Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 21

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 21
Kafflhúsin í Reykj av ík fyrir um 30 árum Þegar litið er um það bil þrjá áratugi aftur í tímann sýnist næsta furðulegt hversu mörg kaffihús gátu þrifizt í Reykjavík. Þá voru menn, sumir þeirra kynlegir kvistir, sem beinlínis héldu til á kaffihúsum og stundum sátu skáldin þar og ortu eða fóru yfir verk sín. Kaffihús komu og fóru, en í seinni tíð hafa þau aðallega farið og nú er svo komið, að kvöldkaffi fær maður aðeins á einum stað í miðbæ Reykjavíkur. Eftir JÓHANN MÁ GUÐMUNDSSON sjötta áratugnum og lengi eftir það voru öll kaffihús í Reykjavík opin til hálf tólf á kvöldin. Sum opnuðu kl. sjö á morgnana en önnur eitt- hvað síðar. Ég held að mesta breytingin á þessu hafí orðið þegar sjónvarpið kom, þó eitthvað hafi sum þeirra verið farin að loka fyrr áður. Ég borðaði þá í Aðalstræti 12, sem var aðeins matsala og var opin frá hálf tólf til korter yfir eitt um hádegið og svo frá sex til hálf átta á kvöldin. Fyrst þegar ég borðaði þar var þar veitingamaður, Svavar Kristjánsson, sem seinna var kenndur við Hábæ, sem var efst á Skólavörðustíg. Hann var líka lengi þjónn á Röðli og rak fleiri veitingastaði og kaffihús. Miklu seinna, á áttunda áratugnum, setti hann upp matsölu á Laugavegi 42, á annarri eða þriðju hæð. Hún var með líku sniði og matsalan í Aðal- stræti 12, hafði áður verið heimilislegur matur og kalt borð á kvöldin, ásamt heitum rétti, enda komu þar brátt sömu mennirnir og áður höfðu verið í Aðalstrætinu. Eftir að Svavar hætti í Aðalstrætinu varð þar matselja Guðný Jónsdóttir og rak hún matsöluna með svipuðu sniði og Svavar hefði gert. Seldir voru miðar fyrir eina viku, einn miði fyrir hverja máltíð, en kæmi mað- ur ekki í matinn átti maður miðann til góða. Kaffi gátu menn fengið á brúsa ef þeir vildu. Arið 1956 kostaði vikufæði 250 kr. eftir því sem ég man bezt. Svavar Krist- jánsson var tvímælalaust fær í starfi og hið mesta lipurmenni og snyrtimenni mikið. Oft held ég að hann hafí lánað mönnum mat þegar illa stóð á hjá þeim og efast ég um að þau viðskipti hafi auðgað hann. Fór líka svo að hann gafst upp á þessum rekstri. í Aðalstrætinu borðuðu ýmsir listamenn. Matur var mikill og góður. Jóhannes Geir sagði einu sinni við mig að það væri óhjá- kvæmiiegt að þangað söfnuðust allir mestu matmenn borgarinnar af þeim sem sæktu matsölur. Held ég að þetta hafi farið í taug- arnar á Jóhannesi. Matsalurinn var skreytt- ur vatnslitamyndum og teikningum eftir hann og tók Svavar þessi listaverk sem greiðslu fyrir fæðið. Oftast var þríréttað í hádeginu. Ekki var matseðill en sýnishorn af réttunum voru undir gleri í skenkinum. Borð voru dúkuð og gátu fjórir menn setið við hvert. Þarna borðaði Stefán Hörður Grímsson, skáld. Ég held að Stefán hafi þá verið hættur að vinna almenna vinnu. Matsalan var á annarri hæð og fyrir fram- an hana smá skrifstofa og ef veizlur voru í salnum, sem stundum var, og ef farið var að undirbúa þær snemma borðuðum við að skrifstofunni og var þá þröngt á þingi. Við fremsta borðið sátu oftast Finnur, sem var kallaður Finnur i Hvalnum, og Sigurður kennari við Verzlunarskólann Guðjónsson, kallaður Siggi Lehrer vegna stjórnmála- skoðana sinna. Hann hafði hallazt á sveif með þýzkum þjóðernisjafnaðarmönnum á dögum Hitlers og var máske enn á þessum tíma með slíkar hugmyndir. Sigurður klædd- ist oftast gráum alfötum með ptjón í flibban- um og stífpressaður. Alltaf dálítið stífur og formlegur í framkomu. Finnur átti í Hvaln- um og hafði á sínum tíma gert tilboð í Stræt- isvagnana og var talinn ríkur. En Sigurði þótti hann berast lítt á í klæðaburði og nýta fötin vel út. Hann átti fínan brúnan frakka, sem Sigurður sagði að hann notaði þegar hann færi á aðalfund Hvals hf. en helst ekki annars. Sigurður kallaði frakkann hvalafrakkann. Stundum sat ég við þetta borð og Hafsteinn lögregluþjónn. Þarna sátu