Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Blaðsíða 2
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR OG GESTA í HÁSKÓLABÍÓI JÓLATÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands verða haldnir í Háskólabíói í dag kl. 15. Gestir hljómsveitarinnar verða einsöngv- aramir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, Níels Bjamason, Rúnar Pétursson, Steinn Einar Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjömsson, Drengjakór Laugarneskirkju og Skólakór Garðabæjar, auk fíðlunemenda Lilju Hjalta- dóttur sem leika munu einleik. Kynnir verð- ur Margi-ét Ömólfsdóttir, sem jafnframt mun lesa jólaguðspjallið, og hljómsveitar- stjóri Bernharður Wilkinson. Á efnisskrá em lög sem tengjast jólunum á einn eða annan hátt. Fyrst verður leikinn jólaforleikur eftir bandaríska tónskáldið Leroy Anderson en hann á jafnframt annað verk á efnisskránni, lagið Sleðaferðina. Á milli verka Andersons leikur hljómsveitin jólasálminn I dag er glatt í döpmm hjörtum sem hvergi er sunginn á jólum nema hér á íslandi svo vitað sé. Ljóðið er eftir Valdimar Briem en lagið er úr Töfraflautunni eftir Mozart. Því næst leika fíðluleikararnir ungu lagið Bjart er yfír Betlehem. Þá leikur hljómsveitin lag eftir valsakónginn Jóhann Strauss, Perpetuum Mobile, sem þýðir Það sem hreyfíst eilíflega. Úr Sálumessu Andrews Lloyds Webbers verður flutt lagið Pie Jesu og lagið Dans veltikarlanna úr óperu Rimskíjs-Korsakovs, Snædrottningunni, sem byggð er á ævintýr- inu með sama nafni. Slá þú hjartans hörpu strengi, lag úr kantötu sem Johann Sebasti- an Bach samdi til flutnings á aðventu fyrir bráðum þrjú hundruð árum, er einnig á efn- isskránni og verður flutt eins og það kom upphaflega frá hendi höfundar. Ennfremur verður leikið gamalt lag við sálminn Nú gjaldi Guði þökk sem dr. Róbert A. Ottós- son útsetti og stjórnaði flutningi á þegar Skálholtskirkja var vígð. Þorkell Sigur- björnsson bjó lagið til flutnings fyrir tón- leikana í dag. Að iokum leikur hljómsveitin þátt úr ball- ettinum Hnotubrjótnum eftir Piotr Tsjajkov- skíj. Þess má geta að auk jólaguðspjallsins verða sungnir sálmarnir Nóttin var sú ágæt ein og Frá ljósanna hásal og tónleikagestir beðnir um að taka undir. Tónleikunum lýkur á því að flytjendur og áheyrendur sameinast og syngja Heims um ból. í ‘jifl Y > - /}/ fm , HLUTI kórsins unga sem kemur fram á sinfóníutónleikunum í Háskólabíói í dag. Morgunblaðið/Golli KRISTINN SYNGUR í FAUST KRISTINN Sigmundsson syngur á nýj- um geísladiski frá Harmonia Mundi sem inniheldur þætti Schumanns við leikritið Faust eftir Göthe. Meðal annarra söngv- ara í útgáfunni má nefna William Dazeley og Camillu Nylund. Stjórnandi er Philippe Herreweghe. Þættir Schumanns við Faust eru taldir með helstu meistara- verkum rómantískrar tónlistar og ná há- punkti í lokaþætti verksins, Chorus myst- icus. Kristinn syngur hlutverk Mefístótel- esar, gestsins illa og Pater Profundus. Franska útgáfan Harmonia Mundi gefur diskinn út, en fyrirtækið er meðal helstu útgáfufyrirtækja heims á sígildri tónlist. í kynningu á Kristni í bæklingi kemur fram að hann hefur einnig sungið inn á plötur í Jóhannesarpassíu Bachs og Sarastro í Töfraflautu Mozarts, en báðar útgáfurnar voru á vegum stórfyrirtækja og hlutu al- þjóðlega dreifingu. MADAME SANS GENE MYND af málverki Braga Ás- geirssonar; Madame Sans Géne frá 1974, er í nýútkomnu dagatali listasafna, sem Listasafn Islands á aðild að, en málverkið er í eigu þess. Rakel Pétursdóttir hjá Lista- safni íslands sagði að safnið hefði sent ljósmyndir af málverkum í þetta dagatal í nokkur ár. Að dagatalinu standa listasöfn víða um heim, en það er gefíð út af Museums & Galleries Marketing Ltd. í London. Það er jafnan skreytt litmyndum af listaverkum í eigu safnanna og í dagatalinu 1999 eru margar myndir af hönn- un og fágæti á mörgum sviðum og einnig myndverkum. Meðal lista- mannanna má nefna: 0. Redon, J.B.S. Chardin, T. Rowlandson, C. Monet, D. Seghers, A. Zom, Sir E. Bume Jones, J.v. Huysum og Piet Mondrian Rakel sagðist vita af öðru ís- lenzku listaverki í norrænu daga- tali, sem gefíð er út af samtökum, sem standa að byggingu norræns vatnslitasafns í Skerhamn, norð- ur af Gautaborg. í því dagatali er mynd af verki eftir Snorra Svein Sigurðsson. Bragi Ásgeirsson: Madame Sans Géne 1974. