Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Blaðsíða 2
STYTTUR Sæmundar Valdimarssonar. Morgunblaöiö/Kristinn STYTTUR SÆMUNDAR VALDIMARSSONAR í SÖLUM GERÐARSAFNS YFIRLITSSÝNING á verkum Sæmundar Valdimarssonar verður opnuð í dag, laugar- dag, kl. 16. Sýningin ber heitið „Sæmundur Valdimarsson og styttur hans“ og er Guð- bergur Bergsson rithöfundur sýningarstjóri. Á sýningunni eru 80 verk í einkaeign og op- inberri eigu sem gefa ágætis yfirlit yfir list- feril Sæmundar, segir í fréttatilkynningu. Auk þess eru á sýningunni 30 ný verk sem flest verða til sölu eftir opnunardaginn. Sam- tímis kemur út á vegum Forlagsins bók eftir Guðberg um ævi og verk Sæmundar. Ennfremur segir að Sæmundur sé löngu landskunnur íyrir styttur sínar úr rekaviði. Það er erfitt að flokka verk hans sökum stíls og innihalds. Verkin laða áhorfandann um- svifalaust að sér en Sæmundur hefur ekki gert það mörg verk að allir geti eignast þau. Sýningin er opin alla daga nema mánu- daga fá kl. 13-18 og lýkur sunnudaginn 13. desember. JÖKULSVAKA •• MALÞING UM JOKUL JAKOBSSON OG VERK HANS LEIKFÉLAG Reykjavíkur stendur fyrir málþingi og pallborðsumræðum á Litla sviði Borgarleikhússins sunnudaginn 1. nóvember kl. 15. Jökulsvaka er til heiðurs Jökli Jakobssyni leikskáldi. Erindi flytja Árni Ibsen, leikskáld og leiklistarfræð- ingur, Öddur Björnsson, leikskáld, Jón Viðar Jóns- son, leiklistargagnrýnandi og Magnús Magnússon, sjónvarpsmaður frá BBC, en hann kemur sérstaklega til landsins í tilefni málþings- ins. Að fyrirlestrum loknum stýrir Jórunn Sigurðardóttir pallborðsumræðum og verð- ur Jökulsvökunni slitið kl. 18.30. Sumarið '37 í tengslum við Málþingið hefjast sýningar á Sumrinu ‘37 á ný í kvöld kl. 20, en verkið var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins 19. mars sl. Verkið var fyrst frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 28. febrúar 1968 og er fjórða leikrit Jökuls. Fyrst kom Pókók (1961), þá Hart í bak (1962) og Sjóðleiðin til Bagdad (1965). Leikfélagið frumsýndi Dómínó í janúar 1997, í leikstjórn Kristínar Jó- hannesdóttur og var hún til- nefnd til Menningarverðlauna DV og hlaut Menningarverð- laun SPRON sl. vor fyrir leik- stjórn sína á Dómínó og Sumrinu ‘37. Leikendur eru Ari Matthí- asson, Eggert Þorleifsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Pétur Einarsson og Sóley Elí- asdóttir. Hljóð sér Ólafur Örn Thoroddsen um og lýsingu annast Ögmundur Þór Jó- hannesson. Leikmynd og búninga hannar Stígur Steinþórsson og leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir. Að lokinni sýningu í kvöld mun Jón Viðar Jónsson stýra umræðum um sýninguna að viðstöddum leikurum og leikstjóra. Næstu sýningar á Dómínó verða á morgun, sunnu- dag, 8. og 14. nóvember. Jökull Jakobsson SKÁLDSAGA FRÍÐU Á. Á TÉKKNESKU Fríða Á. Sigurðardóttir SKALDSAGA Fríðu Á. Sigurðardóttur, Meðan nóttin líður, kom fyrir skömmu út í Tékklandi í þýðingu Helenu Kadeckovu, í útgáfu Mlada Fronta- forlagsins. Bókin var tilnefnd til tékk- neskra verðlauna sem besta erlenda þýðing- in. Sonnettur Shakespeares vann með eins atkvæðis mun en ákveðið var að saga Fríðu fengi sér- stök aukaaðalverðlaun, segir í fréttatilkynn- ingu. Ennfremur segir að ritdómar hafa verið lofsamlegir. I Literámí noviny segir m.a. „Mér virðist að ég hafi ekki rekist á neitt eins magnað í tékkneskum bókmenntum síðustu ára.