Alþýðublaðið - 13.06.1987, Page 3

Alþýðublaðið - 13.06.1987, Page 3
Laugardagur 13. júní 1987 '3 Atvinnurekendur og stjórnarmyndun: SJÁLFSTÆÐISMENN BEITTIR ÞRÝSTINGI Félag íslenskra iðnrekenda blandar sér í umræður um stjórnarmyndun. Voru Sjálfstæðismenn aö guggna á því að standa gegn fyrirtækjasköttum Þorsteinn Pálsson og aðrir framámenn Sjálfstæðisflokksins eru hú undir gífurlegum þrýstingi frá atvinnurekendum og samtökum þeirra varðandi hugsanlega skatt- lagningu fyrirtækja og stóreigna. Allir flokkar sem til greina hafa komið í stjórnarmyndunarhugleið- ingum fram að þessu nema Sjálf- stæðisflokkurinn, vilja beita ein- livers konar skattiagningu í þessa átt til að minnka halla rikissjóðs. Framámenn Sjálfstæðisflokks- ins eru þó milli steins og sleggju í þessu máli, vegna þess hve afkoma fyrirtækja á Islandi hefur batnað mikið á síðustu árum. Það leiðir til þess að skattlagning á fyrirtækin er orðin möguleg fjáröflunarleið og mörgum þykir nú tími til kominn að fyrirtækin fari að bera sinn hluta byrðarinnar, eftir að almenningur var látinn borga niður verðbólguna allt síðasta kjörtímabil. Svo virðist sent Sjálfstæðismenn kunni að hafa verið komnir á fremsta hlunn með að láta undan kröfum Framsóknar og Alþýðu- flokks í þessum efnum. A.m.k. sá Félag íslenskra iðnrekenda ástæðu til þess í gær að senda frá sér álykt- un þar sem fram eru færðar rök- semdir gegn auknum skattaálögum á fyrirtæki, löngu áður en nokkur ákvörðun hefur verið tekin um slíkt. I ályktuninni segir m.a.: íslensk fyrirtæki greiða verulega skatta í dag. Þau greiða ekki aðeins tekjuskatt af hagnaði. Meginhluti skatta fyrirtækja er lagður á fram- leiðslukostnað en slík skattheimta veikir samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum. Hér má nefna að- stöðugjald, fasteignaskatt, iðgjöld til almannatrygginga og í mörgum greinum launaskatt. Þessir skattar nema um fjórum fimmtu hlutum af sköttum fyrirtækja en tekjuskattur um einum fimmta. Skattlagning á framleiðslukostnað fyrirtækja er yfirleitt meiri á íslandi en í öðrum löndum, ekki síst þegar einnig er tekið tillit til uppsöfnunaráhrifa söluskatts og fleiri skatta á rekstrar- nauðsynjar fyrirtækjanna auk vörugjalda. Slík skattlagning'veld- ur jafnan mismunun milli fyrir- tækja og atvinnugreina. Nýbyggingar íbúöa: 12% SAMDRÁTTUR Á SÍÐASTA ÁRI Samkvæmt bráöabirgðaupplýs- ingum frá Þjóðhagsstofnun var um 12% samdráttur íbúðabygginga á árinu 1986. Lokið var við samtals 1487 íbúðir á öllu landinu á árinu. Árið 1985 var lokið við samtals 1690 íbúðir á öllu landinu. Þetta er minnsti fjöldi íbúða sem lokið er við allar götur frá árinu 1971. Á því tímabili var aldrei lokið við færri en 1600 íbúðir á ári, að því er segir í ný- útkomnu fréttabréfi Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Samkvæmt bráðabirgðaupplýs- ingum frá Þjóðhagsstofnun var lokið við samtals 1487 íbúðir á öllu Iandinu áirð 1986. Þetta táknar um 12% samdrátt frá 1985, en þá var lokið við samtals 1690 íbúðir á öllu landinu. Þetta er minnsti fjöldi íbúða sem lokið er við allar götur frá árinu 1971; allt það 16 ára tíma- bil hefur ekki fyrr verið lokið við færri en 1600 íbúðir á einu einstöku ári. Hinn mikli samdráttur, er varð 1985 í fjölda íbúða, sem hafin var smíði á, hélt áfram árið 1986. Byrj- að var á 1198 íbúðum, sem er um 6% fækkun frá fyrra ári, en þá hófst smíði 1269 íbúða. Árið 1984 var hinsvegar hafin smíði mun fleiri íbúða, eða alls 1736. Nýsmíðum hefur því fækkað um rúmlega 30% á sl. tveimur árum. Skipting þeirra íbúða er lokið var við milli sérbýlis og fjölbýlis er áþekk og árið 1985, eða um 60% í sérbýli og40% í fjölbýli. Fyrri hluta þessa áratugar var hlutfall íbúða í fjölbýli mun lægra, eða 20—30%. Meðalstærð íbúðanna sem lokið var við hefur aukist frá árinu 1985, eða úr 447 rúmmetrum í um 475 rúmmetra 1985. Hámark meðal- stærðar íbúða náðist árið 1984, 507 rúmmetrar. Klukkan tiu I gærmorgun hófst viö Höfða alþjóðlegt friðarhlaup, sem Ijúka mun á Lækjartorgi 28. júnf.