Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Side 33
hátt, því að hann var sæmdur Vladimir-
orðunni fyrir vasklega framgöngu og síðar
ofurstatign, sem skyldi reiknast frá og með
orrustunni við Mukden. Mannerheim særðist
aldrei, en hesturinn var skotinn undan hon-
um. Friður var saminn fyrir milligöngu
Bandaríkjanna 5. september 1905.
Útkoman varð því sú, að Mannerheim
hlaut dýrmæta reynslu og verulegan frama
af þátttöku sinni í stríðinu með Rússum án
þess að hún yrði á nokkurn hátt Finnlandi
til tjóns, heldur miklu fremur hið gagn-
stæða, þar sem land hans átti eftir að njóta
reynslu hans og hæfni pem herforingja þeg-
ar það barðist fyrir sjálfstæði sínu og til-
veru gegn Rússum.
TVEGGJA ÁRA REIÐTÚR
Eftir stríðið fór Mannerheim í orlof til
Finnlands, en fékk fyrr en varði boð um
að mæta hjá herforingjaráðinu í Pétursborg.
Þar var honum falið hlutverk, sem kom
honum mjög á óvart. Honum var ætlað að
fara ríðandi gegnum alla Mið-Asíu, frá
rússneska Turkestan til höfuðborgar Kína.
Gert var ráð fyrir, að leiðangur þessi myndi
taka tvö ár. Ferðin átti ekki að hefjast fyrr
en sumarið eftir, svo að honum gæfist næg-
ur tími til undirbúnings fararinnar. Hann
féllst að athuguðu máli á að taka verkefnið
að sér og lagði af stað frá Pétursborg 6.
júlí 1906 og kom á leiðarenda, til Peking,
í júlílok 1908. Ferðin tókst í alla staði sam-
kvæmt áætlun og er hann kom aftur til
Pétursborgar var hann kvaddur á fund Nik-
ulásar keisara, sem þóknaðist að heyra af
ferðum hans. Ferðinni hefur Mannerheim
lýst í bók, er hann byggði á dagbókum
sínum.
Mannerheim gegndi stöðu hershöfðingja
við riddaraliðsstórfylki í Varsjá 1914 þegar
fyrri heimsstyijöldin brauzt út. Hann tók
þátt í styijöldinni frá upphafi og fram í
desember 1917, svo að hann gegndi her-
þjónustu í Rússlandi í 9 mánuði, eftir að
keisarinn hafði verið neyddur til að afsala
sér völdum. Mannerheim gat sér mikinn
orðstír fyrir frammistöðu sína í fyrri heims-
styijöld og var þegar á fyrsta ári styijaldar-
innar sæmdur orðu heilags Georgs, sem var
æðsta heiðursmerki Rússa fyrir vasklega
framgöngu í stríði.
í lok janúar 1917 fékk Mannerheim leyfi
til að fara í stutta ferð til Finnlands.
Hann fór til baka frá Helsingfors til Pét-
ursborgar 9. marz og var þar einmitt dag-
ana, sem byltingin átti sér stað. Munaði þá
oft litlu, að illa færi fyrir honum, því að
það var lífshættulegt að vera klæddur her-
foringjabúningi. Hinn 15. marz tók Manner-
heim lestina til Moskvu og kom þangað
mátulega til að sjá byltinguna bijótast út
þar. Hann hélt áfram för sinni og komst
til herdeildar sinnar í Rúmeníu. Stríðið hélt
áfram og enn í júní 1917 var Mannerheim
hækkaður í tign. Hann var staddur á hress-
ingarhæli í Odessa, er fréttir bárust um
það, að bolsévikar hefðu hrifsað til sín völd-
in. Eftir áhættusama ferð komst hann á sex
dögum til Pétursborgar, var þar í nokkra
daga og komst síðan til Helsingfors 17.
des. 1917. 30 ára þjónustu í hinum keisara-
lega rússneska her var lokið. Mannerheim
var kominn heim, fimmtugur að aldri.
