Vísir - 06.01.1977, Page 24
VlSXR
Fimmtudagur 6. janúar 1977.
Hafsíld í
gang eftir
mónaða-
mót
,,Það er erfitt að segja
nákvæmlega hvenær verk-
smiðjan kemst i gang, en það
verður i fyrsta lagi upp úr
mánaðamótunum”, sagði Jón
Ingvarsson framkvæmda-
stjóri er Visir spurði hann i
morgun um hvenær loðnu-
verksmiðja Hafslldar á
Seyðisfirði kæmist i notkun
eftir ketilsprengingu sem þar
varð fyrir áramótin.
Að sögn Jóns verður nýr
ketill tilbúinn i Bretlandi 17.
eða 18. janúar og kemst hann
þá I besta falli hingað 24. til 25.
janúar.
Hafsildarverksmiðjan getur
afkastaö 400 tonnum á sólar-
hring og munar um að missa
minna úr loðnuvertiðinni.
Ketilsprengingin er þriðja
stóra áfall verksmiöjunnar.
Snjóflóð féll á hana árið 1967
og i hitteöfyrra og settu hana
þá úr leik.
—EKG
23 órekstr-
ar í gœr
— en enginn
snemma í morgun
Tuttugu og þrir árekstrar
urðu I Reykjavlk I gærdag.
Sem betur fór varö enginn stór
árekstur þrátt fyrir þennan
fjölda og lltil meiðsl. Vitað var
um einn ökumann sem skarst
á augabrún þegar billl hans
rakst utan i grindverk við
Grafarholt.
Arekstrum tók að fjolga I
gær um leið og fór aö skafa. 1
morgun þegar Vísir hafði
samband við slysarannsókna-
deild lögreglunnar um klukk-
an níu hafði hins vegar enginn
árekstur orðið. Mikil hálka
var þó á götunum, en menn
hafa reynt að fara varlega.
— EA
LOÐNAN:
„Ágœtis
útlit"
„Þáð er ágætis útlit”, sagði
Andrés Finnbogason hjá
Loðnunefnd er Vlsir hafði
samband við hann i morgun.
— Tveir bátar tilkynntu um
afia i nótt. Ásberg RE með 340
tonn og Grindvikingur GK
með 480. Báðir fara til Siglu-
fjarðar. Pétur Jónasson haföi
ennfremur tilkynnt um 400
tonn og búist er viö að hann
sigldi til Raufarhafnar.
Ágætis veiðiveður hefur
verið á miöunum. Árni
Friðriksson tilkynnti 1 morgun
um að hann hefði fundiö loðnu
nokkru dýpra en veiðisvæðið'
er og taldi hann þar vera enn
meira magn á ferðinni. Frost
er mikið á miðunum og skipin
fsast.
Rannsóknarskipiö Bjarni
Sæmundsson átti aö leggja af
stað I leiðangur i gær og vera
úti af Vestfjörðum. Hann
komst ekki vegna einhverrar
bilunar. —EKG
ARNARFLUG óskar eftir
leyfí til áœtlunarfíugs
Beiðni félagsins um leyfí til reglubundins flugs
til ýmissa landa komin til samgönguráðuneytisins Jt i w i ■
Arnarflug hefur á starfstima sfnum flogið margar leiguferðir til
ýmissa evrópulanda með hópa héðan, en villnú hefja áætlunarflug.
Vlsismynd: ÞJM.
„Samgönguráðuneytinu barst
bréf frá Arnarfiugi á gamlárs-
dag þar sem óskað er eftir leyfi
til reglubundins áætlunarflugs
til ýmissa landa”, sagði
Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri I samtali við VIsi.
Er hann var spurður nánar
um hvaða lönd þar væri um að
ræða, kvaðst ráðuneytisstjórinn
ekki geta nefnt þau á þessu stigi
málsins, en sagði þó að annars
vegarværiþar um aðræða lönd,
sem bæði Flugfélag Islands og
Loftleiðir hefðu leyfi til að
fljúga til I reglubundnu
áætlunarflugi og hins vegar
önnur lönd, sem við hefðum
enga samninga við.
„Það má segja, að auðveld-
ara sé að fást við afgreiðslu
þessa máls að þvi er snertir
slðarnefnda landahópinn”,
sagði Brynjólfur „þvf að þar
verða ekki árekstrar við aðra
islenska hagsmuni, en þó geta
samningaviðræður við lönd,
sem ekkihefur áður verið samið
við tekið langan tima”.
Brynjólfur kvað það ekkert
nýtt að minni flugfélögin sæki
um leyfi til áætlunarflugs, dæmi
væru um slikt varðandi Air Vik-
ing fyrir nokkrum árum, en það
leyfi hefði ekki fengist. Frakt-
flug hefði á sinum tima fengið
ley.fi til þess að stunda
áætlunarflug I samvinnu viö
tailenska aðila, en það hefði
ekki gefist vel, og Flugfélagið
Iscargo hefði nú leyfi til reglu-
bundins flugs til Hollands.
Að sögn ráðuneytisstjóra
samgönguráðuneytisins verður
málaleitan Arnarflugs tekin
fyrir hjá flugráði á næstunni og
sagði hann óvist um hver niður-
staða málsins yrði þar. —ÓR
Jóni Ársæli virtist það vera næsta létt verk að sveifla skóflunni
og dreifa salti á gangstéttir við Laugaveginn i Reykjavfk i gær.
Jens ljósmyndari VIsis hitti hann á förnum vegi, þar sem hann
ásamt fieirum vann við að eyða hálkunni. Jón varð áttræður
fyrir þrcmur dögum og brosti hinn hressasti þrátt fyrir nepjuna
og aldurinn. Ljósmynd VIsis Jens.
