Alþýðublaðið - 13.06.1987, Side 5
Laugardagur 13. júní 1987
5
Ingólfur Margeirsson skrifar
NÚLL—LAUSNIR
Formennirnir voru
dálítið dasaðir eftir
fimm tíma umrœðu-
fund á “leyndum
stað“ Rúgbrauðsgerð-
inni gömlu. Þeim
tókst þó ekki að
leyna viðræðustaðn-
um betur en svo að
slangur af frétta-
mönnum hafði elt
Steingrím Hermanns-
son frá Háskólabíó
eftir setningu vor-
fundar NATO, og
beið nú í viðar-
klœddu fordyrinu.
Fréttamennirnir fengu
hins vegar engar aðr-
ar upplýsingar frá
formönnunum en
þœr að rœtt hafði
verið um nýja verk-
skipan ráðuneyta, að
ágreiningur væri enn
um fyrstu aðgerðir í
ríkisfjármálum og
skipa œtti nefnd sem
fœri yfir þau mál og
“meta þjóðhagsleg
áhrif þeirra hug-
mynda sem uppi eru.“
Formönnunum var
aftur á móti Ijóst að
ríkisstjórnarmyndun-
in var að fara út um
þúfur.
Niðurstaða fundarins hafi verið
sú að Þorsteinn Pálsson vildi ekki
hreyfa litla fingur varðandi fyrstu
aðgerðir í ríkisfjármálum og spyrna
við nýrri verðbólguöldu — afstaða
sem greinilega hafi valdið Jóni
Baldvin og Steingrími miklum von-
brigðum ef ekki vægu sjokki, og
hefur þegar verið skrírð núll-lausn
Þorsteins Pálssonar. Og fyrsta tafl-
inu um ráðherrastólana lyktaði
með pattstöðu. Og á sama kvöldi
kom uppreisn þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins og gamla ráðherra-
liðsins upp á yfirborðið: Sverrir
Hermannsson fór hörðum orðum
um formann sinn og sagði Sjálf-
stæðisflokkinn í upplausn; „flokk-
ur sem ekkert veit og ekkert kann;‘
Nú er spurt um framhaldið. Verður
stjórnarmyndunartilraun Jóns
Baldvins að engu á næstu dögum?
Verða gömlu ráðherrar fráfarandi
stjórnarflokka ofan á og mynda
tveggja flokka stjórn með aðild
Stefáns Valgeirssonar? Eða kemur
Borgaraflokkurinn aftur inn í
myndina? En þá þarf Sjálfstæðis-
flokkurinn að taka skrefið út og
fórna Þorsteini Pálssyni — eða fá
Albert til að samþykkja að setjast
ekki í ráðherrastól.
Skipulagðar viðræður
Fram að fundi formannanna
þriggja hafa viðræðurnar um ríkis-
stjórnarmyndun verið á nótum
sameiningar og upplýsinga. Eftir
að Jóni Baldvin Hannibalssyni var
falið frumkvæði til stjórnarmynd-
unartilrauna af forseta íslands fyrir
tíu dögum, hafa stjórnarmyndun-
arviðræðurnar tekið á sig nýjan
svip. Hörð skipulagning, þaulhugs-
uð framsetning mála og vitrænn
grundvöllur fyrir umræður ein-
stakra málaflokka ásamt skipan
undirnefna um einstök mál hefur
einkennt viðræðurnar. Nánasti
samverkamaður formanns Alþýðu-
flokksins við forritun umræðnanna
hefur verið Jón Sigurðsson, fyrsti
þingmaður Alþýðuflokksins í
Reykjavík, enda þaulvanur maður í
stjórnarmyndunarviðræðum frá
dögum sínum sem forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar. Skipulagningin og
viðræðuformið hefur komið full-
trúum hinna flokkanna á óvart og
jafnvel orðið þess valdandi að sjálf-
stæðismenn og þó sérstaklega
framsóknarmenn hafa fengið aðrar
hugmyndir um Alþýðuflokkinn og
forystu hans en þær að þarna væru
grenjandi gaprildi á ferð. Frétta-
menn hafa ennfremur fengið
greinagóðar upplýsingar um gang
mála eftir hvern fund og hefur sú
nýbreytni fengið góðar undirtektir.