Valdataka Undirbúin
í FlNNLANDI
Fllefu dögum áður, 6. desember 1917,
hafði hið nýkjörna þing lýst yfir sjálfstæði
Finnlands. Á þinginu höfðu borgaraflokk-
arnir meirihluta, 108 sæti gegn 92 sætum
sósíaldemókrata. í lok nóvember hafði verið
mynduð þingstjórn undir forsæti P.E. Svin-
hufvuds. Rússneska þjóðarráðið undir for-
sæti Lenins viðurkenndi Finnland sem sjálf-
stætt og óháð ríki 4. janúar 1918 og hið
sama gerði síðan hvert Evrópuríkið á fætur
öðru. En þrátt fyrir hina formlegu viður-
kenningu ráðstjórnarinnar virti hún að vett-
ugi tilmæli finnsku stjórnarinnar um að
kveðja rússneska herliðið burt úr landinu,
en þar voru fjölmennar setuliðssveitir. Virt-
ist augljóst, að nærvera þess ætti að vera
trygging fyrir væntanlegri sameiningu við
sovétlýðveldin. Að boði stjórnar verkalýðs-
samtakanna 20. október höfðu svonefndar
varðsveitir verið stofnaðar og skyldu þær
vera reiðubúnar að mæta hveiju því, sem
að höndum bæri, eins og sagði í ávarpi
hennar. Vopn og skotfæri fengu sveitir þess-
ar frá rússneska setuliðinu og auk þess
vora rússnesku birgðastöðvarnar varaforði,
sem þær gátu treyst á. Enginn vafi lék á
því, að í undirbúningi var uppreisn eða
valdataka að fyrirmynd bolsévika í Rúss-
landi.
Þingið heimilaði stjórninni að grípa til
þeirra ráðstafana, sem nauðsynlegar þættu
til að mynda sterkan liðsafla, er haldið
gæti uppi lögum og reglu í landinu. Manner-
Allur heimurinn dáðist nð baráttu Finnn við sovézkn ofureflið í vetrnrstríðinu 1939. Þá var Mnnnerheim leiðtogi þjóðar
sinnar og stjórnaði hernum.
heim var skipaður yfirhershöfðingi, en áður
en hann tæki við því starfi setti hann það
skilyrði m.a., að ekki yrði farið fram á er-
lenda aðstoð nema í formi vopnasendinga,
þótt sjálfboðaliðar væru velkomnir. Síðan
fór hann til Wasa, um 500 km fyrir norðan
Helsingfors, til að koma þar á fót herfor-
ingjaráði. Hann vissi, að það, sem skeð
hafði í Pétursborg, myndi vofa yfir Helsing-
fors. Til Wasa kom hann ásamt nánustu
samstarfsmönnum sínum 19. janúar 1918.
Munaði hársbreidd, að rússneskir hermenn
tækju hann höndum í Tammerfors á leið-
inni norður á bóginn, þar sem lestin var
stöðvuð. Mannerheim þekkti gildi festu og
frumkvæðis á hættutímum og sennilega
hefur hin fyrsta djarfa ákvörðun hans skipt
sköpum um sjálfstæði Finnlands. Hann
ákvað að bíða ekki átekta heldur verða fyrri
til og að næturlagi 28. janúar komu varnar-
liðssveitir hans rússnesku hersveitunum í
Suðausturbotni að óvörum og afvopnuðu
þær. Byijunarárangurinn var nægilegur til
að tryggja bækistöð fyrir áframhaldandi
aðgerðir. Næstu daga voru setuliðsstöðvar
Rússa í Norðurbotni teknar á sama hátt án
,átaka nema í Luleáborg, þar sem rauðliðar
og Rússar náðu að sameinast. Mótspyma
þeirra var þó brotin á bak aftur 3. febrúar
og urðu þá fyrstu verulegu átökin í frelsis-
stríðinu. Hinn 6. febrúar var Norður-Finn-
land að sænsku landamærunum á valdi
stjórnarhersins.
Frelsisstríðið
Finnland var nú skorið í tvennt, þar sem
suðurhlutinn var á valdi uppreisnarmanna
og rússneskra hersveita. Það mátti sannar-
lega litlu muna, því að sömu nótt og af-
vopnunaraðgerðirnar hófust í Suðaustur-
botni söfnuðust sveitir rauðliða' saman
höfuðborginni. Stjórn og þing voru gerð
óvirk, en daginn áður höfðu rauðliðar tekið
Tammerfors og fleiri borgir og bæi.
Frelsisstríðið stóð i þijá og hálfan mánuð
og er 'Sársaukafullur kafli í sögu Finnlands.
Hin róttæku byltingaröfl náðu yfirtökunum
í fiokki sósíaldemókrata. Uppreisnarmenn
tóku stéttabaráttuna fram yfir sjálfstæðis-
baráttuna. Borgarastyijöld þessi er svo ná-
læg í tímanum, að dómur er á hana lagður
meira og minna af stjómmálaástæðum
bæði erlendis og í Finnlandi, þar sem per-
sónulegar tilfinningar eiga einnig hlut að
I íbúðnrhúsi Mannerheims á Kalliolinnavegi 22 í Brunnsparken er starfrækt
minjasafn um marksálkinn og sjáifur stendur hann hér á tröppunum á þessum húsi. SJÁ NÆSTU SÍÐU
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 33