Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Síða 24
KALIFORNÍA í NÝJU OG GÖMLU LJÓSI II
William Randolph Hearst
*varð ókrýndur blaðakóng-
ur Bandaríkianna og safn-
aði feikilegum auði ÞaW
auð notaði hann m.a. til
þess að byggjg kastalg
uppi í fjöllum Santa Luciu.
Þar voru 115 vistarverur,
4iar gf 32 baðherbergi og
í þessi húsakynni sankaði
hann saman ótal gersem-
um og listaverkum úr víðri
veröld, sem sum voru allt
fró 8. öld f. Kr.
HEARST-kastalinn á Töfra-
hæðum var reistur á hæstu
brún Santa Luciu-fjalla í
stærðar landareign, sem Ge-
orge Hearst, faðir Williams
Randolphs Hearsts, hafði á
sinum tíma keypt af Mexik-
ana nokkrum fyrir lygilega
lítinn pening, enda var hann iðulega orðaður
við reyfarakaup jafnt á námum sem búgörðum.
Menn hafa t.d. heyrt því fleygt að hann hafi að-
eins greitt tæpa tvo dali fyrir hvern hektara í
ofangreindri jarðeign, sem kennd er við San
Simeon, en hún er yfir 55 hektara alls, ekkert
smá landflæmi.
Hearst-höllin er um það bil 80 km fyrir norð-
an borgina San Luis Obispo (Lúðvík biskup
helga) eða um það bil miðja vegu á milli Los
*Angeles og San Fransisco. I stærstu tvítymdu
byggingunni (La Casa Grande) eru 115 vistar-
verur, 26 svefnherbergi, 32 baðherbergi, 14
setustofur, tvö bókaherbergi, 68 m2 borðsalur,
30 amar, biljarðstofa, snyrtistofa, kvikmynda-
salur, nokkur eldhús og hýbýli fyrir þjónustu-
liðið. Auk stórhýsisins (La Casa Grande) em 3
gestahús, inni- og útilaug, skrúðgarðar, tennis-
vellir og dýragarður.
Það yrði of langt mál að lýsa hverjum krók
og kima í höllinni og gestahúsunum og þeim
ótal listmunum og gersemum allt frá grískum
vösum frá áttundu öld fyrir Kristsburð til
seinni alda listaverka, sem þar era geymd, en
hins vegar sakar ef til vill ekki að minnast á
eitt og annað, sem helst vekur athygli manna
og aðdáun eins og t.d. samkomu- eða þingsal-
urinn í aðalbyggingunni (La Casa Grande) með
^timburlofti frá sextándu öld og dásamlegum
ítölskum glitvefnaði á veggjunum eða þá borð-
salnum, þar sem 30 gestir gátu snætt við gam-
alt ítalskt borðstofuborð frá sautjándu öld. Níu
metram ofar hafa verið festir á vegginn ítalskir
burtreiðarfánar, sennilega frá Siena og upp við
vegginn á móti hefur verið stillt langri röð af
500 ára gömlum kórstólum frá Spáni og era
þeir allir fagurlega útskomir. Loks er það
marmaralögð útilaug, sem kennd er við sjávar-
guðinn, Neptúnus, okkar Njörð. Á laugarbrún-
inni við annan enda laugarinnar rís framhlið af
fomu rómversku hofí með granítsúhim. Að
dómi margra arkitekta er þetta stórfengleg-
asta og íburðarmesta sundlaug á jarðríki.
Margir miklir og víðfrægir menn hafa synt,
svamlað eða buslað í þessari laug, sumir hverj-
ir með heldur litlum tilþrifum eins og t.d.
hjartaknosarinn eftirsótti, Clark Gable, sem
*kunni ekki einu sinni sundtökin, allt öðra máli
gegndi vitanlega um tök hans á konum, þar vai-
hvorki fát né hálfkák. Þetta var í rauninni ekk-
ert einsdæmi af því að fyrir 70 áram var fjöld-
inn allur af mönnum ósyndur víða um heim.
Árið 1919 fól W.R. Hearst arkitektinum Júl-
íu Morgan það verkefni að hanna fyrir sig aðal-
bygginguna og gestahúsin í San Simeon. Þá
um vorið hafði móðir hans, Phoebe Hearst lát-
ist úr spænsku veikinni og hann, einkasonur-
inn, hafði m.a. fengið í arf þessa stóra jörð í
San Simeon ásamt fleiri verðmiklum fasteign-
um, listaverka- og bókasafn móður sinnar og
loks á að giska 11 milljónir í reiðufé. Mikill
fengur þótti honum einkum í myndlistarsafn-
>inu, enda átti hann það sammerkt með móður
sinni að unna fógram listum. Kviknaði sá áhugi
hans fyrst þegar hann var aðeins 10 ára gamall
og lagði upp í 18 mánaða langa menningarreisu
með móður sinni um meginland Evrópu árin
1873-74. Slíkar ferðir vora mjög algengar í þá
daga einkum og sér í lagi meðal efnafólks og
KASTALI
BLAÐAKÓNGSINS
Á TÖFRAHÆÐUM
EFTIR HALLDÓR ÞORSTEINSSON
KASTALI BLAÐAKÓNGSINS stendur á fallegum útsýnisstað uppi í Santa Luciu-fjöllum í Kaliforníu. Á myndinni sést aðaiinngangurinn.
%
W ' i
4r
24 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. DESEMBER 1998