Vísir - 19.01.1974, Page 2
2
Visir. Laugardagur 19. janúar 1974.
vimsm:
Væruð þér til í að fara á loðnu?
Daniel Williamsson, rafvirki: —
Ég væri svosem til i það, en ég hef
bara enga aðstöðu til þess nú.
Annars væri gott að skipta aðeins
um vinnu i smátima, og svo fylgir
þessu aukin tekjuvon.
Sigurþór Gislason, nemandi: —
Nei, ég held það ekki. Mig langar
ekkert á sjóinn. Ég er lika
nemandi og veit ekki hvernig
gengi að fá fri til þess. En ég væri
alveg til i að vinna við loðnu I
landi.
Unnur Arnórs, afgreiðslukona: —
Þvi ekki það? En ætli ég sé ekki
orðin aðeins of roskin til að fara á
sjóinn. Ég gæti hins vegar vel
hugsað mér að fara i vinnu við
loönuna i landi, ef þörf krefði.
Krlendur Arnason, sjómaður: —
Já, ég væri til i það, en ég hef hins
vegar ekki möguleika til þess, þar
sem ég er i siglingum og kemst
ekkert frá. En ég tel það virkilega
ábatasamt að fara á loðnu.
Kristján Guðmundsson, skrif-
stofumaður: — Já, ef ég fengi
góðan bát, þá færi ég hiklaust. Ég
hef lika möguleika á að komast
úr vinnu. Þar að auki hef ég
stundað sjóinn, var á netum.
Asdis Björnsdóttir, húsmóðir: —
Ómögulega. Ég gæti alls ekki
hugsað mér að fara á sjóinn.
Brœðslupest áfram
handa Hafnfírðingum
Ilafnfiröingar verða væntan-
lega að þola fýluna frá
mjölbræðslunni á Hvaleyrar-
holti eitt árið enn.
Heilbrigðisráð rikisins hefur
lagt til við ráðuneyti, að frestur
sá, sem Lýsi og mjöl fékk til að
reisa (>0 eða 70 metra háan
stromp, verði framlengdur til I.
scptcmber.
Reyndar hefur ráðuneytið
ekki veitt frestinn — en vegna
þesss að likur eru á, að verk-
smiðjustjórnin i Hafnarfirði,
geti nú loks hafizt handa, þá
veröur að telja sennilegt, að
fresturinn fáist.
Heilbrigðisnefndin i Hafnar-
firði er að vonum leiö yfir mála-
lokum.
Hugsanlega hefði verið hægt
að loka verksmiðjunni, banna
henni að bræða loðnu á þessari
vertiö, en gera henni að greiða
dagsektir.
Þessar dagsektir eru hins
vegar svo lágar, að verk-
smiðjan fyndi varla fyrir þvi að
borga — aðeins 2000 krónur á
dag.
,,Ég hef lagt til við ráðu-
neytið, að jafnframt þvi sem
fresturinn verði lengdur til 1.
september, þá verði dagsektir
haföar allmiklu hærri — einhver
ákveðin prósentutala af tekjum
verksmiðjunnar,” sagði Einar
Valur Ingimundarson, verk-
fræðingur hjá Heilbrigðisráði
rikisins.
Sagði Einar Valur, að
heilbrigöisnefnd Hafnarfjarðar
gæti ekki gengið þvert á
væntanlegt leyfi ráðuneytisins
og lokað verksmiðjunni. —
„þeir hjá Lýsi og mjöl fengu
hingað brezkan sérfræðing, sem
þeir hafa nú samið við um
byggingu á strompi. Fresturinn
getur orðið til að ýta undir
samninga og ákvarðanir i
málinu, þar eð nú er að verða
slæmt ástand varðandi kaup á
plasti. Þar kemur oliuskortur-
inn til,” sagði Einar Valur.
Norðmenn sia bræluna
frá
tbúar Hafnarfjarðar hafa
sýnt langlundargeð varðandi
fýluna frá Lýsi og mjöl.
Stundum liggur þykkt pestar-
ský yfir heilum bæjarhlutum, og
þvi er eðlilegt að heilbrigðis-
nefnd bæjarins horfi með óhug
fram á komandi loðnuvertíð.