Jón Baldvin og hans menn hafa þar
með unnið góðan tíma til að skapa
traust og jákvætt andrúmsloft í
fundarsal Dagsbrúnar. Fulltrúar
flokkanna í stjórnarmyndunarvið-
ræðunum hafa farið að trúa því, að
hægt sé fyrir þessa flokka að koma
saman starfshæfri ríkisstjórn. Og
vonirnar hafa orðið meiri með
hverjum deginum. En auvitað hef-
ur líka veri'ð rætt um pólítíl; og
áherslumái flokkai’ '-alalVngið
byr, sérstaklega í ur.áirnt-induiun.i.
Þegar ÞorsteinnPá alai um
“málfundi“ þessarra pnggja flokka
er það ekki alls kostar rétt lýsing,
vegna þess að undirnefndir um rík-
isfjármál, sjávarútvegsmál, Iand-
búnaðarmál og húsnæðismál hafa
deilt um leiðir og lagt áherslu á
stefnumál sinna flokka. En s.l. mið-
vikudag voru menn komnir að
ákvörðuninni. Hinu pólítíska
námsskeiði — eins og formaður Al-
þýðuflokksins orðaði viðræðurnar
— var lokið og komið að prófun-
um. Undirbúningsvinnan, gagna-
söfnunin og pappírsstaflarnir lágu
á borðinu.
Nú þurfti að taka ákvörðunina:
Eiga þessir flokkar; Alþýðuflokk-
ur, Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur að mynda stjórn? Á
að skella sér af fullum krafti út í
lokasprettinn með tilheyrandi
hrossakaupum, þráskák um stóla
og lausnir á einstökum, stórum
málaflokkum? Og formennirnir
ákváðu fund á “leyndum stað“ eftir
að hafa setið í hádeginu í fyrradag
við setningu vorfundar NATO í Há-
skólabíó.
Fjárlagahallinn 5
milljarðar — núlllausn
Þorsteins Pálssonar
Þrátt fyrir jákvæðar og skyn-
samlegar umræður í viðræðu-
nefndinni jafnt sem undirnefndum,
höfðu mörg ágreiningsefni komið
upp á borðið sem biðu pólítískrar
meðhöndlunar af formönnunum.
Helstu ágreiningsefnin voru í fyrstu
aðgerðum í ríkisfjármálum, land-
búnaðarmálum, húsnæðismálum,
lífeyrissjóðamálum, sjávarútvegs-
málum, heildarendurskoöun á
skattkerfi og hugmyndir um stjórn-
kerfisbreytingar. Og er nefnt mál
eins og endurskipulagning ráðu-
neyta og skipting ráðherra-
embætta. En kíkjum fyrst á ágrein-
inginn um fyrstu aðgerðir í ríkis-
fjármálum. Álþýðuflokkurinn hef-
ur lagt mikla áherslu á aðgerðir sem
endurheimta jafnvægi í efnahags-
málum. Það hefur verið talað um
áfanga. Það þýðir að ný ríkisstjórn
grípi tafarlaust til ráðstafana til að
draga úr halla í ríkisbúskapnum
sem nú er um 5 milljarðar. Ríkisút-
gjöldin verði lækkuð með ýmsum
aðgerðum eins og að hætta endur-
greislu söluskatts til atvinnuvega og
draga úr öðrum tilfærslum til at-
vinnuveganna og fresta tilteknum
framkvæmdum. Ný tekjuöflun rík-
isins myndi tilað mynda fela í sér
fækkun undanþága frá söluskatti
og samræmdum launaskatti. Það
hefur verið talað um tímabundna
hækkun vaxta á ríkisskuldabréf-
um, endurskoðun áhrifa skattlagn-
inga lánskjaravísitölu og fylgt verði
aðhaldssamari peninga- og lána-
stefnu. Að setja verði skorður við
erlendum lántökum og tryggja
gengisstefnuna. Alþýðuflokkurinn
hefur haldið fram ákvörðun um
einföldun söluskattkerfis og virðis-
aukaskattur verði tekinn strax,
skatthlutföll og önnur mikilvæg
atriði í staðgreislukerfi, skattar fyr-
irtækja og skattar af eignatekjum
verði endurskoðaðir. Og svo auvit-
að stórhert eftirlit með skattsvik-
um, og ekki má gleyma áherslum
Alþýðuflokksins á að bæta kjör
hinna lægstlaunuðu með hækkun
tekjutryggingar og stefnumótun
ríkisins í launamálum í jafnrétt-
isátt, hækkun barnabóta og per-
sónuafslátts. Framsóknarflokkur-
inn hefur tekið undir flestar þessar
hugmyndir en eins og reyndar áður
hefur verið velt upp í þessum pistl-
um, er Sjálfstæðisflokkurinn treg-
ur í taumi varðandi skattamálin og
fyrstu aðgerðir í ríkisfjármálum yf-
irleitt. Þar kemur margt til. í fyrsta
lagi er flokkurinn hagsmunagæslu-
aðili íyrir skjólstæðinga sína í há-
tekjuhópum og atvinnulífi sem
njóta góðs af gloppóttu skattakerfi
og endurgreiðslukerfi söluskatts.
