Alþýðublaðið - 13.06.1987, Side 22
22
Laugardagur 13. júní 1987
Drni/tt rafmaanQ- komulagi um endurskoðun raf-
DlCyil I ClllllClgllu magnssamningsfyrirtækjanna. Var
nýr rafmagnssamningur undirrit-
aður af forstjórum þeirra fimmtu-
daginn 4. júní 1987. Kemur samn-
ingur þessi í stað samnings frá 20.
ágúst 1976.
Hinn nýi rafmagnssamningur
Landsvirkjun og Áburðarverk- felur í sér ýmsar breytingar á við-
smiðja ríkisins hafa komist að sam- skiptum samningsaðila og eru meg-
Símaskráin 1987
Afhending símaskrárinnar 1987 til símnotenda er
hafin. í Reykjavík er símaskráin afgreidd á eftir-
töldum afgreiöslustöðum Pósts og síma: Póst-
hússtræti 5, Kleppsvegi 152, Laugavegi 120, Nes-
haga 16, Ármúla 25, Arnarbakka 2, Hraunbæ 102
og Lóuhólum 2-6.
Afgreiöslutími mánudaga, miðvikudagaog föstu-
daga kl. 8.30 til 16.30. Þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 8.30 til 17.30.
Á Seltjarnarnesi er skráin afhent á póst og sím-
stöðinni Eiðistorgi 15.
í Garðabæ á póst og símstöðinni við Garðatorg.
í Hafnarfirði á póst og símstöðinni, Strandgötu
24.
í Kópavogi á póst og símstöðinni, Digranesvegi 9.
I Mosfellssveit á póst og símstöðinni að Varmá.
Utan höfuðborgarsvæðisins er símaskráin afhent
á viðkomandi póst- og símstöö.
Símaskráin verður afhent gegn afhendingarseðl-
um, sem póstlagðir hafa verið til símnotenda.
Athygli símnotenda er vakin á því að þær síma-
númerabreytingar, á svædum 92, 93 og 97, úr 4
stafa í 5 stafa númer, sem fyrirhugaðar voru í
tengslum við útgáfu símaskrárinnar, frestast
nokkuð.
Á 92 svæði verða þær gerðar 1. júlí n.k.
Á 93 svæði 6.-10. júlí.
Á 97 svæði verður breytingin gerð um leið og tek-
in verður í notkun ný stafræn símstöð á Egils-
stöðum í byrjun ágúst.
Þessar breytingar verða auglýstar nánar þegar að
þeim kemur. Þar til þær hafa farið fram gilda
gömlu símanúmerin.
Að öðru leyti tekur símaskráin gildi mánudaginn
15. júní n.k.
Póst- og símamálastofnunin.
Útboö
Hafnarsjóður Árskógshrepps óskar eftir tilboð-
um í að byggja harðviðarbryggju á Árskógssandi.
Aðalverkþættir eru:
Landveggur 35 fm.
Staurarekstur 32 stk.
Bryggjusmíði 237 fm.
Útboðsgögn verða afhent hjá Hafnarmálastofnun
rikisins Seljavegi 32, Reykjavík og á skrifstofu Ár-
skógshrepps frá og með 15. júní 1987. Tilboðum
óskast skilað á skrifstofu Árskógshrepps fyrir kl.
14.00 24. júní og verða þau opnuð þar að bjóðend-
um viðstöddum sem þess óska.
Oddviti Árskógshrepps.
®IAUSAR STÖÐUR HJÁ
_J REYKJAVÍKURBORG
Stöður yfirfóstra
á leikskólann Brákarborg v/Brákarsund og á dag-
heimilið Laufásborg Laufásveg 53—55.
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu
dagvista barna í sima 27277.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð á sér-
stökum eyðublóðum sem þar fást.
inbreytingarnar þær að rafmagns-
verðið fylgir ekki lengur verðinu til
ÍSAL eins og það er á hverjum tima,
heldur verði á innfluttu ammoní-
aki. Þá lækkar lágmarksverð úr
jafngildi 12,5 1 8,7 Bandaríkjamill á
kWst, en hámarksverð hækkar úr
18,5 í 22,3 Bandaríkjamill. Lands-
virkjun verður áfram skuldbundin
til að sjá Áburðarverksmiðju ríkis-
ins fyrir allt að 185 GWst á ári með
óbreyttri heimild til skerðingar á
orkuafhendingu.