“ I Cosmopolitan segir: „Skáld- konunni er jafnlagið að koma við kvikuna í löndum sinum og í hjarta Evrópu.“ „Óvenjuleg formgerð skáldsögunnar er í sjaldgæfu samræmi við innihaldið", segir í blaðinu Slovo. Meðan nóttin líður kom fyrst út hjá bóka- útgáfunni Forlaginu árið 1990 og hlaut ís- lensku bókmenntaverðlaunin. Hún hlaut einnig Menningarverðlaun DV 1991 og loks bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992. Hún hefur síðan komið út á sjö tungumál- um. Nýr dómur um Svaninn ú þýsku Skáldsaga Guð- bergs Bergssonar, Svanurinn, hefur hlot- ið góðar viðtökur í Þýskalandi. í nýjum ritdómi Peters Urban-Halle í Der Tagesspiegel segir: „Það sem gerir hana eina fegurstu bók haustsins eru töfrandi andrúmsloftið, næmar náttúrulýsingar, dramatískar myndir hennar og óhugnanleg ró. Sagan er sannfærandi í margræðni sinni...Algildi þessarar sögu er bein afleið- ing af því með hve leyndardómsfullum hætti höfundi tekst að lifa sig inn í tilvist níu ára stúlkubams. Einmitt þannig verða miklar bókmenntir til: þegar einstök afmörkuð persóna verður kveikjan að stórum og tak- markalausum spurningum. Guðbergi Bergssyni tekst líka í þessari fremur stuttu bók að fjalla undursamlega um stórbrotin viðfangsefni - lygi, sorg, einsemd-, og gera þau höndlanleg og skijanleg. Fyrir honum er skáldsagan gjöf einmana manns til allra þeirra sem vilja þiggja hana: til heimsins og til sjálfs sín. Og gjöf er þessi bók svo sann- arlega." Svanurinn hlaut íslensku bókmennta- verðlaunin árið 1992. Guðbergur Bergsson MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar. Fálkahúsið, Hafnarstræti 1 Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta. Gallerf Borg Gunnar I. Guújúusson. Til 5. nóv. Gallerí Fold, Rauðarárstíg Kjartan Guðjónsson. Til 1. nóv. Gallerí Horn Gerður Gunnarsdóttir. Til 8. nóv. Gallerí Stöðlakot Steinþór Marinó Gunnarsson. Til 15. nóv. Gallerí Sævars Karis Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 25. nóv. Hafnarborg Úrval verka Sigurjóns Ólafssonar. Til 23. des. Hallgrímskirkja Benedikt Gunnarsson. Til 1. des. Ingólfsstræti 8 Elmgreen & Dragset: „Poweriess structures". Til 8. nóv. Kj arvalsstaðir Austursalur: „Framsýning: Feroysk nútíðarlist". Vestursalur: Nýjar kynslóðir í norrænum arki- tektúr. Miðsalur: Myndlist og tónlist: Halldór Ás- geirsson og Snorri Sigfús Birgisson. Til 20. des. Listasafn ASÍ Ásmundarsalur: Katrín Sigurðardóttir. Gryfjan: Guðrún Einarsdóttir. Arinstofa: Kristinn Péturs- son. Til 15. nóv. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn Sæmundur Valdimarsson. Til 13. des. Listasafn Siguijóns Ólafssonar Sigurjón Ólafsson _ Ævi og list. Til 1. des. Listaskálinn í Hveragerði: Erotíka: Bragi Ásgeirs- son, Einar Hákonarson, Eva Benjamínsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Harpa Bjömsdóttir, Haukur Dór, Ragnhildur Stefánsdóttir og Stefán Boulter. Til 1. nóv. Listhús Ófeigs, Skólavörðustfg Alice Olivia Clarke sýnir mosaikverk. Til 15. nóv. Menningarmiðstöðin Gerðubergi Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 31. des. Mokkakaffí, Skólavörðustfg Ljósmyndasýning Hörpu Bjömsdóttur. Til 19. nóv. Norræna húsið, Hringbraut Margrét Nordal. Til 8. nóv. Nýlistasafnið „Hvorki né“: Henry Bond, Juan Cruz, Graham Gussin, Ritsuko Hidaka, Joao Penalva frá London, Christina Dimitriadis frá Aþenu, Tracy Mackenna & Edwin Janssen frá Rotterdam, Felix Conzalez Torres frá New York og Hanna Styrmisdóttir. Mið- hæð: Bjargey Ólafdóttir, (jós- og kvikmyndir. Súm- sal: Anna Wilenius, Ijósmyndir, skúlptúra og mynd- band. Nathalie van de Burg, Ijósmyndaskúlptúra. Til. 8. nóv. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suður- götu Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí. SPRON, Mjódd Jón Axel. Til 19. feb. TONLIST Laugardagur Dómkirkjan: Orgeltónleikar Marteins H. Friðriks- sonar. Kl. 12. Tjarnarin'ó: ErkiTíð. Kl. 16. Kjarvalsstaðin Snorri Sigfús Birgisson. Portrett 1- 7. Kl. 17. Langholtskirkja: Selkórinn og Þuríður G. Sigurð- ardóttir sópran, Alina Dubik alt, Snorri Wium ten- ór og Aðalsteinn Einarsson bassi. Ki. 17. Hallgrímskirkja: Hamrahlíðarkórinn, Bamakór Hallgrímskirkju, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantoram. Kl. 17. Sunnudagur Neskirkja: Sinfóníuh|jómsveit áhugamanna. Sigrún Eðvaldsdóttir. Kl. 17. Norræna húsið: Rúnar Óskarsson, klarinettuleik- ari og Sandra de Bruin, píanóleikari. Kl. 17._ Dómkirkjan: Barokktónleikar: Brynhildur Ásgeirs- dóttir, sembal, Hallfríður Ólafsdóttir, flautu, Sig- urður Halldórsson, selió og Þórann Guðmundsdótt- ir, söngur. Kl. 17 Þriðjudagur Iðnó:Caput oJL: Leikhústónlist. Kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikliúsið Maður í mislitum sokkum, fos. 6., lau. 7. nóv. Solveig, sun. 1., fös. 6. nóv. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 1. nóv. Gamansami harmleikurinn, lau. 31. okt. Fös. 6. nóv. Óskastjaman, lau. 31. okt. Fim. 5. nóv. Borgarleikhúsið Grease, lau. 3l. okt. Fös. 6. nóv. Sex í sveit, lau. 31. okt. Sun. 1. nóv. Ofanljós, fim. 5. nóv. Sumarið ‘37, lau. 31. okt. Sun. 1. nóv. Iðnó Dimmalimm, sun. 1. nóv. Þjónn í súpunni, fos. 6. nóv. Rommí, lau. 31. okt. Sun. 1. nóv. Brecht kabarett, fim. 5. nóv. íslenska óperan Ávaxtakarfan, sun. 1. nóv. Hellisbúinn lau. 31. okt. sun. 1., mið. 4. nóv. Loftkastalinn Fjögur hjörtu, sun. 1. nóv. Hafnarfjarðarleikhúsið Síðari bærinn í Dalnum, sun. 1. okt. Við feðgarnir, fos. 6. nóv. Sjónleikur, Ijamarbíó Svartklædda konan, lau. 31. okt. Mán. 2., fös. 6. nóv. Kaffileikhúsið Barbar og Úlfar. Lau. 31. okt. Fös. 6. n óv. Skemmtihúsið, Laufásvegi 22 Ferðir Guðríðar, sun. 1. okt. Leikbrúðuland Frfkirkjuvegi 11 Þjóðsögur og brúðuleikhús, sun. 1. nóv. Möguleikhúsið við Hlemm Snuðra og tuðra, lau. 31. okt. Einar Áskel), sun. 1. nóv. Leikfélag Akureyrar Rummungur ræningi, lau. 31. okt. Sun. 1. nóv. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menn- ing@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 31. OKTÓBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.