Alþýðublaðið - 13.06.1987, Page 17

Alþýðublaðið - 13.06.1987, Page 17
Laugardagur 13. júní 1987 17 Garðar sýnir í Garðabæ Garðar Jökulsson opnar málverkasýningu I Kirkjuhvoli, Garðabæ, 16. júnl n.k. kl. 20.00. Að þessu sinni mun Garöar einungis sýna landslags- myndir. Um erað ræðabæði olíu-og vatnslitamyndir. Hann hefuráðurhald- ið tvær einkasýningar — síðast I Ásmundarsal 1983. Sýningin mun standa frá 16.—23. júni og verður opið frá 14.00 til 22.00 dagana 17,—20. og 21. júní, en frá 18.00 til 22.00 aðra daga. Vonast sýnandi til að Garðbæingar meti þessanýjung I bæjarllfinu, og llti við I Kirkjuhvoli, sem og aðrir vinirog vel- unnarar. á stúdentagörðum næsta vetur Félagsstofnun stúdenta auglýsir hér meö eftir umsóknum um vist á stúdentagörðunum fyrir næsta skólaár. Á Gamla- og Nýja-Garði eru samtals 92 einstaklingsherbergi og 4 parherbergi leigð út tímabilið 1. sept.-31. maí. Á Hjónagörð- um eru 4 þriggja herb. íbúðir og 51 tveggja herb. íbúð, þar af 1 sérstaklega ætluð fötluðum, leigðar út tímabilið 1. sept.-1. sept. Þeir einir koma til greina við úthlutun sem fyrirhuga reglu- legt nám við Háskóla íslands næsta skólaár. Umsóknir berist skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta fyrir 25. júní nk. á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Byggingavöru- □eildin hlutskörpust í útboði loðdýrabænda Rætt vid Ólaf Eggerts- son forstööumann Byggingavörudeildar Sambandsins — Minkarækt mjög arö- vænleg núna 27 bændur í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum létu nýlega sér- hanna fyrir sig loðdýraræktunar- hús fyrir minkaræktun og buðu þeir þetta verk út. Gísli Pálsson að Hofi í Vatnsdal hafði forystu fyrir bændur í þessu efni en Magnús Sig- steinsson hjá Búnaðarfélagi íslands hannaði að allra dómi mjög gott hús til starfseminnar úr timbri. 10. april sl. voru svo opnuð tilboð i smíðina og átti Byggingavörudeild Sambandsins hagstæðasta tilboðið. Að sögn Ólafs Eggertssonar for- stöðumanns deildarinnar eru 54 hús pöntuð núna, en mjög hag- kvæmt er að kaupa stöðluð hús sem þessi til starfsemi sem á sér stað út um allt land, því víðast hvar henta sömu húsin prýðilega, en verðið lækkar vegna hagkvæmni fjölda- framleiðslunnar. Olafur sagði hús- in alíslenska smíði og myndi Bygg- ingavörudeildin annast útvegun á öllu efni til smíðinnar ásamt fram- kvæmd byggingarinnar sjálfrar of- an sökkla. Minkabúrin sjálf verða svo boðin út seinna. Heildarverð- mæti samningsins væri á bilinu 27 til 28 milljóna króna og við hönnun húsanna hefði öll starfsemi í þeim verið tekin til athugunar. Taldi hann hönnun þeirra mjög vel heppnaða og vonaðist til þess að framkvæmdaþættir yrðu ekki síður vel heppnaðir. Mikill arður er nú í minkarækt- inni og hyggja húnvetnskir og skag- firskir bændur gott til glóðarinnar að leggja sitt af mörkum í gjaldeyr- isöfluninni með ræktun á gæða- skinnum af mink á tískumarkaði veraldarinnar. Ólafur Eggertsson, torstöðumaöur Byggingavörudeildar Sambandsins flytur ræðu á fundinum. Kjörbók Landsbankans-Góð bók lyrir bjarta framtíð ASE!"

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.