Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
301
jafnvægi geti l>akliz.t í ofnaiiagsstarf-
íeini landsins, sein er undirrttða
frjálsrar verzlunar og eðlilegrar sam-
keppni.
Skattantá*
Landsfundurinn lítur svo á. að ’niðn
beri skatthsimtu ríkis og svoitarfélaga
við það. aö ekki sé hindruð stofnuA og
starfscmi nytsamra atvinnufyrirtsekja
eða dregið úr sjáifsbjargnrviðieitni ein-
staklinganna með óhseíiiegum skatta-
álögum.
Fundurinn telur skattalöggjöf eiga
að stuðla að eðlilegri og heilbrigðiá
efnahagsþróun, en núgildandi skatta-
löggjöf hafi í meginatriðum gagnstæ'ð
áhrjf. Hin óhæfilega skattlagning og
margvíslegt ranglæti í skatta- og út-
svarslögum hefur valdið mjög skað-
legri afstöðu almennings til þessarar
löggjafar.
Landsfundurinn harmar það að ekki
tókst að ljúka fyrir síðasta þing heild-
arendurskoðun skattalaga, sem hafin
var að tiliögu Sjálfstæðismanna. Telur
fundurinn það hijóta að vera eitt
meginskilyrði Sjálfstæðisflokksins fyr-
ir samvinnu við aðra flokka, að sam-
komulag náist um viðunandi lausn
þessa mikilvæga máls. Er það skoðun
fundarins, að með engu móti megi
lengur skjóta á frest að gera víðtæk-
ar breytingar á gildandi skatta- og út-
svarslögum, sem m. a. feli i sér eftir-
talin grundvallaratriði:
1. Þá meginstefnu, sem felzt í frum-
varpi Jóhanns Hafstein og Magnús-
ar Jónssonar á síðasta þingi, um
lækkun skatta á fjölskyldufólki,
skattlagningu hjóna, aukinn per-
sónufrádrátt, skattfrelsi á lágtekj-
um, skattfríðindi við stofnun heim-
ilis og nýjan skattstiga, sem breyt-
ist eftir dýrtíðarvísitölu.
2. Að skattar af nytsömum atvinnu-
rekstri, hvort heldur hann er á
vegum samvinnufélaga, sameignar-
félaga, hlutafélaga eða einstaklinga
séu miðaðir við það, að starfsemi
fyrirtækjanna sé ekki torvelduð af
þeim sökum. Samanlagðir skattar
til ríkis og sveitarfélaga af tekj-
um fyrirtækja fari ekki yfir vissa
hlutfallstölu, og sé hlutfallstala
skattanna annaðhvort jöfn eða þá
mjög lítið stighækkandi og stig-
Skattamálanefnd
hækkunin bundið við ákveðið tekju
hámark.
3. Að framkvæmdaraðiljum skatta-
laga verði fækkað til þess að
tryggja samræmdari og öruggari
framkvæmd laganna. Jafnframt
afnumdar yfirskattaneíndir og ríkis-
skattanefnd, en í þeirra stað kæmi
skattadómstóll.
4. Að tekin verði upp innheimta skatta
og útsvara af tekjum jafnóðum og
þær myndast, eftir því sem fram-
kvæmanlegt er.
5. Að útsvarsstigar á tekjum og eign-
um verði bundnari en nú er.
Einnig' verði ákveðið hámark fyr-
ir álagningu veltu-útsvars og það
jafnframt gert frádráttarbært, sem
rekstrargjald við skatt- og útsvars-
álagningu.
Þá lýsir fundurinn eindregnum
stuðninigi við þá stefnu, að sparifé
sé gert skattfrjálst, svo sem Jón
Pálmason hefir beitt sér fyrir á
Alþingi.
Þessar tillögur eru byggðar á þeirri
forsendu, að tekju- og eignaskattur og
útsvör verði áfram sjálfstæðir tekju-
Stofnar fyrir riki og sveitarfélög. Fund-
urinn telur hins vegar sjálfsagt, að
milliþinganefndin í skattamálum at-
hugi, hvort heppilegt sé að sameina
alla þessa skatta að einhverju eða
öllu leyti. Jafnframt telur fundurinn
rétt, að milliþinganefndinni verði fal-
ið að rannsaka, hver áhrif það myndi
hafa, ef farin væri sú leið í skattamál-
um, sem Gísli Jónsson hefir bent á,
en það er að afnema alveg tekjuskatt
og eignarskatt.
Landsfundurinn lýsir ánægju sinni
yfir því, að Sjálfstæðisflokkurinn í
bæjarstjórn Reykjavíkur hefur riðið á
vaðið og lækkað útsvarsstigann þannig,
að persónufrádrátturinn er hækkaður
um 50% og tekjur allt að 15 þús.
kr. útsvarefrjálsar í stað 7 þús. kr.
áður.
Tollamál
Landsfundurinn ítrekar ályktun síð-
asta landsfundar, að tollaálögum sé
jafnan stillt svo í hóf, að þær of-
þyngi ekki atvinnulífi landsmanna og
greiðslugetu almennings.
. Fundurinn vekur athygli á því, að
tollalöggjöf hefur mjög mikil áhrif á
þróun iðnaðarins í landinu og með
hliðsjón af því leggur fundurinn á-
herzlu á eftirfarandi atriði:
1. Að vegna þeirra stórstígu fram-
fara, sem íslenzkur iðnaður hefur tek-
ið á síðari árum, og þeirrar stöðugt
vaxandi þýðingar, sem þessi atyinnu-
vegur hefur fyrir afkomu þjóðarinn-
ar, sé nú orðin óhjákvæmileg nauð-
syn, að endurskoða tollalöggjöf lands-
ins og breyta henni í það horf að
tollarnir leggi ekki hömlur á eðlilega
þróun iðnaðarins.
2. Landsfundurinn fagnar því að
iðnaðarmálaráðherra hefur orðið við
þeim tilmælum iðnaðarsamtakanna að