Alþýðublaðið - 13.06.1987, Qupperneq 23
Laugardagur 13. júní 1987
23
Flugleiðir:
Upplýsingadeild
tekur til starfa
Fyrsta júní s.l. tók til starfa ný
deild hjá Flugleiðum og nefnist hún
Upplýsingadeild. Frá sama tíma er
Kynningardeild lögð niður en starf-
semi hennar færist undir Upplýs-
ingadeildina. Forstöðumaður hinn-
ar nýju deildar er Steinn Logi
Björnsson sem jafnframt er fulltrúi
forstjóra. Upplýsingadeildin mun
því heyra beint undir forstjóra fé-
lagsins. Sæmundur Guðvinsson
blaðafulltrúi félagsins mun áfram
gegna því starfi og fer hann jafn-
framt með önnur ytri kynningar-
mál Flugleiða í samvinnu við for-
stöðumann Upplýsingadeildar.
Hin nýja deild er liður í, og ár-
angur af þeirri stefnumörkun sem
stjórnendur og starfsmenn Flug-
leiða hafa að undanförnu unnið að.
Markmiðið með stofnun Upplýs-
ingadeildarinnar er að bæta upplýs-
ingastreymið innan fyrirtækisins og
milli Flugleiða og annarra aðila,
svo sem viðskiptavina, fjölmiðla og
ýmissa stofnana.
Upplýsingadeild mun annast um
ytri og innri kynningarmál Flug-
leiða þar með talið útgáfu starfs-
mannablaðs og annarra innri upp-
lýsingarmiðla. Einnig mun skipu-
lagning á flæði stjórnunarupplýs-
inga og þróun upplýsingakerfa fara
fram í deildinni. Loks mun Upplýs-
ingadeildin sjá um fræðslu og
grunnþjálfun nýrra starfsmanna
þegar þeir hefja störf svo og útgáfu
starfsmannahandbókar. Stefnt er
að því að starfsmenn upplýsingar-
deildar verði 6—7.
Þekktur prófessor
heldur fyrirlestur
Prófessor G Gallin frá tæknihá-
skólanum í Delft í Hollandi verður
í heimsókn hér á landi 11.-14. þessa
mánaðar.
Próf. Gallin lauk doktorsprófi í
skipaverkfræði 1967. Hann er sér-
fræðingur í hönnun skipa með tilliti
til hagkvæmni og hefur verið ráðu-
nautur margra ríkisstjórna í
Evrópu og helstu vélaframleiðenda.
Núna er hann deildarforseti skipa-
verkfræðideildar tækniháskólans í
Delft.
Próf. Gallin er meðlimur í mörg-
urn sérfræðinganefndum um þróun
skipasmíða. Meðal annars er hann
meðlimur þýskrar nefndar sem er
að vinna að þróunarverkefni sem
Vesturþýska ríkisstjórnin og skipa-
iðnaðurinn þar í landi kosta sam-
eiginlega og er sá kostnaður áætl-
aður allt að 50 millj. marka. Enn-
fremur er hann að setja í stofn svip-
að verkefni í Danmörku í samvinnu
við dönsku ríkisstjórnina.
Próf. Gallin mun halda fyrirlest-
ur um efnið „Hagkvæm hönnun
skipa“ í verkfræðideild Háskóla ís-
lands við Hjarðarhaga fimmtudag-
inn 11. þ.m. kl.17. 00. Hann er eftir-
sóttur fyrirlesari og ekki að efa að
íslenskir verkfræðingar munu nota
þetta tækifæri ti! að hlýða á próf.
Gallin, en fyrirlestur hans mun ekki
síður höfða til allra áhugamanna á
þessu sviði og eru allir velkomnir til
að hlýða á fyrirlesturinn.
Próf. Gallin mun ennfremur eiga
viðræður við fulltrúa iðnaðarráðu-
neytisins og íslensks skipaiðnaðar
um málefni skipaiðnaðarins meðan
hann dvelst hér á landi.
Nánari upplýsingar gefur undir-
búningsnefnd c/o Olafur Eiríksson
tæknifræðingur, Útgerðartækni
h/f, sími 26830.
Sumarsýning
á handrítum
Þann 17. júní kl. 14.00—16.00
verður opnuð sumarsýning á hand-
ritum í Stofnun Árna Magnússon-
ar, Árnagarði v/Suðurgötu. Sýn-
ingin verður opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl.
14.00—16.00 til ágústloka.
Loftræstilagnir
Tilboð óskast í lokafrágang við loftræstikerfi í
Sjúkrahúsið á ísafirði.
Innifalið er uppsetning loftræstitækja, loftstokk-
ar (ca. 5,0 tonn) og smíði veggja og lofts í tækja-
klefa í risi. Verkinu skal skila fullgerðu, eigi síðar
en 1. nóv. 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 3.000.- kr. skilatryggingu.
Sendum öllum
sjómönnum landsins
heillaóskir
í tilefni sjómannadagsins
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri föstudaginn
26. júní 1987, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, sirrji 25844
SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Sjávarafuróadeild
SAMBANOSHUSINU REYKJAVÍK SIMI 28200
VAKNADU MADUR!
Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku-
manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin,
verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar
skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá
slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend-
um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niöurstaöa úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umferöarslysa)
gegngáleysi
...ðttu mikla möguleika d
að draumarnir rcetist!