Vísir - 06.01.1977, Síða 4
6. janúar 1977.
vism
Þetta myndaefni fann norskur fréttaljósmyndari sér tii tákns um
áramótin. — „Vaktaskiptin”, kallaöi hann myndina, og viö veröum
aö segja eins og er, aö þaö var hreint ekki illa til fundiö.
Vaktaskipti
Met-kornuppskera
Landbúnaðarráðherra
Sovétríkjanna, Valentin
Mesyats, skýrði frá því í
gær, að metkornuppskera-
hefði orðið hjá sovétmönn-
um 1976, eða 223,8 milljónir
smálesta.
Var það 80 milljón smá-
lestum meira af korni en
árið 1975.
„Hvort sem það er þurrkaár
eða ekki getur þjóðin ávallt verið
viss um, að landið mun leggja
henni til nóg af brauði og korni,”
sagði Mesyats ráðherra á fundi
með blaöamönnum.
Mesyats tók við embætti land-
búnaðarráðherra i fyrra, eftir að
forvera hans var vikið frá eftir
misheppnaða uppskeru og korn-
eklu.
Hann sagði, að sykurrófuupp-
skeran hefði ekki náð settu marki
áætlunarbúskaparins, sem var 85
milljón smálestir.
Olíuskip týnt í
heila viku
Olian, sem fannst á reki i gær,
verður tekin til efnagreiningar til
glöggvunar á þvi, hvort hún gæti
hafa komið úr skipinu.
Leitarf lugvélar hafa
fundið dularfulla oliufláka
á N-Atlantshafi i íeit sinni
að oliuskipi frá Panama,
sem hvarf fyrir viku.
Oliuskipið „Grand Zenith”
verður talið af, ef það finnst ekki
fyrir kvöldið, þvi að ekkert hefur
til þess spurst og ekki fundist
tangur eða tetur af þvi, þrátt fyrir
mikla leit úr lofti siðustu daga.
Það siðasta, sem til Grand
Zenith heyrðist, var fyrir viku, en
þá sagði i skeyti frá skipinu, að
það væri statt um 60 milur út af
Yarmouth á Novia Scotia. Hvass-
viðri og stjórsjóir neyddu skipið
til að slá af til að halda sjó.
Maimréttind-
armeimsótt-
ir til saka í
Moskvu
Sovésk yfirvöld hafa nú
loks höfðað sakamál á
hendur mannréttinda-
nefnd, sem hefur orðið
miðdepill andófsaðgerða
i Moskvu frá því að hún
var sett á laggirnar í maf
i fyrra.
Embættismenn dómsmála-
ráðuneytisins létu þetta uppi i
gær, þegar þeir yfirheyrðu
eðlisfræðinginn Yur Orlov, for-
mann tólf manna nefndar, sem
einsetti sér að fylgjast með þvi,
að Sovétrikin stæðu við mann-
réttindaákvæði Helsinkisátt-
málans.
Dr. Orlov var tekinn, þar sem
hann var staddur á götu i gær á
leið til fundar við blaðamenn.
Ætlaði hann að skýra þeim frá
húsleitum, sem hann og fjórir
aðrir félagar nefndarinnar voru
látnir sæta á þriðjudag. —
Fimm menn hrintu Orlov inn i
bifreið, sem ók i loftinu burt. I
stöðvum öryggislögreglunnar
var hann yfirheyrður i þaula i
sjö klukkustundir, áður en hon-
um var sleppt.
Nefndarmönnum er gefið að
sök að útbreiða óhróður gegn
Sovétrikjunum, eins og sést hafi
á skjölum, sem fundust i ibúð-
um nefndarmanna i fyrradag.
Nefndin hefur sætt fyrr aðkasti i
leiðurum flokksblaða, sem
borið hafa henni á brýn, að
reyna að koma þvi óorði á
Sovétrikin, að þau standi ekki
við gerða millirikjasamninga
(Helsinkisáttmálann.)
Roy Jenkins
forseti EBE
Roy Jenkins, fyrrum
innanrfkismálaráðherra
breta, tekur í dag við for-
setaembætti fram-
kvæmdaráðs Efnahags-
bandalagsins.
Jenkins er ákafur stuðnings-
maður hugsjónarinnar um sam-
einaða Evrópu, en kemur til með
að glima mest við verkefni eins
og offramleiðslu mjólkurafurða
EBE-landanna, og spurninguna
um aðild Grikklands og Portúgals
að EBE.
I forsetatið hans munu fara
fram kosningar til Evrópuþings-
ins, þar sem aðildarþjóðirnar
kjósa i fyrsta sinn beint fulltrúa á
þingið.
Viðkvæmasta ágreiningsmálið,
sem kemur til með að krefjast
mestrar athygli af hinum nýja
forseta, er landbúnaðarstefna
EBE sem jafnan hefur reynst
þrætuefni hinum niu aðildarlönd-
um. Og enn hefur ekki verið
Roy Jenkins nýi forseti fram-
kvæmdaráös EBE.
ákveðið, hvernig fiskveiðum skuli
skipt milli aðildarrikjanna, eftir
að EBE lýsti yfir 200 milna fisk-
veiðilögsögu sinni.
Karatemeistari til
einvígis við tígur
Japanskur karatemeist-
ari sagöist reiðubúinn að
berjast við Bengaltígur á
knattspyrnuvellinum í
Haiti í næsta mánuði með
trélurk einan að vopni.
Mamoru Yamamoto, sem tal-
innereinn leiknastikaratemeist
ari Japans, sagði blaðamönnum
i gær, áður en hann lagði af stað
til Haiti, að hann og tigrisdýrið
yrðu lokuð inni i 15 metra breiðu
búri.
„Min hernaðaráætlun gengur
út á að stinga lurknum upp i
kjaftinn á tigrisdýrinu og kæfa
það,” sagði meistarinn. — Hann
hefur rakað allt hár af höfði sér,
svo að skepnan geti ekki slæmt
klónum i það.
Yamamoto hefur fengið loforð
um 400þúsund dollara sigurlaun
fyrir einvigið.