-Hlnupiá.er í kringum landið, alls 3000 kílómetra. A-mynd/Róbert SOKN GEGN SALMONELLU Heilbrigðisráð Reykjavíkur telur að stjórnvöld geti gert ýmsar fyr- irbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir að matarsýkingar af völdum salmonella endurtaki sig. Heildaraflinn: FYRSTU MÁNUÐIRNIR GÖfllR Heildarafli landsmanna er í fyrra 345.222 tonn. rúmum 150.000 tonnum meiri Heildaraflinn var 673.135 tonn fyrstu fimm mánuði ársins en á á sama tíma í ár. Heildarþorskafl- sama tíma í fyrra, samkvæmt inn er nú 182.156 lestir en var bráðabirgðatölum frá Fiskifélagi 182.256 í fyrra, sem sagt óveruleg- íslands. Mestu munar um aukin ur munur. loðnuafla sem var 492.122 tonn en Tveir burðarþolshönn- uðir fengu æruna aftur Enn harðnar á dalnum hjá höf- undum burðarþolsskýrslunnar sælu. Nú síðast hefur komið í ljós að a.m.k. eitt þeirra tíu húsa sem skýrslan náði yfir, stenst allar þær kröfur sem gerðar eru í Reykjavík, þvert ofan í fyrri staðhæfingar. Að- standendur skýrslunnar neyddust til að viðurkenna þetta eftir að verkfræðingarnir sem hönnuðu burðarþol hússins við Skipholt 50C, lögðu fram formlega fyrir- spurn um þetta. Skýringin er ofur einföld og fólg- in í því að nefndin sem kannaði ástand húsanna samkvæmt teikn- ingum, notaði 50% hær;i i viðmið- unarmörk en krafist er hjá embætti byggingafulltrúans í Reykjavík. Þetta hefur í sjálfu sér komið fram Heilbrigðisráð Reykjavikur telur nauðsynlegt að gerðar verði viðeig- andi ráðstafanir til að hindra að matarsýkingar endurtaki sig, líkt og komið hafa upp að undanförnu. Á fundi í ráðinu í vikunni voru nieðal annars ræddar tillögur til úr- bóta varðandi matarsýkingar af völdum salmonellasýkla í alifugl- um. Heilbrigðisráð gerði svofellda áður og m.a. var fjallað um þetta atriði í fréttatilkynningu hér í blað- inu um síðustu helgi. Það hefur á hinn bóginn ekki leg- ið ljóst fyrir fyrr en nú, hvort þessi munur á reikningsviðmiðun, skipti máli að því marki að húsin sem skýrslan fjallar um, stæðust kröfur, ef lægri mörkin væru notuð. Þetta kemur ekki fram í skýrslunni og bókun: „Hér á landi hefur salmonella- mengun í alifuglum aukist ár frá ári. í apríl sl. varð mjög alvarleg salmonellasýking í fermingarveisl- unt vestur í Búðardal. Um 60 gestir eða um þriðjungur gestanna sýkt- ust, 5 þeirra þurfti að leggja inn á sjúkrahús til meðferðar. Einn gest- anna var um tíma í lífshættu. Heil- brigðisráð Reykjavíkur telur nauð- hefur það atriði út af fyrir sig verið gagnrýnt harðlega, m.a. á fundi verkfræðinga um málið fyrir viku. Verkfræðingarnir sem hönnuðu burðarþol hússins í Skipholtinu, og nú hafa sem sagt fengið æruna aft- ur, eru þeir Snæbjörn Kristjánsson og Gunnar Sch. Thorsteinsson. Þeir reka saman verkfræðistofuna Feril. synlegt að sem fyrst verði gerðar viðeigandi ráðstafanir, svo að slíkar matarsýkingar endurtaki sig ekki. Ráðið telur, að þessar ráðstafanir þurfi fyrst og fremst að felast í: 1. Að landbúnaðarráðuneytið beiti sér fyrir endurskoðun á reglu- gerð nr. 260/1980 um búnað ali- fuglasláturhúsa, slátrun ali- fugla, verkun þeirra og heil- brigðisskoðun eða láti semja nýja reglugerð sem tryggi aukið framleiðslueftirlit og markviss- ar aðgerðir til að koma í veg fyrir eða draga verulega úr mengun af völdum salmonellasýkla í ali- fuglum, sem slátrað er til mann- eldis. Sérstaklega verði lögð áhersla á ábyrgð framleiðandans í þessu efni. Heilbrigðisráð vill sérstaklega vekja athygli ráðu- neytisins á þeirri staðreynd, að heilbrigðisskoðun sú, sem fram- kvæmd er í dag við alifuglaslát- urhúsin er gagnlaus, ef ganga þarf úr skugga um hvort slátur- fuglar séu mengaðir af salmonella- eða campylobacter- sýklum. 2. Að heilbrigðisyfirvöld fræði eins og kostur er neytendur mat- reiðslumenn og aðra aðila, sem handfjatla alifuglakjöt og mat- reiða úr því. Þetta mætti t.d. gera með útgáfu fræðslubækl- ings og leiðbeiningum í fjölmiðl- um!‘

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.