Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1962, Blaðsíða 18

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1962, Blaðsíða 18
ár eftir heimifissjdnvarpi - - V ' - OG LÖGREGLULEYFI ÞARF TIL ÞESS AÐ KAUPA ÖLGLAS J»AB er furSulegt til fcess aS hugsa aS sumir menn skuli vera af sama upplagi og hestar þeir, sem draga bjórvagna CarlsbergverksmiSjanna dönsku, og ís- lenzkir ferSamenn mæta títt á götum Kaupmannahafnar. Sem kunnugt er eru dráttarhestar þessir búnir hlífum um augu, þannig aS þeir sjá aSeins beint framundan, í þá átt, sem ekiliinn beinir þeim. Ekki get ég aS bví gert aS mér detti tíðum augnaumbúnaður púlshest- anna í hug, þegar litið er yfir lýsingar íslenzkra kommúnista á þvi, sem fyrir augu ber í Austur-Berlín, og verður mér síðast hugsað til bréfs um ástandið þar eftir kennara einn íslenzkan, sem birt- ist í Þjóðviljanum 27. september sl., en þar var trúuðum lesendum blaðsins m.a. tjáð að „enginn gaddavírsumbúnaður á landamæraverði Ulbrichts nema þegar þeir hafa skotið á flóttamenn, sem komn- ir hafa verið vestur fyrir, eða á V-þýzku lögreglunna sjálfa. En hver hlutur verður að sjálfsögðu að eiga sína skýr- ingu til handa hinum rétttrúuðu. Á þessum tíma héldu Rússar daglega inn í V-Berlín með brynvagnalest, er þeir skiptu um heiðursvörð við minnis- merki sitt í Tiergarten, en síðar voru þeir neyddir til þess að gera sér eigið gat á múr Ulbrichts, nær minnismerk- inu. Vatr því allra veðra von í Berlín þessa dagana. Áður en haldið var inn í A-Berlín umræddan dag, stóð undirritaður í hópi blaðamanna við Checkpoint Charlie, hinn fræga stað á mörkum bandaríska hernámssvæðisins. Ekkert gerðist þó að Þar sem bíða þarf varð séður ofan á múrnum". Þótt e. t. v. þyki það ekki kristileg hugvekja á jóla- hátíð datt mér í hug að lýsa því, sem fyrir augu bar í Austur-Berlín dag nokkurn sl. haust, skömmu áður en um- ræddur kennari var þar á ferð „í stór- um farþegabíl með leiðsögumanni og fjórum túlkum“. Þessa daga, um mánaðamótin ágúst— september, var loft mjög lævi blandið í Berlín. Peter Fechter hafði verið skot- inn og látinn liggja blæðandi austan múrsins á annan klukkutíma nokkrum dögum áður. Skýringar Þjóðviljans eru nú þær að VOPO-mennirnir, sem skutu Fechter, hafi verið hræddir um að verða skotnir af V-þýzkum lögreglumönnum, þótt staðreyndin sé hinsvegar sú, að V-þýzka lögreglan hefur aldrei skotið þessu sinni, rússnesku bryndrekarnir staðnæmdust andartak á mörkunum og héldu síðan inn í borgina í fylgd V- þýzkrar lögreglu og bandarískrar her- lögreglu. Þegar „Sovétsirkusinn“, eins og V- Berlínarbúar kölluðu rússnesku lestina, var kominn framhjá hófst hálftíma ganga í gegnum 100 metra svæði búið skriðdrekavörnum, gaddavír og varð- skúrum, áður en endanlega var gengið inn í sæluríki Ulbrichts. VEGABRÉFEÐ HVARF Eftir að hafa verið tjáð af herlögregl- unni vestan megin að færi ég inn í A-Berlín væri það á eigin ábyrgð, var haldið að fyrsta vegartálmanum. Við hlið á múrnum stóð tollvörður (að ég held; annars var ómögulegt að átta sig á því hver var hvað í öllum þeim mý- grút einkennisbúninga, sem þarna var) og krafðizt vegabréfs. Álengdar stóð Vopo-maður vopnaður vélbyssu og fylgd ist með því, sem fram fór. Ekki gat ég séð vestan múrsins áróð- ursskilti þau hin bandarísku, sem kenn- arinn íslenzki „sá“ nokkru síðar, en hins vegar var þar uppi, og hafði verið lengi, tilkynning frá lögreglustjóranum í V-Berlín, þar sem heitið var háum vetrð- launum fyrir upplýsingar um atvik, sem