Alþýðublaðið - 13.06.1987, Síða 21
Laugardagur 13. júní 1987
21
y\ hli&&rsg*€Þrinwji
Karl Th. Birgisson skrifar
EG SAKNA BYGGÐAM ALAN N A
í fréttum af stjórnarmyndunar-
viðræðum er áberandi þögn um
hvaða tillögur er verið að ræða. All-
ir þekkja málefnatilbúnað Alþýðu-
flokksins, enda fór hálf kosninga-
baráttan í þá heimavinnu, en ekkert
hefur heyrzt um hugmyndir hinna
tveggja. Hver getur upplýst mig um
tillögur Sjálfstæðisflokksins í
byggðamálum? Eða Framsóknar í
bankamálum? Sumir segja reyndar
að stjórnarflokkarnir komi tóm-
hentir til þessara viðræðna.
Hvort sem það er satt eða ekki,
þá hafa þeir sloppið ótrúlega vel í
fjölmiðlum, sem spyrja engu betur
núna en þeir gerðu fyrir kosningar.
Hvaða fréttamaður hefur spurt
Þorstein Pálsson um tillögur til
lausnar fjárlagavandans? Meiri
áhugi virðist vera á persónum og
metnaði þeirra, plotti og gagn-
plotti. í tízku er að útskýra fréttir
og gera pólitík þannig að viðfangs-
efni sérfræðinga.
Þessi mystíska mynd af stjórn-
málum er röng og til þess fallin að
auka vanmáttartilfinningu fólks
gagnvart þingræðinu og stjórnkerf-
inu. Það er ekkert dulariullt cóa
ógnarflókið við pólitík ef talað er
um hana á mannamáli og gert ráð
fyrir hæfilegri dómgreind hátt-
virtra kjósenda...
Ég sakna þess í stjórnarmyndun
að heyra minnzt á byggðamál. Utan
Reykjavíkur var kosningabarátta
háð ekki sízt um heimastjórn og
valddreifingu. Landsbyggðarfólk er
í nokkrum uppreisnarhug og vill
endurheimta fullan þegnrétt sinn í
samfélaginu.
Hugmyndir um Iandshlutaskipt-
an atvinnuvegasjóð eru máttlítil
viðbrögð og beinast ekki í rétta átt.
Raunveruleg heimastjórn og sjálfs-
virðing sem henni fylgir verða ekki
að veruleika fyrr en verkefni og
tekjustofnar eru færð frá mið-
stjórninni í Reykjavík til kjörinna
héraðsstjórna. Einn sjóður til eða
frá breytir engu í þessari mynd —
sjálfstæðiskrafan er sterkari en svo.
Fólk vill búa að sínu með reisn og
ráðstafa þeim \erðmætumsem það
skapar með þrælavinnu. Lausnin er
auðvitað, eins og Alþýðuflokkur-
inn hefur margítrekað, nýjar hér-
aðsstjórnir. Vonandi eru kratarnir í
Dagsbrúnarsalnum ekki búnir að
gleyma samþykktum flokksþings
og þingflokks í þessum efnum...
Fundur utanríkisráðherra NATÓ
er haldinn á friðareyjunni þessa
vikuna. Sjónvarpið bauð upp á um-
ræðuþátt um ísland og NATÓ af
því tilefni. Ég hefði viljað sjá Björn
Bjarnason, Árna Bergmann og
fleiri af því tagi í svona þætti árið
1987, en í stað þess mætti formaður
herstöðvarandstæðinga og atti
kappi við Heimdelling úr utanríkis-
ráðuneytinu.
Þarna var líka Kjartan Jóhanns-
son, fróður og föðurlegur. Rökræð-
ur hans við Olaf Ragnar Grímsson
máttu sín hins vegar lítils gagnvart
einlægri sannfæringu krossfaranna
tveggja. Sérlega þótti mér Heim-
dellingurinn málstað sínum til lítils
framdráttar. Það var sú rökfærsla
sem hann beitti sem gerði mig að
herstöðvarandstæðingi hér áður.
Vonandi voru ekki margir að
horfa...
Hefur ekkert verið minnst á byggðamálin i stjórnarmyndunarviðræðunum.
Og vonandi ekki margt ungt fólk.
Kjartan Jóhannsson var rökfastur
og skynsamur að vanda, en eitt sinn
beindi hann máli sínu til ungs fólks
og benti á að best væri að byrja að
hugsa um utanríkismál á ákveðinn
hátt. Ég get heyrt viðbrögðin hjá
tortryggnum unglingum með sjálfs-
virðingu: „Það síðasta sem ég þarf
á að halda er einhver náungi á sex-
tugsaldri að segja mér hvernig ég á
að hugsa..í‘
Þegar þetta er ritað er enn allt á
huldu um úrslit stjórnarmyndunar.
Ég spái að upp úr helgi verði tekin
við völdum ný ríkisstjórn. Ekkert
sýnir betur vankanta þingræðisins
en sú niðurstaða að formaður þess
stjórnmálaflokks sem mestu tapaði
í kosningum og trúlega óvinsælasti
stjórnmálamaður landsins heldur
líklega 17. júní ræðuna að þessu
sinni...
AMSTRAD PC 1512
600 AMSTRAD PC Á100 DÖGUM!
AMSTRAD PC 1512 er engin venjuleg PC-tölva, þó
hún sé alsamhæfð IBM PC. Kynntu þér verðið og
allan aukabúnaðinn sem fylgir, þá skilur þú 600
ánægða AMSTRAD PC eigendur.
Á þessum tímamótum höldum við hátíð og bjóðum
25 tilboðspakka „A“ og 25 tilboðspakka „B“ á GRÍNVERÐI.
Ath. Aðeins verða seldir 25 pakkar af hvoru og aðeins gegn stað-
greiðslu!
LT Kr. 110.000
FYRIR
FYRIRTÆKI
20 MB harður diskur, 1 diskadrif
14“ svarthvíturpergamentskjár...............................................kr. 67.900.-
Prentari DMP4000 (breiður, 200 p.sek.)......................................kr. 27.890.-
RÁÐ, viðskipta-, sölu- og lagerketii XT.....................................kr. 45.000,-
RÁÐ, fjárhagsbókhald XT.....................................................kr. 29.000,-
FYRIR
EINSTAKLINGA
..........kr. 59.800,-
..........kr. 16.790.-
..........kr. 15.000,-
Viðgerðarþjónusta:
Tækniverkstæði Gísla J. Johnsen.
Móttaka:
Bókabúð Braga, tölvudeild, s. 621122..
Námskeið: Tölvufræðslan, Borgartúni 56, sími 687590.
m
Bókabúð
Braga
TÖLVUDEILI)
v/Hlemm Símar 2931 1 og 621 122
m
Kr. 79.000
stgr.
2diskadrif m/14" litaskjá.......
Prentari DMP 3000 (105 p.sek.).
Forrit aðeigin vali.............