líka stundum Helgi Gunnlaugsson tré- smiður og Sturla Sæmundsson, sem var um skeið varaformaður Trésmiðafélags Reykjavíkur. Oftast voru þeir við eitthvert af fremstu borðunum. Sturla er af Barða- strönd og róttækur kommúnisti. Fleiri tré- smiðir voru þarna, t.d. Jón Jóhannesson frá Móbergi í Langadal, hann bjó á Laugavegi 34. Var þá tekinn að eldast og var góður kunningi minn. Hannes frá Laugastöðum í Flóa Guðleifsson vann í Völundi við að spón- leggja hurðir en ók leigubíl á Hreyfli um helgar. Jón Gíslason, póstfulltrúi og fræði- maðu’r borðaði þarna um skeið og einnig Konráð Kristinsson póstmaður, sem hafði verið giftur systur Sturlu. Eftir að ég fór að vinna á vöktum á pósthúsinu, sem var líklega 1959, gat ég ekki komizt í kvöldmat- inn í Aðalstrætinu þegar ég var á kvöldvakt )ví vaktin var til klukkan átta en þá var matartímanum lokið. Fór ég þá að borða kvöldmat á Veitingahúsinu á Laugavegi 28B eða í Miðgarði á Þórsgötu 1. Sömu sögu var að segja ef ég var á morgunvakt að )á var hádegismaturinn búinn í Aðalstræt- inu og borðaði ég þá á Laugavegi 28B. Miðakerfið í Aðalstrætinu gerði þetta mögu- legt þó það væri kallað fast fæði sem þar var selt. Magni Guðmundsson hagfræðingur rak þá Laugaveginn ásamt öðrum manni sem hét eða var kallaður Brandur. Þarna var hægt að fá kakó á daginn í kaffitíma og á kvöldin og kom ég þar oft á kvöldin og keypti könnu af kakói með ijóma. Allt var þarna vel útilátið. Þarna voru mikil við- skipti og oft biðröð út á götu í matartímum. Líkega hefur Veitingahúsið Laugavegi 28B verið einna ódýrast af veitingahúsunum í Reykjavík á þessum tíma, fiskur með súpu kostaði 11 krónuren kjöt yfirleitt 20 krónur. Niðri í bænum var fjöldi kaffihúsa og matsölustaða. Þar vora Hótei Borg, Hótel Skjaldbreið, Hótel Vík og seinna City hót- el. Hótel Vík lokaði haustið 1973 og hafði þá um langt skeið lokað veitingasölunni klukkan átta á kvöldin. Hótel Skjaldbreið lokaði nokkram árum fyrr. Kaffi Höll var í Austurstræti 3, langur mat og kaffibar í vesturenda að Leðurvöraverzlun Jóns Brynj- ólfssonar og svo tveir salir uppi og niðri í steinhúsinu í austurenda. Þarna var gott að kaupa vöfflur með kaffinu, maður fékk hálfa vöfflu og mikinn ijóma í stálkari. Var þetta mikil máltíð. Kaffi Höll var rekin fram að eða fram yfir 1970. Viðskipti vora mikil í hádegismat og síðdegiskaffi og einnig í kvöldmat, ekki sízt á barnum. í salnum uppi vora veizlur af og til, ekki sízt ferming- arveislur. Uppfartað var í báðum sölunum og stúlkurnar sem uppförtuðu vora í dökk- bláum kjólum og með hvítar svuntur. ísborg var einnig við Austurstræti, langur kaffi- og snarlbar. Hressingarskálinn bar þó lengi höfuð og herðar yfir aðra veitingastaði við götuna og var alltaf sóttur af breiðum hópi úr öllum stéttum og á ýmsum aldri. í Bankastræti voru tvö kaffihús, Banka- stræti 11 þar sem var nokkuð stór salur og borð með hvítum dúkum. Þarna var uppfartað. Þessi staður hefur líklega lokað á sjöunda áratugnum. Og á horni Banka- strætis og Ingólfsstrætis var Adlon, einn af mörgum veitingastöðum með því nafni í eigu Silla og Valda. Langur kaffibar í boga- dreginn vinkil og sælgætis- og blaðasala fyrir framan. Annar Adlon var í Aðalstræti og gekk í daglegu tali undir nafninu Langi barinn. Þar héldu sig ýmsir sparibúnir iðju- leysingjar sem fóru' fínt í að þjóra smáveg- is. Sjoppa var í Fjalakettinum og voru þar tvö til þijú borð sem ég held að hafí verið eitthvað vegna reglna um sölu og veitingar. Þessi sjoppa hét líka Adlon en ekki var kaffi selt þar, aðeins gos og sælgæti og svo blöð og tóbak. Hún var við lýði fram undir að Fjalakötturinn var rifinn. Á Laugavegi 11 var kaffihús sem hefur orðið frægt í sögum og gekk undir nafninu Laugavegur 11. Reyndar var þetta eitt af þeim kaffihúsum sem hétu Adlon og skipu- Sjá næstu síðu LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. OESEMBER 1989 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.