Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Page 16
Frönsku arkitektarnir hafa strax komið auga á sérstæða hæfileika ungu íslenzku stúlk- unnar í stórum hópi nýútskrif- iaðra arkitekta úr hinum forn- fræga skóla Beaux-Arts árið 1958, því henni veittu samtök þeirra í verðlaun full starfs- réttindi í Fnakklandi vegna frumlegrar og vel unninnar próf teikningar af gróðurhúsi með íbúð í smáþorpinu Hveragerði norður á íslandi. í þeirri úr- lausn hafa þeir séð, að Högna Sigurðardóttir mundi líkleg til að fara ekki troðnar slóðir og útfæra frjóar hugmyndir, því þeir standa vel vörð um vinnu réttindi sín. Útlendingar fá ekki . að starfa þar í lamdi nema hjá frönskum arkitektum, jafnvel þó þeir hafi lokið góðum prófum úr öðrum hvorum af hinum við urkenndu skólum þeirra og búi æfilangt í landinu. Högna hafði alltaf reiknað með að framtíðarstarfið yrði á íslandi, en síðan þetta var hef- ur hún unnið á báðum stöðum. í París hafði hún í mörg ár átt sitt heimili. Maður hennar, Bandaríkjamaðiurinn Gerald An spach, grefur upp dýrmæta gamla muni í Evrópu og er sér fræðingur á því sviði. Dæturn ar tvær, Sólveig 9 ára og Þór- unn Edda 4ra ára, eru oft á sumrin í Vestmannaeyjum og tala íslenzku, enda er jafman íslenzk stúlka á heimilinu til að hugsa um þær, því Högna vinnur mikið úti. Þegar ég var á ferðinni í París seint í haust og hringdi til Högnu, svaraði hún á sinn alúðlega og óformlega hátt: — Já góða komdu og borðaðu með okkur. Hvenær geturðu Nútíma torfbær eftir Högnu Elín Pálmadóttir rœðir við Högnu Sigurðardóttur, arkitekt, og segir frá húsi eftir hana í Carðahverfl og hið fyrirhugaða háskóla- svæði. — Tildrög samkeppninnar >eru ' þau að fyrirhugað var að reisa vísindaháskóla á lundsvæði norðan við París, í Enghien. Svæði þetta bafði byggzt upp alveg skipulagslaust. Þess- vegna vildu viðkomandi yfir- völd í Parísarborg fá skipulag þarna, áður en hafizt yrði handa svo ekki færi eins og t.d. í Nan terre, þar sem stúdentauppreisn irnar hófust í vor. Þar var skól inn byggður á auðu svæði, án heildarskipulags fyrirfram, þann ig að hann varð alveg einangr aður, úr tengslum við París og úr tengslum við umhverfið. Og sumir halda því fram, að það hafi a.m.k. verið ein af ástæðunum fyrir ólátunum. I Enghien hagar ekki ósvip- að til. Þanna 'hefur smámn saman risið upp úthverfabyggð og er eiginlega orðin að þremur bæj- um. Á miðju svæðinu er autt ræktað land undan gömlum vopnageymslum. Þarna hefði vís indaháskólinn verið reistur, án þess að hugsað væri frekar um það, ef ekki hefði verið ákveð- ið að taka í taumana og efna til samkeppni um skipulag há- skólahverfisins í heild. Mennta : málaráð og Skipulagsdeild Par- ísarborgar gengust fyrir þeas- komið? Þetta varð dýrindis mál tíð, kjúklingar bakaðir í „corn- flakes“, og góð vín. Högna hef ur tileinkað sér þá ágætu eigin leika Frakka að gefa gestum sínum góðan mat og láta fara notalega um þá, en leggja ekki aðaláberzluna á að hafa svo fínt í kringum þá. Fjölskyldan skipti um húsnæði í sumar, leig ir nú efsta hlutann í mjög gömilu húsi í suðurihluta Parísar borgar, og ætti ég að segja hve mangar hæðir 'hún hefur til um ráða, ræki mig í vörðurnar. Síð an þau fluttu þarna inn hafa þau verið að mála og gera upp svalir yfir hluta af stofunni, þar sem verður vinnustofa Högnu, og einnig lagfæra mjó- an stiga upp á hanabjálkaloft- ið, sem er stúkað sundur í hólf fyrir barnaiherbergi, stúlkna- herbergi og gestaherbergi með veggjum, sem ekki ná alveg upp. Annars hafði Högna ekki mátt vera að því að koma sér þarna vel fyrir, því hún hefur mikið að gera sem arkitekt. Hún vinnur allan daginn á teiknistofunni og hafði svo ver- ið með aukaverkefni heima á kvöldin. Þar sem við nú-sátum í notalegri birtu frá kertaljósi spurði ég hana milli almenns spjalls og framreiðslu rétta um verkefni hennar þessa stundina. HÁSKÓLI f TENGSLUM VIÐ UMHVERFIÐ Svo sem kunnugt er og frá var skýrt í blöðunum, báru Högna og franski arkitektinn Tainsilbert sigur úr býtum í samkeppni um skipulag stórs háskólasvæðis norðan við París í fyrra, en 85 arkitektar fengu að taka þátt í samkeppninni. Vakti þetta mikla athygli. Að þessu verkefni er hún einmitt að vinna og auðvitað spurði ég hana nánar um þessa samkeppni ■ Ragnheiður með tvo af drengjunum sínum fim m í fyrirhuguðu hringlaga „hugguskoti“ með steyptum bekkjum. Húsið við Garðaflöt í byggingu. Ljósm. Ól. K. Magnússon. 48 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. des. 1988

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.