þarna gerðist við múrinn er flóttamaður var murkaður niður af vélbyssu Vopo- manns. Er tollvörður þessi hafði rýnt vendi- lega í vegabréfið var mér hleypt inn og hófst þá annar áfangi, og hinn viða- mesti. Er inn í varðskúrinn kom var manni gert að afhenda vegabréfið Vopomanni, sem stakk því inn um litla rifu á veggn- um og hvarf það síðan sjónum í 15 mínútuir. Ekki er vitað hvað gerist þarna fyrir innan, en sagt er, og vafa- laust með réttu, að þar sitji arftakar Gestapo, öryggislögreglan, og athugi hvort viðkomandi vegabréfshafi sé „hættulegur alþýðulýðveldinu". KÍKT AF „PALLI“ Á meðan beðið var eftir vegabréfinu notaði ég tímann til þess að rýna í áróðursbæklinga A-þýzku stj órnarinnar, sem þarna var nóg af. Eru þeir hin furðu legasta lesning venjulegu fólki. Þar má t. d. lesa að „í miðjum ágúst 1961 hafi stjóm Þýzka alþýðulýðveldisins séð sdg tilneydda að beita ýmsum ráðum til varnar gegn vandræðum þeim, sem stöfuðu frá Vestur-Berlín“. Utan á bækl- ingi þessum er mynd af þremur vel klæddum blómaróeum á gangi í skrúð- garði með Brandenborgarhliðið í bak- sýn. Hinar raunverulegu „blómarósir“ þar nú, og jafnvel uppi á hliðinu líka, em Vopomenn. Er það útaf fyrir sig frábært afrek að vera svo af Guði gerð- ur að geta rekið áróður á þennan máta, svo ekki sé minnzt á upplag þeirra, sem trúa honum eftir að hafa séð hvernig umhorfs er nú við Brandenborgarhliðið og kíkt yfir múrinn þar af ,,paiii“, líkt og margumræddur kennari. ★ ★ ★ Loks kom vegabréfið út úr hinu leynd ardómsfulla herbergi, og tók þá við næsti þáttur. Vopomaðurinn, sem afhenti veg- arbréfið, krafðist þess nú að fá að líta í peningaveskið, og varð að telja fram allt fé úr því, jafnt íslenzka hundrað króna seðilinn sem V-þýzku mörkin. Fékk maður síðan kvittun fyrir þvi að inn í sæluríkið færi maður með ákveðna peningaupphæð, og var um leið tjáð að sýna yrði hana er út væri farið aftur. Leizt mér þannig á embættismenn Ulbrichts að ráðlegra væri að týna ekki blaði þessu eða fara með minna af er- lendum peningum út en inn. GJALDEYRISVIÐSKIPTI ULBRICHTS Að þessu loknu var næsta skrefið að fá v-þýzkum mörkum skipt í a-þýzk, en það gerist í gegnum lúgu á veggnum. Fyrir innan sat gamall maður og skipti peningum. Gekk það seint, enda þurfti hann í mörg horn að líta, fylla út ótal eyðublöð og stimpla fyrir hvern ein- stakan viðskiptavin. Fyrir hvert v-þýzkt mark fékkst eitt a-þýzkt og eru það vægast sagt léleg skipti, þar sem v-þýzka markið hefur a. m. k. þrefaldan kaup- mátt á við það a-þýzka. En ekki tjáði að deila við dómarann. 20 mörlcum var skipt, og fengin kvittun þar að lútandi. Verður ekki annað sagt en Ulbricht kunni að reka gjaldeyrisviðskipti sín með góðum hagnaði, og voru raunar ekki öll kurl til grafar komin i því sambandi, svo seim síðar verður vikið að. Á meðan á peningaviðskiptum þess- um stóð gaf sig á tal við mig banda- rískur læknastúdent, sem er við nám i London, mjög hæglátur piltur. Var hanu einn á ferð og varð það úr að við skyld- um hafa samflot um sæluríkið þennau dag. Að því búnu gengum við út úr varð- skúr þessum og í áttina til sælunnar. Enn var í gegnum einn farartálma að fara. Stóð þar Vopomaður og varð nú enn að sýna vegabréfið, — í þriðja sinn. Austur-þýzk stríðshetja stendur heiðuvsvörð við minnismerkið um fórnar- lömb nazista. Veitið athygli einkennisbúningnum; ekkert hefur breytzt nema hjálmurinn. 18 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 33. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.