Vísir - 06.01.1977, Page 7
7
vísjh
Fimmtudagur 6. janúar 1977.
„Sá skákmaður sem best teflir
á mótinu, vinnur aldrei 1. verð-
laun”,sagði Tartakower eitt sinn.
„Hann fær 2. verðlaun og verður
næstur á eftir heppnasta manni
mótsins.” Þetta hefði oft mátt
segja um Keres, sem lfklega skip-
aði 2.;&ætiá stórmótum, oftar en
nokkur annar. Hér eru lok frá
skákmótinu i Ostend 1937, þar
sem Keres tókst að ná 1. sætinu,
að vísu með Bandarikjamannin-
um R. Fine.
Hvítur leikur og vinnur.
Hvitt: Keres
Svart: Fine
1. Rxh7! Rxh7
2. Hh3 Dcl
3. Dxh7+ Kf8
4.Hh —e3 d4
5. Dh8+ Ke7
6. Dxg7 Hf8
7.DÍ6 + Ke8
8.e6! gefið.
-
t PHILIP MORRIS Evrópu-
bikarkeppninni i Ostende sigruðu
Belgarnir Rubin og Van Spaen-
hoven. Rubin er gamalreyndur
landsliðsmaður en hinn er ungur
og upprennandi.
Hér er varnarviðfangsefni frá
keppninni. Staðan var n-s á hættu
og norður gaf.
♦ A-6-5-2
V A-K-10-9
♦ 9-8-6
♦ 9-5
+ 9-8-3
* G-5
4 K-D-7
+ K-8-7-6-3
Þar sem Rubin og Spaenhoven
sátu n-s, gengu sagnir á þessa
leið:
Norður Suður
lTx) 1 Gxx)
2 Lxxx) 3 G
x) Gervisögn
xx) Sterkt, krafa um umferð
xxx) Lágmarksopnun
Vestur spilar út laufasexi,
fimmið, drottning og ás. Sagnhafi
spilar hjartasjö, drepur með
kóng^ spilar siðan tigulniu.
Austur lætur þristinn, suður
fimmið og vestur drepur með
drottningu.
Hvernig spilar þú vörnina með
vesturspilin?
A morgun fáum við lausnina.
f
VÍSIR
vfsar á
vfdskípiin
-
Pessir krakkar fá að
skella sér beint i sund-
laugina í öllum fötum.
Sjálfsagt myndu fleiri
krakkar þiggja það, en
þessir eru látnir fara i
laugina i öllum fötum i
sérstökum tilgangi.
Þau eru reyndar að
læra að synda i skóla i
Munchen i Þýskalandi
og þeim er lika kennt
að bregðast rétt við, i
neyðartilfelli, ef þau
dyttu óvart i vatn til
dæmis. Og þá er vist
enginn timi til að fara
úr fötunum.
Nú koma
plöntur í
stað
gœludýra
Nú eru amerikanar að snúa
sér að plöntuin i stað gæludýra
áður. Aineriskir sálfræðingar
haia koinist að þcssari niður-
stöðu, enda segja þeir að allir
þarfnist einhvers lifandi til þess
að bera umhyggju fyrir.
„Að hugsa um plöntur færir
fólk nær nátturunni” segir
sálfræðingur nokkur dr. Lendell
Braud i Houston. „Það veitir
fólki lika tækifæri til að vinna
með höndunum og það er viss
flóttifrá þvi að hugsa of mikið”.
„Fólk hefur alltaf þarfnast
einhvers til að lifa fyrir, eða til
að sjá um. Nú snýr það sér i
auknum mæli að plöntum i stað
gæludýra. Það eru svo margir
sem búa i ibúðum þar sem ekki
er aðstaða fyrir dýr eða þá að
bann er við þvi. Plöntur eru lika
þægilegri.”
„Plöntur eru mjög mikilvægar
fyrirmörgum. Fólki likar velsú
hugmynd að plöntur hafi tilfinn-
ingu og þörf fyrir ástúð. Jafnvel
þó aldrei hafi verið sannað að
plöntur þrifist betur ef eigandi
þeirra talar við þær, þá vilja
milljónir manna trúa þessu”.
„Ég hef heyrt fólk ala um
plöntur eins og þær væru börn”,
segir annar sálfræðingur,
Melvin Gravitz i Washington.
„Það er svo sem ágætt, og það
er lika ágætt að fólk tali við
plöntur sinar — svo lengi sem
þær svara ekki....”
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
,,Það er ágætt að fólk tali við plönturnar sinar, —svo lengi sem þær svara
ekki...”, segir sálfræðingur nokkur.
i
Sértilboð Týli hf.
Afgreiðum jólamyndirnar í albúmum
Nœstu vikur fylgir myndaalbúm hverri Htfilmu er
við framköllum viðskiptavinum vorum að kostnaðarlausu|
Niyndaalbúm þessi eru 12 mynda, handhœg og fara vei i veski
Varðveitið minningarnar í
varanlegum umbúðum
p— Austurstrœti 7