Vísir - 19.01.1974, Blaðsíða 8
8
Visir. I.augardagur 19. janúar 1974.
KIRKJAN O
ÉG FYRIRVERÐ M/G CKKI
Einn af þeim pistlum, þ.e.
bréfaköflum Nýja Testamentis-
ins, sem heyra til morgun-
deginum og ætlazt er til aö lesnir
séu við guðsþjónustur i kirkjum
landsins við messur á 2. sunnu-
degi eftir þrettánda — já, i einum
af þessum pistlum morgundags-
ins er að finna hin kunnu orö Páls
— 16. v 11. kap. Rómverjabréfsins
— þessi: Ég fyrirverð mig ekki
fyrir fagnaðarerindið, þvi að það
er kraftur Guðs tii hjáipræðis
hverjum þeim sem trúir.
Ekki er maður lengi búinn að
lesa I orði Guðs án þess að finna
aö það talar til manns á margan
hátt. Það er eins og segir i al-
þekktum sálmi:
Guðs orð er lind er liknar
og lækning veikum tér.
Það syndarana sýknar
og svölun hjörtum lér.
Ö, hversu indælt er,
það blessað orð að eiga
og ætið finna mega
þar svölum handa sér.
Já vissulega er það satt, aö
mikla og dýrðlega hugsvölun er
að finna i orði Guðs. Það er
reynsla þeirra fjölmörgu, sem
eru staðfastir og trúir lesendur
hinnar helgu bókar.
En ef Orðið á að reynast oss slik
blessun og sálubót, þá megum vér
ekki fyrirveröa oss fyrir það. Vér
verðum að lesa það með lotningu
og tilbeiðslu, vér verðum að opna
hugi vora og hjörtu fyrir áhrifum
þess, vér verðum að leyfa þvi að
komast að meðsinn hreinsandi og
frelsandi mátt til aö upplýsa og
fræða, flytja oss hollar áminning-
ar og aðvaranir, letra á hjörtu vor
leiöbeiningar og lifsreglur i sam-
ræmi við kenningu og boðskap
meistarans.
Vér megum ekki fyrirverða oss
fyrir að viðurkenna þetta, hvorki
fyrir sjálfum oss né öðrum. Um
þetta verðum vér að bera fals-
laust vitni, ekki aðeins með orði
og tungu heldur i lifi og breytni.
Ef vér höfum þegið fagra og dýra
gjöf njótum vér hennar fyrst til
fullnustu þegar aðrir eignast
hlutdeild i fagnaði vorum. Og þvi
ekki þá að veita öðrum aðild að
þvi dýrasta og bezta, sem vér eig-
um, góða hlutanum, sem aldrei
verður frá oss tekinn, en fær þeim
mun meiri vöxt og viðgang sem
fleiri eignast hann og njóta hans
með oss.
Eg fyrirverð mig ekki fyrir
fagnaðarerindið. Það er ekki nóg
að taka sér þessi orð i munn, það
er ekki nóg að játa þetta fagn-
aðarerindi með vörunum. Það
varður að sýna þessa játningu i
lifinu, breytni sinni og framkomu
eins og fyrr er sagt. Svo vitnað sé
til annars postula, sem lætur sér
tiðrætt um verk — verk kristins
manns: ,,En nú segir einhver:
Þú hefur trú og ég hef verk, sýn
mér þá trú þina án verkanna og
ég skal sýna þér trúna af verkum
minum” (Jakobsbréf 2.18).
Sá þarf ekki að fyrirverða sig
fyrir fagnaðarerindið, sem ber
þvi vitni i sinu daglega lifi, sýnir
hógværð og litillæti i framgöngu,
stendur gegn óhollum nautnum
með staðfestu og sjálfsafneitun,
er hófsamur i liferni en ekki
heimtufrekur á hendur náunga og
samfélagi, gengur fram i góðvilja
og sýnir samúð þeim, sem eiga
bágt. Þannig ætti i raun og veru
hver og einn að geta lesið kristinn
boðskap i lifsbók kristins manns.
Hann á að bera fagnaðarerindinu
vitni. Þetta minnir á það sem sagt
var um hinn kunna Afriku-
kristniboða David Livingstone.
Eitt sinn spurði heiðinn maður
kristinn landa sinn:
Hvað er að vera kristinn?
Sá sem spurður var svaraði
beint og hiklaust:
Það er að vera eins og Living-
stone.
Enginn þarf að efast um, að það
sem nú skortir mest i samfélagi
einstaklinga og samvinnu þjóða
er sannur kristinn andi samúðar
og skilnings og gagnkvæmrár
þjónustu. Það þýðir litið að skir-
skota til einhverrar óljósrar og
þokukenndrar alþjóðahyggju,
að heimurinn sé ein hagræn heild
o.s.frv. — ef úlfúð, tortryggni og
þrotlaus keppni um heimsins
gæði er látin ráða öllum gerðum
og gerningum.
En hvað sem þvi liður skulum
vér öll játa og fylgja trú vorri
þannig i orði og athöfnum, að
enginn geti sagt að vér fyrir-
verðum oss fyrir fagnaðar-
erindið, sem er kraftur Guðs til
hjálpræðis hverjum þeim sem
trúir.
FRÆKORN
Enn þetta árið.
Einn af ræðutextum nýárs-
dagsins er þessi dæmisaga
Jesú:
Maður nokkur átti fikjutré i
vingarði. Er hann fann enga
ávexti á þvi, sagði hann við
garðyrkjumanninn: ,,1 þrjú ár
hefur þetta tré enga ávexti
borið. Nú skaltu höggva það
upp til þess að jörðin verði
ekki arðlaus framvegis.”
Þá svaraði garðyrkju-
maðurinn: ,,Lát það vera enn
eitt ár, þar til ég hef grafið um
það og borið að áburð, ef það
skyldi þá bera ávöxt. En geri
það það ekki, þá heggur þú
það upp.” —
Þetta er lærdómsrik saga —
hollt umhugsunarefni nú i árs-
byrjun.
,,A þessum fátæktarárum sá
maður margt ömurlegt, en
lika margt fallegt i fólkinu,
ljómandi fólk, sem vildi allt
fyrir mar.n gera var þá til,
ekki siður en nú. Ég hafði t.d.
kynnst sr. Bjarna Dómkirkju-
presti og hann sagði við mig,
að ég mætti koma og borða hjá
honum hvenær sem mig lysti,
þvi að hann vissi um kröpp
kjör min, en ég var svo ófram-
færinn að ég vildi heldur
svelta en láta sjá mig i húsum.
Umkomuleysi mitt varð meira
fyrir bragðið.
Ágæt kynni min af sr.
Bjarna stóðu þar til hann fór
úr þessum heimi.
(Úr minningum Hallfreðs
Guðmundssonar.)
Hvítur nýársdagur
Það er vafamdl hvort nokkru
sinni hefur upp yfir Reykjavik
runnið jafn hvitur nýársdagur
og 1. janúar 1974. Mikið var
himinninn heiður. Mikiö var
landið fagurt. Mikið var borgin
hrein.
Þegar umsjónarmaður
kirkjusiðunnar hafði sótt
biskupmessu i Dómkirkjunni,
ók hann suður á Álftanes með
viðkomu hjá Fossvogskirkju.
Þá voru þessar tvær myndir
teknar. Þær sýna vel, hvernig
nýárssnjórinn breiðir sitt hvita
lin ,,á lifenda Dústað á dáinna
gröf” eins og sr. Valdimar
kemst að orði um limið á meiði
kirkjunnar i sálmi sinum: 1
fornöld á jörðu.
A engum stað á íslandi eru
fleiri Isl'endingar lagðir til
hinztu hvildar heldur en i Foss-
vogskirkjugarði. Þar safnast
þeir til feðra sinna likt og dagar
gamla ársins hverfa I timans
haf.
A Bessastöðum hefur þjóðin
valið þjóðhöfðingja sinum bú-
stað. Hann er tákn sjálfstæðis
hennar og einingar. Staða hans
á að minna oss á, að þrátt fyrir
allt innbyrðis strið, baráttuna
um hagsmuni og fjármuni
erum vér ein þjóð og eigum á
dögum hins nýja árs að ganga
saman hönd i hönd — út i óvissu
framtiðarinnar undir merki
krossins.
1 Jesú nafni áfram enn
með ári nýju kristnir menn.
Það nafn um árs og ævispor
sé æðsta gleði og huggun vor.
ARSHATIÐ K.F.U.M. OG K.
Arshátið K.F.U.M. og K. — séð yfir hluta af samkomusalnum. Guölaugur stjórnar almennum söng.
Það var góður fagnað-
ur og að vanda mikið f jöl-
menni á árshátíð félag-
anna K.F.U.M. og K. hinn
12. þessa mánaðar.
Hátiðin hófst með þvi,-. að
lúðrasveit drengja lék nokkur
lög undir stjórn Lárusar Sveins-
sonar. Tveir kórar sungu undir
stjórn Sigurðar Pálssonar og
Arna Sigurjónssonar, og allir
samkomugestir sungu mikiö af
gleði og krafti. Auk þess var
upplestur, erindi og kveðjur
fluttar. I hléi voru bornar fram
ágætar veitingar.
Formaður K.F.UM., Guð-
laugur Þorláksson, stjórnaði
samkomunni.
Nokkrar af K.K.U.K.-stúlkunum, sem önnuðust veitingar á árs-
hátíðinni