Alþýðublaðið - 01.05.1997, Page 21
FIMMTUDAGUR 1.MAÍ 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
21
Sæmundur Árnason formaður Félags bókagerðarmanna. íslensk verkalýðssamtök ættu að sameinast í ein stór
heiidarsamtök um grundvallarhagsmuni launafólks. Félag bókagerðarmanna stóð fyrir ritun sögu
stéttarsamtakanna í hundrað ár, sem kom út ásamt nýju viðamiku stéttartali í tilefni aldarafmælisins.
fremur verður sýningin á prentlist
áfram í Arbæjarsafni í sumar eins og
liðin sumur í samvinnu við félagið."
Sögusafn verkalýðs-
hreyfingarinnar
Þið reynið þannig að haida sögu
ykkar til haga með margvíslegum
hœtti?
„Já viðleitni okkar er á þann veg.
En betur má ef duga skal. Við erum
með hér í húsi margvísleg ménning-
arverðmæti úr sögu okkar félags og
stéttar. Við höfum ráðið Svan Jó-
hannesson félaga okkar og stjómar-
manna til margra ára til að koma
skikkan á þessa hluti. En í þessu
samhengi langar mig til að vekja at-
hygli á nauðsyn nánara samstarfs og
átaks um varðveislu sögulegra minja
verkalýðshreyfingarinnar."
Verkalýðshreyfingin virðist í
ákveðinni tilvistarkreppu — hver eru
þín viðhoif til þess?
„Það er alveg rétt að hreyfingin er
í tilvistarkreppu. En við þurfum e.t.v.
að skilgreina þessa kreppu fyrir okk-
ur. Við bókagerðarmenn eigum ekki
við þá félagslegu deyfð að stríða eins
og margir aðrir. Við höfum breytt um
starfsaðferðir á síðustu ámm, við
emm ekki eins rótttækir og verkfalls-
glaðir og áður var.
Það sem við óttuðumst var hin
nýja tækni og við höfum lagt ofur-
kapp á að vinna með nýju tækninni í
stað þess að vinna gegn henni eins og
margir kollegar okkar erlendis
reyndu að gera með hrikalegum af-
leiðingum fyrir stéttina. Þeir lokuðu
á sama tíma fyrir ófaglærðum sam-
starfsmönnum sínum og einangmð-
ust og lentu í fjöldaatvinnuleysi.
Við höfum vissulega lent í at-
vinnuleysi. Það varð mest 9% en er
nú um 4%. Engu að síður þá fjölgar
nú jafnt og þétt £ stéttinni. Það hjálp-
aði félaginu sérstaklega að opna sig
fyrir ófaglærðum. Sömuleiðis hafa
vertakar getað verið í okkar félagi.
Það er auðvitað algengt hjá okkur
eins og mörgum öðrum að menn em
tímabundið við verktöku en koma
síðan aftur inn sem launamenn starf-
andi hjá einhverju fyrirtækjanna."
Ný heildarsamtök
verkalýðshreyfingar
Nú eru bókagerðannenn ekki í
ASI, er ekki kominn tími til að endur-
skoða skipulagsmál ykkar?
„Til að byrja með dreymir okkur
um að ná utan um alla þá sem starfa
við prentverk og útgáfu, t.d. teiknara
og blaðamenn. Það væri alveg hægt
að hugsa sér að stofna heildarsamtök
fjölmiðlaafólks og sömuleiðis kemur
til álita að ganga í Samiðn til að
styrkja stöðu okkar.
Við sem störfum í forystu félags-
ins vildum gjaman vera innan ASÍ.
En þar kemur tvennt til. Annars veg-
ar er okkur sagt að lög ASÍ heimili
ekki aðild okkar, þar sem þar er gert
ráð fyrir aðild heildarsamtaka en
ekki félaga. Hins vegar hefur tillögu
um aðildarumsókn tvisvar verið
hafnað í atkvæðagreiðslu innan okk-
ar félags.
Hins vegar er afstaðan smám sam-
an að breytast hjá okkar félagsmönn-
um og síðustu ár höfurn við þurft að
kenna á því að vera utan þeirra upp-
lýsingaveitna sem stór heildarsamtök
geta haldið uppi. Allt frá þjóðarsátt-
arsamningunum hefur það háð okkur
að vera utan heildarsamtökin.
Finnst þér koma þá til greina að
endurskipuleggja hreyfinguna gjör-
valla , t.d. með því að rífa niður
múra mili stóru heildarsamtakanna?
„Jú auðvitað er löngu kominn tími
til að stokka upp þetta úrelda kerfi.
Alltof margir vilja gera allt út í horni.
Mín skoðun er sú að ASÍ og BSRB
eigi að sameinast ásamt þeim félög-
um og samböndum sem standa fyrir
utan í eitt stórt verkalýðssamband.
Heildarsamtökin eigi síðan að berjast
fyrir útlínunum við ríkisvaldið, -
skattamálum og félagslegum réttind-
um þjóðfélagsþegnanna. Stéttarfé-
lögin fái síðan tíma til að semja um
kaupgjaldsrammann. Takist það ekki
á tilteknum tíma taki heildarsamtök-
in við aftur.