Það mætti kannski tala um hinn
róttæka vilja að hækka alla skatta
— með öðrum orðum eykonskuna.
En ástæðurnar eru einnig nærtæk-
ari og persónulegri. Það er for-
manni Sjálfstæðisflokksins mikið
metnaðarmál að hefja enga upp-
stokkun í sínu gamla ráðuneyti —
fjármálaráðuneytinu — og viður-
kenna þar með slæman viðskilnað
og meiri halla en á borðinu var fyrir
kosningar. Þess vegna talar Þor-
steinn Pálsson mikið um að fresta
öllum aðgerðum í ríkisfjármálum
fram yfir næstu áramót.I þriðjaog
síðasta lagi hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn hefðbundinn áhuga á að leysa
öll mál með peningamálum
(monetarismi). En kjarni málsins er
í heild að hallinn er meiri en fráfar-
andi fjármálaráðherra vill viður-
kenna og tekjuöflun verður að
koma þegar í stað til — og nærtæk-
asta leiðin er aukin skattheimta
vegna þess að niðurskurður tekur
mun lengri tíma. Það hafa einnig
verið ræddar hugmyndir um skatt-
lagningu greiðslukorta — sem er
upphaflega hugmynd frá Sjálf-
stæðisflokki — og skattlagning
happdrætta og lottós. Þegar kom
því að prófinu — hinni raunveru-
legu pólítísku ákvörðun að ákveða
fyrstu aðgerðir til að spyrna við
hraðvaxandi verðbólgu og ráðast á
fjárlagahallann, skorti formann
Sjálfstæðisflokksins þor og gat að-
eins bent á núll-lausnina. Hins veg-
ar er hætt við að með þessari
ákvörðun Þorsteins Pálssonar hafi
Sjálfstæðisflokkurinn málað sig út
í horn og geti ekki tekið udd stjórn-
arsamstarf neinn stjórnmálaflokk
á íslandi.
Og á sama tíma byrjaði
ofsahræðslan að grípa um sig í
gamla ráðherraliði Sjálfstæðis-
flokksins; það hafi ekkert verið tal-
að við þá — voru þeir að missa af
stólunum? Og þarna myndaðist
óljóst bandalag milli formannsins
og gamlingjanna sem getur falið í
sér stjórnarmyndun fráfarandi rík-
isstjórnarflokkanna tveggja plús
Stefán Valgeirsson eða Albert. En
hvers vegna vill Framsóknarflokk-
urinn fremur slíkt stjórnarmynst-
ur? Til að fá skýringu á því verðum
við að líta á landbúnaðarmálin —
sem Framsóknarflokkurinn með
dyggri aðstoð Sjálfstæðisflokksins
hefur breytt í árlega ríkisjötu upp á
7—8 milljarða króna.
