Vísir - 06.01.1977, Side 3
3
m ____
vism . Fimmtudagur 6. janúar 1977.
„Engar meiriháttar fram-
kvœmdir við Hrauneyja-
fossvirkjun á þessu ári"
— sagði Halldór Jónatansson, aðstoðarfram-
kvœmdarstjóri Landsvirkjunar, í viðtali við Vísir
„Fullyrðingar um, að með
ákvörðun um virkjun við
Hrauneyjafoss sé verið að rjúka
i framkvæmdir á þessu ári, sem
gangi i bága við áætlanir
þjóðarbúsins fyrir árið 1977, eru
á misskilningi byggðar eða þá
hreinn tilbúningur”, sagöi
Halldór Jónatansson, aðstoðar
framkvæmdastjóri Landsvirkj-
unar, I viötali við Visi.
„Það liggur fyrir”, sagði
hann, „að ekki veröur farið af
stað meö neinar meiriháttar
framkvæmdir á þessu ári, en
fyrst og fremst unnið að útboði
og gerð verksamninga, að
tæknilegum og fjárhagslegum
undirbúningi, og aö gerð vega
og vinnubúöa á virkjunarsvæð-
inu”.
„Virkjunarleyfið var veitt á
þeirri forsendu, aö náið samráö
yröi haft við eigendur Lands-
virkjunar, þ.e. riki og Reykja-
vikurborg, um framkvæmda-
hraðann og skiptingu
framkvæmda á milli ára fram
til 1981, þegar virkjunin þarf að
komast i gagnið”, sagöi
Halldór.
Aðspurður, hvort framkvæmt
yrði fyrir 400—600 milljónir á
þessuári, sagði hann: „Það er
ekki enn Ijóst, en mér sýnist
þessi tala vera of há frekar en
hitt. Og væntanlegir verktakar
munu fyrst hefja framkvæmdir
voriö 1978”.
Verksamningar í
september/október
„Það sem fyrst og fremst
verður gert á þessu ári”, sagði
hann, „er að bjóða verkið út,
taka tilboðum og gera verk-
samninga. Ég á von á þvi, að
ákvarðanir verði teknar um
útboðið innan tveggja mánaða
eða svo, og að tilboö veröi þá
opnuð á miðju sumri, en verk-
samningar frágengnir i septem-
ber/október.
Þá verður einnig unniö aö
ýmsum tæknilegum og fjár-
hagslegum undirbúningi, og
eitthvaö veröur gert til að búa i
haginn fyrir væntanlega
verktaka á sjálfu virkjunar-
svæðinu, svo sem, að lagðir
verða vegir og komið upp vinnu-
búðum,en þeim framkvæmdum
fylgir tiltölulega litill kostnaö-
ur”.
Miöaö viðinn-
lenda verktaka?
Það kom fram hjá Halldóri,
að ekki væri enn ákveöið hvern-
ig aö útboðinu yrði staðið.
„Hins vegar hefur komið til
tals að haga þvi þannig, að
auðveldara verði fyrir innlend
verktakafyrirtæki að bjóöa i
verkið. Þetta er hægt að gera
meö þvi að skipta verkinu I tvo
eða fleiri verkþætti, sem hver
um sig yrði þá viðráöanlegri
fyrir islenska verktaka.
Þá er einnig óákveöiö, hvort
boöið verður eingöngu út innan-
lands, eða hvort erlendir verk-
takar fá að gera tilboö”, sagöi
Halldór. Hann staðfesti, aö vit-
aö væri um áhuga hjá
júgóslavneska fyrirtækinu
Energoprosjekt, sem var verk-
taki við Sigölduvirkjun, á að
bjóða i Hrauneyjafossvirkjun.
„Fyrirkomulag útboösins
veröur frekar rætt i stjórn
Landsvirkjunar siðar i þessum
mánuöi, og samráð veröur haft
við riki og borg áður en ákvarð-
anir verða teknar”, sagði
Halidór. —ESJ.
