Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1964, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1964, Síða 6
wm Alexander; Jón var dálítið sér- vitur. Yeturli'ða kynntist ég ekki, en sagt heyrði ég, að hann væri líkur þeim bræðrum sínum. Allir munu J>eir hafa alizt upp m-eð föðuir sínum, nema Otúel, sem snemma mun hafa farið úr föðurgarði og stundum átt misjafna æfi, enda talinn ærið óstýri- látur í uppvextinum, þó mun honum íiafa liðið allvel þau árin, sem hann Var í Arnardal við Skutulsfjör’ð, hjá J>eim myndarhjónum, Halldóri Hall- dórssyni og Guðrúnu Jakobsdóttur. IHún var Obúel m.jög góð og fyrirgaf honum margt. 1 Arnardal voru fleiri drengir á Bama aldursskeiði og Otúel, einn þeirra hét Þorleifur, og hafði Otúel mestan félagsskap við hann, þó oft elægist í kekki og vinskapurinn væri líkur útsynningnum, þá virtist það einungis skerpa kærleikann. Þorleif- ur bar alltaf yfirihöndina, þegar til Ihandalögmáls kom, en Otúel var liðugur í öllum fimleikum. >eir æfðu saman ýmsa leiiki, en voru hvorugur vel þokkaður hjá eldra fólkinu, þóttu báðir ófyrirleitnir og hrekkjóttir. IÞegar Otúel var 11 ára, en Þorleifur | 12,- gaf einhver þeim gamlan bóg- | lausan byssuihólk, því næst eignuðust j |>eir, upp á einihvern hátt, pú'ður og i Ihögl og lögðu síðan af stað til rjúpna- veiða með byssuhólkinn og hamar, sem Þeir 'stálu frá einhverjum. Þegar kom til að skjóta rjúpurnar, mið- aði annar, en hinn sló á knallhettuna með hamrinum. Þannig stunduðu þeir rjúpnaveiðar daglega þegar veðri'ð leyfði þann veturinn. Rjúpumar seldu þeir í kaupstaðinn, óskiptar. (ísafjarð arkaupstað). Þeir máttu ekki skipta þeim, svo hvor gæti selt sinn part, því þegar stóð á stöku, tók Þor- leifur ætíð stöku rjúpuna, hvort Otú- el líkaði betur eða verr, þvi Þor- leifur var sterkari. Þeir æfðu sig mik- ið vi'ð að kasta, bæði smásteinum og snjókúlum og urðu svo hæfnir að undrum sætti; urðu stundum ýmsir íyrir snjókúlum þeirra, og voru strák- ar þá oft grátt leiknir, þegar saklaus- ir hjá gengu, fenigu snjókúlu utan I vangann eða beint framan í sig. Eitt vorið, skömmu fyrir fráfærur, voru þeir að smala sem aftar, Þorleifur og Otúel, inni á Kirkjubólslhlíð og gekk heldur seinlega, því rollurnar vildu ekki rekast vel,' enda þóttust Bmalarnir eftir mörgu fleiru þunfa a'ð líta, sérstaklega ef þeir sáu fugl í kast íæri, þá varð að senda honum steiin. Nú voru þeir komnir út á háu bakk- •na, sem eru nokkru fyrir innan Arn- ardal, Þar ganga klettar fram í sjó- inn og eru sumir umflotnir. Þeir sáu eeðarkollu sitja á einum þessara kletta úti í sjónum, og köstúðu nú báðir undir eins; æðarkollan datt dauð í sjóinn, vindur stóð á land, svo ha.na rak upp í fjöruna. Þeir félagar hlupu nú báðir niður bakkana og grípa kolluna, sáu þeir þá, að annar Bfceinninn hafði komið í bakið en hinn í hausinn á fuglinum, þóttust báðiir hafa kasfcað þeim steininum, sem kom í hausinn, því hann hefði drepið BBðarkolluna. Vildi Otúel þá ekkert hjálpa >o s fi við lambærnar, svo tiann varð einsamall að reka þær heim, en þær voru dreift, svo hann | varð ýmist að hiaupa hátt upp í hlíð, eða niður á götur, en va,r nú óvenju- lega duglegur, og loks kom hann roll- unum saman í hóp, sem röltu með Ihægð heim göturnar. Otúel drattaði talsvert íangt á eftir. Þorleifur átti eina á, sem honum hafði verið gefin, Ihún hafði borið með þeim fyrstu og J var lamb hennar eitt hið vænsta