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar. Fálkahúsið, Hafnarstræti 1 Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til ára- móta. Gallerí Bílar & list Tolli. Til 24. des. Gallerí Fold, Rauðarárstíg Jólasýning. Ýmsir listamenn. Gallerí Horn Steinn Sigurðsson. Til 30. des. Hafnarborg Úrval verka Sigurjóns Ólafssonar. Til 23. des. Apótekið: Ljósmyndasýning Lárusar Karls Ingasonar. Til 24. des. Hallgrímskirkja Myndir af Þorláki helga eftir Kristján Da- víðsson, Helga Þorgils Friðjónsson, Krist- ínu Gunnlaugsdóttur, Jón Axel Björnsson, Pál Guðmundsson og Gunnar Örn Gunn- arsson. Ingólfsstræti 8 Ólafur Elíasson. Til 10. jan. Kjarvalsstaðir Austursalur: „Framsýning: Foroysk nútíð- arlist". Vestursalur: Nýjar kynslóðir í nor- rænum arkitektúr. Miðsalur: Myndlist og tónlist: Halldór Ásgeirsson og Snorii Sig- fús Birgisson. Til 20. des. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðu- holti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn aila daga. Listasafn íslands 80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan. Listaskálinn í Hveragerði: Haustsýning. Til 20. des. Listhús í Laugardal Sjöfn Har. Til 22. des. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Þórður Hail. Til 24. des. Menningarmiðstöðin Gerðubergi Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 31. des. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Bjarni Jónsson. Til 19. jan. Norræna húsið, Hringbraut Aivar Aalto. Til 20. des. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suðurgötu Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí. SPRON, Mjódd Jón Axel. Tii 19. feb. TÓNLIST Laugardagur Neskirkja: Óperan Amal. Sinfóníuhljóm- sveit áhugamanna, Kammerkór Kópavogs, nemendur úr Listdansskóla íslands. KI. 17. Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit Islands. Jólataónleikar. Kl. 15. Hásalir, Hafnarfjarðarkirkja: Útgáfutón- leikar Kammerkórs Hafnarfjarðar. Kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja: Camerarctica. Kl. 21. Langholtskirkja: Jólasöngvar. Kór- og Gradualekór Langholtskirkju. Ólöf Kol- brún Harðardóttir og Ólafur Kjartan Sig- urðsson, Halldór Torfason og Regína Unn- ur Ólafsdóttir. Kl. 23. Sunnudagur Áskirkja: Kammersveit Reykjavíkur. Kl. 17. Langholtskirkja: Kl. 20.(S.já laugardag.) Neskirkja: Óperan Amal .Kl. 20.30. Sjá laugard. Kópavogskirkja: Camerarctica. Kl. 21. Dómkirkjan í Reykavík: Camerarctica. Kl. 21. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Brúðuheimilið, frums. lau. 26. des. Sun. 27. des. Sun. 3. jan. Tveir tvöfaldir, mið. 30., Lau. 2. jan. Bróðir minn ljónshjarta, þrið. 29. des. Sun. 3.jan. Abel Snorko býr einn, mið. 30. des. Lau 2., fös. 8. jan. Maður í mislitum sokkum, þrið. 29., mið. 30. des. Lau. 2., sun. 3. des. Borgarleikhúsið Pétur Pan, frums. lau. 26. des. Sun. 27. des. Lau. 2., sun. 3. jan. Grease, sun. sun. 27., þrið. 29. des. Sex í sveit, mið. 30. des. Fös. 8. jan. íslenska Óperan Hellisbúinn, mán. 28., þrið. 29., mið. 30. des. Ávaxtakarfan, sun. 27. des. Iðnó Rommí, sun. 27. des. Sun. 3. jan. Þjónn í súpunni, mið. 30. des. Lau. 2. jan. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblað- ið, Menningdistir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menn- ing@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. DESEMBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.