Samráðviðríki og
borg um hraða
framkvæmda
GAF GÖGN UM FYRSTU
MÁNUÐIIEIKHÚSSINS
Þjóðleikhúsinu barst nýlega
sérstæð gjöf frá Andrési Þorm-
ar leikritaskáldi og fyrrum
gjaldkera.. Er það bók þar sem
hann hefur safnað öllum gögn-
um og umsögnum i blöðum um
vigslu Þjóðleikhússins, undir-
búning og starf þess á fyrstu
mánuðunum. Bókin er fagur-
lega innbundin og verður til
sýnis á Kristalssal á sýningum i
leikhúsinu næstu vikurnar.
Andrés Þormar er gamall
leikhúsunnandi og kunnur bóka-
safnari og mun til dæmis eiga
eitt merkasta safn islenskra
leikrita, sem til er. Hann sést
hér á myndinni við gjöf sina, en
með honum á myndinni eru
nokkrir af leikurum og starfs-
mönnum sem hafa starfað við
leikhúsið allt frá opnun þess.
Þeireru, talið frá vinstri: Valur
Gislason, Róbert Arnfinnsson,
Herdis Þorvaldsdóttir,
Ögmundur Kristófersson,
gefandinn Andrés Þormar,
Bjarni Stefánsson, Þorlákur
Þórðarson og Kristinn Daniels-
son.
Geysistór markaður
opnast í Bahrain
Flug Flugleiða þangað hefst 12. janúar
Bahrain flug Flugleiða á að
hefjast tólfta þessa mánaðar og
er undirbúningur nú á lokastigi.
Undirbúningur undir þetta flug
hefur staðið lengi og meðal ann-
ars falist i umfangsmikilli sölu
og auglýsingastefsemi I Banda-
rikjunum og Evrópu og svo auð-
vitað rikjunum viö Arabaflóa.
Farþegarnir sem Flugleiðir
sækjast aðallega eftir er starfs-
lið hinna fjölmörgu alþjóðlegu
fyrirtækja sem reka starfsemi i
Saudi-Arabiu og löndunum við
Arabaflóa.
Þessir starfsmenn hafa flestir
fjölskyldur sinar með sér. Sem
dæmi um f jölda þeirra má nefna
að i Bahrain-riki einu eru um
sjö þúsund bandariskir starfs-
menn. Að meðtöldum fjölskyid-
um verða þvi bandariskir
þegnar i þessu landi einu ekki
færri en tuttugu þúsund.
Við þetta bætast svo banda-
rikjamenn i öðrum rikjum
þarna suðurfrá og svo evrópu-
búarnir. Starfsráðningu banda-
riskra og evrópskra starfs-
manna þarna er þannig háttað
að þeir vinna ekki nema tvo
mánuði i senn og eiga svo fri i
einn mánuð. Þetta getur þvi
gert að minnstá kosti fjórar
ferðir á ári til Bandarikjanna
eða Evrópu, fyrir hvern starfs-
mann og fjölskyldu hans.
Við þetta bætast svo þeir sem
tiöum þurfa að ferðast þarna i
milli i viðskiptaerindum. Það er
þvi ljóst að þetta er stór og mik-
. ill markaður sém Flugleiðir
fara inná.
— ÓT
REYKINGASTOPP í
VESTMANNAEYJUM
Viltu hætta að reykja? Þá þvi hvernig menn eiga að hætta.
skaltu bregða þér i félags- Slik námskeið hafa verið
heimilið I Vestmannaeyjum kl/ haldin viða um landið og að sögn
20.30 kvöld hvert frá 9—13. gefið góða raun. Innritun og
janúar. Þar verður tslenska upplýsingar er að fá i símum
bindindisfélagið með námskeið i 1167 og 1439. —ÓT.
______
Reykjavik
Brautarholt 4,
simi 20345 — 24958.
Drafnarfell 4
(Breiðholti), simi 74444.
Félagsheimili Fylkis (Arbæ),
simi 38126.
Kópavogur simi 38126
Seltjarnarnes simi 38126.
Hafnarfjörður simi 38Í26.
I lnnritun
Idaglega
frá klukkan
10-12 og 1-7.
Keflavik
Innritun i Tjarnarlundi mánudaginn
10. janúar kl. 1-3 og i sima 1690.
Selfoss
Innritun i Tryggvaskála mánudaginn
10. janúar kl. 1-3 og i sima 1408.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
SiÐASTl INNRITUNARDAGUR
FöSTUDAGINN 7. JANUAR.