í hópnum. Ærin var lítið eitt á undan hinum og auðþekkt á lambinu. Þor- leifi heyrðist þytur í loftinu mjög nálægt eyranu á sér, og þegap hann kemur þar er ærin var, liggur lamibið þar steindautt á götunni, hafði Otúel þannig hefnt sín. F1 ■Li inu sinm sem Ifklega oftar, vantaði af kviánum hjá Otúel, hús- móðirin var sjálf að mjólka, Otúel var a’ð vazla í kvíunum, sem ekki voru sem þrifalegaistar, leggst svo ingu; kona hans hét Dagmey og var fósturdóttir merkislhjóna, Finniboga og Ingunnar, sem bjuggu á Melgras- eyri. Um ætt hennar man ég ekkert, hún hafði verið fríleikis stúlka og fönguleg í sjón. Haustið 1873 réðst ég sem háseti hjá Otúel, bæði sökum þess, að það þótti aflavon að vera með honum, og svo þótti mér í þá daga, gaman að tilbuxðum hans og tali, þá bjó hann. á Snæfjöllum, og hafði búið þar nokkur ár í tvíbýli, Ofcúel var ekiki hneigður fyrir landibúskap, enda var endilangur á kvíavegginn; húsfreyja var að nudda við hann um að fara að leita að því, seim vantaði, og m,eð því hann vissi sig mega til þegar til húsbóndans kæmi, slítur hann af sér annan skóinn, sem var götóttur og ekki sem þrifalegastur og kastar hon um yfir rollurnar ofan í mjólkurföt- una í höndum húsmóður sinnar og drattar síðan af stað á sokknum á öðrum fætinum. Otúel ólst upp alveg menntunar- laus, nema hafi hann lært eitthvern graut í fræðunum, og þá utarubókar, því hann var lítt læs. Til sjóverka læriði hann snemma, enda mjög lag- inn á allt þessháttar, og framúrskar- arndi aflasæll, er hann fór sjálfur að vera með bát, fékk hann þess vegna oft duglega menn að róa hjá sér. En það senn hann kunni öllum Isfirðing- um betur í þá daga, var að skjóta af byssu, hann var afbragðs skytta og ennfremur ótrúlega hæfinn á allt, sem hann kastaði til og það oft á afarlöngu færi. Það sem aðallega ein- kenmdi Otúel frá öðrum mönnum, var yfirlæti eða mont bæði í orði og lát- æði, hvort sem hann var með víni eða ekki, þó út yfir tæki þegar hann var mátulega hreyfur, þá kom mont- ið oft svo hlálega út hjá honum, að enginn viðstaddur gat vorizt hlátri. Otúel eignaðist ungur bæði byssu og bát, og græddist honum á því talsvert fé, og. er hann var rúmlega tvítugúr, var hann talinn með efnilegri ung- HP'64 búið lítið, ein kýr, eitt hross, 9 ær og, þann vetur 8 gemlingatr á vetur sett- ir. Iíann átti bát og fimim manna far, sem Blfðviður hét, hann átti þrjár byssur, sem hann kallaði Laufana. Eina kallaði hann Laufann, aðra gula Laufann og þá þriðju litla Lauf- ann. Otúel hafði ég kynnzt í tvö undan- farin vor, og vorum við orðnir tals- vert 'góðir kunningjar, enda þótti honum einatt vænt um mig og var mér mjög góður. Faðir minn flutti mig alla leið á hrossuim út að Snæ- fjöllum, hittum vi'ð þá svo á, að Otúel var vel sætkenndur, sem hann kall- aði, og varð það þó betur síðar um kvödið. Vildi þá Dagmey ekki sofa hjá honum, sem mjög sjaldan kom fyrir, þótt hann væri allkenndur. Löngu eftir að háttað var, hefðu all- ir verið farnir að hrjóta, ef Otúel hefði talað lægra vi'ð sjálfan sig 1 rúminu; en þar allt um hinar frægu 'herferðir hans, — svo kallaði hann skytteríisíerðiir sínar, bæði inn um djúpið,' en einkum norður í Jökul- fjörðu. Loksins var hann orðinn svo æstur og ærður af þessum hetju- sögum af sjálfum sér, þótt enginn anzaði honurn, að hann þeytti með ihöndunum og fótunum öllum fötun- um ofan af sér, fram að hurð, og hrópaði: „Heiðuirsikepan spriklar nú!