Hin nýju verðbreytingaákvæði
tryggja það að aukið samræmi
verður á milli framleiðslukostnaðar
ammoníaks í Áburðarverksmiðju
ríkisins og verðs á innfluttu amm-
oníaki, en fylgni er á því og heims-
markaðsverði á olíu á hverjum
tíma. Verð á innfluttu ammoníaki
var óvenju lágt á s.l. ári og fram á
þetta ár. Hin nýju verðbreytinga-
ákvæði hafa því þau áhrif á fyrstu
tveim ársfjórðungum þessa árs að á
þeim fyrri verður rafmagnsverðið
til Áburðarverksmiðju ríkisins 8,7
Bandaríkjamill (34 aurar) á kWst
og á þeim seinni 10,5 Bandaríkja-
mill (41 aur).
Hugmyndasamkeppni
um nýja atvinnu-
stefnu í sveitum
Landbúnaðarsýningin BÚ ’87 og
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
efna til hugmyndasamkeppni um
nýja atvinnustarfsemi i sveitum.
Tilefnið er landbúnaðarsýningin
BÚ ’87 sem haldin verður í Reið-
höllinni í Víðidal, 14r23. ágúst
1987.
Nú eru talsverðir breytingatímar í
atvinnuháttum í sveitum, bæði á ís-
landi og í nágrannalöndum. Alls
staðar er verið að þreifa fyrir sér
með nýjungar í dreifbýlinu og
margar þeirra eru óvæntar og ný-
stárlegar.
Af þessum sökum þótti við hæfi
að reyna að stuðla að umhugsun og
þróun á þessu sviði með því að efna
til hugmyndasamkeppni hér, en
slíkt hefur gefist vel í nágranna-
löndunum. Helst er leitað eftir hug-
myndum að arðbærri atvinnustarf-
semi sem unnt er að stunda í hluta-
starfi við þau skilyrði sem nú eru í
sveitunum.
ítarleg keppnisgögn sem veita
fólki góða aðstoð við að ganga frá
tillögum, eru send endurgjalds-
laust. Skilafrestur hugmynda er til
1. ágúst 1987.
Veitt verða verðlaun eins og hér
segir: 1. verðlaun kr. 150.000, 2.
verðlaun kr. 75.000 og 3. verðlaun
kr. 25.000. Verðlaunin verða afhent
á BÚ ’87.
Dómnefnd skipa: Ágústa Þor-
kelsdóttir, bóndi, Refstað á Vopna-
firði, Leifur Kr. Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins og Sigurður
Guðmundsson, forstöðumaður
Þróunarsviðs Byggðastofnunar.
Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands:
Arsrit,
Kvenréttindafélaga íslands
19.iúní
19.iúni
er
komið út
Fœst í bókaversl-
unum, á blaðsölu-
stöðum og hjá
kvenfélögum um
land allt.
SKIPADE/LD
SAMBANDS/NS
LINDARGÖTU 9A • PÓSTHÖLF 1480- 121 REYKJAVlK
SÍMI 28200 • TELEX 2101 TELEFAX 622827
Björn Dagbjartsson
framkvæmdastjóri
®LAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVIKURBORG
Dr. Björn Dagbjartssonar, verk-
fræðingur, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands í stað Þórs Guð-
mundssonar, viðskiptafræðings,
sem hættir að eigin ósk eftir 5 ára
starf hjá stofnuninni.
Björn er fimmtugur að aldri.
Hann lauk prófi í efnaverkfræði frá
tækniháskólanum í Stuttgart árið
1964 og doktorsprófi frá Rutgers
háskólanum 1971. Hann varð sér-
fræðingur hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins árið 1972 og for-
stjóri þeirrar stofnunar var hann
frá 1974 til 1984, er hann varð al-
þingismaður. Árið 1981 var hann í
leyfi frá störfum í 4 mánuði, þegar
hann var ráðgjafi FAO við þróunar-
hjálp á Maldive-eyjum í suðaustur
Asíu.
Með ungu fólki
Starfsmenn óskast í félagsmiðstöðvar í Reykja-
vík. í starfinu felst m.a. leiðbeining unglingahópa,
félagsmálafræðsla og umsjón með félags- og
tómstundastarfi. Viðkomandi þurfa að geta hafið
störf eftir miðjan ágúst 1987. Uppeldismenntun
og reynsla af starfi með unglingum áskilin.
Launakjör skv. kjarasamningi Starfsmannafélags
Rv. og Reykjavíkurborgar. Upplýsingar eru veittar
í félagsmiðstöðvunum. Umsóknarfresturertil 26.
júní.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur