Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Side 4
290 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Stjórnarskrárnefnd fViður er kominn á í heiminum þarf að hafa löggæzlu á helztu flugvöllum landsins með svipuðum hætti og nú er haldið uppi landhelgisgæzlu á haf- ihu umhverfis landið. Slik gæzla ís- tendinga sjálfra á landi sinu á ekkert Skylt við almenna hervæðingu lands- tnanna eða herskyldu, heldur verður fmin framkvæmd á stefnu Jóns for- seta Sigurðssoaai', er hann markaði fyrir meira en hundrað árum, og er í fullu samræmi við allar gerðir ís- lenzkra stjórnarvalda í varnamálun- um, sem miðað hafa að því að efla friðinn og tryggja sjálfstæði fslands. Landhelgismál Landsfundurinn lýsir eindregnum stuðningi sínum við stefnu ríkisstjórn- arinnar í landhelgismálinu og vottar atvinnumálaráðherra og utanríkisráð- herra sérstakar þakkir fyrir það, hversu afdráttarlaust þeir hafa hald- ið á rétti íslendinga í þessu mikla hagsmunamáli þjóðarinnar. Fundurinn telur augljóst, að eigi verði kvikað í nokkru frá þeirri stefnu, er mörkuð hefur verið og leggur á- herzlu á nauðsyn þess, að íslendingum verði tryggður sem víðtækastur réttur til fiskveiða á landgrunninu umhverf- is ísland. Fundurinn leggur áherzlu á það, að jafnan sé haldið uppi sem traustastri landhelgisgæzlu, þannig að hin nýja friðun fiskimiðanna komi að því gagni, sem til er ætlazt. Lýsir fundurinn á- nægju sinni yfir þeirri ráðstöfun dómsmálaráðherra að gera landhelgis- gæzluna sjálfstæða og fá sérfróðum manni yfirstjórn hennar, eins og sam- þykkt hefir verið á fyrri landsfund- um og samtök sjómanna, útvegsmanna og slysavarnafélaganna lögðu á- herzlu á. Fundurinn fagnar því að hafin skuli vera undirbúningur að byggingu björgunar- og varðskips fyrir Norð- urland og væntir þess, að fram- kvæmdum í þessu nauðsynjamáli verði hraðað svo sem föng eru á. Stjómarskrár- málið Landsfundurinn fagnar því, að full- trúar Sjálfstæðisflokksins skyldu verða fyrstir til þess að leggja fram ákveðnar tillögur í stjórnarskrárnefnd- inni og lýsir fylgi sínu við þær. Fundurinn telur tvær leiðir koma til greina við setningu nýrrar stjórn- arskrár: Annaöhvort samþykkt tveggja þinga með þingrofi í milli eins og nú- gildandi stjórnarskrá gerir ráð fyrir, eða að málið sé falið sérstökum þjóð- fundi til afgreiðslu, og ákvarðanir hans síðan bornar undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Varðandi einstök atriði stjórnar- skrármálsins vill fundurinn taka fram: Fundurinn vill viðhalda þingræðis- skipulaginu, en telur nauðsynlegt að Alþingi fái aukið aðhald um að hraða stjórnarmyndunum. Fundurinn álítur endurbætur nauð- synlegar á núverandi kjördæmaskipun og telur þá einkum koma til greina einmenningskjördæmi um land allt eða nokkur stór kjördæmi með hlutfalls- kosningum. Fundurinn telur samstjórnir flokka um langan tíma mjög varhugaverðar fyrir heilbrigða og lýðræðislega stjórn- arhætti, og sé því mikilvægt, að stjórnarskráin stuðli að meiri hluta stjórn eins flokks. Fundurinn leggur áherzlu á, að tryggð séu sem bezt almenn mannrétt- indi borgaranna, en þau eru undirstaða lýðræðisskipulags. Fundurinn telur nauðsynlegt, að í stjórnarskránni sé Alþingi og ríkis- stjórn veitt aðhald um gsetilega af- greiðslu fjárlaga og meðferð opinbers fjár. Fundurinn telur nauðsynlegt, að héruðin fái aukna sjálfstjórn í ýmsum sérmálum sínum og komið verði í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.