Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 291 Landbúnaðarnefnd vrg fyrir of mikla sameiningu stjorn- valdsins á einn stað. Landsfundurinn telur rétt, i því skyni að efla lýðiæðið og auka beina þátttöku ahnennings i löggjafarstarf- inu, að athugaðir verði möguleikar á þvi að setja í stjórnarskrána ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur um ýmis tnikilsverð mál, ýmist bindandi eða til leiðbeiningar löggjafanum, eftir þvi sem nánara yrði ákveðið í sérstökum lögum. Landbúnaðar- mál Landxfundurinn telur það höfuðskil- yrði fyrir menningu og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, að gæði lands- ins séu nýtt sem bezt. Það verður því aðeins gert, að fleira fólk en nú, starfi að framleiðslu i sveitum landsins. Land- búnaðinn ber þvi að efla svo að fram- leiðsla hans fuilnægi innanlandsmark- aði og verði auk þess veigamikiil þáttur i útflutningi þjóðarinnar. Fundurinn vísar til og ítrekar sam- þykktir siðasta landsfundar um marg- visiega fyrirgreiðslu við landbúnaðinn. Lýsir hann ánægju sinni yfir því, sem áunnist hefir síðan með forgöngu stjórnar og þings um iánsfé til Bvgg- ingarsjóðs og Ræktunarsjóðs og sam- þykkt á tillögu Péturs Ottesen um að minnsta kosti heUningi mótvirðissjóðs verði varið ti'l framkvæmda í þagu landbúnaðarins. Einnig lýsir fundurinn ánægju sinni yfir þvi hve langt er kornið byggingu áburðarverksmiðjunnar og væntir þess, að því fyrirtæki verið stjórnað þannig að mikilsverðir hagsmunir landbúnað- arins verði þar með tryggðir. Sérstaka áherzlu leggur fundurinn á þessi framtíðarmál: Ti 1 raunastarf se mi. Að efla rannsóknir, tilraunir, fræðslu og leiðbeiningastarfsemi, er tryggi aukna og bætta ræktun lands og búfjár og notkun fullkominnar tækni og starfs hátta við framleiðsluna, allt með það fyrir augum, að hægt verði að halda framleiðslukostnaðinum í skefjum, stækka búin, fjölga þeim og veita fleira fólki aðgengilega aðstöðu við sveita- búskap, til jafns við önnur framleiðsiu- störf. • Fjármál Að nægilegt lánsfé verði framvegis tryggt til að fullnægja ákvræðum laga frá 29. apríl 1946 um landnám, ný- byggðir og endurbyggingar í sveitum og laga frá 5. júní 1947 um Ræktunar- sjóð íslands. Að næsta Alþingi afgreiði frumvarp Jons Pálmasonar og Jóns Sigurðssonar um Stofnlánadeild landbúnaðarins og tryggi einnig að Veðdeild Búnaðar- bankans geti fullnægt sínum tilgangi með lánum til jarðakaupa o. fl. Verðlagning. Að verðlag landbúnaðaralurða verði ákveðið af Framleiðsluráði landbúnað- arins, og gerðardómsákvæðið fellt nið- ur, nema því aðeins að aðrar stéttir þjóðfélagsins sætti sig við hliðstæðar hömlur af hálfu löggjafarváldsins." Afurðasala. Að unnið verði að því að draga úr þeim sölu- og dreifingarkostnaði' 'áém nú er á landbúnaðarafurðum og tryggja það, að framleiðendur fár útbórgað meira af verði afurðanna en nú er úm leið og þær eru lagðar inn til sölfí. Einnig verði unnið að því, að fóðúr- bætir og fleiri nauðsynjar framléiðsl- unnar séu seldar með hóflegri álágn- ingu en verið hefur um skeið. ” 'w Að leitað sé hagstæðra markaða 'ér- lendis fyrir þær landbúnaðarafurðir sem ætla má, að iramleiddar verði unrfram það sem selst á innlendum markaði. Raforka í sveitirnar. Að markvíst sé unnið að því 'eftir itrustu getu, að sveitirnar fái aðgáng að raforku á sama hátt og kaupstaðir og kauptún. Búfjársjukdómar. Að haldið verði áfrarp rannsoknum á búfjársjúkdómum og heílbrigðisliatt- um búfjárins. Verði sem tryggijegasl unnið að útrýmingu þeirra sjúkdpma sem eru i landinu, og vörnurh gégp því að nýir búfjársjúkdómar 'bérísjt 'til landsins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.