Alþýðublaðið - 13.06.1987, Side 7
Laugardagur 13. júní 1987
Fátt er það sem verið hefur eins mikið í
umræðu manna á milli á undanförnum
mánuðum og hið nýja húsnæðislánakerfi.
Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins svarar hér á eftir
þeirri gagnrýni sem hörðust hefur verið á hið
nýja kerfi.
„ Bœklingunnníi
Síðan kemur bæklingurinn
„Nýtt lánakerfi — Breyttir tímar“
sem Stefán Ingólfsson skrifaði heil-
síðugrein um í DV. En hver er sagan
á bak við bæklinginn? Hún er sú að
í vor er hringt í mig úr félagsmála-
ráðuneytinu og sagt: „Félagsmála-
ráðuneytið hefur komist að þeirri
niðurstöðu að það sé nauðsynlegt
að gefa út bækling til kynningar á
nýja húsnæðislánakerfinu. Hann
verður gefinn út af félagsmálaráðu-
neytinu og Húsnæðisstofnunni
sameiginlega og þú ert vinsamlega
beðinn um að tryggja það, að ekk-
ert í bæklingnum sé í ósamræmi við
gildandi lög og reglur um starfsregl-
ur stofnunarinnar. Að öðru leyti
mun auglýsingastofan Gylmir sjá
um samsetningu efnis og útgáfu
bæklingsins. Ætlunin er að gefa
bæklinginn út í stóru upplagi (mig
minnir sextíu þúsund eintökum) og
senda eintak inn á hvert heimili á
landinu. Þetta telur ráðuneytið
nauðsynlegt til þess að málefnaleg
kynning fari fram, að bæklingur
um þetta efni fari inn á hvert heimili
á landinu.“ Gott og vel, sagði ég. Þá
það.
Síðan fer auglýsingastofan
Gylmir af stað og ákveðinn starfs-
maður þar fer að senda mér handrit
til yfirlestrar. Ég les þau yfir, hvað
eftir annað, og lagfæri ýmsar villur
sem þar var að finna. Og í lokin er
þetta allt saman orðið villulaust og
bæklingurinn er prentaður. En þá
birtist þessi svaka grein í DV eftir
Stefán Ingólfsson, þar sem hann
segir að þessi bæklingur sé ekkert
annað en andskotans ómerkilegt
áróðursskjal, uppfundið af Fram-
sóknarflokknum og skítlegt að
Húsnæðisstofnun skuli láta hafa
sig út í þetta. Og að minnsta kosti
tvennt er rangt í bæklingnum. Ann-
ars vegar þessi „statistik“ um fast-
eignaverð miðað við lánskjaravísi-
tölu — mynd á bls. 5. Og hins vegar
texti þar rétt fyrir ofan þar sem seg-
ir: „Þegar á heildina er litið hefur
fjöldi umsókna reynst svipaður því
sem var áætlað"
Þetta heyrði maður í fjölmiðlum
og á þes'su voru menn að staglast,
hver um annan þveran, dögum og
vikum saman. Og eftir að ég hafði
Iesið þessa grein Stefáns, hugsaði ég
með mér: „Ef til vill er eitthvað til
í þessu. Það er að minnsta kosti
nauðsynlegt fyrir mig að ganga úr
skugga um það hvort þetta er rétt“
Ekki síst þar sem hann blandaði
Guðmundi G. Þórarinssyni og
Framsóknarflokknum inn í þetta
og mér fannst ekki æskilegt að þessi
stofnun flæktist þannig inn í ein-
hverja flokkspólitíska deilu, eða
lægi undir ásökunum um það að
vera að gefa út flokkspólitískan
áróðursbækling. Þess vegna dró ég
þennan bækling til baka hérna á
stofnuninni, en ég hafði ekkert með
dreifingu hans að öðru leyti að gera,
og stöðvaði dreifingu hans hér á
meðan ég var að athuga þetta. Þessi
stöðvun dreifingarinnar stóð yfir í
um það bil tvær vikur og varaði
reyndar fram yfir kosningar, en það
var eins og hver önnur tilviljun. Ég
hringdi í Magnús Ólafsson, for-
stjóra Fasteignamatsins, en hann
hafði þá ekki séð bæklinginn og
hann bað mig að senda sér þrjú ein-
tök sem ég gerði strax. Ég innti.
