Vísir - 06.01.1977, Síða 5
Jarðskjálftarnir í
Kína kostuðu nœr
700 þúsund lífið
//Morgunpósturinn",
eittaf dagblöðum Suður-
Kina, vitnaði í leyniskjöl
kinverska kommúnista-
flokksins og heldur því
fram, að um 700.000 hafi
farist i jarðskjálftunum
miklu í Tangshan í Norð-
ur-Kina i júlí siðasta
sumar.
Opinberlega hafa engar tölur
veriö birtar i Kina um mann-
skaðann af völdum þessara
hrikalegu jarðskjálfta i
einu helsta námavinnsluhéraði
Kina. Þó lét Hua Kuo-feng, for-
maður, svo ummælt i siðasta
mánuði að tjón og dauðsföll af
völdum skjálftanna hefðu verið
slik, ,,að fádæmi væri i mann-
kynssögunni”.
Vestrænir fréttamenn i Pek-
ing höfðu giskað á, að um
100.000 hefðu farist.
„Morgunpósturinn” vitnar i
heimildir, sem það segir vera
leyniskjöl flokksráðsins i Hopei-
héraði. Voru það skýrslur, sem
lagðar voru fyrir almanna-
varnaskyndifund vegna björg-
unaraðgerða i ágúst. Blaðið
segir, að skýrslur þessar sýni,
að 655,237 manns hafi farist,
79.000 hlotið örkuml og önnur
700.000 slasast minniháttar.
I skýrslum þessum er lokið
miklu lofsorði á hetjudáðir,
sem björgunarmenn hafi drýgt
við hiálDarstarfið . „Margir
verkamenn, snauðir og lægri-
stéttar bændur fórnuðu lifi sinu i
tilraunum til þess að bjarga
meðborgurum sinum,” skrifar
„Morgunpósturinn”.
Mesti mannskaði, sem sögur
fara af i jarðskjálftasögu Kina,
varð i Shensi-héraði árið 1556,
þegar 830.000 fórust. — A þess-
ari öld fórust 180.000 i jarö-
skjálfta i Kansu árið 1920.
Flugmaðurinn
Byelenko byrj-
aður sitt nýja
líf í USA
Vestur-þýska tímaritið
„Stern" segir að Victor
Byelenko, sovéski flug-
maðurinn, sem leitaði
hælis með MIG-25 her-
þotu sína i Japan og fékk
landvist í Bandaríkjun-
um, hafi skýrt banda-
rísku leyniþjónustunni
frá árásaráætlunum sem
sovétmenn hafa til taks.
Stern skrifar einnig, að
Byelenko hafi sagt frá fyrir-
mælum, sem sovéskir flugmenn
verða að hlýöa um að brotlenda
flugvélum sinum ef nauðsyn
Japanskir og bandariskir
hernaðarsérfræðingar tóku
MIG-þotuna sundur stykki fyrir
stykki til rannsóknar.
krefði og óvinaskotmörk að
hætti japanskra sjálfsmorðs-
flugmanna seinni heimstyrj-
aldarinnar.
Þeir, sem snúa heim úr
árásarleiðangri, án þess að
hlýða þessum fyrirmælum, eiga
á hættu að verða dregnir fyrir
Byelenko I fylgd japanskra öryggisvaröa á leiö til Bandarikjanna,
þar sem hann fékk hæli sem pólitiskur flóttamaöur. — Siöan hefur
hann tekið stakkaskiptum i útliti.
herrétt og skotnir, eftir þvi sem
Byelenko sagði.
Blaðið byggir þessar upplýs-
ingar á viðtali Frank P. Heigl
hjá Stern við ónefndan starfs-
mann CIA, bandarisku leyni-
þjónustunnar.
Hefur Stern þaö eftir
Byelenko að baráttuhugur her-
flugmanna sér með daprara
móti i Sovétrikjunum vegna lé-
legra launa og litilla möguleika
á að hækka i tign. — Ennfremur
segir Byelenko, að slys séu tið
meðal herflugmanna vegna lé-
legs viðhalds á vélum þeirra.
Byelenko sagði yfirheyr-
endum sinum, að einungis þeir
flugmenn, sem væru að taka út
hegningar, gegndu herþjónustu
i Siberiu og suðausturhluta So-
vétrikjanna.
„Mennirnir þar eru eins og
úlfar, gráðugir i sérhvert tæki-
færi til þess að hækka sig aftur i
áliti og gripa til fifldjarfra til-
tækja i flugi sinu i grennd við
könnunarflugvélar kinverja og
bandarikjamanna i von um hól.
Þannig vonast þeir til þess að
verða fluttir til herþjónustu
aftur i vesturhluta Sovétrikj-
anna,” hefur blaðið eftir
Byelenko.
Hann bætir þvi ennfremur
við, að þeir flugmenn einir, sem
trúir séu flokknum, eða þeir,
sem hafðir eru tilbúnir til bar-
daga, fái að fljúga vélum full-
búnum öllum bardagatækjum
CIA hafði i fyrstu grunsemdir
um að Byelenko væri ekki
flóttamaður, heldur útsendari
KGB, þegar i ljós kom að Fox-
bat-migþota hans var ekki búin
öllum þeim vopnum, sem þær
vélar annars hafa. — Vélin, sem
hann nauðlenti i Japan, var tek-
in i sundur stykki fyrir stykki og
rannsökuð af hernaðarsérfræð-
ingum Japans og Bandarikj-
anna.
Byelenko reyndi að gera CIA
grein fyrir þvi, að flugmenn eins
og hann, sem sendir hofðu verið
i hegningarskyni til Siberiu,
flygju úrsérgengnum vélum og
illa búnum. — Stundum voru
teknir úr þeim hlutir og nótaðir
sem varahlutir i aðrar, þvi að
varahlutageymslur standa
tómar og viðhald i ólestri, hefur
Stern eftir flóttamanninum.
Blaðið segir, að flugmaðurinn
hafi skömmu eftir komuna til
Bandarikjanna fengið tauga-
áfall af álaginu, sem fylgdi yfir-
heyrslunum. CIA-erindrekarnir
hlifðu honum hvergi, meðan
þeir grunuðu hann um að vera
flugmann KGB. Hann jafnaði
sig þó á nokkrum dögum og
reyndist leyniþjónustunni haf-
sjór upplýsinga.
Stern segir, aö Byelenko sé nú
óþekkjanlegur maður frá þvi er
hann kom til Japans. Hann hafi
gengist undir plastskurðaðgerö
til breytingar á andlitsfalli,
dökkt hár hans hafi verið litað
ljóst, kollvik hækkuð meö
rakstri og augabrúnir sniðnar
til nýrrar lögunar. Þar á ofan
hefur hann látið sér vaxa yfir-
vararskegg sem litað hafi verið
ljóst, og til enn frekara' öryggis
gangi hann með snertilinsur,
sem geri hann bláeygan i stað
brúneygan áður.
Blaðið segir, aö honum hafi
verið smyglað úr fylgsni CIA i
Washington i sendibil til ókunns
staðar ineð ný persónuskilriki,
nýtt nafn og bandarisk borgara-
réttindi. Að launum fyrir upp-
lýsingarnar fær hann lifeyri,
sem nemur 1500 dölum á
mánuði til þess að byrja sitt
nýja lif.
MIG-25 þota Byelenko á flug-
vellinum i Hakado i Japan.