Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1970, Qupperneq 22
Umsjón: Sveinn Guðjónsson
LED
ZEPPELIN
Led Zeppelin 1969 — ?
Ef við skiptum þeim 7 árum,
sem liðið hafa síðan Bítiarnir
„breyttu veröldimmi“ í 3 tknia-
bil mundum við miða þau tíma-
bil við 3 hljómsveitir, The
Beatles, The Cream og Led
Zeppelin. Bítlarnir áttu frum-
kvæðið, drógu línurnar og mót-
uðu stefnuna. í þeirra hönd-
um þróaðist pop-tónlistin til
hins betra, dag frá degi og ár-
ið 1967 þagar Sgt. Peppers
platan kom út stóðu þeir á há-
tindi frægðar sinnar og list-
sköpunar. Eftir það fóru skoð
anir að skiptast. Poppið
greindist í margar óiíkar stefn-
ur og frábærir hæfileikamenn,
hver á sinu sviði, létu nú að
sér kveðia í æ ríkari mæli. Sam-
nefnari fyrir þessa þróun var
hljómsveitin Cream. Allt sem
frá þeim kom, hvort sem það
var af hljómplötum eða á
hljómleikum einkenndist af sér-
lega góðum hljóðfæraleik, yf-
irvegum og fruimleik enda var
þar valinn maður í hverju sæti
og vinsældir þeirra voru í
réttu hlutfalli við gæði.
Eric Clapton og Ginger Baker úr Cream.
í dag eru málin öllu flókn-
ari, svo mikdð friamboð sem nú
er af góðum hljómsveitum enda
smekksatriði hvað hverjum og
einum finnst betra en annað.
En ef við legigjum dæmið fyr-
ir ökkur með tilliti til hæfi-
leika, áhrifa, ummæla gagnrýn
anda og þó fyrsit og fremst vin-
sælda miðað við plötusölu og
hljómleika verður útkoman Led
Jimmy Page
Zeppelin. Þeir eru nú án nokk-
uns efia liangvinBælaisitia hljóm-
sveit heimsins í dag og vegna
þeirrar fulllvissu teljum við rétt
að gera þeim félögum nokkur
skil hér í dálkum Gluiggans.
Meðlimir Mjómisveiitarinnar.
sieim eru Jimrny Paigie (gítar),
Robert Plant (söngvard), John
Bonham (trommmr), oig John
Paul Jones (bassi) baldia því
fast fram að hljómisveitin sé
fyrst og fremst „fjöigurra
manna hljómsivei't", þ.e. að atl-
ir gegni þeir jafnstóru hlut-
verki í Mjómsveitinni og eng-
inn sé öðrum fremri. Það hef-
ur nefnilega viljað brenna við
að rnenn Hti á Led Zeppelin
sem einkaeign Jimmy Page
enda er hann þeirra frægastur
og mest áberandi. Þessu mót-
mæla þeir harðiliega en þó get-
ur maður ekki varizt þeirri
hugsun að heldur lítið yrði úr
þeim félöigum ef hans nyti ekki
við. Jimmy Page varð fyrst
þekktur er hann lék með hljóm
sveitimnd Yardbirds. I Gluiglgan-
um 15. okt. 1967 birtist grein
sem nefndist „Hinir.7 stórkosr-
l-egu“ og fjallaði hún urn 7 git -
arleikara sem þá þóttu bera
hvað hæst í Bretlandi. í þeirra
hópi var einmitt Jimmy Page
en um hann var sagt m.a.:
„Jimmy -er týndi sauðurinn í
hópnum. Hann er ekki eins
þekktur meðal fólks og hinir
siex og s-tafar það af því að
síðan hann tók við af Jeff
Beck sem sólógítarleikari i
Yardbirds befur hljómisv-eitin
s-tarfiað að mestu leyti í Banda-
ríkjuinuim. Engu að síður
sómir Jiimmy s-ér vel í þessum
afburða hópi og hann á án efa
eftir að liáta meira að sér kveða
í íramtíðinni.“
Svo mörg voru þau orð og
nú er komið á daginn að hann
hefur látið það mikið að sér
kveða að hann er í dag ein-
hver mest umtalaði hljóðfæra-
leikari heimsins.
Sköimmu eftir að þessi grein
var s-krifuð hætti Jimmy í
Yardbirds og hóf nám við lista-
skóla í London. Á meðan hann
var við nám lagði hann gíbar-
inn á hilluna. Þetta stóð þó
ekki lengi og áður en varðx
hiafði gítarinn fr-eis-tað hans á
nýjan leik og nú héildu hon-
um engin bönd. í beinu fram-
haldi af þessu munum við í
næsta Glugga fjalla um það
hvernig draumar hans urðu að
veruleika — söguna á bak við
hina vinsælu hljómsveit Led
Zeppeliin.
The Beatles á hátindinum þegar Sgt. Pepper platan kom út.
22 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
24. m,ai 1970