Ríkissjóður tryggir
landbúnaðarkerfi SÍS
Jóni Baldvin og félögum var Ijóst
frá upphafi að landbúnaðarstefnu
gömlu stjórnarflokkana verður
ekki breytt — í hæsta lagi endur-
skoðuð. Búvörusamningurinn
kostulegi sem tryggir hagsmuni
milliliða landbúnaðarkerfis SÍS á
kostnað skattgreiðenda fram til
1992, blasti ekki aðeins við sem
óhagganlegur klettur i hafi við-
ræðnanna, heldur sem stórt gat á
ríkiskassanum sem erfitt var að
gera við. Þó hefur verið reynt að
komast að samkomulagi um endur-
skoðun samningsins á grundvelli
áherslubreytinga; á framleiðslu-
styrkjum verði breytt til byggðar-
stuðnings og landverndar. I undir-
nefndinni um landbúnaðarmál og í
viðræðunefndinni hefur mikið ver-
ið rætt um einstök mál í landbún-
aði, svo sem lækkun útflutnings-
bóta, ráðstöfun fullvirðisréttar,
endurskoðun á stjórn Framleiðslu-
sjóðs og fjárráðstöfun hans, hinn
sígilda vaxta- og geymslukostnað,
afleggingu jarðræktarstyrkja og
eflingu jarðkaupasjóðs, og afnám.
styrkja til áburðarverksmiðju. Svo
er það kjarnfóðurskatturinn, stað-
greislu- og umboðssala á búvörum,
landnýtingaráætlun og svo fram-
vegis. En burtséð frá einstökum u-
ndirmálum, þá er áhugi Alþýðu-
flokksins fyrst og fremst á heildar-
endurskoðun landbúnaðarmála —
og er víst ekkert leyndarmál ef
menn hafa fylgst með stefnumótun
Alþýðuflokksins í þeim málum og
kosningabaráttunni. 16 ára sam-
felld framsóknarvist auk aðildar
flokksins að ríkisstjórnum þar á
undan hefur hins vegar gefið fram-
sóknarmönnum tækifæri að móta
landbúnaðarstefnu sem eitt samof-
ið hagsmunanet SÍS. Við erum að
tala um flókið og hugvitssamt kerfi
sem tryggir sjálfum sér og hags-
munaaðiljum sjálfkrafa tekjur og
tekjutryggingu úr ríkissjóði. Kerfið
er hins vegar svo viðamikið og geir-
neglt að erfitt verður fyrir Alþýðu-
flokkinn sem þriðja aðila að ríkis-
stjórn og sem ekki fer með land-
búnaðarráðuneytið, að tryggja
uppstokkun á kerfinu sér i lagi þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur
heill við hlið Framsóknarflokksins í
landbúnaðarmálum. En kerfið er
dýrt og útgjaldaaukarnir vegna
landbúnaðarmála árvissir og auka
enn fjárlagahallann. Dæmið er
ekkert öðruvisi í ár en kannski verra
en menn bjuggust við og það getur
einnig haft áhrif á nauðsyn fyrstu
aðgerða og bindur hendur nýrrar
ríkisstjórnar enn frekar. Og að lok-
um verða menn einnig að spyrja sig:
Hvað á að gera þegar búvörusamn-
ingurinn rennur út 1992? I því sam-
bandi má kannski minna á gamla
sögu af Glistrup sem manna harð-
ast barðist fyrir afnámi allra skatta
í Danmörku. Hann var eitt sinn
spurður að því hvað myndi eigin-
lega gerast ef allir skattar yrðu af-
numdir í Danmörku. Glistrup svar-
aði með breiðu brosi: “Danmark
bliver dejlig!“
Götustrákar í ráðherraleik
Með öðrum orðum — Alþýðu-
flokkurinn sem iagði af stað í kosn-
ingabaráttuna með vönduðustu
kosningamálin og þaulunna stefnu-
skrá — var kominn í þá einkenni-
legu stöðu að freista þess að mynda
ríkisstjórn með stjórnarflokkunum
tveimur sem kratar gagnrýndu hve
mest. Þessi stjórnarmyndunartil-
raun var víða gagnrýnd innan Al-
þýðuflokksins og meðal annars á
síðum þessa blaðs — en margir
voru einnig til að réttlæta hugsan-
lega stjórnarþátttöku Alþýðu-
flokksins á þeim forsendum að
flokkurinn hefði verið svo lengi ut-
an stjórnar og nauðsynlegt að kom-
ast í ríkisstjórn til að fá einhverjum
áherslumálum flokksins fram-
gengt. Það má heldur ekki gleyma
því að Alþýðuflokkurinn hafði lát-
ið á það reyna til þrautar að' gera
Kvennalistann og Alþýðubandalag-
ið að stjórnhæfum aðiljum.
