Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 14
KVIKMYNDIN ER UPPSPUNI - segir dr. Magni Guðmundsson ögur Jóns Sveinssonar um Nonna og Manna hafa löngum verið vinsælar ekki einungis á ís- landi heldur víða um heim. Nokkrar evrópskar sjónvarpsstöðvar, þ. á m. íslenska ríkissjónvarp- ið, létu gera sjónvarpsþætti „eftir sögum Jóns Sveinssonar“, kvikmyndastjórn annaðist Ágúst Guðmundsson. Áfraksturinn bar fyrir augu landsmanna um jólaleytið í fyrra. Umsagnir áhorfenda og gagnrýnenda voru yfirleitt vinsamlegar. — Þó verður að segj- ast að sumir Nonnaunnendur lýstu yfir óánægju með jóiagjöfina, t.d. dr. Magni Guðmundsson hagfræðingur. Dr. Magni er fæddur og uppalinn í Stykk- ishólmi, kvæntur maður og faðir tveggja dætra og tveggja sona. Hann er kominn á eftirlaun en vinnur enn hlutastarf fyrir ráðu- neyti. Magni er löngu landsþekktur fyrir bækur sínar um hagfræði og stjómmál, ennfremur hefur hann flutt fjölda útvarpser- inda — og síðast en ekki síst hefur hann skrifað greinar um margvíslegustu málefni í Morgunblaðið um hálfrar aldar skeið. Magni kynntist Jóni Sveinssyni þegar hann lærði viðskipta- og hagfræði við Ecole des Hautes Etudes Commerciales í París 1938-39. Heimsstyrjöldin síðari truflaði námsferil Magna en hann lauk kandídats- Viðtal: PLE prófi í hagfræði frá McGill-háskólanum í Nonni og Manni, námssveinar í Amiens í Frakk- landi um 1880. Montreal 1946. Hann lauk doktorsprófi í hagfræði frá Manitoba-háskóla 1977. MORÐSAGA - Nú í haust flutti Magni Guðmundsson er- indi í þættinum „Um daginn og veginn" í ríkisútvarpinu. Magni talaði m.a. um sjón- varpsþættina Nonna og Manna. Það er ljóst að honum „þykir bókin betri"; „Verk Jóns Sveinsonar eru afskræmd." Morgunblaðið spyr dr. Magna, hvemig? „Kvikmyndin er uppspuni sem á ekkert skylt við sögur Jóns Sveinssonar. Þetta er morðsaga og allt slíkt var mjög fjarri Nonna; hann þurfti ekki morð til að skapa spennu. Þótt það séu notaðar glefsur úr Nonnabókun- um er myndin í meginatriðum uppspuni. Dæmi: Faðir Nonna, Sveinn Þórarinsson, var annálaður heiðursmaður sem sá fyrir konu og bömum af alúð til hinstu stundar. I mynd- inni er faðirinn kominn til Suður-Ameríku og felur á andlátsstund einhvers konar um- renningi þar syðra forsjá heimilisins. Jón Sveinsson lýsir móður sinni, Sigríði Jóns- dóttur, sem sannkristinni konu, imynd hinnar fullkomnu móður. í myndinni er henni lýst sem frekar ístöðulitlum kvenmanni sem kom- inn er í tygi við vafasaman mann, var- menni, þjóf og morðinga. Söguþráðurinn í myndinni snýst um átök þessa umrennings, Haraldar, og morðingjans, Magnúsar. Og munnsöfnuðurinn og drykkjurausið í þessum kvikmyndaþáttum er ekki hafandi eftir.“ — Alls ekki? „Nei, hvorki ég né Morgvnblaðið geta lagst svo lágt.“ — En verður ekki að gera einhveijar breyt- ingar þegar bók er breytt í kvikmynd? „Þetta er ekki breyting! Þetta er ný saga, gjörólík Nonnabókunum að efni, persónum og stíl. Stíll? Lestu bækurnar! Nonni skrifaði létt- an stíl og lipran. Honum var frásagnargáfan í blóð borin og yfir sögunum svífur hugljúfur Morgunblaðið/Árni Sæberg Dr. Magni Guðmundsson blær bemskunnar. í Nonnábókunum finnast ekki gimdir, klúrar sviðsetningar eða grófar athugasemdir." Slæm Landkynning „Það er í sjálfu sér rétt að þessi kvik- myndasaga er krydduð með smáglefsum héð- an og þaðan úr Nonnabókunum, drengirnir tveir sem leika Nonna og Manna eru ósköp hugþekkir. Og ekki vantar svipmyndir af íslenskum hestum og landslagi.“ — Eru þá þessir sjónvarpsþættir svo voða- legir, em þeir ekki þokkaleg landkynning og líklegir til að örva lestraráhuga á bókunum sjálfum? „Myndin er slæm landkynning; hún sýnir fmmstætt land og framstætt fólk á lágu sið- ferðisstigi. Þeir sem hafa smekk fyrir svona mynd eru ekki líklegir til að hrífast af bókum Nonna. Og þess má geta að það hefur verið gefin út í bókarformi í Þýskalandi einhvers konar samsuða í stíl þessara sjónvarpsþátta óg þar er séra Jón Sveinsson skráður höfund- ur ásamt einhveijum G. Tellemann. Þetta Nonni og Manni í sjónvarpinu. Magnús Hanson kaupmaður, vafasamur maður, varmenni, þjófur og morðingi. Sigríði Jónsdóttur, sannkristinni konu, ímynd hinnar fullkomnu móður, er lýst sem frekar istöðulitlum kvenmanni. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.