Norðmenn hafa lengi átt við
svipaðan vanda. 1 fyrravetur
bættu þeir þó úr erfiðleikum i
sumum bæjum, ekki með þvi aö
reisa reykháfa við sildar- og
loðnubræðslur sinar, heldur
smíðuðu þeir sérstakt
reykhreinsitæki, sem siðan er
sett i verksmiðjurnar.
í fyrra sagði „Bergens
Tidende” frá þvi, að tekizt hefði
að smiða hreinsitæki, eins konar
reyksiu fyrir tæplega tólf
milljónir islenzkra króna.
Aætlað er, að strompurinn i
Hafnarfirði muni kosta kringum
tólf milljónir króna.
-GG.
Þetta er útbúnaöurinn þeirra Norömannanna til að firra menn
bræöslufýlunni. I staö þess aö flytja ódauninn frá einum staö til
annars, eins og stromparnir gera, tekur þessi útbúnaður megin-
hluta fýlunnar og eyöir henni.
Heilbrigðisráð vill veita frest til
reykháfsbyggingar, hœkka dagsektir
verksmiðja — Norðmenn smíðuðu
reyksíu fyrir sömu upphœð og
strompurinn mun kosta
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Framúrskarandi afgreiðsla
A.Þ. skrifar: aldrei eða sjaldan minnzt á, ef vel
„Það er alltaf verið að tala um, er gert. Eitt af þvi, sem oft er
þegar eitthvað fer miður, en klifað á, er að afgreiðslufólk
Viðunandi ekki
sama og ógœtt
Sigurður Þorkelsson yfirverk-
fræöingur Landssimans, hefur
sent blaðinu leiðréttingar vegna
viðtals við hann 14. janúar um
hlustunarskilyrði á Húsavik.
1 bréfinu kemur fram, að Hús-
vikingár fá sjónvarp ekki beint
frá endurvarpsstöðinni við Goða-
foss, heldur um millilið, endur-
varpsstöð á Húsavik. Ennfremur,
að ástæðan fyrir þvi, að stöðin á
Húsavikurfjalli er ekki tekin til
starfa, er, að Rafmagnsveitur
rikisins hafa ekki getað sinnt
umsókn um lagningu raflinu aö
stöðinni. Loks bendir Sigurður á,
að endurbætur á hljóðvarps-
deifingu hafa leitt til þess, að
móttökuskilyrði eru almennt
orðin „viðunandi”, en ekki endi-
lega „með ágætum.”
Blítt og létt...
Ilúsmóðir úr Flóanum hringdi:
„Ég gat ekki stillt mig um að
hringja i ykkur i bæjarferð minni
til að spyrja hvað orðið
„affettuoso” þýðir. Okkur fáfróð-
um koma svona orð að litlu haldi,
skiljum þau hreinlega ekki. Orð
þetta birtist i gagnrýni Birgis
Guðgeirssonar i Visi 29.
desember s.l.”
Svar:
t tónlist þýðir þetta eitthvað I
þessa áttina: „Blitt og ástúðlegt,
— með viðkvæmni”. Vonum aö
þetta skili sér, en vitaskuld væri
gott, ef gagnrýnendur temdu sér
ekki of mikla fagmennsku i
vinnubrögðum sinum, svona til
aö allir séu „meö á nótunum.”
skorti mikið á kurteisi og góða
framkomu. Þvi langar mig til að
koma á framfæri nokkrum lin-
um.
1 verzluninni Domus á Lauga-
vegi 91 er litil kaffiteria, sem ég
held, að hafi verið þarna i nær tvö
ár. Þar hefur lengi unnið stúlka
ein.
Hvergi hef ég komið inn á kaffi-
stofu, þar sem mér hefur verið
sýnd eins mikil kurteisi og liðleg-
heit og þarna. Ef önnur fyrirtæki
hefðu svona afgreiðslufólk væri
skemmtilegra að koma i
verzlanir.
Ég gæti nefnt fjölda dæma um
liðlegheit hennar við mig, sem
kem þarna oft, og aðra gesti, sem
ég hef séð bera að garði, en það
væri langt mál, og of mikið fyrir
stutt bréf.”
FRAMSÓKNARVIST?
Eftir viðreisnarófétið kommarnir leika af lyst
á lýöinn, sem haföi forðum á skó þeirra kysst.
Þvi vaknar sú spurning, h\ ort nokkuð mikils sé
misst,
þótt Magnús og Lúövik nú séu i framsóknarvisl.
Ben. Ax.