„Málfundirnir" með Sjálfstæð-
isflokki og Framsóknarflokki
gengu vel eins og áður hefur verið
nefnt, en þegar kom að alvörunni,
að breyta samlæstu kerfi fráfarandi
stjórnarflokka, þyngdist róðurinn.
Þorsteinn treysti sér ekki til að við-
urkenna fjárlagahallann eða skerða
hagsmuni SH, SÍF, LÍÚ, Verslunar-
ráðs eða Félags íslenskra inrekenda
með sköttum. Steingrímur sagði
þvert njet við öllum breytingum
sem hindruðu aðgang SÍS að kjöt-
kötlunum. Ráðherrastólarnir eru
ennfremur vandamál. Steingrímur
mun hafa samþykkt Þorstein Páls-
son fyrir sitt leyti sem forsætisráð-
herra og hefur sjálfur huga á setjast
í stól utanríkisráðherra ef hann fær
utanríkisviðskiptin einnig sem þýð-
ir skiptingu á viðskiptaráðuneyt-
inu. Sannleikurinn er hins vegar sá
að Steingrímur Hermannsson og
Þorsteinn Pálsson munu hafa talað
sig saman um skiptingu ráðherra-
embætta áður en þeir komu til
fundar við Jón Baldvin Hannibals-
son í gömlu Rúgbrauðsgerðinni.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins voru Steingrímur og Þor-
steinn samstíga í að neita Alþýðu-
flokknum um ýmis ráðuneyti. Eftir
að Steingrímur hafði sagt þvert nei
við því að Alþýðuflokkur fengi ut-
anríkis — og viðskiptaráðuneytið
mun formaður Aiþýðuflokksins
hafa sagt eitthvað á þann veg, að
það væri óskráð lögmál hjá öllum
götustrákum að þegar skipt væri í
lið og búið er að velja stærstu strák-
ana, má sá sem síðast velur, velja
tvo og gerði þá kröfu að Alþýðu-
flokkurinn fengi fjármála- og við-
skiptaráðuneytið. Steingrímur og
Þorsteinn voru þá sammála um að
leggja bæri viðskiptaráðuneytið
niður. Fundinum lauk án þess að
nokkur niðurstaða fengist um ráð-
herrastólana.
Þreföld núll-lausn?
í gær, föstudag, kom nefndin
saman sem fjalla á um fyrstu að-
gerðir um viðnám gegn verðbólgu
og „sem fer yfir þau mál og metur
þjóðhagsleg áhrif þeirra hugmynda
sem uppi eru og menn eru að reyna
ná saman um“ eins og Þorsteinn
Pálsson orðaði það. í raun á þessi
nefnd að reikna út verðbólgu for-
manns Sjálfstæðisflokksins ef farin
verður leið Þorsteins að fresta öll-
um fyrstu aðgerðum. Og væntan-
lega verða einhverjar samanburðar-
tölur um verðbólguspá ef farnar
verða ýmsar leiðir fyrstu aðgerða.
Formennirnir höfðu það hins vegar
náðugt og biðu eftir niðurstöðum
„verðbólgunefndarinnar". En í
hugum þeirra allra óx vissan að
þessi stjórnartilraun Jóns Baldvins
var að renna út í sandinn. Um helg-
ina verður siðan væntanlega ákveð-
ið hvort reynt verður að finna ein-
hverja fleti á stjórnarmyndun þess-
ara Öokka eða flokkarnir þrír dragi
sig frá þessari stjórnarmyndunartil-
raun og uppræti samstarfið.
En síðustu fréttir sem greina frá
fundi formanna Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks, benda hins vegar
til þess að ágreiningsmál hafi
minnkað og stjórnarmyndunin sé
að takast aftur á flug. Ef svo er
minnka líkurnar á þrefaldri null -
lausn.
Fylgist með. Lesið áfram Alþýðu-
blaðið.