Vinnustaðurinn grunn-
eining
En nú er vinnustaðurinn sterk ein-
ing hjá bókagerðarmönnum —tel-
urðu að vinnustaðasanmingar verði
enn mikilvcegari í framtíðinni en í
dag?
„Eg er sannfærður um að vinnu-
staðasamningar muni skapa félags-
mönnum betri kjör heldur en heildar-
kjarasamningar geta gert. Enda er
það í framhaldi af því sem ég sagði
áðan rökrétt: fyrst kemur heildar-
rammi með heildarsamtökum, síðan
kaupgjaldsrammi með stéttarfélög-
um og loks sértækir samningar á
vinnustöðunum. Vinnustaðasamn-
ingar hafa rutt brautina fyrir ýmiss
réttindi í okkar félagi eins og t.d.
vetrarorlofið sem fyrst var samið um
í vinnustaðasamningum í prent-
smiðju Þjóðviljans undir forystu
Ólafs heitins Bjömssonar á sinni tíð.
Nú er það 5 daga orlof hjá öllum
þeim sem unnið hafa 9 ár eða lengur
í faginu. Framtíðarmódelið er tví-
mælalaust þannig að vinnustaða-
samningar verði undirstaða bættra
kjara okkar fólks.“
Iðnaðurinn hefur átt í töluverðri
erlendri samkeppni - og virðist hafa
staðið sig nokkuð vel. Hver erþín af-
staða ykkar félags til þessarar sam-
keppni?
„Það hefur verði töluvert hart sótt
að innlenda markaðnum, þannig eru
t.d. um 30% bóka prentuð erlendis
fyrir jólin. Við höfum lýst yfir
áhyggjum vegna þessa. En það er
einnig á það að líta að við höfum
staðið okkur mjög vel, við erum
sjálfir að taka yfir prentverkefni frá
útlöndum, m.a. umbúðaprentun. Fag-
lega erum við í töluverðri sókn í ým-
issri gæðaprentun þannig að okkar
prentverk er eftirsótt. Erlend sam-
keppni virðist því ekki þegar á heild-
ina er litið hafa skaðað okkur, jafnvel
þvert á móti.“
Þetta viðtal er í tilefni af I. maí.
Eru baráttusinnuð verkalýðssamtök
að deyja út —vantar einhverja nýja
pólitík innt' verklýðsbaráttuna?
„Ég er ekki á því að það vanti
flokkapólitík inn í verkalýðshreyf-
inguna. Á sínum tíma voni stöðug
stórátök í HIP, sérstaklega milli
komrna og krata. Þó mér finnist sjálf-
um það liggja nánast í hlutarins eðli
að í forystumönnum verkalýðshreyf-
ingarinnar hljóti að slá jafnaðar-
hjarta, því annars væru menn ekki að
stússa í þessu, þá held ég að
flokkapólitfk megi ekki koma þar
nærri. Það er erfitt að misstíga sig
ekki þegar hún er komin í spilið,
flokkapólitíkin.“
Ósk um heildarsamtök
íslensks launafólks
Nú hefur þú verið nokkur ár íþess-
ari forystu —hvemig kanntu við þig
persónulega t'þessu starfi?
„Ég hef starfað að félagsmálum
prentara frá árinu 1962, þar af frá
1974 í stjómum félaganna. Formaður
Félags bókagerðarmanna hef ég ver-
ið frá 1993. Mér fínnst það ótvíræð-
ur kostur í þessu starfi að hafa verið
svo lengi og víða starfandi í félags-
málum stéttarsamtakanna. Því betur
sem maður þekkir innviðina þeim
mun betra er að starfa innan þessara
vébanda og ég kann vel við mig í
þessu starfi.“
Hver er þín ósk til islenskrar
verkalýðshreyfingar á þessum degi?
„Mín ósk á þessum degi er um
samstöðu íslensks launafólks, að ís-
lensk verkalýðsamtök sameinist um
ein stór heildarsamtök sem verði hin
mikla brjóstvörn félaganna gegn rík-
isvaldinu og fyrir grundvallarhags-
munum launafólksins."
Frá 1. maí árið 1970. Stéttarsamtök bókagerðarfólks hafa æfinlega sett
sterkan svip á verkalýðsbaráttu á íslandi.
Opinn fundur
um Lánasjóð
íslenskra
námsmanna
Biðin er á enda. Frumvarp stjórnarflokkanna um breyting-
ar á LÍN hefur loks litið dagsins Ijós.
Á fundinum verður gerð ítarleg grein fyrir þessu frumvarpi
og það skoðað ofan í kjölinn.
Meðal frægra kosningaloforða Framsóknarflokksins fyrir
síðustu kosningar var að teknar yrðu upp samtímagreiðsl-
ur og endurgreiðslubyrðin lækkuð - hefur það gerst með
þessu frumvarPI.
Dagskrá:
Hjálmar Árnason Framsóknarflokki og Svanfríður Jónas-
dóttir þingflokki jafnaðarmanna gera grein fyrir sínum
sjónarmiðum.
Umræður.
Fundurinn verður á Litlu Brekku, klukkan 20:30 mánudag-
inn 5. maí
Samband ungra jafnaðarmanna