helgi ólafs-
son hagfræðingur. (Ljósm.: A.M.)
Kartöfluskortur ó nœsta leiti?
— kartöflusprettan í seinna lagi og innflutningi á kartöflum hœtt í bili
Hætt er við kartöfluskorti næstu
dagana ef ekki viðrar vel til kart-
öflutöku. Bændur voru heldur
bjartsýnir um kartöflusprettuna
og töldu sig upphaflega geta farið
að koma með kartöflur á markað-
inn eftir fyrstu vikuna I ágúst.
Það hefur brugðizt. Grænmetis-
Bíl var stolið I fyrrinótt — og
fannst hann undir morgun, mjög
skemmdur, ef ekki ónýtur, þar
sem þjófurinn hafði gengið frá
honum á vcgamótum Suður- og
Vesturlandsvega.
Þetta var I annað skiptið, sem
þjófurinn stal þessum sama bil,
sem er af gerðinni Chevrolet ár-
gerð 1959.
„Þetta er vitanlega gifurlegt
tjón”, sagði eigandi bilsins, Ólöf
Jónsdóttir, ,,i vor þegar þessi pilt
ur stal bilnum héðan úr Tjarnar-
götunni, þurftum við að kosta
næstum 50 þúsundum i viðgerð.
Tryggingar borga ekki þjófnaö.
verzlun landbúnaðarins á nú litið
af innfluttum kartöflum vegna
þess, að beðið var eftir hinum is-
lenzku. Að visu komu 100 tonn til
landsins um helgina, en sá
skammtur á að fara út á land. 1
siðustu viku seldust tvö hundruð
tonn af innfluttum kartöflum i
Og núna er bíllinn að þvi er virðist
algerlega ónýtur. Og við fáum
ekkert bætt — hins vegar fáum
við að borga staurana sem
drengurinn ók á. Þannig er geng-
ið frá hnútum i sambandi við
tryggingarnar”.
Og væntanlega verður seint
hægt að fá þennan iðna þjóf til að
bæta tjónið, sem hann hefur vald-
ið. ökuferð þjófsins endaði I
nótt uppi á eyjum á vegamótum,
þar sem eru umferðarskilti og
kantsteinar. Eftir þessum eyjum
ók þjófurinn og endaði með þvi að
eyðileggja skilti.
—GG
Reykjavik, fyrir utan smámagn
af innlendu framleiðslunni.
Visir talaði við Jóhann Jónas-
son, forstjóra Grænmetisverzlun-
ar landbúnaðarins, sem skýrði
frá þessu og að bændur hefðu talið
sig hafa nægilegt magn af kart-
öflum um miðjan ágúst.
— A það höfum við treyst.
Hann kvað illt að þjóna tveimur
herrum. Annars vegar að sjá um
það að panta ekki of mikið inn af
erlendum kartöflum til að spara
innflutninginn og flytja ekki
meira inn en nauðsyn krefðist og
hins vegar að þurfa að treysta á
það, að islenzku kartöflurnar
komi i tæka tið á markaðinn. I
fyrra hafi nýjar, islenzkar kart-
öflur eingöngu verið seldar eftir
tiunda ágúst og hafði þá veriö
yfirdrifið nóg framboð.
— Það má búast viö þvi, ef vot-
viðri haldast,- að erfitt verði að
standa i skilum með nægilegt
magn að þessu sinni.
Jóhann kvað bændur þurfa að
taka upp kartöflur daglega til að
hafa upp i söluna. Hann sagði bila
vera á leiðinni með kartöflu-
farma og hafi þeir átt að vera hér
á mánudaginn, en síðan þá hafi
sáralitið komið af kartöflum.
— Mér fyndist lika ástæða fyrir
fólk að lita i garðana sina núna.
Það væri upplagt að fara að taka
upp i matinn. Þótt kartöflurnar
séu ekki fullþroska eru þær
aldrei betri en nú.
Þá sagði Jóhann, að útlit væri
fyrir sæmilega góða kartöfluupp-
skeru á landinu.
—SB—
Bilstjóri sendiferðabilsins á
myndinni reyndi að forða
árekstri með þeim afleiðing-
um sem sjá má. Hann ók eftir
Breiðholtsveginum og gekk
aksturinn vel þar til hann tók
eftir þvi að bilaröðin fyrir
framan hafði numið staðar.
Ekki reyndist ráðrúm til að
hemla nógu fljótt og greip
hann til þess ráðs að beygja til
vinstri. En þá vildi svo til að á
móti kom ung stúlka akandi á
Fiat og skullu bilarnir saman
með þeim afleiðingum að
Fiatinn kastaðist út af vegin-
um. ökumenn sluppu ómeidd-
ir að kalla.
—SG
Krœfur bílþjófur
- stal sama bílnum í annað sinn og gjöreyðilagði