Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Síða 28

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Síða 28
teeirouR teöSRS - Dags- Lifsins Huldufólkið og hjartagæzka þjóðfélagsins Dagur með Gísla Guð- mundssyni, rannsóknarlög- reglumanni. Eftir Freystein Jóhannsson ______________r Hegfningarhúsið við Skólavörðustíg. Hvernig- á svo sem að byrja íslenzkan skammdegisdag öðru vísi en að fá sér kaffisopa? Við sitjum inni í tæknideild rannsóknarlögreglu Reykjavík ur og einn af öðrum tín- ast rannsóknarlögreglumenn- irnir inn úr kuldanum; fá sér kaffi og halda síðan til starfa. Klukkan er langt gengin í níu og þetta er ósköp hversdags- legt upphaf eins vinnudags. Einstaka orð frá deginum áð- ur, eða nóttinni, sitja í mönn- um og þeir endurtaka þaw hver fyrir öðrum yfir kaffinu. Sumir fá sér aftur í bollann. Og kannski fer þessi stund saman við það, að maður I Hegningarhúsinu veltir því fyr- ir sér, hvort hann eigi að játa ytfirsjónir sinar i dag eða á morg un og einhvers staðar úti í bæ situr maður, sem hefur brotið lögin í nótt. „Ég var búinn að vera tólf ár í götulögreglunni, þegar for vitnin um framhald málanna bar mig hingaö í rannsóknar- lögregluna," segir Gísli Guð- mundsson um leið og hann rennir augunum yfir „gesta- lista Hverfisteins“. Þar eru nöfn þeirra, sem lögreglan hef ur sett inn um nóttina. En þarna er ekkert fyrir Gísla í dag. Aðeins nöfn. Sum eiga kannski aldrei eftir að sjást á þessum lista, önnur eiga það örugglega eftir og má vera að eitt nafnanna eigi eftir að stað næmast um stund á skrifborð- inu hjá Gísla. En í dag er það bara nafn og er eins og öll hin á listanum. Fyrsta kallið kemur kortér yfir níu. 1 morgunsárið hefur verið brotin rúða í hurð verzl- unar í bænum og eigandinn sýnir okkur peysu, sem hann fann fyrir utan. Það er óskemmtilegt að finna rúður sínar brotnar að morgni, en þarna var ekki farið inn — engu var stolið. Bót i máli það. 1 nágrenninu hittum við fólk, sem segist hafa séð mann stefna til miðborgarinnar með grjót í hendi. Maðurinn var snöggkaæddur og með skegg. Og hanm hafði grjó't í Ihendi. Meðan lögreglumenn fara að svipast um eftir þessum manni, skrifar Gísli fyrstu skýrsluna um málið. Kannski verður það aldrei imeira en þesisá eina skýrsla. Kannski finnst maður inn strax í dag; á morgun eða hinn daginn. Og kannski kem- ur lausnin á skrifborðið hjá Gísla ekki fyrr en eftir viku. t>að er allt til. Og morguninn heldur áfram. Mannlífið tekur við sér og víxl spor næturinnar koma hvert á fætur öðru inn i skrifstofur rannsóknarlögreglumannanna. Annað rúðubrot. Hvarf á reið- hjóli. Stuldur úr bil. Innbrot. Annað innbrot. Fölsuð ávísun. ökugjaldssvik Og málin halda áfram að streyma inn. Fyrsta skýrslan er skrifuð. Það 'er liðið að hádeigi, þegar Gísli lætur uppi hug sinn til starfsins: „Auðvitað hefur þetta starf sem önnur bæði bjartar og dökkar hliðar," seg ir hann. „öll þau mál, sem við fáum til rannsóknar eru þannig vaxin, að annar aðil- inn verður fyrir óláni eða er © „Yfirheyrslur og aftur yfirheyrslur“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.