Nómsmenn ósáttir við úthlutunarreglurnar:
Stefna lánasjóði og
tveimur ráðherrum
Námsmenn hafa nú ákveðiö
að stefna Lánasjóöi islenskra
námsmanna, menntamálaráð-
herra og fjármálaráðherra
vegna ú t h1utunarreg 1 n a
lánasjóðsins sem þeir telja að
brjóti i bága við lög um námslán
er Aiþingi setti á siðasta ári.
„Formlega er einn stefnandi
námsmaður erlendis, en þetta
verður rekið sem prófmál”,
sagði Guðmundur Sæmundsson
námsmaður i samtali við Visi i
morgun. „Þetta er aðeins fyrsta
málið sem við höfum i huga. En
við álitum fleiri atriði ólögleg i
reglugerðinni og ástæðu til að
stefna, verði þeim beitt.”
Það atriði sem nú er stefnt út
af er að ekki er nú tekið tillit til
fjölskyldustærðar og fram-
færsluþunga þegar upphæð
námslána er ákveðin, að sögn
Guðmundar Sæmundssonar.
1 fyrra var bætt við fram-
færsluupphæðina við hvert barn
sem var á framfæri foreldra og
ennfremur var tekið tillit til
þess ef maki vann ekki úti.
Núna er að sögn Guðmundar að-
eins tekið tillit til barna, við
lækkun námslána. „Þetta
teljum við að brjóti I bága við
lög”, sagði Guðmundur Sæ-
mundsson.
—EKG
Skemmdir á bátum
Tveir bátar slitnuðu frá
bryggju i höfninni i Vestmanna-
eyjum I nótt og fleiri bátar losn-
uðu að einhverju ieyti, en ekki
þó alveg. Mikið rok var i Eyjum
i nótt og mældust 10 vindstig á
Stórhöfða. I morgun þegar Visir
hafði samband við lögregluna
þar, var enn svipaður vindhraði.
Bátarnir tveir, sem slitnuðu
alveg frá eru um 60 til 70 tonn.
Þá rak innar i höfnina og rákust
þar á litla báta og ollu einhverj-
um skemmdum á þeim. Fimm
aðrir bátar i höfninni slitnuðu að
einhverju leyti frá, en þá var
hægt að binda aftur. Urðu
margir að fara á fætur i Eyjum i
nótt til að huga að bátum sinum.
— EA
Eigum Viðlagasjóðs róð-
stafað án lagaheimildar?
„I athugasemdum þeim, sem
ég lét fyigja skýrslu úttektar-
nefndarinnar til rikisstjórnar-
innar, sagði ég m.a., að ég teldi
störf nefndarinnr ails ekki kom-
in það langt, að unnt væri að
nefna einhverjar tölur um fjár-
hagsvanda Vestmannaeyja-
kaupstaðar”, sagði Þráinn Egg-
ertsson, hagfræðingur I viðtali
við Visi i morgun.
tittektarnefnd þessi var skip-
uð af félagsmálaráðherra 23.
janúar 1976, og skilaði hún
bráðabirgðaskýrslu fyrir ára-
mótin til ráðuneytisins. Þegar
Visir leitaði frétta af skýrslunni
hjá félagsmálaráðuneytinu, var
blaðamanni visað til forsætis-
ráðuneytisins, sem aftur visaði
öllum fyrirspurnum til baka til
félagsmálaráðuneytisins.
Meirihlutinn telur
f járhagvandann
400-600 milljónir
Meirihluti nefndarinnar, þ.e.
Ólafur Helgason, formaður
nefndarinnar, sem skipaður var
af Vestmannaeyjakaupstað, og
Gylfi tsaksson, verkfræðingur,
sem skipaður var af félags-
málaráðuneytinu, telja m.a., að
bæjarsjóð Vestmannaeyja vanti
nú 400-600 milljónir til þess að
fjárhagsstaðan verði eðlileg
miðað við önnur sveitarfélög á
landinu. 1 framhaldi af þvi sam-
þykkti meirihluti nefndarinnar,
að fyrir siðustu áramót skyldu
tekin til hliðar skuldabréf i eigu
Viðlagasjóðs að nafnvirði 400
milljónir. „Bréf þessi verði ekki
tekin með I skuldauppgjöri Við-
lagasjóðs við Seðlabankann, en
tekjur af þeim hins vegar notað-
ar til að bæta fjárhagsstöðu
Vestmannaeyinga með ódýrum
lánum og styrkjum”, eins og
segir i samþykkt meirihlutans.
Ekki heimild til
aö ráðstafa eignunum
Blaðið hafði i morgun sam-
band við Þráinn Eggertsson,
hagfræðing, sem situr i nefnd-
inni fyrir hönd Seðlabankans, og
spurði um afstöðu hans til til-
lagna meirihlutans. y
„Ég lét fylgja nokkrar at-
hugasemdir með skýrslu þeirri,
sem úttektarnefnd sendi rikis-
stjórninni”, sagði Þráinn.
„Kjarninn i athugasemdum
minum er þessi:
1. Störf nefndarinnar eru alls
ekki komin það langt, að unnt sé
að nefna einhverjar tölur um
fjárhagsvanda Vestmannaeyja-
kaupstaðar.
2. Ég taldi það alls ekki ljóst,
að stjórn Viðlagasjóðs eða rikis-
stjórnin hefði heimild til að ráð-
stafa eignum Viðlagasjóðs að
óbreyttum lögum. Og jafnframt
ekki hlutverk nefndarinnar að
skera úr þvi máli”, sagði Þrá-
inn. —ESJ.