Vísir - 06.01.1977, Side 19
<
Þrettándinn í útvarpinu
í dag er siðasti dagur jóla, þrettándinn. Þrett-
ándinn hefur lengi verið dagur álfa og huldufólks.
þrettándabrennur eru látnar loga, og fólk gerir
sér margt til skemmtunar.
útvarpið lætur ekki sitt eftir liggja og flytur i
dag og kvöld efni, nátengt þrettándanum.
Klukkan 16.40 er barnatimi sem ber nafniö jóla-
lok. Klukkan 20.00 er á dagskrá skemmtiþáttur
eftir ólaf Haraldsson og klukkutima siðar leikur
lúðrasveitin Svanúr i útvarpssal. Á eftir leik
hennar les Stefán Karlsson handritafræðingur
þrettándapredikun frá tóiftu öld.
Utvarp klukkan 16.40:
Efni um þrettándann í
barnatíma dagsins
Haukur Agústsson og Hilda
Torfadóttir sjá um barnatfma
útvarpsins i dag klukkan 16.40.
Þátturinn byrjar á þvi að tvær
stúlkur, Maria Björg Kristjáns-
dóttir og Björk Hreinsdóttir lesa
frásagnir úr þjóðsagnasafni
Jóns Arnasonar um þrettánda-
nótt og flutning álfa. Frásagn-
irnar heita Þrettándanótt og
álfadans i nýársnótt.
Þá les Böðvar Guðlaugsson
kvæði eftir sig um Þrettándann
og einnig stutta frásögu um
þrettándabrennu á Borðeyri,
frá þvf að hann var ungur
drengur.
Síðan les Maria Björg smá-
söguna „Gæfukúlurnar” eftir
Jennu og Hreiðar Stefánsson.
Þar segir frá tveim krökkum
sem fá jólasveinabúning i jóla-
gjöf og einnig gæfukúlurnar,
sem hafa þá undarlegu og
skemmtilegu náttúru að öllum
sem liður illa á einhvern hátt,
batnar krankleikinn, borði þeir
eina kúlu, Krakkarnir fara á
kreik á jólanótt i búningunum
og hitta margt fólk, bæöi
hamingjusamt og ekki
hamingjusamt, og þau gáfu
kúlurnar öllum þeim sem eitt-
hvað þjáði.
A milli atriðann verða leikin
lög af plötum, jólasveinavisur
og lög um þrettándann.
Þátturinner fimmtiu minútna
langur.
—GA
Benedikt Arnason
Guðrún Stephensen
Jörundur.
Hjalti Kögnvaidsson.
Útvarp klukkan 21.35:
ÚR ÍSLENSKU
HÓMELÍUBÓKINNI
„Þetta eru tvær predikanir úr
homeliubókinni islensku”, sagði
Stefán Karlsson handritafræð-
ingur þegar Vfsir spurðist fyrir
um efni það sem hann flytur i
kvöld. ,,Þá fyrri les ég i kvöld
og þá siðari eftir viku”.
Þær eru meðal elstu islensku
predikana sem varðveist hafa
ogeru að finna i hómeliubókinni
svo nefndu, sem skrifuð var um
árið 1200. Predikanirnar i bók-
inni eru rómaðar fyrir snjallt
málfar og stil. Þessi bók er öll-
um almenningi litt þekkt. Hún
var gefin út i Lundi fyrir
hundrað árum, og þá i aðeins
200 eintökum. Þannig að hún
hefur ekki farið um hendur
margra.
Nu er hins vegar verið að
vinna að nýrri útgáfu hennar i
handritastofnuninni, svo
væntanlega kemur homeliubók
aftur út innan skamms.
Predikunin sem Stefán les i
kvöld er að sjálfsögðu þrett-
ándapredikun.
— GA
Útvarp klukkan 20.
Amnesíu-veiran og
týnda f jallkonan
Amnesiuveiran og týnda fjall-
konan heitir dagskrárliður i út-
varpinu i kvöld. Jónas Jónasson
stjórnar þættinum, sem inni-
heldur léttmeti eftir Ólaf Har-
aldsson.
Ölafur Haraldsson hefur
áður skrifað fyrir útvarp meðal
annars þættina um Jónas og
fjölskyldu, sem Bessi Bjarnason
og Margrét Guðmundsdóttir
léku i.
Amnesiuveiran er gleymsku-
veira og þeir sem uróu íyrir
barðinu á henni misstu minnið.
Eins og gefur að skilja kom það
sér misjafnlega fyrir menn,
bæði vel og illa.
1 þættinum koma fram leikar-
arnir Benedikt Arnason.Hjalti
Rögnvaldsson og Helga Steph-
enssen. Þá kemur eftirherman
Jörundur fram og einnig heyrist
i nokkrum útvarpsröddum.
Þátturinn hefst klukkan 20.00.
—G A
.gpjMai
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00,8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
8.50. Moreunstund
barnanna
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkvnningar.
A frivaktinni Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Aldarafmæli reglu
Sánkti Franciskussystra
Torfi Ólafsson flytur erindi.
15.00 Miðdegistónleikar Julius
Katchen og Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leika
Pianókonsert nr. 1 i C-dúr
op. 15 eftir Beethoven.
Tékkneska filharmoniu-
sveitin leikur
„Rósamundu”, leikhústón-
list op 26 eftir Schubert,
Jean Meylan stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkvnningar
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar
16.40 Jólaiok Barnatimi i
umsjá Hauks Ágústssonar
og Hildu Torfadóttur. Maria
Björg Kristjánsdóttir og
Björk Hreinsdóttir lesa frá-
sagnir úr Þjóðsagnasafni
Jóns Arnasonar um
þréttándanótt og flutning
álfa Böðvar Guðlaugsson
les kvæði sitt „Sveinka jóla-
svein” og Maria Björk les
smásöguna „Gæfukúlurn-
ar” eftir Jennu og Hreiðar
Stefánsson.
17.30 Lagið mitt Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólfa ára
aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Samleikur i útvarpssal
Björn Arnason og Hrefna
Eggertsdóttir leika á fagott
og pianó. a. Þrjú smálög
eftir Halsey Stevens. b.
Sónata i f-moll eftir Tele-
mann. c. Konsertþáttur eft-
ir Gabriel Piérné.
20.00 Amnesiu-veiran og
týnda fjallkonan Léttmeti
eftir ólaf Haraldsson.
Stjórnandi Jónas Jónasson.
21.00 Lúðrasveitin Svanur
leikur i útvarpssal Stjórn-
andi: Sæbjörn Jónsson.
21.35 Úr islensku hómiliubók-
inni Stefán Karlsson hand-
ritafræðingur les
þrettándapredikun frá
tólftu öld.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Minningabók Þorvalds
Thoroddsens”
22.40 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.