hann eftir því hvort „statistikin"
væri rétt. Hann hringdi síðan í mig
eftir kosningar og sagði: „Ég hef
skoðað þessa ,,statistik“ og hún er
réttí* Síðan hafði ég samband við
höfund bæklingsins hjá Gylmi og
sagði við hana: „Þú sást þessar
ásakanir í DV. Hvað er hæft í
þessu?“ Og þá sagði hún: „Ég
samdi handritið og bæklinginn og
ég legg starfsheiður minn að veði
fyrir því, að ég lagði kapp á það að
hann í einu og öllu væri réttur. Og
ég gekk eins grannt úr skugga um
heimildir og ég frekast gat. Þar á
meðal fékk ég þetta línurit hjá Fast-
eignamati ríkisins og birti það.
Línuritið sem ég fékk hjá Fast-
eignamatinu var þó breiðara, þann-
ig að það byrjaði fyrr. í bæklingn-
um byrjar það árið 1980, en það
sem ég fékk hjá Fasteignamatinu
byrjaði fyrr. En mér fannst óþarfi
að láta alla þá lengju birtast, þannig
að ég klippti framan af henni og
notaði þann part sem er í bæklingn-
um. En síðan les ég í DV í grein eftir
Stefán Ingólfsson, að hér hafi verið
framin hrikaleg fölsun í þeim til-
gangi að sýna allt aðra mynd af
þessu en raunverulega var og að sú
fölsun hafi verið framin að undir-
lagi félagsmálaráðherra og Fram-
sóknarflokknum til þess að fegra
ástandið. En ég gerði þetta ein og
ótilkvödd. Mér fannst faglega séð
þetta einfaldlega nóg. Og efnislega
tel ég að þetta komi rétt út svona.
Það var sem sagt ekkert samsæri á
bak við þetta, ég gerði þetta upp á
eigin spýtur"
Samsœri?
En þá er spurningin: Er þá ekki
eitthvað samsæri á bak við textann:
„Þegar á heildina er litið hefur
fjöldi umsókna reynst svipaður því
sem var áætlað?" „Neiý sagði höf-
undur bæklingsins hjá Gylmi. „Ég
setti þennan texta lika saman og
enginn hafði nein afskipti af því!‘
„Gott og vel“, segi ég, „en hvaðan
hefurðu þetta?“ „Já, ég var ekki
ánægð fyrr en ég var búin að ganga
alveg úr skugga um að þetta stæð-
ist, með því að fara í greinargerðina
hans Hallgríms Snorrasonar Hag-
stofustjóra, sem var formaður Hús-
næðislaganefndarinnar. Þegar ég
var búin að fá hans greinargerð í
hendur, þá þóttist ég alveg viss um
að ég gæti látið þessi orð fara. Og
það gerði ég á þessum grundvelli.
Og það hafði engin áhrif á mig á
einn eða annan hátt“
Ekkert athugavert
Þegar að þetta tvennt var komið,
að Magnús Ölafsson, forstjóri Fast-
eignamatsins og Augiýsingastofan
Gylmir voru búin að fullvissa mig
um að þetta væri nákvæmlega rétt
og fagmannlega unnið af þeim, þá
sá ég enga ástæðu til þess að stoppa
bæklinginn heldur opnaði á nýjan
leik fyrir hann, þannig að hann er
til dreifingar hér síðan og verður
framvegis. Og húsnæðisstofnunin
hefur kostað útgáfu hans og ég get
ekki séð neitt athugavert við það,
þar sem að þetta er málefnaleg
kynning á nýja húsnæðislánakerf-
inuý segir Sigurður E. Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins.
Rowenra
kaffivélar
Rowenfa fkos
10 bolla kaffikanna
kr. 1.990.-
Rowenta fkoo
10 bolla kaffikanna
kr. 4.226.-
(D !, —
*■' ^ 1
rnm u SSí *
Rowenfa fkbi
10 bolla kaffikanna
með gullsíu kr. 5.341.-
Rowenta fk^o
10 bolla kaffikanna
með hitakönnu kr. 4.847.-
8 bolla kaffikanna
kr. 2.652,-
Fást í öllum betri
raftækjaverslunum
Nýjabæ-Eiðistorgi Simi 622-200