“ Ég man að föður mínum leizt ekki á fiormanninn, sem ég hafði ráðið mig hjá. Um morgunin var Otúel miklu um mönnum, hann fékk góða gift- stilltari, spurði hann þá föðuir minn, hva'ð hann vildi ráðstafa hlut mínuim, bæði í selum og hnísum, sem hann mundi skjóta, „því“, sagði hann, ,ég er vanur að fá feitt með mögru, skaltu vita.“ N i" ú byrjuðum við róðrana og allt hafði gengið vel og skemmtilega nokkrar vikur, en þá kom allra heil- agra messa, hún var mikill uppá- haidisdagur, og varð ævintýradagur í þetta sinn. Þrjá dagana næstu á undan hafði verið nor'ðan blindbyluir með ákafri snjókomu, skefldi þá svo fram af bænum, að moka varð um 8 feta löng göng frá bæjardyrunum fram úr skaflinum, tók þá við brekka, sem þakin var lausum snjó. Við höfð um átt nokkrar lóðir í sjó, síðan fyrir nor'ðanbylinn og fórum nú snemma að sækja þær, og fiskuðum vel. Það var og er enn vani, að menn fari heim að borða, er þeir korna af sjó, óður en aflinn er gjörður til, og svo gjörðum við í þetta sinn. Otúel var vanur að koma litlu á eftir okkuir niður í fjöruna, til áð fletja fiskinn, sem er formannsins verk. Nú dvald- ist honurn venju lengur, svo við há- setarnir vorum búnir að öllum okk- ar verkum í fjörunni, svo einungia stóð á að fletja fiskinn, fóir ég þá að fletja, en Geir gamli að þvo. Þessi Geir var þá vinnumaður Otúels, ég tók þá eftir því, að það var einhver hávaði og gauragangur heiima í snjó- skyggninu, leit þá upp eftir, til að sjá hváð um væri að vera, sá ég þá einhverju svörtu og fyrirferðar- miklu vera þeytt fram úr skyggninu niður í brekkuna, er hér um bil hvarf á kaf í snjóinn, en brátt fór þetta að hreyfast, og upp stóð þar Ihúsfreyjan heldur snjóug. Otúel kem- ur þá út úr snjóskyggninu snúðugur með hendur á síðum og gengur til hliðar við konu sína, niður eítir til okkar, ýtir við mér og segir: „Sástu hvað hefðurskempan gerði, Jónsi?“ Ég kvað nei við og innti hann u-m hvað það hefði verið. „Ég staklk maddömu Dagmey á höfuðið fram 1 skaflinn." Varð bann þá allreiðilegur. „Maddama Dagmey skyggir á ljóma minn, heiðurskempan Otúel Vagns- son þolir ekki slikt“, sag'ði hann með hendur á síðum og hrækti í allar átt- ir. „Ykkur hefir eitthvað borið á milli“, sagði ég. „Hún reitti mig til reiði, Jónsi. Þegar hann var búinn að rausa þessu úr sér, þaut hann frá mér nokkra faðma með allskonar fettum og brettum, en kom brátt aft- ur talsvert stilltari: „Veiztu hvað ég ætla að gera, Jónsi? „Nei, hvað er það?“ spuriði ég. „Ég ætla að skilja við Maddömu Dagmey, og gefa hennl allt sem ég á, nema íitla bátinn og Laufana, ég ætla að láta hana hafa kúna og hiryssuna og alla gemlingana og Blíðvið Mka. Þá geri ég eins og heiðurskempu sæniir'1, segir hann. Svo rausaði hann lengi um það, hvernig hann ætlaði að hafa alia hluti, þegar hann væri skilinn við Maddömu Dagmey. Síðan fór hann beim a'ð bæ með alls konar tilburð- um. MT egar Ótúel var í essinu sínu, var engu líkara en að hann hefði liða- mót á hverjum feilþumlungi x öllum skrokknum, það er ómögulegt að lýsa öllum þeim tilfourðum og hreyfimg- uim; hann var 5 fet og 5 þumlungar á hæð, en gildur, einktan um lend- amar var hann afar sver, nokkuð varaþykkur með Mtið nef og ekki ófríðuir, hann hafði lengi raúða breiða trefju um hálsinn, og náðu endarnir 3S LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 38. tbl. 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.