Alþýðublaðið - 13.06.1987, Page 1
Stjórnarmyndunin:
ALLT Á FULLA FERÐ
Skyndifundur formanna Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks hjó að
mestu á hnútinn sem skapaðist eftir ,,leynifundinn(C. Jákvæður
áhugi í flokkunum þremur fyrir stjórnarmyndun.
Formenn Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokksins hittust í gær á
heimili Jóns Baldvins Hannibals-
sonar. Eftir þær viðræður er Ijóst
að mörg ágreiningsmál sem upp
hafa komið í stjórnarmyndunar-
viðræðunum og einkum eftir
„leynifund" formannanna þriggja,
hafa verið leyst og útlit fyrir að
skriður komist á viðræðurnar um
helgina.
Hnútur komst á stjórnarmynd-
unarviðræðurnar eftir „leynifund“
formannanna þriggja á fimmtu-
dag. Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins þvergirti þá fyrir allar fyrstu að-
gerðir þrátt fyrir yfirvofandi verð-
bólgusprengingu. Deilur um skipt-
ingu ráðherraembætta og nýja
verkskiptingu ráðuneyta urðu einn-
ig þess valdandi að talið var að við-
ræðurnar myndu sigla í strand.
Harðorðar yfirlýsingar Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra í
fjölmiðlum í garð formanns Sjálf-
stæðisflokksins og neikvæð um-
mæli Mathíasar Bjarnasonar sam-
gönguráðherra í líkum dúr hafa
skapað mynd af Sjálfstæðisflokki í
upplausn og haft neikvæð áhrif á
gang stjórnarmyndunarinnar.
í gær sat að störfum nefnd hag-
fræðinganna Jóns Sigurðssonar frá
Alþýðuflokki, Geir H. Haarde
Sjálfstæðisflokki og Bolla Héðins-
sonar frá Framsóknarflokki til að
athuga þá valkosti sem flokkarnir
vilja fara varðandi fyrstu aðgerðir
og meta verðbólguspá samkvæmt
ólíkum leiðum sem flokkarnir vilja
fara. Nefndin skilar niðurstöðum í
dag eða á morgun.
Mikill áhugi er hjá forystumönn-
um flokkanna þriggja um að mynd-
un ríkisstjórnar takist. Samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins mun
fundur formanna Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins hafa haft
afgerandi áhrif til að jafna ágrein-
ingsmál þótt enn sé deilt um fyrstu
aðgerðir og endanlega skiptingu
ráðuneyta.
Sjá ennfremur fréttaskýringu á
bls. 5 : „Núll—lausnir“.
Sjórinn hefurheillað margan ungan manniníi og mun eflaust gera umókomna tlð. Vonandi eiga (slenskir sjómenn
f framtiðinni eftir að færa þjóðarbúinu auð frá fiskimiðunum, eins og þeir hafa gert I gegnum aldir. — Alþýðublaðið
óskar sjómönnum til hamingju með daginn.
6-7
Sannleikurinn
um leyniplögg
Húsnæöis-
stofnunar
„Þetta varð til hérna við skrif-
borðið. Ég hugsaði málið svona.
Ég stimpla skýrsluna „Trúnað-
armál" áður en hún fer inn á
fundinn, vegna þess að hún et
samin fyrir fund í Húsnæðis-
málastjórn og ekki ætluð til
annarra nota — og ég taldi ekki
heppilegt að skýrslan yrði^
blaðamatur á því stigi málsins‘.|
______10-11______
Lífiö er
kraftaverk
— Gylfi Ægisson, sjó-
maöur, skáld og laga-
smiður í opnuviðtali
_______15_______
Forstjóri
Sambandsins
gagnrýnir
fastgengis-
stefnuna
— Guðjón B. Ólafsson,
forstjóri Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga
er ómyrkur í máli í viðtali
við Alþýðublaðið.
Myndræn ferð
um Mið-Evrópu
Brottför 2. ágúst. Heimkoma 23. ágúst.
Luxemburg - Þýskaland - Austurríki - Sviss.
Luxemburg - Heidelberg - Freiburg - Svartiskógur - Basel - Genf - Luzern -
Bodensee - Allgáu - Salzburg - Vín - Miinchen. íslensk fararstjórn.
Verð kr. 62.300,- á mann í
tveggja manna herbergi
með hálfu fæði.
VI
Umboó a Isiandi fynr
\ DINERSCLUB
•u. INTERNATIONAL
FERÐA3KRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1,
SÍMAR 28388 - 28580