Vísir - 17.01.1976, Blaðsíða 1
Laugardagur 17. janúar ¥ 66. árg. — 13.tbl.1976
Jarðvarmavirkjun fyrir Akureyri
Jafnstór Kröflu —
Helmingi ódýrari
baksíðufrétt
Geir Hallgrímsson forsœtisróðherra:
BRETAR FA VIKU FRFST Tll
AÐ KAUA HERSKIPIN HEMl
- ELLA ROFNAR STJÓRNMÁLASAMBAND RÍKJANNA
___i : — • ■ ' - ■ • ~ i i : : l _:_* C
Geir Hallgrimsson forsætisráðherra á fundi með innlendum og erlendum fréttamönnum i ráðherrabústaðnum siðdegis i ga'r.
• Geir Hallgrímsson,
f orsætisráðherra lýsti
yfir því í gær, að stjórn-
málaslit við breta kæmu
til framkvæmda um
næstu helgi, ef breska
rikisstjórnin hefði þá ekki
kallað herskip sín út fyrir
200 mílna fiskveiði-
mörkin.
• Ráðherrann benti á,
að nú væri gripið til
aðgerða miklu fyrr en
1958 og 1972.
• Úrsögn úr Atlants-
haf sbandalaginu eða
Sameinuðu þjóðunum
kæmi ekki til greina, þó
að kæra okkar fyrir þeim
hefði ekki enn borið
árangur. Þátttöku i þess-
um samtökum yrði hins
vegar að endurskoða með
hliðsjón af því, hvernig
þau tækju á málum.
• Svigrúm til
samninga er mjög
þröngt, sagði ráðherrann
ennfremur, og ríkis-
stjórnin myndi ekki gefa
loforð um að hætta að á-
reita bresku landhelgis-
brjótana, þó að herskipin
yrðu kölluð út.
Sjá frásögn á bls. 3.
Þrír dómkvaddir menn segja:
„Leander" siglt
vísvitandi á Þór
Þrir dómkvaddir
menn hafa komist að
þeirri niðurstöðu að
breska freigátan
Leander hafi visvitandi
siglt á varðskipið Þór 9.
þessa mánaðar. — Álit
þessara manna er
grundvöllur
ákvörðunar islensku
rikisstjórnarinnar um
stjórnmálaslit við
breta, og er nú einsýnt
að rikisstjórnin mun
lýsa yfir stjórnmála-
slitum.
Hinir dómkvöddu menn, þeir
Jónas Sigurðsson, Andrés
Guðjónsson, og Árni Guðjóns-
son, segja, að þeir séu sammála
um, að foringi fpeigátunnar
Leander F-109 hafi verið
staðráðinn i þvi að hindra
varðskipið Þór i að komast að
hópi breskra togara, sem voru i
grenndinni.
Orsök árekstursins sé sú, að
foringi bresku freigátunnar,
sem hafi verið að sigla uppi
varðskipið Þór, hafi visvitandi
og á mjög grófan hátt gerst
brotlegur við akvæði 24. greinar
Alþjóðasiglingareglna, en þar
segir meðal annars, að sérhvert
skip er siglir uppi annað skip
skuli vikja fyrir þvi.
Einnig telja þeir, að foringi
freigátunnar hafi visvitandi
gerst brotlegur við tvær greinar
sömu reglna, er mæla fyrir um
afbrigði, þegar hætta er á
ferðum og tilhlýðilegar
varúðarreglur.
Matsmenn segjast ekki sjá, að
skipherra Þórs hafi átt nokkurn
annan kost en að halda stefnu
sinni og ferð óbreyttri, og telja
að skipherrann hafi ekki getað
forðast árekstur.
Á þessari niðurstöðu hinna
dómkvöddu matsmanna mun
rikisstjórnin byggja ákvörðun
sina um stjórnmálasiit við breta
á fundi sinum á mánudag.
-ÁG.
Geir Hallgrimsson svarar fyrirspurn Miks Magnússonar fréttamanns
BBC. — Ljósm: JIM.